Tíminn - 13.05.1978, Síða 21
Laugardagur 13. nial 1978.
21
a * Tt
t * 4
* „ /» *
Litningar úr eðlilegum dreng, einnig 46.
Litningar úr frumu úr mongólita. Fruman hefur þrjá litninga nr. 21 og
47 litninga alls.
Leitaði til þriggja
lækna en fékk ekki
tekið legvatnspróf
Foreldrar 2 1/2 mánað-
ar gamals vangefins
drengs (mongólíta) höfðu
samband við Tímann
vegna fréttar, sem við
birtum á miðvikudaginn
um að legvatnsrannsókn-
ir væru senn að hefjast
hér á landi. Móðir
drengsins er 38 ára gömul
og átti þrjú heilbrigð börn
fyrir. Hún fór þegar í
upphafi meðgögnutímans
að velta því fyrir sér
hvortekki væri ástæða til
að gera varúðarráðstaf-
anir vegna þess að aukn-
ar líkur væru á því að
konur á hennar aldri
eignuðust vanheil börn,
en heimilislæknir hennar,
sem er kvensjúkdóma-
læknir, taldi hvorki
ástæðu til að fræða hana
um þessi mál né að taka
legvatnssýni og senda til
rannsóknar. Síðar ræddi
hún málið við tvo aðra
lækna og fékk sömu
undirtektir.
— Sennilega fór ég að hugsa
þessi mál af þvi að vinkona okk-
ar hjónanna hafði nokkru áður
eignazt vangefið og hreyfihaml-
að barn, sagði móðir litla
drengsins I viðtali við Timann.
Hún og eiginmaður hennar
kjósa fremur að láta ekki nafna
sinna getið.
— Það var því, að strax og ég
fer til heimilislæknisins og bið
um venjulega rannsókn til stað-
festingar þeim grun minum að
ég sé ófrisk, að ég fer að ræða
við hann um hvort ekki sé
óæskilegt að eignast barn á
þessum aldri. Hann svarar þvi
til að ég eigi þrjú yndisleg, heil-
brigð börn. Þetta sé enginn ald-
ur og ekki ástæða til sérstakra
aðgerða. Læknirinn ræddi ekki
frekar við mig og skýrði mér
ekki frá hversu mjög likindin á
að eignast mongólita aukast
með hækkandi aldri. Ég vissi
um að hægt væri að taka leg-
vatnssýni og rannsaka, og það
var það, sem ég var i raun og
veru að spyrja um, hvort ekki
ætti að gera, en sennilega hef ég
Reynsla 38
ára konu í
Reykjavík,
sem eign-
aðist van-
gefið barn
í marz sl.
ekki haft nægilega einurð eða
verið nógu vel að mér til að
biðja um það beint.
— Ég held enn áfram að velta
fyrir mér málunum og við hjón-
in tökum skömmu siðar þá
ákvörðun að ég hringi á Heilsu-
verndarstöðina til að spyrjast
frekar fyrir, og bar ég sérstak-
lega um sérfræðing i simann.
Hann spyr hvort vangefni sé i
ættinni og hvað ég eigi mörg
börn, og telur ekki ástæðu til
neinna aðgerða. Ég hugsa með
mér að guð og lukkan verði vist
að ráða þessu.
Fannst mér þó einkennilegt
að hann skyldi ekki bjóða mér
að koma og ræða þessi mál nán-
ar við sig, þvi hann hefði mátt
heyra að ég hafði áhyggjur.
Þegar ég fer i mina fyrstu
skoðun á Heilsuverndarstöðina
hitti ég fyrir sama lækni og
minni hann á samtal okkar. Ég
spyr hvort ekki þurfi að gæta að
einhverjum hlutum þegar kona
sé orðin þetta gömul og eigi von
á barni. Hann kveður það ekki
vera og segir að ég sé alveg eðli-
lega sköpuð til að eiga barn, og
skoðun bendi til að allt sé i lagi.
Ég fer aftur i skoðun þegar 16-
17 vikur eru liðnar af með-
göngutimanum og hitti fyrir
þriðja lækninn. Enn spyr ég
hvort ekki sé varasamt að eign-
ast barn á þessum aldri. Mig
langi að visu til að fæða barnið,
en ég sé svolitið smeyk. Hann
ræddi málið ekki frekar við en
hinir stéttarbræður hans tveir.
f öll þessi skipti var ég að
biðja um upplýsingar en fékk
þær ekki.
— Manni verður á að hugsa til
hvers eru aukin þekking og vis-
indi ef þau eru ekki notuð. Vin-
kona okkar, sem áður hafði átt
vangefið barn, hafði verið mjög
veik um meögöngutimann og
barninu var haldiÖ i henni með
öllum tiltækum ráðum, en leg-
vatnspróf var ekki heldur tekið
hjá henni.
— Við höfum ekki getað kom-
izt hjá þvi aö velta þvi fyrir okk-
ur hvort læknarnir hafi ekki
sýnt vanrækslu i starfi, sögðu
foreldrar litla vangefna drengs-
ins. Þessir læknar fá full laun
greidd frá Reykjavikurborg
fyrir sina vinnu og við erum
skattgreiðendur, sem stöndum
undir þeim kostnaði. Til er
nokkuð sem nefnist húsbænda-
ábyrgð, ef starfsmaður veldur
tjóni með vanrækslu. Það er
ekki ný þekking að hægt sé að
taka legvatnssýni úr konum og
ganga úr skugga um hvort
fóstrið fæðist með litningagalla.
Hver ber ábyrgðina á þessari
vanrækslu? Eru læknarnir al-
gerlega ábyrgðarlausir? Okkur
hefur a.m.k. skilizt að laun
þeirra miðist við að þeir hafi
mikla ábyrgð.
Og svo er það fjármálahliðin.
Hve mikinn umframkostnað
verður þjóðfélagið að greiða
fyrir vangefið barn miðað við
heilbrigð börn allt til dauða
þess. Að við nú ekki tölum um
allan þann miska sem af þessu
stafar.
— Við viljum hins vegar taka
það fram að nú eigum við þetta
barn og það þroskast tiltölulega
mjög vel. Við komum til með að
sinna því eftir beztu getu, enda
á það allan rétt eins og hverjir
aðrir þjóðfélagsþegnar.
En á sinum tima var um ann-
að atriði að ræða, sem viö þurft-
um þá að taka afstöðu til. — Ég
finn mig knúða til að segja frá
þessu vegna þeirra verðandi
mæðra, sem eru i minum spor-
um eða eiga eftir að verða það,
segir móðir litla drengsins.
— Við viljum lika geta þess
sem gott er. Ungi barnalæknir-
inn, sem haft hefur veg og
vanda af barninu frá fæðingu,
hefur sýnt frábæra lipurð og
samvizkusemi og hreint og
beint tekið okkur að sér. Við
höfum getað leitað til hans um
ráð ef svo má segja hvort sem
hefur verið á nóttu eða degi.
— Við hörmum ekki það, sem
er búið og gert. Við sættum okk-
ur við það og vonumst til aö við
höfum þroska til að gera það
sem I okkar valdi stendur fyrir
litla drenginn okkar. sj
Fjölbreyttu vetrastarfi Skálholtsskóla
að ljúka
Um þessar mundir er að ljúka
vetrarstarfi Skálholtsskóla.
Skólaslit lýðháskóladeildar fóru
fram sunnudaginn 30. april, en
miðskóladeild verður starfrækt
til laugardagsins 20. mai.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
U mf erðarráðs
Framkvæmdanefnd Umferðar-
ráös hefur ráðið Óla H. Þórðarson
' framkvæmdastjóra Umferðar-
ráðs frá 1. júni n.k.
Óli H. Þórðarson er 35 ára.
Hann lauk prófi úr Samvinnu-
skólanum 1964, starfaði sem aðal-
bókari við Aburðarverksmiðju
rikisins til 1970, en hefur siðan
verið skrifstofustjóri hjá Hrað-
frystistöðinni i Reykjavik h.f. Að
undanförnu hefur hann fengizt við
dagskrárgerð hjá Rikisútvarp-
inu, jafnframt aðalstarfi.
Óli H. Þórðarson er kvæntur
Þuriði Steingrimsdóttur.
Nemendur Skálholtsskóla urðu
alls i vetur 38 talsins.og var skól-
inn fullsetinn. Sumarnámskeið áf
ýmsutagierufyrirhuguð, og mun
skólinn að öllu samanlögðu starfa
liðlega níu mánuði, svo sem lög
mæla fyrir um.
Félagslif stóð með nokkrum
blóma I Skálholti i vetur. Voru
félagasmálanámskeið, leiklistar-
námskeið og dansnámskeið á
vegum skólans en fjöldi fyrirles-
ara sótti staðinn heim vetrarlangt
að vanda. Hámark þessarar
starfsemi varð laugardaginn 22.
april, en þá efndu nemendur til
vorgleði i Aratungu. Skemmtu
þar söngflokkar ýmsir, þjóðsögu
var snúið i látbragðsleik, og nem-
endur fluttu gamanleikinn,,
Gullbrúðkaup” eftir Jökul
Jakobsson. Með helztu hlutverk i
„Gullbrúðkaupi” fóru þau Olga
Sædis Einarsdóttir frá
Stykkishólmi og Vilhjálmur
Sigurpálsson frá Hofeósi.
Auglýsið í
Tímanum
Körfubíll
Til sölu körfubill, Thames-Trader, á nýj-
um dekkjum.
Lyftihæð 10.5 m.
Tilboð sendist rafveitustjóra fyrir 20. mai
n.k.
Rafveita Hafnarfjarðar,
simi 5-13-35.