Tíminn - 09.08.1978, Blaðsíða 20

Tíminn - 09.08.1978, Blaðsíða 20
IIU Sýrð eik er sígild eign ftCiÖGil TRÉSMIDJAN MEIDUR SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 8682? Gagnkvæmt tryggingafélag iiíji i ii *r a'iíí Miðvikudagur 9.ágúst 1978 170. tölublað — 62. árgangur Skipholti 19. R. simi 29800. (5 linur) Verzlið í sérverzlun með litasjónvörp og hljómtæki Reykjavik: MUdll aíli, en aíkoraa frystihúsanna léleg HR — Eins og f ram hefur komiO I fréttum hafa frystihúsin á Suðurnesjum og i Vestmannaeyj uin ákveðið að stöðva vinnslu á fiski, vegna hinnar slæmu fjár- hagsstöðu sinnar. A ineðan hafa frystihúsin i Reykjavik haldið uppi fullri starfsemi, og meira segja þurftað kalla starfsfólk úr sumarleyfuin til að vinna allan þann afla, sem borist hefur á land. Timinn snéri sér i gær til framkvæmdastjóra frystihús- anna hér i Reykjavík og spurö- ist fyrir um afkomuna. Marteinn Jónasson, fram- kvæmdastjóri Bæjarútgeröar Reykjavikur sagöi, aö þeir heföu þurft aö kalla út allt starfefólk og einnig þaö, sem var i sumarleyfum. Astæöan væri sú, aö siöustu daga heföu komiö inn þrir togarar meö mikinn afla, þar af tveir, sem hætt hefðu veiöum nú um helg- ina vegna þorskveiöibannsins. Af þessum sökum væri mikil vinna og þyrfti aö láta starfs- fólkiö vinna i eftirvinnu til aö foröa aflanum frá skemmdum. Marteinn var spuröur, hvort þaö væri ekki erfitt fyrir Bæjar- útgeröina aö láta fólk vinna yfirvinnu á sama tima og frysti- hús á Suöurnesjum og i Vest- mannaeyjum treystu sérekki til aö halda uppi dagvinnu. — Þaö er algjört neyöarúr- ræöi aö fara út i yfirvinnu. Þaö er aöeins gert til aö foröa aflan- um frá skemmdum. Fjárhags- staöan er þannig aö hún leyfir varla slikt, sagöi Marteinn. — Nú er fundur hjá Sölumiö- stöö hraöfrystihúsanna á morgun. Helduröu aö þar veröi rætt um lokun frystihúsanna? — Um þaö er erfitt aö segja, en jafnvel þótt þar veröi rætt um aö loka frystihúsunum hér i Reykjavik, þá geri ég ráö fyrir aö reynt veröi aö þrauka. Þaö hefur veriö ágætisafli upp á siökastiö og einnig er dýrt aö þurfa aö loka frystihúsunum. Annars er þaö útgeröarráö Bæjarútgeröarinnar og borgar- ráð sem ákveða hvort lokað veröur eða ekki. — Hvaö með ' uppsagnir starfsfólks? — A meöan útgeröarráðið ákveöur aö halda uppi rekstri verður ekki um uppsagnir aö ræöa hjá okkur, sagöi Marteinn aö lokum. Timinn haföi einnig samband viö Vilhjálm Ingvarsson, fram- kvæmdastjóra ísbjarnarins, og sagöi hann aö upp á siökastiö heföi mikill afli borist til frysti- hússins og þvi hefði þurft aö fá undanþágu um siöustu helgar til aö vinna aflann. Vilhjálmur var spuröur aö þvi, hvort þaö væri ekki erfitt fyrir fjárhag frystihússins aö láta vinna yfirvinnu, og sagöi hann svo vera. — Annars veit ég ekki hversu lengi þetta gengur meö þessu móti, en á morgun veröur á veg- um Sölumiöstöövarinnar fundur þar sem rætt veröur um hvort eigi aö loka, eins og á Suöur- nesjum og f Vestmannaeyjum.” Vilhjálmur bætti þvi viö, aö menn væruekki aö leika sér aö þvi að loka frystihúsunum — þaö væri kostnaöarsamt og auk þessmikiö verk aö koma þeim af staö aftur. ísafjörður: „Gengur þolanlega, en þó taprekstur” — Þetta gengur þokkalega eins og er, en þaö er aftur spurning hvaö gerist viö næstu mánaöamót þegar kaup hækkar á ný, sagöi Jóhannes G. Jóns- son, framkvæmdastjóri Ishús- félags Isfiröinga, þegar Timinn ræddi viö hann i gær. — Greiöslurnar úr Verð- jörnunarsjóöi og 13% hækkun afurðarlánannanægirþóekki til aö koma i veg fyrir taprekstur. Mér reiknast svo til aö tapiö hjá okkur sé 4-6% miöað viö full- unna vöru bætti Jóhannes við. Hann sagöi ennfremur aö ágætis afkoma fyrstihússins undanfarin árgeröi þaðkleift aö halda áfram vinnslu þrátt fyrir aö tap heföi veriö á rekstrinum frá þvi i júnibyrjun. — Hvernig getið þiö á Vest- fjöröum haldiö áfram rekstri á sama tima og frystihúsin á Suöurnesjum veröa aö loka? — Égkann núlitlar skýringar á þvi, nema þær aö héöan frá Vestfjöröum er stutt á miöin, og uppbygging ishúsanna og endumýjun hefur veriö jöfn og góö. Einnig höfum við haft gott starfsfólk og hæfilega mikinn afla, á meöan aö þeir á Suöur- nesjum hafa átt i vandræöum vegna hráefnisskorts og fisk- leysis.” Jóhannes sagöi aö lokum, aö ekki kæmi til uppsagna á starfs- fólki á meöan nægur afli bærist á land og afkoma Ishúsins yröi ekki enn verri en hún er nú. Akureyri: Ástandið óljóst, en þó haldið áfram Timinn haföi einnig samband viö Vilhelm Þorsteinsson fram- kvæmdastjóra Ctgeröarfélags Akureyringa og sagöi hann, aö ástandiö væri mjög óljóst hjá þeim. Mikill fiskurheföi boristá land og þvi heföi verið mikil vinna, rekstrarafkoman væri þó ekki sem best. „Viö vitum ekki hve lengi þetta gengur, en viö höfum haldiö þetta út hingaö til og gerum þaö a.m.k. til mánaöarmóta”, sagöi hann aö lokum. Loðnuveiðar: Öllum takmörkunum aflétt MóL— ,,A lundinum var ákveöið aö hætta öllum takmörkunum á loönuveiðum”, sagöi Kristján Ragnarsson, formaöur lands- sambands islenskra útvegs- manna, er Tíminn ræddi viö hann i gær, en þá hélt L.t.íJ. fund meö útgerðarmönnum loönuveiöi- skipa. Þar sem yfirvinnubanni hefur nú veriö aflétt i Vestmannaeyjum og á Siglufiröi, þá er fyrir hendi mikiö rými til aö taka á móti loönu. Aö sögn Kristjáns, þá ættu verksmiöjurnar aö vera færar um aö taka á móti milli 22 til 24 þús- und tonnum og þvi hafi verið ákveöiö aö aflétta öllum hömlum. Eins og stendur þá eru 18 loönu- skip aö veiðum, en þeim mun fjölga upp i 50 nú á næstunni. Atvinnulausum fækkað um 80 í júlí MÓL — I lok júlimánaðar voru 138 atvinnulausir á tslandi, og haföi fækkaö um 80 á einum mánuöi samkvæmt skýrslu fé- lagsmálaráöuneytisins. I kaupstööum landsins voru 112 atvinnulausir, en voru 168 I lok júnímánaöar. Enginn var at- vinnulaus i kauptúnum meö 1000 ibúum og fleiri, en 26 i öörum kauptúnum. -v. Skútan „Patanela” skriöur út úr Reykjavfkurhöfn á vit nýrra ævin- týra. Ástralskir sæfarar í heimsókn: Eru að skoða heiminn HR — „Sorry we are leaving” voru einu orðin sem blaöamaöur „Bless island og takk fyrir gest- risnina” sagöi Norman skipstjóri og brosti breitt. fékk út úr Norman skipstjóra niöriviöhöfn i gær, þegar sá fyrr- nefndi kom hlaupandi til aö reyna aö fá viötal viö hinn viöförla sæ- fara. Farkostur hans, „Patanela” var einmitt aö losa landfestar, þegar þetta snubbótta viötal fór fram og þvi ekki skrýtiö þótt sæ- farinn heföi ekki tima til aö eyöa fleiri oröum á blaöamanninn. Héöan er feröinni heitiö til Grænlands, en þaö er næsti viö- komustaöur á hnattferö Nor- man-fjölskyldunnar. Sú ferö hef- ur staöið I þrjú ár og kemur lik- lega til meö aö standa i þrjú ár til viöbótar. Feröin sjálf tekur ekki nema hluta þess tima, en fjöl- skyldan staldrar viða viö og skoö- ar sig um. Til þess hefur hún lit- inn bil, sem geymdur er á dekki skútunnar. Þaö má þvi kannski viöhafa svipuö orö um þessa áströlsku fjölskyldu, eins og gamla fólkiö viöhaföi stundum um viöförla menn og segja aö hún hafi „lent i feröalögum”.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.