Tíminn - 13.05.1978, Blaðsíða 24
24
mMhíi
Laugardagur 13. maí 1978.
ATLAS &
YOKOHAMA
hjólbarðar
Hagstætt verð
Véladeild
HJÓLBARÐAR
BORGARTÚNI 29
SÍMAR 16740 OG 38900
Söngskglinn í Reykjavík
Tónleikar
Kór Söngskólans i Reykjavik ásamt Sin-
fóniuhljómsveitinni i Reykjavik flytja
Pákumessuna (Missa intempori belli)eftir
Haydn sunnudaginn 21. mai kl. 17 i Há-
teigskirkju.
Einsöngvarar: Ólöf Haröardóttir, Guðrún A. Simonar,
Magnús Jónsson,Kristinn Hallsson.
Stjórnandi: Garöar Cortes.
VCrK|NNvMM4ð
tala
NN
umboössala
Stálverkpallar til hverskonar
viöhalds- og málningarvinnu
úti sem inni.
Viöurkenndur
öryggisbúnaöur.
Sanngjörn leiga.
■bm| VERKPALLAR TENGIMÓT. UNDIRSTÖDUR
Vkrkpallari
VIÐ MIKLATORG.SÍMI 21228,
"1
í dag kl. 16:00 fyrirlestur og kvikmynda-
sýning: GUNNAR BRUSEWITZ frá Svi-
þjóð
SKOGUR
OG VATN
NORRÆNA
Veriö velkomin. HÚSIÐ
$
Bjallaplast framleiðir
lyfjaglös með öryggisloki
Verður íslenzk
framleiðsla einráð
á Norðurlöndum?
HEI — Jóhannes Pálsson heitir
framkvæmdastjóri iönfyrir-
tækisins Bjallaplast á Hvols-
velli, en fyrirtækið rekur hann i
samvinnu við hreppsfélagiö.
Bjallaplast framleiðir vatnsrör,
rafmagnsrör og margs konar
rafbúnað ásamt ýmiss konar
varahlutum i bila.
Jóhannes er jafnframt upp-
finningamaður og hefur undan-
farin ár unnið að þvi, ásamt
öðru, að finna upp örugga lokun
á lyfjaglös svo koma mætti i veg
fyrir hörmuleg slys er stafa af
þvi er óvitar komast i og gleypa
hættuleg lyf.
— Það er trúlega iangur að-
dragandi að þessari uppfinn-
ingu þinni Jóiiannes?
— Það er langt siðan ég fór að
velta þessu fyrir mér. Ég
kannaði hvað sótt hefði verið
um mörg einkaleyfi á einhverju
svipuðu erlendis og komst að
þvi að þau voru um 700á öldinni.
Margar af þeim hugmyndum
voru snjallar, en höfðu það
flestar sameiginlegt að út-
búnaðurinn var of flókinn og of
dýr i framleiðslu.
Eftir mikil heilabrot fékk ég
hugmynd sem ég taldi bráð-
snjalla, og vann að mótasmiði
úti i Danmörku á annað ár þar
til ég hafði leyst tæknilegu
vandamálin. En þá kom þaö upp
úr dúrnum að efnið sem ég not-
aði, stóðst ekki þær kröfur sem
heilbrigðisráðuneytið setur
varðandi þéttleika gegn raka,
lofti, birtu og fleiri atriðum.
Komst ég þá i samband við
Danmarks Tekniske Höjskole,
sem tók að sér að uppfylla þess-
ar kröfur. Þar vann ég að til-
raunum i nokkra mánuði unz
það tókst. Þá vildi svo til aö ég
fékk sent ennþá betra efni frá
Þýzkalandi, sem ég vildi þvi
fremur nota. En það hafði þá
þanngalla,aðég gat ekki steypt
það I mótunum sem ég hafði
gert. Fékk ég þá tæknilega að-
stoð hjá Juaa Værktöjsfabrik,
sem breytti mótunum svo hægt
var að hefja framleiðslu úr
þessu nýja efni.
Kominn á strik
Nú hefur verið gefin út reglu-
gerðhér á landi um að eingöngu
þessi glös verði notuð undir
hættuleg lyf. Er þetta önnur
reglugerðin í heiminum svipaðs
eðlis, en sú fyrsta var sett i
Bandarikjunum.
— En hefur þessu verið sýnd-
ur áhugi erlendis frá?
— Já, John Andreasen, for-
stjóri dönsku lyfjaverksmiðj-
unnar Apodan, hafði samband
við mig s.l. haust. Sagðist hann
hafa kannað það, sem á mark-
aði væri af lyfjaumbúðum, og
litist sér bezt á mina hugmynd.
Hefur Apodan nú sett mann i að
vinna að þvi að settar verði
samræmdar reglur um öll
Norðurlönd um þessar umbúðir.
Eftir siðustu samtöl min við
Andreasen hef ég góðar vonir
um að eingöngu þessi lyfjaglös
verði notuð á Norðurlöndum áð-
ur en mjög langt um liður, þótt
auðvitað taki það sinn tima. Við,
i Bjallaplasti.erum nú að hefja
framleiðslu á lyfjaglösunum, og
ég trúi þvl að það geti orðið
mikil framleiðsla á þeim er
fram liða stundir. Þau 300 þús.
glös, sem komin eru á markað,
voru framleidd erlendis, en
reiknað er með að ársþörfin sé 2
til 3 milljónir glasa fyrir inn-
lendan markað, og, eins og ég
sagði áður, trúi ég fastlega aö
við fáum mikið að gera vð fram-
leiðslu fyrir hin Norðurlöndin.
Uppfinning fyrir bileig-
endur
— Þú ert líka að reyna að
fækka raunum bileigenda?
Jóhannes Pálsson, uppfinninga
maður á Hvolsvelli, meö sýnis
horn af þeim uppfinningum
sinum sem nú eru að koma á
markaöinn. TimamyndRóbert.
— Já, spanskgræna á klemm-
um á rafgeymum hefur gert
mörgum manninum gramt i
geði. Hingað til hafa þessar klær
verið úr kopar, sem myndar
spanskgrænu, en blý og kopar
hafa bezta leiðni. Mér datt i hug
að nota blýið sem leiðisamband
og síðan sterkt plastefni til að
þrýsta þvi að pólunum. Það er
lika ánægjulegt við þessa fram-
leiðslu, ef hún kemst i gang, að
ég get notað hráefni sem tií er
hér heima, það er að segja af-
fallsblý, sem hingað til hefur að
mestu farið forgörðum. En
samkvæmt könnun sem gerð
hefur verið munu um 700 tonn
falla til af þvi árlega. Ég er bú-
inn að framleiða um 100 þús.
stk., sem komin eru á markað i
ýmsum bilabúðum i Danmörku.
Klærnar hafa farið I prófun i
Teknologisk Institut og hefur sú
stofnun boðizt til að kynna þessa
framleiðslu á heimsmarkaði.
Ég er samt ekki bjartsýnn á
að við komum til með að fram-
leiða þetta i miklum mæli, þvi
lánakerfið hérna er svo þungt i
vöfunum að ég hef litla von um
að fá þá fjárhagslegu fyrir-
greiðslu, sem til þarf, svo að
hægt verði að hef ja framleiðslu i
stórum stil. Er þvi helzt útlit
fyrir það nú, að klemmurnar
verði framleiddar erlendis.
Motor-nyt
Pol-skoen, der
ikke korroderer
Patenteret nyhed skal muligvis sættes i fabrikation pá Fre-
deriksberg
SNOGH0J
Nordisk folkehojskole
ved Lillebæltsbroen
ogsá elever fra de andre
nordiske lande.
6 mdr. fra nov.
4 mdr. fra jan.
DK-7000 Fredericia
tlf. 05-94 27 99
Jacob Krogholt
12 ára drengur
óskar eftir aö komast á
gott sveitaheimili í
sumar.
Upplýsingar í síma 8-
57-51.
| Tímiainer i
,• peníngar
f AuglýsícT í
• í Tímamsm:
• MMttttttttttttttttttlMttttt{
Húseigendur
og forráða-
menn
húseigna
í Hveragerði — á Selfossi — i Þorlákshöfn — á
Stokkseyri — á Eyrarbakka og nágrenni.
Þéttum sprungur i steyptum veggjum og þök-
um með Þan-þéttiefni, áraiöng reynsla i með-
ferð og þéttingum með Þan-þéttiefni. Látið
þétta húseign yðar áður en þér málið og verjið
hana fyrir frekari skemmdum.
Leitið upplýsinga i sima 3863 Þorlákshöfn.
Atvinnuhúsnæði
óskast nú eða síðar
120-150 ferm í Voga- eða Múlahverfi.
Aðkeyrsla þarf að vera góð.
Tilboð sendist blaðinu merkt 1287.