Tíminn - 13.05.1978, Page 29
Laugardagur 13. mal 1978.
Um þessar mundir er ísraelsríki 30 ára.
Það var stofnað í maí 1948 undir handar-
jaðri Sameinuðu þjóðanna og naut mikillar
samúðar flestra þjóða heimsins vegna
þeirrar hroðalegu meðferðar, sem Gyðing-
ar höfðu orðið fyrir af hálfu nasista. Um
daginn minntist Sjónvarpið stofnunar
ísraelsríkis á viðeigandi hátt. Þó kom þar
fram misskilningur, sem ekki er við Sjón-
varpið að sakast, þar sem hann er orðinn
mjög útbreiddur. Sagt var að við stofnun
(sraelsríkis hafi Palestínumenn verið rekn-
ir burtu úr hinu nýja ríki. Þetta er ekki rétt,
engir voru reknir burtu. Þeir sem fóru burt
gerðu það alveg án tilverknaðar hins nýja
ríkis, einfaldlega vegna þess að þeir vildu
ekki una því að búa i ísraelsríki og töldu sig
eiga visan samastað annars staðar.
Hundruð þúsunda Palestínumanna urðu
eftir í Israel og urðu þar fullgildir þegnar.
Þeir hafa að vísu verið litnir nokkrum tor-
tryggnisaugum á ófriðartímum, eins og
eðlilegt er, en engin ástæða er til að ætla að
svo hefði orðið, ef þróun mála hefði orðið
f riðsamlegri.
Þeir Palestínumenn, sem yfirgáfu l'srael,
töldu sig eiga vísan samastað í hinum hluta
ríkisins, Jórdaníu, sínu eigin föðurlandi. En
svo var ekki. Þeim var neitað um að fá að
samlegast sinni eigin þjóð og hin Arabarík-
in tóku sömu afstöðu, þau neituðu einnig að
taka við þeim. Þess í stað var komið upp
flóttamannabúðum við landamæri l'sraels
og þess var vandlega gætt að hinir land-
flótta Palestínumenn gætu ekki samlagazt
sinni eigin þjóð. Þess var gætt að þeir
fengju ekki vinnu og það var vandlega
skipulagt að þeir eygðu enga von aðra en að
brjóta ísraelsríki undirsig. Það var vitandi
vits verið að búa til vandamál. Það var vit-
andi vits verið að búa til nýja landlausa
þjóð, sem ætlað var það hlutverk að leggja
Israel undir sig að nýju og gera Gyðinga
aftur að landlausri þjóð, eða að öðrum kosti
að ráfa sjálf um heiminn án föðurlands.
Vestmannaeyjar og Darwin
Þegar Vestmannaeyjagosið varð og allir
ibúar eyjanna urðu að yfirgefa heimkynni
sin, tók það aðeins nokkrar vikur að koma
öllum Vestmannaeyingum til eðlilegra
starfa á ný. Börnunum var komið í eðlilegt
skólaumhverf i án verulegrar tafar og reynt
var á allan hátt að gera fólki kleift að taka
upp venjulega lífshætti og aðlagast nýju
umhverfi á eins sársaukalausan hátt og
frekast var kostur. Ef svo hörmulega hefði
viljað til að Vestmannaeyjar hefðu ekki
orðið byggilegar aftur, hefðu Vestmanna-
eyingar samlagast þjóðfélaginu á eðlilegan
hétt sem virkir þegnar, og Vestmannaeyjar
hefðu orðið þeim I júf endurminning blandin
trega. Þegar borgin Darwin í Ástralíu
jaf naðist við jörðu ífellibyl nokkru síðar var
öðruvisi staðið að málum. Það var reist
flóttamannabyggð fyrir hina þrjátíu þús-
und íbúa, í grennd við Darwin. Þarna var
enga vinnu að hafa, ekki einu sinni við
Dufgus:
Ísraelsríki
og S.Þ.
enduruppbyggingu borgarinnar, því að hún
var látin liggja milli hluta. Skólastarf fór
allt í handaskolum og börnin höfðu ekki
annað fyrir stafni en að reika um flótta-
mannabúðirnar og stunda óknytti þegar
fram liðu stundir. I viðtali sem tímaritið
Newsweek átti við fólk f rá Darwin ári eftir
fellibylinn kom það fram að fólkið eygði
enga framtíðarmöguleika, drykkjuskapur
var orðinn óskaplegur, og algert sinnuleysi
ríkti hjá flestum. Af þessu má sjá, að það
skiptir mestu máli hvernig brugðizt er við
þegar þau ósköp dynja yfir að fólk verður
að flýja frá heimilum sinum og venjulegri
lífsaðstöðu. Að sjálfsögðu átti framtaks-
semi og dugnaður Vestmanneyinga sjálfra
mestan þátt í því hvernig þeim farnaðist.
Þjóðfélagsins var aðeins að gera þeim fært
að bjarga sér og veita nægilega aðstoð. En
við getum hugsað okkur hvernig ástatt væri
í þessu þjóðfélagi ef við hefðum sett Vest-
manneyinga í flóttamannabúðir og gert
þeim illfært að bjarga sér.
Og aftur til Palestínu
Sú fyrirætlun Arabaríkjanna að stefna
Palestínumönnum gegn Israelsríki, í stað
þess að taka við þeim með bróðurhug og
leyfa þeim að sameinast sinni eigin þjóð á
eðlilegan hátt, he.fur náð tilgangi sinum. I
leiðinni hefur svo ýmislegt annað gerzt,
sem sjálfsagt hefur ekki verið séð fyrir.
Palestinumenn gripu til hryðjuverkastarf-
semi, sem nú er orðin að alþjóðlegu sporti,
sem ekki sér fyrir endann á hvaða afleið-
ingar kann að hafa.
En ekki verður svo við þetta mál skilið að
ekki sé getið um þátt Sameinuðu þjóðanna.
Það er sorgarsaga.að Sameinuðu þjóðirnar
hafa á vissan hátt stuðlað að því að mál
Palestínumanna hafa þróazt í þá átt sem
raun varð á. I stað þess að Sameinuðu
þjóðirnar beitti sér af alefli við að leysa
málið með því að knýja á um að Palestínu-
mönnum væri gert mögulegt að taka upp
heilbrigt líf meðal þjóðar sinnar, stuðluðu
þær að því að viðhalda f lóttamannabúðun-
um með því að styrkja þær f járhagslega.
Að sjálfsögðu var það í góðu skyni gert. En
án þessarar aðstoðar hefði ekki tekizt að
halda Palestínumönnunum í flóttamanna-
búðum,það hefði orðið að leysa málið á
sómasamlegan hátt. Aðstoð Sameinuðu
þjóðanna hefur gert mögulegt að fresta
endanlegri lausn vandamálsins frá ári til
árs og á meðan hefur illgresið fengið að
grafa um sig og endanleg lausn verður sí-
fellt fjarlægari og erfiðari viðfangs. Án
f járhagslegrar aðstoðar Sameinuðu þjóð-
anna við flóttamannabúðir Palestínu-
manna kynni að vera.og eru raunar meiri
líkur á,að engin hryðjuverkastarfsemi væri
til í heiminum nú.
Og nú til Afríku
Það er að sjálfsögðu hægt að harma þá
þróun sem orðið hefur í Palestínu,en það
breytir engu. Það er orðið sem orðið er. En
æskilegt væri að Sameinuðu þjóðirnar
drægu af þessu nokkurn lærdóm. En svo
virðist ekki vera. Sameinuðu þjóðirnar
virðast vera staðráðnar í því að leysa
vandamálin í sunnanverðri Afríku þannig
að þar verði til nýjar landlausar þjóðir.
Landlausar þjóðir sem mundu ráfa um
heiminn rótlausar,sjálf um sér og öðrum til
ama og ættu sér það eitt takmark að eignast
land meðgóðu eða illu og þá fyrst og fremst
með illu því að aðrar leiðir eru vart færar til
þess að eignast land.
Við ætlumst til þess að svartir menn \
Ródesíu og Suður-Af ríku fái að ráða málum
sinum sjálfir. Hvítir menn i Ródesíu vita
orðið mæta vel að hjá því verður ekki
komizt. Viðleitni þeirra beinist nú að því að
þetta gerist á þann hátt að þeir verði ekki
hraktir i sjóinn. Þeir eru að reyna að láta
þróun mála verða á þann hátt að þeir geti
orðið þátttakendur í riki svartra manna í
Ródesíu. Það getur ekki gerzt á annan veg
en þann.að valdaskiptin taki langan tíma,
sárindi svarta kynstofnsins vegna kúgunar
hvíta kynstofnsins hafi hjaðnað áður en
svarti kynstofninn tekur endanlega við
völdunum. Þetta er vandrötuð leið en þetta
er eina leiðin til þess að hvíti maðurinn
verði ekki rekinn burt. Sameinuðu þjóðirn-
ar eru andstæðar þessari lausn. Ekki
verður betur séð en að þær geti sætt sig við
þá lausn eina, sem verst gegnir með þeim
afleiðingum, sem það kann að hafa. Hviti
maðurinn í Ródesíu kann þó að eiga sér
annað föðurland, þar sem landnám hans í
Ródesíu á sér ekki mjög langan aldur.
Oðru vísi háttar til i Suður-Afríku. Afrik-
anar eiga sér ekkert föðurland annað en
Suður-Afriku.heimkynni þeirra hefur verið
þar í 300árog meira og allar rætur í Evrópu
er löngu slitnar. Enginn vafi er á því að ef
þeir verða hraktir frá Suður-Afríku eiga
þeir sér ekkert athvarf, þeir yrðu flökku-
þjóð. Og þó að það sé einlæg ósk allra góðra
manna að svartir menn í Suður-Afríku fái
fullt sjálfstæðu megum við heldur ekki
gleyma því að Afríkanar eru líka menn og
það verður að vinna þannig að málum að
tilveru þeirra sem þjóðar verði ekki stefnt í
voða. Það er ekki einungis nauðsynlegt
þeirra vegna heldur vegna alls heimsins,
friðarins í heiminum. Það kapp sem Sam-
einuðu þjóðirnar ásamt þeim Owen og
Vanœ.leggja á að leysa þessi mál eingöngu
á kostnað hvíta mannsins.leiðir ekki af sér
gott. Það leiðir af sér ný vandamál,vanda-
mál sem kann að verða ennþá erfiðara að
leysa.
Léttar ••
meðfærilegar -
viðhaldslitlar
VATIW
DÆLUR
Ávallt fyrirliggjandi. Góð varahlutaþjónusta.
Þk Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Armúla 16 • Reykjavík • sími 38640
%. ^
þjoppur slipivelar
(&> o 1 ú
vibratorar sagarbloö steypusagir þjoppur bmdivirsmllur
Hjólhýsi
Til sölu 2 ára Cavalier
GL svefnpláss fyrir 5-6
miðstöð, fortjald, árs-
gamalt verð 1,5 nýtt
2,2 millj.
Upplýsingar í síma
83744 á daginn eftir
helgi.
GMC 74
Housing með drifi,
bremsukerfi, felgum,
hjólbörðum. Framöx-
ull með bremsukerfi
felgum hjólbörðum.
Upplýsingar í síma
38294 á kvöldin eftir [
helgi.
Hrossa-
markaður
Efnt verður til hrossamarkaðar i sam-
bandi við landsmót hestamanna að Skóg-
arhólum 13.-16. júli n.k.
Skrá þarf öll söluhross fyrir 1. júli n.k. hjá
Pétri Hjálmssyni Búnaðarfélagi íslands,
eða Bergi Magnússyni, Félagsheimili
Fáks, simi 30178. Skrásetja þarf ætt, ald-
ur, lit og gæði hrossa.
Aðeins verða tekin til sölu, gallalaus
hross. 011 hross verða seld á ábyrgð eig-
enda sinna.
Framkvæmdanefndin.