Tíminn - 03.01.1978, Blaðsíða 4
Þri&judagur 3. janúar 1978
„Bókmenntastarf þarf
að vera almennt í
landinu’ ’
Hæða próf. Jónasar Kristjánssonar við
afhendingu bókmenntaverðalauna
Hithöfundasjóðs Híkisútvarpsins
Herra forseti Islands, ráöu-
neytisstjóri Menntamálaráöu-
neytis og aörir góöir gestir.
Fyrir hönd stjórnar Rit-
höfundasjóös Rikisútvarpsins
býö ég ykkur öll innilega vel-
kominn hingaö í Þjóöminjasafn-
iö. Hér mun nú fara fram árleg
styrkveiting úf Rithöfunda-
sjóönum, svo sem venja er á
þessum staö og stundu.
Sjóöurinn var stofnaöur og tók
til starfa áriö 1956 og er þvi
þessi veiting hin tuttugasta og
önnur I rööinni. Alls hafa 50
skáld og rithöfundar hlotiö styrk
aö meötöldum þeim sem fá
hann aö þessu sinni.
Rithöfundasjóöurinn varö til
meö samkomulagi milli Is-
lenskra rithöfunda og forstööu-
manna Rikisútvarpsins. Höfuö-
stóll var myndaöur meö fram-
lagi útvarpsins en þótt hann hafi
nokkuö veriö aukinn á liönum
árum, þá hefur verögildi hans
lækkaö smátt og smátt eins og
flestra annarra sjóöa á landi
hér. Þvi hefur veriö reynt aö
auka öörum tekjulindum viö
vexti sjóösins. Er þar I fyrsta
lagi um aö ræöa árlegt og hækk-
andi framlag útvarpsins og I
ööru lagi „rithöfundalaun sem
Rikisútvarpinu ber aö greiöa
samkvæmt samningi en höfund-
ar finnast eigi aö”, eins og
kveöiö er aö oröi I skipulagsskrá
sjóösins.
Einn af kunnustu bókmennta-
fræöingum okkar segir svo i
inngangsoröum aö einni bók
sinni:
„Timabundiö og hverfult er
verk bókmenntarýnandans.
Eftir skamma stund heyrir þaö
til liöins tima og er varla kunn-
ugt öörum en fróöleiksmönnum.
En hiö mikla listaverk varöveit-
ist og lifir. ódysseifur stendur
af sér öll siöaskipti. Hamlet
prins lifir af allar byltingar. A
Don Quixote bitur ekki þó aö
heimsveldi hrynji I rústir. Jafn-
vel litiö kvæöi getur varöveist
og lifaö þrátt fyrir breytingar
tlmanna eins og kvæöiö sem
Hóraz orti fyrir tveimur þús-
undum ára um úlfinn sem flýöi
hann vopnlausan:
Vammlausum hal og vita-
lausum fleina
vant er ey, boglist þarf hann
eiaöreyna...”
Viö getum vafalaust tekiö
undir þau orö Einars Ólafs
Sveinssonar aö verk bók-
menntarýnandans sé tfma-
bundiö og hverfult en I oröunum
felst engan veginn aö þaö sé fá-
nýtt eöa litils vert. Sumar bygg-
ingar eru geröar úr varanlegu
efni, aörar standa aöeins
skamman tima en gera þó sina
nytsemd meöan þær endast.
Ahrif rýnandans og annarra
samtiöarmanna skáldsins geta
veriö varanleg, gengiö aö
erföum frá kynslóö til kyn-
slóöar. Oft er sagt aö dómur
sögunnar sé réttlátur, þau verk
lifi sem veröskuldi þaö en hin
falli I gleymsku. En mér er nær
aö halda aö dómur sögunnar
geti stundum hallast nokkuö frá
réttu mundangshófi. Stundum
viröist svo sem annarleg öfl eöa
jafnvel duttlungar skáldatim-
ans ráöi miklu um langlifi eöa
skammlifi verkanna, hefji sum
til vegs en láti önnur hverfa I
skuggann. Þaö er vafamál —
eöa öllu heldur mjög ósennilegt
aö viö mundum enn syngja
Integer vitae ef Hóras heföi ekki
veriö ástmögur þjóöar sinnar
og kveöiö á heimstungu slns
tlma og ef ljóö hans heföu ekki
siöan veriö borin áfram af ofur-
valdi latlnunnar meöan hún var
tungumál hins svokallaöa
menningarheims.
A fundum i stjórn Rithöfunda-
sjóösins ber aö sjálfsögöu mörg
Jónas Kristjánsson flytur ræ&u slna er bókmenntaver&launin voru
afhent. Timamyndir GE.
skáldanöfn á góma, og viö fáum
aö sannreyna þaö orötak aö „sá
á kvölina sem á völina”. Þaö
sjónarmiö kemur oft fram aö
viö eigum ekki, af vanefnum
þessa sjóös, aö styrkja hina
mestu eöa kunnustu rithöfunda,
enda hafi þeir nú aö öllum jafn-
aöi hlotiö nokkra umbun sinna
afreka. Talaö er um aö hlynna
heldur aö hinum sem aö visu séu
vel frambærilegir, en ekki alveg
i fremstu röö. Og á þetta mega
þeir hlusta fulltrúar úr flokki
rithöfunda sem sæti eiga I sjóö-
stjórninni! Þá er reynt aö hug-
hreysta meö þvl aö segja sem
svo aö bókmenntastarfsemin
þurfi aö vera almenn, stór-
skáldin lifi á smáskáldunum,
lággróöurinn sé nauösynlegur
til aö stóru trén megi vel þrifast.
En hvaöa skáld eru stór,
hvaöa verk eru mikil, þegar öll
kurl koma til grafar? Skyldum
viö ekki ofmeta margt sem hin
svokölluöu höfuöskáld láta frá
sér fara af þvi aö viö skoöum
verk þeirra meö glýju I augum?
Skyldum viö ekki i verkum
ófrægari höfunda geta fundiö
mörg glampandi korn ef augu
okkar væru óhaldin? Ég leyfi
mér aö vantreysta dómi sög-
unnar og enn frekar vantreysti
ég dómi duttlungafullra og
stundum vilhallra samtiöar-
manna. Þvi treysti ég mér ekki
til aö halda þvi fram aö þeir
mörgu rithöfundar sem aldrei
hljóta styrk úr þessum sjóöi séu
örugglega meiri rithöfundar
heldur en þeir fáu sem styrkinn
hljóta.
Tekjur Rithöfundasjóösins
sem aö þessu sinni koma til út-
hlutunar nema aö krónutölu nlu
hundruöum þúsunda. Stjórn
sjóösins hefur ákveöiö aö skipta
þessari fjárhæö milli þriggja
rithöfunda, og koma þá' þrjú
hundruö þúsundir i hvers hlut.
Sjóöstjórnin hefur einróma
samþykkt aö styrkinn hljóti aö
þessu sinni eftirtaldir höfundar:
Gréta Sigfúsdóttir
Helgi Sæmundsson og
Siguröur Róbertsson.
Viö biöjum þau vel aö njóta,
árnum þeim allra heilla og ósk-
um ykkur öllum farsældar á
nýja árinu.
Verölaunahafar og gestir viö afhendingu bókmenntaverölauna RithöfundasjóOs Rlkisútvarpsins f ÞJóöminjasafninu á gamlársdag.
S tj ór nunarf élagið:
L
Húseigendur
Hafið þér gert áætlun
um viðhald á húsinu yðar?
Við aðstoðum
önnumst hverskonar viögerðir
Endurnýjum gler og gluggakarma
Viðgerðir - Nýsmíði
Kristján Ásgeirsson,
húsasmíðameistari Sími 53121
J
Háðstefna um þjóð
félagsleg markmið
og afkomu
Stjórnunarfélag tslands gengst
fyrir rá&stefnu um þjóöfélagsleg
markmiö og afkomu tslendinga
dagana 12.-14. janúar nk. aö Mun-
a&arnesi. Aöalræöumenn veröa
dr. Guðmundur K. Magnússon
prófessor og Dr. Gylfi Þ. Gisiason
prófessor og alþm. og Jónas H.
Ilaralz bankastjóri.
I fréttatilkynningu frá Stjórn-
unarfélaginu segir m.a.:
Aundanförnum árum hafa i ná-
grannalöndunum áttsér staö um-
ræöur um ný og breytt markmiö
iönvæddra þjóöa. Þannig sýnist
mörgum, aö áherzlan hvili frem-
ur I jafnréttis- og öryggismark-
miöum en hagvaxtarmarkmiö-
inu, sem hefur verið einkennandi
fyrir þessar þjóöir um árabil. Til-
gangur ráðstefnu SFI er að fjalla
um þjóðhagsleg markmið Islend-
inga og áhrif þeirra á lifskjör
landsmanna.
Þrir aðalræðumenn veröa: dr.
Gylfi Þ. Gislason, sem flytur
ræöu um þjóðfélagsleg markmiö
Islendinga, Jónas H. Haralz, sem
fjallar um spurninguna: ,,Er
hagvaxtarmarkmiöiö úrelt?” og
dr. Guðmundur K. Magnússon
sem ræðir um afkomu Islendinga
og stjórn efnahagsmála.
Þá veröur sérstaklega á ráö-
stefnunni rætt um stjórn efna-
hagsmála og stjórnun fyrirtækja
með tilliti til afkomu þjóöarinnar.
Stuttar ræöur um þessi efni flytja
Björn Friöfinnsson fjármála-
stjóri, Helgi Bergs bankastjóri,
Hörður Sigurgestsson fram-
kvæmdastjóri, Asmundur Stef-
ánsson hagfræöingur, Davlö Sch.
Thorsteinsson forstjóri, Erlendur
Einarsson forstjóri, Jón Páll
Halldórsson forstjóri, Magnús
Gústafsson forstjóri og Þröstur
Ólafsson framkvæmdastjóri.
Umræöuhópar munu ræöa af-
markaða þætti efnisins, en ráö-
stefnunni lýkur með pallborðs-
umræöum.