Fréttablaðið - 30.07.2006, Side 46

Fréttablaðið - 30.07.2006, Side 46
ATVINNA 28 30. júlí 2006 SUNNUDAGUR MEIRAPRÓFSBÍLSTJÓRAR ÓSKAST Viltu koma í skemmtilega og lifandi vinnu hjá stærsta bílaflutningafyrirtæki landsins? Okkur vantar menn núna! Hafðu samband við Bjarna í síma: 567-6700 VAKA EHF • Eldshöfða 6 • S: 5676700 Epal hf. þarf á fleiru góðu starfsfólki að halda. Við óskum eftir að ráða þjónustustjóra og starfsmann á lager. Um er að ræða 100% framtíðarstörf. • Þjónustustjóri Þjónustustjóri hefur yfirumsjón með þjónustu við viðskiptavini, sér um að halda versluninni snyrtilegri og aðlaðandi og sinnir öðrum tilfallandi störfum. Við leitum að manneskju sem hefur reynslu af afgreiðs- lustörfum og góða almenna tölvukunnáttu, ríka þjónus- tulund, lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulögð, sjálfstæð og metnaðarfull í vinnubrögðum. Menntun og/eða áhugi á hönnun er mikill kostur. • Starfsmaður á lager Starfið felst í móttöku, skráningu og frágang vöru, ásamt umsjón með útsendingu á vörum. Leitað er að skipulögðum, hraustum, áreiðanlegum aðila sem er afkastamikill og þjónustulundaður. Við viljum ráða í þessar stöður sem fyrst. Nánari upplýsingar um störfin veitir Guðrún Hannele í síma 568 7733. Nánari uppl. um Epal er að finna á www.epal.is. Vinsamlega sendið umsóknir með starfs- ferilsskrá og uppl. um meðmælendur til epal@epal.is eða til Epal hf., Skeifan 6, 108 Reykjavík fyrir 15. ágúst. Epal er reyklaus vinnustaður. Okkur vantar starfsfólk til starfa við eftirtalin störf: Fjölbreytt starf á lager og við útkeyrslu. Við leitum að dugmiklum og samviskusömum starfs- manni til framtíðarstarfa við vörutiltekt í frystigeymslu fyrirtækisins og við sendistörf á litlum sendibíl. Æskilegt en ekki skilyrði, er að viðkomandi sé með lyftarapróf auk bílprófs. Pökkun og vörufrágangur í framleiðslu. Við leitum að dugmiklum og samviskusömum starfs- manni til framtíðarstarfa við pökkun og frágang við fram- leiðslu. Mjög snyrtilegt umhverfi og gott mötuneyti á staðnum. Ráðið verður í störfin sem fyrst. Allar nánari upplýsingar um starfið eru veittar í síma 569 2385 á skrifstofutíma. Umsóknir skulu sendar skrifstofu Emmessís hf. Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík eða á netfangið; emmess@emmess.is Atvinnumálanefnd og stýrihópur um arki- tektasamkeppni óskar eftir samstarfi um uppbyggingu á miðsvæði Álftaness. Sveitarfélagið Álftanes hefur ákveðið að gangast fyrir arkitektasamkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands um deiliskipulag miðsvæðis á Álftanesi en þar verða m.a. blönduð byggð íbúða, þjónustu, verslunar og atvinnulífs. Auglýst er eftir aðilum sem vilja byggja upp almennan verslunarrekstur, þjónustu, skrifstofurekstur, veitinga og ferðaþjónustu eða annan rekstur sem fellur að umhverf- isstefnu sveitarfélagsins. Sveitarfélagið Álftanes hefur ákveðið að efla þjónustu við eldri borgara á Álftanesi, með bættri heimaþjónustu og með því að bjóða upp á fjölbreyttari búsetuúrræði. Þannig er m.a. áformað að byggja allt að 40 þjónustu íbúðir og/eða öryggisíbúðir sem munu tengjast þjón- ustumiðstöð fyrir félags og heimaþjónustu. Af þessu tilefni er auglýst eftir samstarfsaðilum sem vilja koma að uppbyggingu og/eða rekstri slíkra búsetuúr- ræða fyrir eldri borgara. Sérstaklega er leitað eftir aðilum sem hafa reynslu af af þessu tagi. Áhugasamir sendi upplýsingar á skrifstofu Sveitarfélags- ins Álftanes, Bjarnarstöðum, 225 Álftanesi fyrir 20. ágúst n..k. merkt Sveitarfélagið Álftanes, Bjarnarstöðum, Atvinnumálanefnd Sigurður Magnússon, bæjarstjóri Sveitarfélagið Álftanes Sviðsstjóri Velferðarsviðs Borgarstjórinn í Reykjavík auglýsir lausa til umsóknar stöðu sviðsstjóra Velferðarsviðs Hlutverk og ábyrgðarsvið • Dagleg yfirstjórn og samhæfing starfskrafta Velferðarsviðs • Stjórnun velferðarmála í umboði velferðarráðs • Undirbúningur mála fyrir velferðarráð og ábyrgð á eftirfylgni með ákvörðunum ráðsins • Frumkvæði að undirbúningi stefnumótunar í velferðarmálum • Forysta í þróun og innleiðingu nýrra hugmynda og úrræða í velferðarþjónustu • Ábyrgð á starfs- og fjárhagsáætlun og annarri áætlanagerð fyrir Velferðarsvið • Samráð við félagasamtök og aðra hagsmunaaðila um velferðarmál • Samstarf við aðra opinbera aðila í velferðarmálum innan lands og utan • Þátttaka í samstarfi í yfirstjórn borgarinnar Hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Þekking og reynsla í stjórnun og mannaforráðum • Þekking og reynsla af stefnumótunarvinnu • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, einkum sveitarfélaga • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum • Hæfni í að koma fram og tjá sig bæði í tali og í skrifuðu máli • Hæfni til að tjá sig á ensku og norrænu tungumáli Borgarráð ræður í starfið að fenginni tillögu borgarstjóra. Borgarstjóri er yfirmaður sviðsstjóra. Um laun og önnur starfskjör fer samkvæmt reglum um réttindi og skyldur stjórnenda hjá Reykjavíkurborg og ákvörðun kjaranefndar Reykjavíkurborgar. Umsóknum skal skilað til skrifstofu borg- arstjóra í síðasta lagi 18. ágúst n.k. Upplýsingar um starfið veita Helga Jónsdóttir, sviðsstjóri Stjórnsýslu- og starfsmannasviðs eða Magnús Þór Gylfason, skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjóra. Velferðarsvið ber ábyrgð á velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar þ.m.t. barnavernd og félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa. Í því felst undirbúningur stefnumótunar í velferðarmálum, áætlanagerð, samhæfing og samþætting á sviði velferðarþjónustu, eftirlit og mat á árangri og þróun nýrra úrræða. Velferðarsvið sér enn fremur um rekstur margs konar miðlægrar þjónustu s.s. barnavernd, hjúkrunarheimili og sérhæfð heimili fyrir börn og fullorðna. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.