Tíminn - 13.05.1978, Blaðsíða 3

Tíminn - 13.05.1978, Blaðsíða 3
Laugardagur 13. mal 1978. 3 íslenzkum lögfræðingum gefst kostur á blessun páfa Dómarar, lögmenn, lagaprófessorar og lagastúdent- areru boðnir til þátttöku á 9. al- þjóðaráðstefnu lögfræðinga sem haldin verður í Madrid höfuð- borg Spánar 16.-21. sept. 1979. Tilkynning þessa efnis hefur borizt Páli S. Pálssyni, hrl., landsformanni The W orld Peace Through Law Center og hann beðinn að koma þessum fréttum á framfæri, svo að islenzkir þátttakendur gætu hugað að þvi i tima að undirbúa för sina. Siðasta alþjóðaþing var sem kunnugt er háð i Manila á Filipseyjum i ágústmánuði 1977 og var Páll eini islenzki þátttak- andinn þar. Nú horfir málið öðruvisi við, þegar Evrópuriki hefur orðið fyrir valinu. Alþjóðaþingið veröur til húsa i „Palace of Congresses” i Madrid, sem er talin stærsta ráðstefnuhöll i Evrópu, staðsett aðeins 8 km. frá nýja Barajas flugvellinum, sem getur tekið á móti yfir 6000 farþegum á klst. Þess er getið i fréttatilkynn- ingunni að þátttakendum ráö- stefnunnar, þeim er þess óska, gefst kostur á þvi sunnudaginn 23. sept. eftir þingslitin að stiga á fund páfans i Róm og taka á móti blessun hans. Stjórn Lögmannafélags Is- lands að Óðinsgötu 8 i Reykja- vik gefur nánari upplýsingar um boð þetta, en eigi liggur enn fyrir nákvæm dagskrá. Er t.d. ekki hægt að gera hópferðaáætl- un fyrr en kunnugt er um þátt- töku á ráðstefnunni Gunnar Stöbakk skipstjóri. Timamyndir: G.E. Lokaðir linuveiðarar reynast vel. Gunnar Stöbakk, skipstjóri sagði okkur að Joffre væri þriggja ára gamalt, og hefði skipið kostað fullbúið 4.3 millj- ónir norskra króna, en nú kost- uðu slik skip um það bil 6 miilj- ónir norskar. Svo góð reynsla væri af þessu skipi, sem væri með 11 manna áhöfn, að nú væri búiðað smiða ogafgreiða um 20 svona skip. Mikillar hagkvæmni er gætt á öllum sviðum, og aðstaða til vinnu er m jög góð. Þá eru ibúðir skemmtilegarog öll þægindi um borð fyrir áhöfnina svo sem þvottavél, þurrkari fyrir tau, baðherbergi og stór og skemmtilegur matsalur er i skipinu með litasjðnvarpi og stereotækjum (segulband). Fullkomið hátalararkerfi er i skipinu. Þannig getur skipstjór- inn talað við háseta sina undir þilfari, þar sem þeir eru við vinnu sina, og kemur þá ekki að sök, þótt skipverjar sjáist ekki. Joffre getur einnig verið á netaveiðum og er á netum á vetrarvertið i Noregi. Talið er að útgtrð slikra skipa borgi sig, ef ársaflinn er seldur fyrir um 250 milljónir króna. Við leggjum mikla áherzlu á vöruvöndum, sagði skipstjór- inn. Til mála kæmi að taka upp frekari vélvæðingu — og verður það vafalaust gert siðar. T.d. er vélabeiting um það bil að verða að veruleika, og til eru vélar til þess að hausa og fletja, en þær eru liklega of dýrar til þess að það svari kostnaði. Við gerum þetta allt sjálfir og vinnan geng- ur vel. JG. Norski linuveiðarinn Joffre. Ný gerð línuveiðara við ísland Norskir, yfirbyggðir linuveiðarar hafa reynzt vel Á föstudag komu til Reykja- vikur tveir yfirbyggðir linuveið- arar frá Álasundi i Noregi, en skipagerð þessi er tiltölulega ný af nálinni. Litazt um undir þiljum Viðlögum leið okkar um borð i annað linuskipið, M/S Joffre frá Álasundi, og þar hittum við að máli skipstjórann, sem er ungur maður, Gunnar Stöbakk að nafni. Hann varð góðfúslega við þeirri beiðni að sýna okkur skipið, sem er mjög nýstárlegt. Joffre er um það bil 200 tonn aðstærð. Stýrishús og kortaklefi eru í brú, sem er nokkuð há yfir efra þilfar, þannig að vel sést til allra átta. Undir þilfari er vinnusalur, þar sem gert er að fiski undir þiljum. Linan er dregin inn um op á siðunni. Beiting fer fram i lokuðum gangi stjórnborðsmeg- in og línan fer út um op á skutn- um. Þessu opi er unnt að loka, sömuleiðis opinu, þar sem linan er dregin inn. Vinna fer öll fram undir þil- fari. Fiskilest er undir vinnuþil- farinu. M/S Joffre er búið margvis- legum tækjum, fisksjá og dýpt- armælum og skipið hefur gýro- áttavita og sjálfstýringu. Meðal nýmæla eru jafnvægis- tankar undir brúnni, en þeir draga 60% úr veltu skipsins, þannig að hreyfingar þess eru litlar, amk. miðað við stærðina, en þetta er fremur litið skip. Skipin stunda veiðar vestur af Islandi. Þorskur er saltaður um borð en annar fiskur er heil- frystur. Frostgeymsla fyrir beitu er aftast i skipinu. Eru skipin 7 vikur i þessum ferðum, og aflahlutur var fyrir svona túr i fyrra um ein oghálf milljón is- lenzkra króna. Skagamenn hef ja vörnina í Reykjavík 1. deildarkeppnin i knattspyrnu hefst i dag Baráttan um tslandsmeistara- titilinn i knattspyrnu liefst nú um helgina og verður barizt á fernum vigstöðvum. Nýliðar KA frá Akureyri leika gegn Breiðabliki á grasvellinum i Kópavogi kl. 15 i dag. A sama tima leika Vest- mannaeyingar gegn Vikingi i Eyjum. A þriðjudagskvöldið verða tveir leikir háðir — Islandsmeistarar Akranesshefja vörn sina á meist- aratitlinum með leik gegn Þrótti á grasvellinum i Laugardal kl. 20.00, og á sama tima i Keflavik leika Keflvikingar gegn FH. A miðvikudagskvöld verður siðan stórleikur fyrstu umferðarinnar i 1. deild — þá leika Valur ogFram á Laugardalsvellinum og má bú- ast við fjörugum leik i þessari baráttu „Austurbæjarrisanna”. Myndlista- og handiðaskóli íslands: Vorsýning 1978 Nemendur Myndlista- og hand- iðaskóla Islands halda á hverju vori sýningu á vetrarvinnu sinni. Sýningin opnar að þessu sinni i dag, laugardaginn 13. mai, og lýkur þann 15. mai. Aðgangur er öllum ókeypis,en nemendurselja kafi'i og vöfflur til ágóða fýrir ferðasjóð. Verkstæði skólans er opið á sýningartimum. Úrtak vorsýningarinnar er sýnt á tveim stöðum á göngum Kjarvalsstaða og á Mokka. Unnið aö uppsetningu sýningar- innar. Sá litli er greinilega að hugsa um eitthvað annað. Timamynd: Tryggvi Landsþing Junior Camber um helgina GV —Landsþing Junior Chamber félaganna á Islandi verður haldið nú um hvítasunnuhelgina i Hveragerði. Þar hittast félagar alls staðar af landinu og bera saman bækur sinar og ný lands- stjórn verður kjörin. Ennfremur verður keppt til úrslita i ræðu- keppni J.C. félaganna, sem ávallt setur mikinn svip á landsþingið. J.C hreyfingin er i stöðugum vexti og telur nú um 800 félaga, en félögin eruorðin mörg viða um landið og vinna að ýmsum fram- faramálum sins byggðalags. Nýlega voru stofnuð tvö félög inn- an J.C. hreyfingarinnar, J.C. Vik félag eingöngu skipað konum, stofnað af J.C. Reykjavik, og J.C. Stykkishólmur stofnað af J.C. Borgarnes. Munið kappreiðar Fáks 2. hvítasunnudag kl. 74

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.