Tíminn - 09.08.1978, Blaðsíða 15

Tíminn - 09.08.1978, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 9. ágúst 1978 15 STEVE RIDDICK Reykjavíkur- leikarnir... 100 m hlaupið verður hámark kvöldsins Reykja vikurleikarnir í frjálsum iþróttum hefjast á nýja „Tartanvellinum” i Laugardalnum i kvöld og má búast við mjög spennandi keppni, þar sem 19 erlendir frjálsiþróttamenn keppa þar. 100 m hlaupið verður hámark kvöldsins, en þá keppa þeir Vilmundur Vilhjálmsson og Sigurður Sigurðsson við fjóra mjög sprettharða menn — þ.a.m. Olympiumeistarann Steve Riddick. Keppnin i kvöld hefst kl. 19.30 og verður þá keppt i þessum greinum: — 100 m hlaupi, 1500 m hlaupi, kúlu- varpiog kringlukasti, þar sem heimsmeistarinn Mac Wilkins verður i sviðsljósinu. >00000000 Valsmenn nýttu sitt eina færi — og tryggðu sér þar með farseðilinn! bikarúrslitin þriðja ári árið i röð Það var ekki mikil bikarstemning i Laugardalnum I gærkvöldi þegar Valur og Þróttur mættust I undanúrslitum bikarkeppni K.S.l. Vals- menn fengu eitt færi, að heitið gat, allan leikinn og það nýttu þeir til hins itrasta. Hálfdán örlygsson, sem hafði komið inn á I hálfleik í staö Alberts Guðmundssonar, átti allan heiðurinn af markinu. Hann komst inn í sendingu, ætlaða Þróttara, brunaði upp völlinn, gaf langa send- ingu yfir til hægri þar sem Atli Eðvaldsson var fyrir og tók viö knettin- um. Atli lék á varnarmann Þróttar og gaf fyrir markið og þar var Jón Einarsson einn og óvaldaður og skoraði örugglega sigurmark Vals — 1:0. Leikurinn i gær var ákaflega daufur af bikarleik að vera. Litið var um tækifæri og þá sjaldan þau sáust voru þau misnotuð á hinn herfilegasta hátt. Tiöindalít- iö var, þar til á 25. minútu, að Sverrir Brynjólfsson lék i gegn- um óörugga vörn Valsmanna, en einn varnarmanna áttaði sig þó og náði að bjarga naumlega i Magnús Bergs skallar að marki Þróttar f einu af örfáum upp- hlaupum Valsmanna. (Timamynd Róbert) horn. Á 30. minútu björguðu Þróttarar á linu eftir hörkuskot Magnúsar Bergs og vildu margir meina að þarna hefði knötturinn farið inn fyrir línuna. Ragnar Magnússon, afar slakur dómari leiksins, var vel staösettur I þetta skipið og veifaði áfram. A 42. minútu léku Þróttarar upp völlinn og Baldur Hannesson komst i dauðafæri, á nákvæmlega sömu torfunni og Jón skoraði af siðar i leiknum, en honum brást skot- fimin illa og skaut langt framhjá. Rétt fyrir leikhlé komst Sverrir Brynjólfsson aftur I gott færi, en hitti ekki markiö. Fyrri hálfleik lauk þvi án marka, en ekki heföi verið ósanngjarnt, að Þfottarar hefðu haft eins marks forystu. Hafi fyrri hálfleikurinn verið daufur, var sá siöari hálfu verri. Langtimum saman gerðist bók- staflega ekkert markvert á vellinum, en dómari leiksins bætti það að nokkru upp með bráðfyndnum dómum si og æ. A 79. minútu brunaöi Þorgeir Þor- geirsson upp allan völl með Dýra Guðmundsson á hælunum.Dýri náði að komast að hlið Þorgeirs, en ekki lengra og tók þá til bragðs að kasta sér fram á Þorgeir, sem datt endilangur inn i vitateig. Vitaspyrna virtist augljós dómur, en Ragnar dómari sá ekkert at- hugavert enda illa staðsettur. Linuvörður geröi enga athuga- semd heldur,en var þó i góðri að- stööu. Skömmu siðar komst mark Þróttar i hættu eftir að Þorvaldur Þorvaldsson hafði gefið góða sendingu á Magnús Bergs!!!..., en bjargaö var i horn. Loks á 85. minútu kom svo mark Vals, sem stuöningsmenn þeirra voru orðn- ir langeygir eftir. Leikurinn dó svo hægt og rólega út, án þess að nokkuð markvert geröist það sem eftir liföi leiktimans. Það er augljóst að Valsmenn eru langt frá sinu besta um þess- ar mundir. öryggi þaö, sem ein- kennt hefur leik þeirra er ger- samlega horfið og háspyrnur og leikleysa sitja nú i fyrirrúmi. Hja Valsmönnum voru flestir langt frá sinu besta, en Sigurður Haraldsson var mjög öruggur i marki. Framlinumenn Vals áttu allir góða spretti, en hurfu svo al- veg inn á milli. Dýri var að vanda traustur i vörninni. Þvi virðist þannig farið með Þróttara, sem og önnur liö i deildinni, að þeir virðast ganga um i þeirri trú aö ekkert liö geti sigrast á Vals- mönnum. Þróttur heföi auöveld- lega getað endurtekið sigur sinn frá Reykjavikurmótinu i vor, en þá skortir trúna á sjálfa sig og meöan þannig er ástatt þurfa Valsmenn ekki að hafa áhyggjur af þvi að tapa leik, þó þeir séu ekki upplagðir. Bestir Þróttara voru i gær, Jóhann Hreiðarsson, Halldór Arason og Sverrir Brynjólfsson. Páll Ólafsson átti góða spretti, en ætlaði sér iðulega um of. Dómgæslan i leiknum var fyrir neðan allar hellur og væri ástæða til að fjalla itarlega um hana, en dómarar eru mannlegir og geta átt sina slæmu daga eins og aðrir. Maöur leiksins: Sverrir Brynjólfsson Þrótti. — SSv — INGI BJÖRN ALBERTSSON. Meiösli Inga Bjarnar eru slæm... — og óvlst er hvort að hann leiki meira i sumar Ingi Björn Albertsson, fyrir- liði Vals, lék ekki meö Valsliö- inu gegn Þrótti I gærkvöldi — hann á enn viö meiösli aö striöa og er nú óvist hvort hann leikur meira meö Vals- liöinu I sumar. — Ég vona þaö besta, þótt aö útlitiö sé ekki gott, eins og stendur, sagöi Ingi Björn. Ingi Björn meiddist i leik gegn Eyjamönnum — fékk samstuð með þeim afleiðing- um, að liðband fyrir neðan ökla slitnaði og öklinn bólgn- aöi upp. Þá fékk hann stuö á hné, sem bólgnabi einnig upp. — Ég get ekki sparkaö meö hægri fæti, sagði Ingi Björn, sem vonaði allt það besta. s -SOS Ucit plrlri onn ah on cknrah" ^udl vKlil dilllli uU vll ohUl (tU sagði Valsmaðurinn sprettharði, Jón Einarsson „Allir vilja leggja okkur að velli”, sagði Nemes, þjálfari Vals ,,Við vorum klaufar” — Við vorum klaufar að tapa þessum leik — við fórum illa meö marktækifærin okkar, sagði Hall- SOS-Reykjavik. — Þaö var stór- kostlegt aö sjá á cftir knettinum, þar sem hann hafnaöi i' netinu, sagöi Jón Einarsson, hinn snöggi og sprettharði sóknarleikmaöur Vals, eftir aö hann haföi skoraö sigurmark Valsara gegn Þrótti I gærkvöldi. — Atli dróg vörn Þróttarliðsins aö sér og sendi knöttinn siðan til min, þar sem ég vará auðumsjó — og opiö markið blasti viö mér. Ég gat ekki annað en skoraö, sagöi Jón. — „Það var erfitt aö leika gegn Þrótturum, þeir léku mjög vel gegn okkur og gáfu okkur aldrei frið”, sagði Sævar Jónsson.hinn ungi miðvörður Valsmanna. Allir vilja leggja okkur að velli Nemes þjálfari Valsmanna var ánægður með úrslitin. — Ég vissi að Þróttarar myndu verða erfið- ir, sem þeir og voru, sagði Nemes. — Þessi leikur tók mjög á taugarnar, enda var mikið I húfi — strákarnir voru nokkuð tauga- óstyrkir og náöu þvi ekki að sýna allar sinar bestu hliðar. Þá eru þeir orðnir þreyttir, enda hefur þetta verið erfitt hjá okkur að undanförnu — t.d. þrirleikir gegn Eyjamönnum á mjög stuttum tima, þar af tveir leikir i Eyjum. Þá sagði Nemes, að allir leikir Vals væru baráttuleikir, þvi aö öll lið reyndu hvaö sem þau gætu, til að leggja Val að velli. Nemes sagði að Valsliðið léki undir mikilli pressu, þar sem möguleikarnir á að vinna „Double” — bæöi 1. deild og bikarinn, væri fyrir hendi. — Ég reikna fastlega með þvl, að það veröi Skagamenn sem leika gegn okkur — úrslitaleikinn, sagði Nemes aö lokum. Sterk vörn fyrir framan mig Sigurður Haraldsson, mark- vörður Vals, lék sinn 11 leik I röð án þess aö fá á sig mark. Hann þefur haldið markinu hreinu i 1016 min. — Ég vil þakka þetta sterkri vörn, sem leikur fyrir framan mig. Ég hugsa aldrei um það, hvenær ég fái næsta mark á mig — ég veit að það kemur aö þvi, að ég þurfi aö hirða knöttinn úr net- inu — þá verður maður að taka þvi. — Þróttarar léku vel gegn okkur og þeir eiga framtiðina fyrir sér — þá skortir aðeins reynslu, til að verða toppliö. — Við lékum aftur á móti illa, enda alltaf erfitt aö leika undan- úrslitaleik i bikarkeppninni, sagði Sigurður. Sagt eftir Ieikinn dór Arason, sóknarleikmaöur Þróttar. Halldór sagöi að þaö væri alltaf erfitt að leika gegn Valsvörninni — hún er skipuö leikmönnum, sem vinna vel saman. Þróttarar voru mjög óánægöir með, aö Ragnar Magnússon, dómari leiksins hefði lokað aug- unum fyrir vitaspyrnunni, sem þeir áttu að fá, rétt áður en Vals- menn skoruöu. — Þorgeir Þor- geirsson var felldur gróflega niður i vitateig, sögöu þeir. Jóhann Hreiðarsson, hinn sterki miðvörður Þróttar, var að vonum óhress. — Við lékum vel og átium skilið að vinna sigur. Við fórum illa með mörg góð marktækifæri, en siðan fengum viö á okkur ódýrt mark. — Viö munum snúa dæminu viö á laugardaginn, þegar við leikum gegn Val 11. deild, sagði Jóhann. JÓN EINARSSON. Magnús tíl Wales Tveir Islenskir knattspyrnu- dómarar hafa fengið verkefni á erlendri grund. Það er nú Ijóst að Magnús V. Pétursson, hinn kunni miltirikjadómari, dæmir leik Wales og Möltu I Evrópu- keppni landsliða, sem fer fram I Cardiff. Þá mun Guömundur Haralds- son dæma leik Skotlands og — og Guðmundur til Skotlands Noregs i Evrópukeppni lands- liða, skipuð leikmönnum undir 21 árs aldri. Þá er ekki enn ákveðið hvaða dómari fer til N-lrlands, til aö dæma þar leik i Evrópukeppni félagsliöa og ekki er búið að ákveða hvaða linu- verðir veröa sendir út i áður- nefnda leiki. — SOS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.