Tíminn - 27.09.1978, Síða 13
Mibvikudagur 27. september 1978
13
Guttormur Sigurbjörnsson,
Sunnubraut 10, Ktípavogi, for-
stjóri Fasteignamats rikisins, er
sextuguri dag. Hann erfæddur aö
Hallormsstað i Suður-Múlasýslu
27. september 1918. Foreldrar
hans eru hjónin Gunnþóra Gutt-
ormsdóttir og Sigurbjörn Snjólfs-
son, Gilsárteigi, Eiðaþinghá.
Guttormur lauk prófi frá
Héraðsskólanum á Eiðum 1938 og
búfræðinámi frá Hvanneyri 1941.
Hann lauk iþróttakennaraprófi
1942 og prófi frá Iþróttaskólanum
i Osló 1951. Hann stundaði nám i
endurskoðun i Málmey i Sviþjóð
og lauk þaðan prófi. Jafnframt
tók hann þátt i námskeiðum i
endurskoðun og skattarétti i Osló,
Stokkhólmi og Málmey á árunum
1956-1958. Hann var kennari við
■barnaskólann á Eskifirði og
iþróttakennari hjá Ungmenna- og
Iþróttasambandi Austurlands á
árunum 1942-1944.
A árunum 1945-1955 átti Gutt-
ormur heima á Isafirði, eða i 10
ár. Hann var forstjóri Sundhallar
Isafjarðar 1945-1952, en á þvi' ári
var hann skipaður skattstjóri á
Isafirði og þvi starfi gegndi hann
þar til hann flutti úr bænum vorið
1955, einsog að framan greinir. A
árunum 1954-1955 var hann
bæjarfulltrúi fyrir Framsóknar-
flokkinn á tsafirði og jafnframt
bæjarráðsmaður og varaforseti
bæjarstjórnar.
Að margskonar fétags- og
iþróttamálum vann Guttormur
mjög mikið hér i bænum á Isa-
fjarðarárum sinum. Formaður
Skiðafélags ísafjarðar var hann
1946-1949 og formaður Iþrótta-
bandalags Isfirðinga 1951-1955.
Hann tók mikinn þátt i sönglifi
bæjarins, söng með Karlakór Isa-
fjarðar árum saman, og einnig i
kvartett, sem á þeim árum söng
oft á samkomum i bænum. Hann
var einn af aðalhvatamönnum að
stofnun Framsóknarfélags Isfirð-
inga og aö stofnun blaðsins Isfirð-
ings 1949. Ritstjóri blaðsins var
hann þartilhann flutti úr bænum.
Vegna áhuga og dugnaðar Gutt-
orms var mjög ánægjulegt að
vinha með honum að félagsmál-
um. Um það munu margir Isfirö-
ingar eiga góðar minningar.
Siðan Guttormur flutti frá ísa-
firði hefur hann við margvisleg
störf fengist. Erindreki Fram-
sóknarflokksins i Reykjavik var
hann 1955-1957. Deildarstjóri hjá
Skattstofu i Kópavogi 1958-1962.
Guttormur Sigurbjörnsson
Bæjarritari i Kópavogi var hann
um skeið og hann hefur átt sæti i
nokkrum opinberum nefndum.
Frá árinu 1974 hefur hann verið
forstjóri Fasteignamats rikisins.
Eiginkona Guttorms er Aðal-
heiður Guðmundsdóttir, Björns-
sonar fyrrv. kaupmanns á Isa-
firði. Þau eiga einn son, Ingva
Kristján.
Ég og kona min sendum Gutt-
ormi og fjölskyldu hans bestu
hamingjuóskir i tilefni sextugsaf-
mælisins og þökkum ágæt kynni.
Undir þær óskir hyggég að marg-
ir góðkunningjar hans á Isafirði
vilji taka.
Jón Á. Jóhannsson
Sextugur
Guttormur
í?* 'ffl*®*'**.
aM , , -
• •
g^g
ÆÆ
■M'-.ím II
Þegar vinur okkar Guttorms
Sigurbjörnssonar sagöi mér frd
þvi fyrir nokkrum dögum aö stór-
afmæli væri framundan hjá hon-
um, varö mér fyrst á aö segja:
Hann hlýtur aö vera oröinn f imm-
tugur. Jú, ekki var boriö á móti
þvi, heldur væri sextugsafmæli i
vændum. Bókin tslenskir sam-
tiöarmenn staöfestir þetta, og þá
cr aö trúa.
Þvi veittist mér erfitt að gera
mér grein fyrir þvi að Guttormur
væri að verða sextugur, að hvort
tveggja er að maðurinn er ávallt
ungur i anda, áhugasamur og
ósérhlifinn, svo af ber, og einnig
það að hann er mjög vel á sig
kominn likamlega. Hann tók
ungur iþróttakennarapróf og
hefur ávallt haft mikinn áhuga á
iþróttum og stundaö þær fram á
þennan dag. Félagsmála
„bakteriuna” tók hann einnig
ungur og losnar varla við hana úr
þessu.
Annar mun rekja hér lifshlaup
Guttorms að einhverju leyti frá
þvi' hann sleit barnsskónum
austur á Fljótsdalshéraði, og
vafalaust verður það enn betur
rakið að tiu árum liðnum. Kynni
okkar hófust fyrir tæpum áratug,
þegar ég fluttist i Kópavoginn,
þar sem Guttormur hafði þá búið
og starfað um alllangt skeið.
Hann varð bæjarritari i Kópavogi
1962 og gegndi þvi starfi uns hann
varð bæjarfulltrúi árið 1970 fyrir
Framsóknarflokkinn. Hann var
ekki nýgræðingur á stjórnmála-
sviðinu, hafði m.a. verið bæjar-
fulltrúi á ísafirði og erindreki
Framsóknarflokksins. Arið 1974
tók Guttormur þá ákvörðun að
gefa ekki kost á sér áfram til setu
i bæjarstjórn. Skömmu slðar var
honum falin forstjórn Fasteigna-
mats rikisins og hefur hann gegnt
þvi starfi með ágætum eins og
öðrum, enda til þess starfs gagn-
menntaður, jafnt iskólum sem að
lif'sreynslu.
Þegar Guttormur lét af störfum
sem bæjarfulltrúi kom kannski
allra best i ljós ósérhlifni hans oa
félagsmálaáhugi. Hjá ýmsum er
það þvi miður svo, að slikur áhugi
er i réttu hlutfalli við þær vegtyll-
ur, sem þeir telja að falla muni
sér i skaut. En Guttormur hefur
ekki legið á liði sinu fremur en
áður. Fyrir það skulu honum hér
færðar séístakar þakkir. Þá
hefur Guttormur sinnt málefnum
iþróttahreyfingarinnar af mikl-
um áhuga, og munu þær vinnu-
stundir ótaldar, sem hann hefur
lagt landsins stærsta ungmenna-
félagi, Breiðabliki, siðustu árin.
Það var aldrei ætlunin að þetta
yrði langloka, enda óþarft að rita
æviminningu um séxtugan ungl-
ing. Sjálfsagt er Guttormur búinn
að hrista höfuðiö oft, þegar
hingað er komið, og vafalitið
hefur hans næma skopskyn komið
honum tii þess að brosa nokkrum
sinnum. Er því mál að koma aö
tilefninu: að óska honum og fjöl-
skyldu hans til hamingju með
timamótin og þakka liðin kynni.
Magnús Bjarnfreösson
Nauðungaruppboð
Samkvæmt ákvörðun skiptaréttar
Strandasýslu verður haldið opinbert' upp-
boð að Djúpuvik i Árneshreppi þriðjudag-
■> októfc r ' 978 k’. ti.oö.
Seit verður ’ausafé þrotabús Háafells h.f.
svo sem rafstöb og ýmis tæki og áhöld til
notkunar við rækjuvinnslu.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Sýslumaður Strandasýslu
Keflavík
Timinn óskar eftir að ráða umboðsmann
fyrir blaðið i Keflavik.
Upplýsingar i sima 92-1373 eða hjá af-
greiðslustjóra i sima 86300 Reykjavik.
í Reykjavík
vantar okkur hæð i tvi- eða þribýlishúsi
með bilskúr. Góð útborgun.
Sölumenn: örkins.f.
Páll Helgason Fasteignasala
Eyþór Karlsson Hamraborg 7
Lögmaður 200 Kópavogi
Sigurður Helgason Simi 44904
Vaaitar ykkur vasapening?
Viljum ráða sölubörn til að selja Timann og Heimilistimann á
morgun, fimmtudag.
Góð söiulaun.
Blöðin send heim ef óskað er.
Siðumúla 15. Simi 86300.
Keflavík
Menn helst vanir járnsmiðavinnu óskast
til starfa strax, mikil vinna. Upplýsingar i
sima 92-2215 og 92-2848.
Vélarverkstæði Sverre Stengrimsen h/f
við höfnina Keflavik.