Tíminn - 09.08.1978, Blaðsíða 19
»II :í .■ it !l !1'
Miðvikudagur 9. ágúst 1978
gm
Rirnm
///ímv\\WírnmX
flokksstarfið
S.U.F. ÞING
17. þing sambands ungra Framsóknarmanna verður haldiö að
Bifröst i Borgarfiröi dagana 8. og 9. september næstkomandi, og
hefst föstudaginn 8. sept. kl.: 14.00.
Þinginu lýkur með sameiginlegum fagnaöi þingfulltrúa og
annarra gesta i tilefni 40 ára afmælis S.U.F.
Auk fastra dagskrárliöa á þinginu veröur starfaö i fjölmörgum
umræöuhópum.
Þegar hafa veriö ákveönir eftirtaldir hópar:
a. Bætt kjör yngri bænda og skipulag
landbúnaðarframleiöslunnar.
b. Skipuleg nýting fiskimiða og sjávarafla.
c. Niöur meö veröbólguna.
d. Framhald byggöastefnunnar. Aukin félagsleg þjónusta.
e. Umhverfisnefnd og breytt lifsgæöamat.
f. Samvinnuhugsjónin.
g. Samskipti hins opinbera viö iþrótta- og æskulýösfélög.
h. Breytingar á stjórnkerfinu.
i. Kosningaréttur og kjördæmaskipan.
j. Nútima fjölmiðlun.
k. Aukin áhrif flokksfélaga á stjórn og stefnumótun
Framsóknarflokksins.
l. Nýjar hugmyndir um starfsemi SUF.
(auglýsing um umræðustjóra kemur siöar).
F.U.F. félög um land allt eru hvött til ab velja fulltrúa sina á
þingið sem fyrst og tilkynna um þátttöku til skrifstofu S.U.F.
simi: 24480. Hittumstaö Bifröst.
__________________________________________________S.U.F.
FUF í Reykjavík — Félagsgjöld
Vinsamlegast muniö aö greiöa heimsenda giróseöla fyrir félags-
gjöldum ársins 1978, eöa greiöiö þau á skrifstofu félagsins,
Rauðarárstig 18 á auglýstum skrifstofutima. Stjórn FUF I
Reykjavik.
Finnlandsferð
1 tengslum við sumarskóla N.C.F. hefur Félag ungra framsókn-
armanna ákveöiö aö efna til hópferöar dagana 15. til 30. ágúst.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri F.U.F. I sima 24480
þriðjudaga og fimmtudaga frá 9 til 12.
Athugið lágt verð.
F.U.F.
Héraðsmót
Framsóknarmanna i Vestur-Skaftafellssýslu vröur haldiö aö
Kirkjubæjarklaustri 12. ágúst og hefst kl. 21.
Stutt ávörp flytja:
Jón Helgason, alþingismaður,
Guðni Agústsson.
Söngflokkurinn Randver skemmtir. Hljómsveit Þorsteins Guö-
mundssonar leikur fyrir dansi.
» Stjórnirnar.
Gróátrkís
Höfum fyrirliggjandi á iager örfá gróður-
hús frá Royal Greenhouses i Englandi.
Verð frá kr. 118,500,00.
Húsin eru auðveld i uppsetningu.
Auðvelt er að stækka þau.
Hægt er að fá margskonar fylgihluti á
hagstæðu verði.
(Sjálfvirkt vökvunarkerfi, sjálfvirkt loft-
ræstikerfi o.fl.)
Nú fer hver að verða siðastur að festa
kaup á þessum vinsælu húsum fyrir hækk-
un.
Gefum aliar nánari upplýsingar
Verktækni sf.
Sími 22756 Akureyri
1?
hljóðvarp
Miðvikudagur
9. ágúst
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
7.10 Léttlög og morgunrabb.
7.55 Morgunbæn
8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá.
8.15 Veöurfr. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
8.30 Af ýmsu tagi: Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Kristin Sveinbjörnsdóttir
les „Aróru og litla bláa bil-
inn”, sögu eftir Anne
Cath.-Vestley (2).
9.20 Tónleikar. 9.30 Tilkynn-
ingar.
9.45 iönaöur. Umsjónar-
maöur: Pétur J. Eiriksson.
10.00 Fréttir. 10.10
Veöurfregnir.
10.25 Kirkjutónlist frá
orgelviku I Lahti ÍFinnlandi
í fyrra: Werner Jacob leik-
ur Ariu Sebaldina eftir
Johann Pachelbel og Luigi
Fernando Tagliavini leikur
Konsert i a-moll eftir
Vivaldi/Bach.
L0.45 Orlofshús: Einar
Sigurösson tekur saman
þáttinn.
11.00 Morguntónleikar: Karl
Leisterog Drolc-kvartettina
leika Kvintett I A-dúr fýrir
klarinettu og strengjakvart-
ett op. 146 eftir Max Reger.
Alfred Brendel og
Sinfóniuhljómsveit útvarps-
ins i Munchen leika Pianó-
konsert op. 42 eftir Arnold
Schönberg: Rafael Kubelik
stj.
12.00 Dagskrá. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veöurfregnir Fréttir
Tilkynningar. Viö vinn-
nuna: Tónleikar.
15.00 Miödegissagan: „Ofur-
vald ástriöunnar” eftir
Heinz G. Konsalik Bergur
Björnsson þýddi. Steinunn
Bjarman les söguiok (19).
15.30 Miðdegistónleikar: John
Williams og Enska
kam mersveitin leika
Konsert i D-dúr fyrir gitar
og strengjasveit eftir
Antonio Vivaldi: Charles
Groves stj. / Ulrich Koch og
Kammersveitin i Pforzheim
leika Konsert fyrir viólu og
strengjasveit eftir Giovanni
Battista Sammartini: Paul
Angerer stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar
(16.15 Veöurfregnir).
16.20 Popphorn Halldór
Gunnarsson kynnir.
17.20 Litli barnatiminn: Gísli
Asgeirsson sér um timann
17.40 Barnalög
17.50 Orlofshús. Endurtekinn
þáttur frá morgni sama
dags.
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Skólakór Garöabæjar
syngur i Háteigskir kju
Söngstjóri: Guöfinna D.
ólafsdóttir. Jónina Gisla-
dóttir leikur á pianó.
20.00 A niunda timanum
Guömundur Arni Stefáns-
sonog Hjálmar Arnason sjá
um þáttmeö blönduðu efni
fyrir ungt fólk.
20.40 íþróttir Hermann
Gunnarsson segir frá.
20.55 tþróttamaöur, hollur
þegn þjóö og landi
Frásöguþáttur eftir Jónas
Jónsson frá Brekknakoti.
Hjörtur Pálsson les.
21.20 Victor Urbancic
tónskáld og söngstjóri Þor-
steinn Hannesson tónlistar-
stjóri flytur formálsorö aö
flutningi þriggja tónverka
eftir dr. Urbancic.
Sinfóniuhljómsveit tslands
leikur „Gleðiforleik”, Egill
Jónsson og höfundurinn
leika Sónötufyrir klarinettu
og pianó, — og Vilhjálmur
Guöjónsson, Þorvaldur
Steingrimsson og Sveinn
Ólafsson leika Konsert fyrir
þrjá saxófóna.
22.05 Kvöldsagan:
„Góugróöur” eftír Krist-
mann Guömundsson Hjalti
Rögnvaldsson leikari by rjar
lesturinn.
22.30 Veöurfregnir. Fréttir.
22.45 Reykjavikurleikar I
frjálsum IþróttumHermann
Gunnarsson lýsir frá
Laugardalsvelli.
23.05 Djassþátturi umsjá Jóns
Múla Arnasonar.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
sjónvarp
Miðvikudagur
9. ágúst
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Nýjasta tækni og vlsindi
(L) umsjónarmaöur Sigurö-
ur H. Richter.
21.00 Dýrin min stór og smá
(L) breskur myndaflokkur í
þrettán þáttum. 2. þáttur.
Hundadagar Efni fyrsta
þáttar: James Herriot ger-
ist aðstoöarmaöur Farnons
dýralæknis I sveitahéraöi
einu i Yorkshire. Margir
bændurnir eru litt hrifnir af
nýjungumogvilja halda sig
við gömlu aðferöirnar. Þeir
taka þvi' nýja lækninum fá-
'lega, en eftir aö hann hefur
sýnt hvaö I honum býr,
breytast viöhorf þeirra. Eitt
sinn þegar Farnon er aö
heiman er Herriot kallaöur
til aösinna einum af hestum
Hultons lávaröar. Ráös-
maöurinn hefur enga trú á
honum, og þegar Herriot
kveöur upp þann úrskurö,
aö hesturinn sé meö garna-
flækju og eina úrræöiö sé aö
skjóta hann, veröur ráös-
maöurinn æfur og hótar aö
lögsækja hann. Þýöandi
Oskar Ingimarsson.
21.50 Iþróttir Frá Reykja-
vikurleikunum i frjálsum
iþróttum. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
22.30 Dagskrárlok
Skákin
27. Hd 1
28. Hdd4
29. Kg2
30. Hh4
31. Bc5
llbb2
Hbl +
Hba l
h6
e5
32. Ba7 Ke6
Staða Kortsnojs er nú orðin
heldur skárri, en hann átti litinn
tima eftir fyrir siöustu leikina.
Karpov átti hins vegar klukku-
stund eftir.
33. Hcg4 Be7
34. Hh5 Bf6
35. Hc4 Kd7
36. Bb8
C6
37. He4 Hxa4
38. C4 Ha5
39. Bxe5 Bxe5
40. Hhxe5 Hxe5
41. Hxe5 Ha4
42. He4 Ha5
43. h4 h5
og keppendur sömdu um jafn-
tefli, enda getur hvorugur gert
sér vinningsvonir i lokastöð-
unni.
Bragi Kristjánsson.
Nýkomin styrktarblöð og
augablöð í eftirtaldar
bifreiðar:
Hœkkið bílinn upp svo að Hann taki ekki
niðri ó snjóhryggjum og holóttum vegum
Bedford 5 og 7 tonna augablöð aftan.
Datsun diesel 70-77 augablöð aftan.
Mercedes Benz 1418, augablöð og krókblöð.
Mercedes Benz 822 og 1118, augablöð.
Scania Vabis L55 og L56, augablöð og krókblöð
aftan.
Scania Vabis L76, augablöð og krókblöð.
2” 2 1/4” og2 1/2” styrktarblöð i fólksbila.
Mikið úrval af nxiðfjaðraboltum og fjaðra-
klemmum.
'
Smiðum einnig fjaðraklemmur eftir máli.
öenaum í postkrotu nvert a tana sem er.
Bílavörubúðin Fjöðrin h.f.
Skeifan 2, simi 82944.