Tíminn - 03.01.1978, Blaðsíða 10

Tíminn - 03.01.1978, Blaðsíða 10
10 Þri&judagur 3. janúar 1978 ÞriOjudagur 3. janiiar 1978 11 Nýársávarp forseta íslands, dr. Kristjáns Eldjáms: Góöir áheyrendur. Vér stöndum nú i dyrum nýs árs. 1 dag er fyrsti dagur hins fyrsta mánaðar í nýju ári, fyrsti janúar. Mörgum er kunnugt aö þetta mánaöarnafn er úr latinumáli og dregið af orði sem merkir bogi eöa hliö og einnig er það nafn hinna fornu Rómverja á goðmagni dyra og hliða, sem sýnt var á myndum i llki mannveru meö andlit i tvær öndverðar áttir, aftan og framan á höfði. Eins og guðinn horfa dyr bæði út og inn, aftur og fram i senn. Það gera áramótin einnig, mánaðarnafnið minnir oss á það, dyramánuður. Að skyggnast um, horfa til átta, er rikur þáttur I mannlegu eðli, en hitt er misjafnt i hvaða átt er fastast horft. Til eru eða hafa verið þjóðir, sem eiga þann þátt einna sterkastan i menningu sinni að sjálfsskynjun einstaklingsins er rammlega tengd forfeðrum hans, bæði lifs og liðnum. Horft er fast um þær dyr sem aö fortið ættstofnsins vita. Kunnugt er einnig um menningarsamfélög þar sem hver athöfn manns i þessari jarðvist miðast við það takmark að eiga að lokum fyrir góðri kistu og útför svo sæmilegri, aö sáljnni sé vel borgið i nýrri tilveru. Þar er horft um langvegu til hins ókomna og ókunna. Þetta eru tvennar öfgar i sjálfsskynjun og lifs- viðhorfi, og ef til vill eiga þær nú orðið helst heima i menningarsögunni. Raunverulegra og flestum kunnara er það viðhorf, sem hefur verið og enn er til, að helga lif sitt hverri liðandi stund, kappkosta öðru fremur aö njóta hennar i sem fyllstum mæli og láta hvorki fortið né framtið skyggja á hana. Griptu dag- inn, njóttu stundarinnar, eru gömul kjörorð, sem margir góðir menn hafa ritað á skjöld sinn og reynt að lifa eftir. Sagt er að i sumum löndum,sem kennd eru við vestræna menningu.beri á vorum dögum talsvert mikið á þeirri lifsstefnu, sem hvorki'tekur mið langt aftur né langt fram, heldur yerður réttilegast kennd við einskonar timalaust nú. Slíkt og þvilikt munu sumir kalla léttúð og andvaraleysi, en aðrir munu kenna það frjóa lífsnautn, gleðina yfir þvi að vera til, fá að vera lifandi einmitt nú, óvþingaðir af byrði sögunnar eða áhyggju hins ókomna. En flestum mönnum mun reyndar vera eðlilegt að skyggnast bæði aftur og fram frá hverjum áfanga á lifsleiðinni. Slik igrundan og fyrirhygggja hefur löngum einkennt oss Islendinga, enda hefur land vort með kostum sinum og ókostum hvatt til þess mörgum öðrum fremur. A þessum hátiðum vona ég að sem flestir landsmenn hafi mátt njóta sannrar jóla- og nýársgleði, þótt vér hvorki viljum né getum annað en séð fyrir oss dyrnar tvennar, til hins liðna og til hins komanda. Um leið og vér höldum hátið viljum vér reyna að gera oss grein fyrir hvar vér erum á vegi stödd, hvernig oss farnaðist á leið vorri i þennan áfanga og hvað blasir við þaðan. Vér sjáum fyrir oss þær dyrnar sem að baki oss liggja, þær sem vér höfum gengiö út um fyrir skemmstu og aldrei verður gengið um framar, heldur aðeins horft, horft yfir siðasta spölinn, árið sem leið, og svo lengra aftur eftir þvi sem hver hefur skyggni og minni til. Þess má vænta að hugur hvers og eins hvarfli þá fyrst að einkahag, persónulegum farnaði, hversu verið hefur á liðnu ári. Gleði og sorg, höppum og slysum, mun hafa verið misskipt milli mannsins barna nú sem endranær, og þarflaust að setja á ræður um þá gamalkunnu mannlegu reynslu. En ekki skyldum vér, sem eigum þvi láni aö fagna að aka heilum vagni heim um þessi áramót, láta undir höfuð leggjast að leiöa oss Úrkostir vorir til sj álf sbj argar eru margir og miklir það i hug með auðmýkt og þökk, en umfram aílt ineð samhug með þeim sem ekki hafa notið sömu náðar. Að gleðjast með glöðum og hryggjast með hryggum eru orð sem ætið munu standa I góðu gildi, og hollt er einnig að láta sér ekki gleymast hið fornkveðna, að guð mun ráða hvar við dönsum næstu jól. En hvernig hefur oss vegnað sem þjóð á liðnu ári, þegar alls er gáð? Margir gerast til að svara þeirri spurningu, og sýnist sitt hverjum i sumum greinum eins og oft ber við. Þó verður ekki um það deilt, að árferði hefur verið gott, atvinnuvegir landsmanna gjöfulir og markaðir yfirleitt hægstæðir. Og þetta er fyrsta heila árið sem vér höfum búið við hina óraviðu islenzku landhelgi. Höfum vér i raun og veru gert oss, svo sem vert væri, grein fyrir hvilik stórmerki og timamót þetta eru i íslandssögunni? Þetta er eins og nýtt landnámsár. Vist er margs að minnast sem gott er og gleðilegt. Það er trú min og von að sæmileg afkoma sé nú manna á meðal, enda hefði oss annars hrakið meira en litiö af þeirri leið sem vér höfum einsett oss að halda. En skugga ber á, þar sem eru efnahagsvandkvæði þjóðfél- agsins i heild. Stjórnmálamennirnir, þeír sem fyrir svörum sitja um landsins gagn og nauðsynjar, fara ekki dult með þetta, enda finnur hver maðurá sjálfum sér að ekki er allt sem skyldi. Það er orðin heldur ófrumleg samliking að kalla samfélagið þjóðarskútu, en hún er nærtæk fyrir farmanna- og fiskimannaþjóð eins og oss íslendinga, og vel má hún enn duga. Sigling þessarar skútu hefur löngum gengið upp og ofan og er það ekki nema að vonum. Veður og vindur eru mis- lyndar höfuðskepnur, vér höfum lært að búa við þær og sjóast á langri leið, það er íslandssagan, og skútan flýtur enn og siglir. En á vorri tið hefur ein skepna enn komið til sögu. Það er hákarl i kjölfarinu og heitir verðbólga: ljótt nafn og hæfir ljótri skepnu. Ég spyr sjálfan mig, og ef til vill spyrja þess margir, hvort ekki sé grálega gert að trufla nýjársdagshelg- ina með einni verðbólguræðunni enn. Von er að menn spyrji, en hver getur látið eins og ekkert sé, þegar vábeiðan blasir við allra augum? Vér tslendingar erum að visu siður en svo einir um að glima viö verð- Dr. Kristján Eldjárn bólguvanda, en þvi miður fáum vér ekki leyst oss und- an þvi ámæli að hafa alið þennan ófögnuð árum og ára- tugum saman i meira óhófi en flestir aðrir, uns svo er komið sem komið er. Mikil er sú fyrirmunun að skepn- an skuli verða þvilikur ofjarl skapara sinum, og er litil bót I máli þótt þess séu fleiri hrikaleg dæmi i mann- heimi, eins og þegar þjóðirnar segjast viija takmarka hergagnaframleiðslu um leið og þær vigbúast geipileg- ar en nokkru sinni fyrr. Það er engu likara en vopnin æxluðust af sjálfsdáðun, þvert ofan i vilja mannanna. Eitthvað svipað gæti sýnst um verðbólguna á Islandi. En þvi tek ég þannig til orða að enginn á landi voru lætur á sannast að hann fordæmi ekki verðbólguna og allt hennar athæfi. Segja má að það sé litill vandi bæði fyrir mig og aðra að velja henni hæðileg orð, litill vandi að tala, litill vandi að skrifa, en hitt sé þrautin þyngri að finna ráð sem duga. Þó veit ég ekki nema telja megi með gleðitíðindum liðins árs að aldrei hafa ménn i ræðu og riti verið jafn sammála og einmitt nú undir árslokin um þá þjóðarnauðsyn að koma einhverju tauti við ofvöxt verðbólgunnar. Ég tek mark á þessu og efast ekki um að af einlægni er talað, og hvi skyldum vér þá ekki vona að gott megi eftir fylgja? Aftur á móti tek ég ekki mark á brigslum og hnippingum um það hverju eða hverjum sé um að kenna vændkvæði vor. Þetta er orðinn langur slóði og margt og margir koma þar við sögu. Þegar verðbólgualdarfar hefur náð að festa ræt- ur er álika fánýtt og það er vandasamt að eltast við einstaka sökudólga. Vissulega nýttum vér krafta vora betur með þvi að beita þeim sameiginlega að sameig- inlegum vanda. Þvi að hætt er við hvað sem sagt kann að vera i umræðum dagsins, að enginn sem einhvers er megnugur fái að lokum undan þvi skotist að eiga ein- hvern hlut að þeim varnaraðgerðum, sem vér hljótum að eiga fyrirhöndum. Bólu-Hjálmar var tæpitungulaus maður. Einu sinni kvað hann þessa fleygu visu: Fari mammon flár úr skut fyrr en sjór er rokinn, annars stelur hann öllum hlut i vertiðarlokin. Hver veit nema hann hefði verið til með að snúa þessu upp á verðbólauna ef hann væri enn á dögum. Hann heföi þá hitt vel I mark enda liggja margir þræöir milli verðbólgu og mammons sem visan er um. Þegar vér nú snúum við blaði og horfum út og fram um dyr áramótanna er ekki eins bjart yfir og vér mundum óska, þvi að skuggi efnahagsvandans fylgir oss inn i nýja árið. Spár eru ekki hagstæðar og raska hugarró margra. Þó ekki svo að nein örvænting riki eða menn efist I alvöru um að úr muni rætast nú eins og jafnan áður þvi að þröng i þjóðarbúi er engin nýjung. Langt yrði syndaregistur verðbólgunnar ef allt væri upp talið en þó væri hörmulegust afleiðing allrar þeirrar upp lausnar ef hún skerti trú vora á landið og möguleika vora til að lifa þar hamingjuriku lifi af sjálfra vor efnum og úrræðum. Það er ógeðfelldur bar- lómur fólginn i að klifa á að vér séum fáir, fátækir smáir. Og það er búið að hamra of mikið á þeim hálf- sannleik að tsland sé á mörkum hins byggilega heims og fundinn upp af útlendingum. Gests augað er ekki alltaf glöggt. Enskur maður ágætur sern ferðaðist hér á landi 1772, sagði að svo gæti virst sem ísland hefði alls ekki verið skapað handa mannlegum verum, heldur minnti það á eftirskilið bersvæði,ætlað náttúr- unni einni til að hamast þar með alls konar afganga sem hún gæti hvergi notað til gagns og til að ærslast með skyndisýningum á heljarafli sjálfrar sin. . Og minnast má hinna fornu orða sem Ketill flatnefur forfaðir vor allra viðhafði um ísland I árdaga: ,,I þá veiðistöð kem ég aldregi i gamals aldri”. I hans munni var veiðistöð harkapláss i úteyjum til þess eins nýtilegt að liggja þar við fiskveiðar á vertið. Hann áleit að Is- land væri helst ekki byggilegt mönnum rétt eins og Bryce hinn enski þúsund árum siðar. Báðir höfðu nokkuð til si'ns máls. Vist er ísland leik- vangur aðsópsmikilla náttúruafla, einn hinn mesti i viðri veröld. Það höfum vér fengið að reyna bæði fyrr og nú og vist er Island veiðistöð ein hin mesta I heimi. En þó höfðu báðir rangt fyrir sér og það svo geypilega að það sem þeir fundu landinu til foráttu má að veru- legu leyti teljast meðal þess sem gerir Island að góðum og lifvænlegum mannabústað. Það sönnuðu börn Ketils flatnefns sjálfs og aðrir landnámsmenn,það hafa allar kynslóðir siðan sannað og þó engin eins og sú sem nú lifir I landinu. Þeir gættu þess ekki góðu menn,að vist eru lönd misjöfn frá náttúrunnar hendi og eru sum kölluð mild og sum hörð en um leið gæddi hinn hæsti höfuðsmiður manninn viti og þreki til að laga sig að ólikum kostum nær allra landa. Og það hefur þjóð vor gert I þessu norðlæga landi, sem kennt er við is, það er- um vér enn i óða önn að gera og raunar aldrei sem nú. Gleymum þvi ekki að i aðlögun að eðlisfari þessa lands, i viðnámi gegn þvi, i sigurvinningu yfir þvi og sáttargjörð við það, hefur islenzk menning skapazt. Að bera sig upp undan landinu, sem vér byggjum, á skylt við að óska þess að Islensk þjóð hefði aldrei oröið til eins og hún er og það afbrigði mannlifs sem vér köllum islenzka þjóðmenningu. 1 rauninni er það ónýtisiðja að reyna að gefa Islandi einkunn i hópi landa. Það nægir að það er ættland is- lensku þjóðarinnar og hér eru oss örlög sköpuð. Vér megum treysta þviað þetta er land mikilla möguleika. Og vér megum vera stolt af þeirri menningararfleifð, sem er arðurinn af lifi og starfi kynslóðanna i þessu landi. Og þrátt fyrir ýmsan ófullkomleika, sem synd væri að segja.að ekki væri haldið á loft, megum vér vel vera upp með oss af þvi sem komið hefur verið til leið- ar á siðustu áratugum. Vér sjáum það.hvert sem vér litum og tökum það með oss fram á veg. Þjóðfélag vort er meðal þeirra sem mesta farsæld bjóöa. Vera má að vér þurfum að leggja harðar að oss en sumir aörir til að halda i horfi, en ekki er þaö svo að þjóöarmein megi kalla. Vér erum ekki þrælar, nema þá vegna ofkröfu- gerðar um svonefnd lifsgæði, en þar eiga siður en svo allir óskilið mál. Ef til vill er slikt fylgikvilli I velferð- arsamfélögum, sem svo eru nefnd. Þegar vér litum fram á leiö,er vissulega ófátt, sem vakið getur vongleði og tilhlökkun. Skyldi það ekki vera tilhlökkunarefni að fá að taka þátt i að láta hina fornu veiðistöð hefjast til áður óþekkts blóma með til- komu og viturlegri nýtingu hinnar nýju og vlðu fisk- veiðilögsögu, fá að sjá sjávarplássin um landið allt halda áfram á glæsilegri uppleið sinni? Má ekki hlakka til að sjá mikla og margvislega möguleika þessa gamla landbúnaðarlands eflda og nýtta, enn sem fyrr, byggðum landsinsog þjóðinni allri til þroska og bless- unar? Verður ekki ævintýri að lifa þá stund þegar nær hvert byggt ból á þessu svala landi verður hitaö upp með heitu islensku oliunni, sem nú er hægt að sækja djúpt i iður jarðar? Ellegar að fá að neyta krafta sinna við beislun fallvatna og gufuhvera þangað til svo er komið að vér höfum vald á nægri innlendri orku til að standa undir arðvænlegum iðnaði, bæði stórum og smáum? Island hefur skilyrði til að verða iðnaðarland á borð við mörg önnur sem þegar eru það, og reyndar erum vér komin lengra á þeirri braut en ljóst var öll- um, það sjá menn nú skýrar eftir iðnkynningarárið sem leið, og skilja stórum mun betur en áður stöðu þessarar atvinnugreinar og nauðsynina á fslenskri iðn- væðingu. Hér hef ég aðeins nefnt nokkrar meginstoðir þess bjargræðis, sem er undirstaða alls annars. Ekki hefði veriðsíður skemmtilegt að geta hins fjölmarga á sviöi þjóðlifs, menningar og sjálfstæðis i' landi voru, sem vér höfum fulla ástæðu til að horfa fram til og takast á við með glöðum huga. Skal nú staðar numið að sinni, en þó ekki án þess að minnast þess sem mestu máli skiptir. I öllumstéttum og stöðum er nú i landinu fjölmenn ung kynslóð, vel menntuð, hraust og dugleg, fær i allan sjó. Eldri og yngri kynSlóð hafa ævinlega dæmt hvor aðra með nokkurri svo tortryggni. Reiðilestrar eru ekki nýtt fyrirbrigði. En það væri á engum rökum reist ef vér treystum ekki fslenskum æskumönnum til að ávaxta, auka við og bæta það sem þegar hefur verið gert, til þess að þjóð vor megi lifa i farsælu, réttlátu og heiöar- legu samfélagi i þessu landi. Þeim er engin vorkunn að taka til hendi, þvi að vel hefur verið að þeim búiö, og það munu þeir lika gera, enda væri annars til litils bar- ist. Mál mitt hér er hvorki jólaskraut né fagurgali á há- tiðisdegi. Úrkostir vorir til sjálfsbjargar eru margir og miklir og þá einnig skilyrði vor til menningar og ham- ingju, þess sem skáldið forðum kallaði gróandi þjóðlif. Þessu má treysta, og hitt hljótum vér aö vona, að oss auðnist að sigrast á þeim vandræðum, sem oss virðast á dapurlegri stundu tefla þessu öllu i nokkra tvisýnu, sigrast á hverju þvi sem situr um að hrifsa aflafeng vorn i hver vertiðarlok. Þann sigur vinnur enginn fyr- ir oss, og ekki vinnst hann heldur af neinum einum. En hann vinnst ef margir leggjast á eitt. Góðir landsmenn. Vér stöndum i dyrum hins nýja árs. Ég þakka yður samfylgdina á liðnu ári og óska yð- ur gleði og sálarfriðar. Megi hamingjan fylgja þjóð vorri, nú þegar hún stigur yfir þröskuldinn. Gleðilegt nýjár. F j árhagsmál bænda þung í skauti sagöi Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri um málefni landbúnaðarins síðastliðið ár ARIÐ hefur verið bændum fjár- hagslega þungt i skauti þó að það hafi verið gott hvað nátt- úrufar snertir. Má segja, að þar valdi gifurleg verðbólga og mik- ill tilkostnaöur á vissum liðum i búskapnum. Fjárfestingarmál- in verða sifellt erfiðari, og þeir bændur sem standa i fjárfest- ingum eða nýbyggingum, eru 1 vandræðum vegna þess hve dýrar þær eru, og tekjurnar hrökkva hvergi nærri fyrir þörfum. Svo hefur þurft að leggja nokkurt verðjöfnunar- gjald á bæði mjólk og kjöt vegna þess, aö útflutningsbætur voru ekki nægjanlegar á verðlagsár- inu ’76-’77. Meira var flutt út en svo, að lögbundnu útflutn- ingsbæturnar nægöu, þannig aö verðjöfnunargjaldið dró nokkuö, úr tekjum hvers bónda. Þó að það væri að visu engin ósköp, þá er þaö samt á sömu hliðina. Bændur sjá ekki fram á að þeir nái neinum verulegum hluta af þeim geysilegu hækkunum i krónutölu, sem hafa orðiö á tekjum annarra stétta á árinu 1977, og likur eru á að bændur nái aðeins litlum hluta af þeim. Það er mikið deiltum það hvað sé til ráða, og eru menn ekki á eitt sáttir um það. Hvað snertir veðurfar hefur tietta ár verið heldur gott fyrir andbúnaðinn. Og þótt árið hafi verið aðeins kaldara en i meðal- lagi, var þaö búskaparlega séð mjög veðragott. Spretta var frekar hæg framan af sumri og byrjaði sláttur þvi viðast hvar ekki fyrr en i júli.. , J Veöurvoruó- stööug fram eftir sumri á Suður- og Vesturlandi og sérstaklega á vestanverðu Noröurlandi, og gerði það allan heyskap erfiðan, en þó fengust allmikil hey. Hey- skapur norðan og austan lands gekk framúrskarandi vel. Og þegar á heildina er litið er hey-' fengur mikill, en gæði heysins eru þó viða i tæpu meðallagi. Þó mun fóðurgildi heyjanna i heild vera með mesta móti. Kýr mjólkuðu mjög vel, og kom þar til mikil kjarnfóðurgjöf i fyrra vegna útlits á mjólkur- skorti og hagstæðs verðs á kjarnfóðri. Málin æxluðust svo þannig i þeim efnum, að i haust hafði smjörfjall myndazt, en enginn mjólkurskortur gert vart við sig eins og menn höfðu ótt- ast. Sauðfjárafurðir urðu legar. Fé fjölgaði litif>„ogjWk? urðu aðeins rýrari en haustiö 1976. Það er þó ekki neitt sem teljandi er, sagði Halldór að lok- um. Nýr prófessor við guðfræðideild: Sr. Einar Sigur- björnsson dr. theol A Rikisráðsfundi að Bessastöðum á gamlársdag var sira Einari Sigurbjörnssyni dr. theol., sókn- arpresti aö Reynivöllum i Kjós, veitt prófessorsembætti við guð- fræðideild Háskóla Islands. Sira Einar var áöur sóknarprestur I Ólafsfirði og aö Hálsi i Fnjóska- dal. Hann stundaöi framhalds- nám og lauk doktorsprófi frá há- skólanum i Lundi I Svfþjóö. Aö undanförnu hefur hann annazt kennslu við guðfræöideild Há- skóla Islands auk prestsþjónustu aö Reynivöllum. Jólatrésskemmtanir voru fjölmargar og fjölsóttar um hátfðarnar og hór jást jólasveinar syngja fyrir reykvisk börn á Hótel Sögu. Eitthvaö viröist höfuöfat eins þeirra koma undarlega fyrir sjónir, en þaö gilda sömu reglur fyrir jólasveina og aðra stjórnendur vélhjóla. *

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.