Tíminn - 13.05.1978, Blaðsíða 1
Vorum beittir
þvingunum
— segir Björn Hólmsteins-
son oddviti varðandi
viðgerðina á Rauðanúpi
Verðnr
Fjala-
köttur-
inn
Fjalakötturinn viö Aðal-
stræti hefur verið boðinn
Reykjavikurborg til kaups, en
litill áhugi virðist á þeim við-
skiptum nema af hálfu selj-
enda. Nú er eigandinn, Þorkell
Valdimarsson, helzt á þvi að
rifa húsið og leigja grunninn
undir bilastæði.
Maður skyldi ætla aö þessi
mikla húseign i hjarta höfuð-
borgarinnar væri mikils virði,
en eigandinn hefur helzt til
litið upp úr eign sinni. Aðeins
um þriðjungurhússins er nýtt-
ur, og þegar greiddir hafa ver-
ið skattar af leigutekjunum,
eruaðeins eftir um 25 þús. kr.,
sem duga eiga I viðhald þessa
gamla, störa húss. Fasteigna-
gjöldin af lóðinni eru jafnhá og
af Morgunblaðshöllinni, sem
óneitanlega nýtist mun betur
en Fjalakötturinn gamli.
Ekki munvænlegt að kaupa
hús á þessum stað til að rifa og
byggja þar upp, þvi framtið
Grjótaþorps er óráðin og guð
og skipulagsyfirvöld ein vita
hvort og hvenær þar fást
byggingaleyfi.
Til að hafa einhverjar tekjur
af eign sinni við Aðalstræti
ihugar Þorkell þvi nú að rifa
húsið og koma upp á staðnum
þvi fyrirtæki, sem mest er að-
kallandi i miðborginni — bila-
stæði — jo g leigja það. Að
sjálfsögðu fylgir þessu einnig
sá kostur að Hallærisplanið
vinsæla stækkar um helming
og unglingarnir, sem þangað
venja komúr sinar, fá aukiö
olnbogarými.
KEJ. — Aðeins 15 manns, af 50-60
sem undir venjulegum kringum-
stæðum vinna í frystihúsi Jökuls
hf. á Raufarhöfn, eru nú að störf-
um i frystihúsinu og verður að
öllu óbreyttu sagt upp i áföngum
næátu vikurnar, en fólk þetta
hefur verið fastráðið. Enginn
fiskur er nú i húsinu til verkunar,
en eins og kunnugt er strandaði
togari Jökuls hf., Rauðinúpur, i
fyrri mánuði og fékk að standa i
nær þrjár vikur uppi i slipp i
Reykjavik án þess að unnið væri
við hann.
Að sögn Björns Hólmsteinsson-
ar, oddvita á Raufarhöfn og
stjórnarformanns Jökuls hf ..óttast
menn að ekki takist að gera við
togarann hér innanlands á
umsömdum tima. Þá kvaðst hann
ver mjög óhress yfir þeim
þvingunum sem Raufarhafnar-
búar voru beittir i þessu máli,
ekki sizt af hálfu iðnaðarráðu-
neytis. Með þvi að útgerðin var
þvinguð til að láta viðgerðina á
togaranum fara fram innanlands
verður hann lengur frá veiðum
auk þess sem útgerðin mátti taka
á sig aukalega a.m.k. 10-12
milljóna kr. kostnað. A sama
tima, sagði Björn, fer hvert
loðnuskipið á fætur öðru Ur landi
'til breytinga upp á tugi og
hundruð milljóna.
Þá sagði Björn að þvi erfiðara
yrði að komast i gang aftur sem
lengur liði, og nú þegar væri allt
fariö að snúast aftur á bak, bæði i
•rekstri útgerðarinnar og atvinnu-
lifi kauptúnsins, en togarinn
RauðinUpur hefur undanfarin
nokkur ár verið sem slagæð
atvinnulifsins. Eins og stendur
blasir við atvinnuleysi og
rekstrarörðugleikar, sem ekki er
séð fyrir endann á.
Uppsagnir á Raufarhöfn:
Sauöburður er nú aö hefjast og mikill annatími I sveitum. Viðast
hvar bera ærnar I húsi, eða við hús og yfir þeim er vakað allan
sólarhringinn. Sumir bændur búa rúm úti i fjárhúsi og leggja sig
um lágnættið milli þess, sem þeir llta eftir ánum. En þótt mikil
sé vinnan er sauðburðurinn mikill ánægjutlmi I sveitinni.
Sérstaklega finnst yngstu kynslóðinni þessi tlmi ánægjulegur, og
mörg eru þau borgarbörnin, sem þá fá að skreppa I heimsókn til
afa eöa ömmu, frænda eða frænku, og fylgjast meö þegar lömbin
eru að fæðast.
Meðfylgjandi mynd tók MÓ af nýfæddum lömbum vestur I
Geiradalshreppi fyrir fáum dögum, en á bls. 13 er vifttal viö ung
hjón, sem fluttu þangað si. haust og hófu búskap.
De Gaulle
13. mai
1958
Bls. 10 og 11
Nú fer hvltasunnuhelgin Ihönd, fyrsta feröahelgi sumarsins sem
eitthvað kveftur að. Sumir halda á misjafnlega góðum bflum sin-
um út á misjafnlega góöa vegi, sem eru aö byrja aö jafna sig
eftir rysjóttan vetur. Aðrir setja hafurtask sitt I nokkrar töskur
og tjaldpoka og stlga upp I rútu eöa flugvél og flestir fara auövit-
aö til aö leita uppi sól og gott veöur, svona til aö hvila sig eina
helgi á rosanum hérna7á súöurhorninu. ~ Timamynd Róbert.
Var neitað
um rann-
sókn og
fæddi
vangefið
barn
Legvatnsrannsóknir gefa 100% öruggt svar viö þvi, hvort ófætt
barn veröur mongóliti eöa ekki. A bls. 20 og 21 er rætt viö Ron
Berry, brezkan erföafrsöing/ sem starfar hér á landit um
framtiöarmöguleika sllkra rannsókna hér. Einnig er I opnunni
viötal viö 38 ára gamla konu, sem gekk I gegnum þaö I marz sl.
aö eignast vangefiö barn. Þessari konu haföi veriö neitaö um
legvantsrannsókn hjá þremur iæknum, enda þótt hún hafi veriö
á svokölluöum hættuaidri.
Tíminn heim
sækir Vest-
mannaeyjar
bls. 12-13