Tíminn - 09.08.1978, Blaðsíða 14
14
mmm
Miðvikudagur 9. ágúst 1978
Stepney varði víta-
spyrnu í Madrid
Björgvin ákveðinn í að verja
íslandsmeistaratitilinn
„Það verður ekkert
gefið eftir...”
— sagði Björgvin Þorsteinsson,
sem varð yfirburðasigurvegari á Jaðarsmótinu á Akureyri
— segir t>ór Hreiðarsson,
fyrirliði Breiðabliks
— Skagamenn eru sterkir leik-
menn og erfiðir viðureignar, en
þeir eru alis ekki ósigrandi, sagði
Þór Hreiðarsson, fyrirliði Breiða-
biiks, en það lið keppir i kvöld kl.
19.00 við Akurnesinga á grasvell-
inum I Kópavogi f undanúrslitum
bikarkeppninnar. — Við erum
ákveðnir i að berjast hart, og
göngum til leiks með þvi hugar-
fari, að við ætlum okkur að sigra,
sagði Þór, og er hann mjög bjart-
sýnn fyrir þennan leik við Skaga-
menn.
— Þetta hefur verið erfitt hjá
okkur aö undanförnu og nil blasir
falliö viö okkur i 1. deildarkeppn-
inni. Viö munum þó ekki láta þaö
angra okkur I leiknum gegn
Skagamönnum, þvi að þaö er til
mikils að vinna — ef okkur tekst
vel upp og viö náum að sigra
Skagamenn þá höfum viö mögu-
leika á þátttöku i Evrópukeppni
næsta ár, sagöi Þór.
Þór lék meö Blikunum bikar-
úrlitaleik gegn Vikingi 1971 og
töpuöu Blikarnir þá 0:1. — Það
væri mjög gaman, að komast aft-
ur i bikarúrslitaleik — á Laugar-
dalsvellinum, sagði Þór. Þess má
geta aö leikmenn Breiöabliks
hafa æft mjög vel um helgina og
undirbúið sig fyrir slaginn.
,,Við vanmetum ekki
Blikana”
— Þetta er mikilvægasti leik-
urinn hjá okkur i sumar, sagöi
Jón Gunnlaugsson miövöröur i liö*
Skagamanna er blm. spjallaöi viö
hann i gær. — Það er engin hætta
á aö viö vanmetum Blikana þrátt
fyrir lélegt gengi þeirra i sumar.
— Viö veröum meö alla okkar
sterkustu menn og vonum bara
hið besta. Aðspurður hvort
Skagamenn vildu heldur mæta
Val eða Þrótti i úrslitum, ynnu
þeir Blikana i kvöld, sagöi Jón: —
Ég held að .það.sitipti minns^u
máli, en ég held að Þróttarar
yröu sist léttari mótherjar en
Valsmenn og nægir bara að
benda á úrslit leikja Akraness
og Þróttar i sumar til aö stað-
festa það. -SOS/SSv.
Úrslit leikja i Englandi á
laugardag:
Aberdeen — Tottenham 3:1
Bristol City — Bristol Rovers 6:1
Clyde — Celtic 1:6
Notts County — Norwich 2:1
Portsmouth — Chelsea 1:1
Swindon — West Ham 2:3
Sunderland — Bolton 2:0
Rangers — Hearts 3:1
W.B.A. — Southampton 1:1
ÞÓR HREIDARSSON
ALEX STEPNEY ... varöi vel
gegn Real Madrid.
jafnaði úr viti skömmu fyrir
leikslok.
Svipaða sögu er aö segja af ná-
grönnum þeirra, West Ham, sem
rétt möröu Swindon 3-2. Fergu-
son, markvörður West Ham, var
borinn út af. Swindon var lengi
vel yfir, en Devonshire og Alan
Taylor tryggöu West Ham sigur
seint i leiknum. Þriðja mark WH
gerði Robson. Cyrille Regis skor-
aði fyrir WBA gegn Southampton
og brenndi siöan af viti. Phil Boy-
er jafnaði fyrir Dýrlingana. Cel-
tic vann stórsigur á Clyde og
skoruðu þeir Glavin, McAdam og
Conn mörkin, tvö hver. —SSv.
Björgvin Þorsteins-
son, íslandsmeistari i
golfi, hefur ekki verið
sigursæll á mótum i
sumar, en hann sýndi
það þó á Akureyri um sl,
helgi, að það verður
erfitt að sigra hann á ís-
landsmeistaramótinu,
sem hefst á golfvelli
Golfklúbbs Suðurnesja
— Leiruvellinum.
Björgvin, sem hefur
orðið meistari sl. 5 ár og
meistari 6 sinnum siðan
1971, varð yfirburða -
sigurvegari á Jaðars-
mótinu á Akureyri.
Björgvin lék af miklu öryggi —
notaði 147 högg á 36 holurnar, sem
er aöeins þremur yfir pari vallar-
ins. Hann var 11 höggum á undan
næsta manni, sem var Suöur-
nesjamaðurinn Þorbjörn Kjærbo,
sem kom inn á 158 höggum.
Þorbjörn hefur náö góöum
árangri I sumar, og á hann
örugglega eftir aö veita
Björgvini haröa keppni, þar sem
hann leikur á heimavelli á Is-
landsmeistaramótinu.
Björgvin segir aö keppnin veröi
geysilega hörö og spennandi, þar
sem kylfingar eru nú mjög jafnir
og koma þvi margir til greina i
BJÖRGVIN... varö yfirburðasig-
urvegari á Jaöarsmótinu. Vörn
hans á lslandsnieistaratitlinum
hefst i dag.
baráttunni um Islandsmeistara-
titilinn:
— Ég er þó ákveðinn i aö verja
meistaratitilinn og gefa ekkert
eftir, sagöi Björgvin, og hann hef-
ur aö undanförnu undirbúiö sig
vel fyrir keppnina.
Ragnar Olafsson (GR) hefur
veitt Björgvini haröa keppni á
siöustu Islandsmótum. Hann
veröur nú fjarri góöu gamni, leik-
ur meö Evrópuúrvali unglinga
gegn úrvalsliði frá Bretlandseyj-
um. Fyrir utan Þorbjörn, þá
koma þeir Geir Svansson (GR),
Óskar Sæmundsson (GR),
Siguröur Thorarensen (GK),
Sveinn Sigurbergsson (GK) og
Hálfdán Þ. Karlsson (GK) til meö
aö veita Björgvini haröa keppni.
En litum þá aftur á Jaöarsmót-
iö og sjáum árangur bestu manna
þar:
Björgvin Þorsteinss., GA ... 147
Þorbjörn Kjærbo, GS ....... 158
Hilmar BjörgVinsson, GS ... 160
Sigurjón Gislason, GK ..... 160
Arni Jónsson, GA .......... 162
Gylfi Kristinsson, GS ..... 162
Gunnar Þóröarson, GA ...... 162
—SOS
— þar sem Manchester United vann
stórsigur 4:0 yfir Real Madrid
★ Leikmenn Liverpool á skotskónum
Undirbúningur knattspyrnuliöa
viöa um Evrópu fyrir komandi
keppnistimabil stendur nú sem
hæst. Um helgina voru fjölmargir
vináttuieikir háöir og voru úrslit
víöa óvænt. Leikur helgarinnar
var tvimælalaust i Madrid, þar
sem Manchester United sótti
Real Madrid heim. Þaö er
skemmst frá aö segja, aö United
haföi tögl og hagldir i leiknum og
sigraöi stórt, 4-0. United fékk
óskabyrjun og eftir rúmlega hálf-
tima leik var staöan oröin 3-0.
Sammy Mcllroy (2) og Jimmy
Greenhoff skoruðu fyrir United.
Greenhoff bætti svo ööru marki
viö fyrir leikslok og innsigiaöi
sigur United. Til aö kóróna svo
allt saman varöi Stepney viti frá
Pirri.
Evrópumeistarar Liverpool
voru á ferðinni i Sviss og burstuðu
1. deildarliðiö Basel 6-0. Ray
Kennedy (2), Emlyn Hughes,
Jimmy Case og Kenny Dalglish
skoruöu fyrir Liverpool, en eitt
markanna var sjálfsmark.
Fjölmargir leikir voru háöir I
Englandi á laugardag og kom þar
mest á óvart tap Tottenham fyrir
Aberdeen. Þeir Harper, Archi-
bald og Jarvie skoruðu fyrir
Aberdeen, en Taylor svaraöi fyrir
Tottenham. Bristol City vann
stórsigur yfir nágrönnum sinum.
Tom Ritchie (2), Peter Cormack,
Trevor Tainton, Clive Whitehead
og Chris Garland skoruöu fyrir
Bristol City. Chelsea lenti i miklu
basli með Portsmouth og Garner
JÓN GUNNLAUGSSON
Bikarslagur Blikanna og
Skagamanna í kvöld
ENSKIR
PUNKTAR
,, Skagamenn erfiðir
— en ekki ósigrandi”