Tíminn - 08.10.1978, Síða 3
Sunnudagur 8. október 1978
3
Vetrarstarf Æskulýðsráðs Reykjavíkur:
- tóm
Nýjung
Vetrarstarf Æskulýðsráðs
Reykjavlkur er nú að hefjast. Það
er um flest með svipuðu sniði og
undanfarin ár, en þó er um eina
merka nýjung að ræða, þvl að I
vetur verður boðið upp á
tómstundastarf fyrir 10-12 ára
börn í félagsmiðstöðvum ráðsins,
Fellahelli ogBústöðum, en tillaga
formanns æskulýðsráðs um þetta
efnivar samþykkt á fundi rá-ðsins
nýlega. Þetta starf fer fram á
þriðjudögum kl. 16.00-19.00 og á
laugardögum kl. 14.00-19.00.
Börnin geta skráð sig I ýmsa tóm-
stundahópa, verið við spil og leiki
og tekið þátt i undirbúningi og
framkvæmd stuttra skemmtana
á laugardögum.
Æskulýðsráð telur, að full þörf
sé á slíku framboði tómstunda-
iðju fyrir allstóran hóp barna, og
vill með þessu gera athugun á
því, hversu nýta megi félagsmið-
stöðvar fyrir umræddan aldurs-
höp.
Tómstundastarf fyrir 7.-9. bekk
grunnskólans er nú að hefjast.
Það fer fram i 15 skólum borgar-
innar.og verða að likindum starf-
andi atlt að 130 hópar, með u.þ.b.
1.600 þátttakendum.
Vetrardagskrá félagsmiðstöðv-
anna, Fellahellis og BUstaða, tek-
ur að flestu leyti gildi um mán-
aðamótin. Reynt hefur verið að
ákveða sem flesta starfsþætti
fyrir allan veturinn, og er þar
þegar um mikið starf að ræða,
bæði hjá ýmsum samtökum og á
vegum staðanna sjálfra. Sam-
kvæmt reynslu kemur þó einnig
til verulegt, tilfallandi starf.
Æskulýðsráð veitir ýmiss konar
samtökum og hópum húsnæöisað-
stöðu á Frikirkjuvegi 11, til
fundahalda, námskeiða o.þ.h.
Hægt er að panta slíka aðstöðu á
skrifstofu ráðsins þar. Jafnframt
annast skrifstofan útleigu á
ferðadiskóteki og bingóbúnaði
fyrir skóla og æskulýðsfélög.
Eins og áður fá smærri hópar
úr æskulýðsfélögum inni i Saltvik
á Kjalarnesi fyrir „útilegur”, en
sú þjónusta hefur verið mikið not-
uð undanfarin ár.
Ýmis námskeið fara fram á
vegum æskulýðsráðs i haust og
vetur. Nýlokið er námskeiði i
meðferð kvikrnyndasýningavéla,
námskeið fyrir leiðbeinendur i
félagsmálafræðslu hefst innan
skamms, og gert er ráð fyrir
a.m.k. 2öðrum leiðbeinendanám-
skeiðum. Þá verða námskeið i
stunda-
starf fyrir
10-12 ára
krakka
notkun siglingatækja og ýmsu
öðru, er sjóferðum viðkemur,
fyrir félaga siglingaklúbbsins
Sigluness.
Upplýsingablöðum félagsmið-
stöðvanna, sem bera heiti þeirra,
verður dreift i viðkomandi hverf-
um strax eftir helgi, og eru
forráðamenn barna og unglinga
hvattir til að kynná sér éfni
þeirra.
Höfðinglegar gjaíir
til Fáskrúðsfjarðarkirkju
E.H. Miklaholtshreppi. —
Enn hafa Káskrúöarbakka-
gjafir. Þann 9. sept. s.l. af-
hentu börn, tengdabörn og
fóstursynir Guðbjarts
Kristjánssonar og Guðbröndu
Guðbrandsdóttur á Hjarðar-
felli kirkjunni að gjöf fögur
messuklæði, rykkiiin, hökui og
stólu, til minningar um for-
eldra sina. Einnig fylgdi gjöf-
inni vönduð hilla undir Guð-
brandsbibliu sem kirkjan átti
fyrir og þar með tveir kerta-
stjakar.
Gefendur og fjölmennur
hópur afkomenda og ættingja
þeirra Guðbjarts og Guð-
bröndu komu saman i
Fáskrúðarbakkakirkju, þar
sem afhending gjafanna fór
fram, en þaðan var síðan farið
i félagsheimilið Breiðablik til
kaff idrykkju.
Þess var minnst að þennan
sama mánaðardag lést Guð-
bjartur heitinn árið 1950, og
þann 18. nóv. n.k. verða liðin
100 ár frá fæðingu hans.
Söfnuður Fáskrúðarbakka-
kirkju þakkar gefendum þess-
ar stórhöfðinglegu gjafir, og
minnist um leið með virðingu
og þökk þeirra Hjaröarfells-
hjóna, Guðbjarts og Guð-
bröndu, og allra starfa þeirra i
þágu sveitarinnar um langa
búskapartið.
ðex daga
Lundúnaferð
6.-11. nóyember. islenskur fararstjóri
Brottför 6. nóv. kl. 7 f.h.
og komiö til baka á mið-
nætti 11. nóvember.
Gist verður á
Hótel Cumberland,
Stratford Court og
Hotel Y
Knattspymu-
áhugamenn
missið ekki af
einstöku tækifæri til að
sjá leik í 4. umferð enska
deildarbikarsins 8. nóv-
ember.
Einnig eru tveir leikir 11.
nóvember: QPR — Liv-
erpool og Tottenham —
Nottingham Forest.
Jólin nálgast
Tryggið yður í tíma frá-
bæra ferð á hagstæðu
tækifærisverði.
Leitið nánari upplýs-
inga í tíma.
TSamvirmu-
ferðir _
AUSTURSTRÆT112 SÍMI27077
m LANDSYN
%lll# SKÓLAVÖRÐUSTÍG16
SIMI28899
Stefán Sæmundsson við tölvuna.
*
Mynd: Róbert
dvergtölvum
ATA — Dagana 9. og 10.
október verður haldin
sýning á dvergtölvum í
Krystalsal Hótels Loft-
leiða. Það eru Haukar
h.f. sem standa að
sýningunni.
Dvergtölvan er nýleg uppfinn-
ing sem hefur vakið mikla athygli
almennings í nágrannalöndum
okkar, bæði sökum stærðar- og
kostnaðar. Slikar tölvur eru
ætlaðar fyrir smærri fyrirtæki og
jafnvel heimili.
Þær geta séð um óliklegustu
hluti allt frá bókhaldi upp í þaö að
tefla við eiganda sinn.
Fyrir fyrirtækið er tölvan til
margra hluta nytsamleg. Bók-
haldið veröur einfalt og f ullkomið
yfirlit og uppgjör svo og hag-
reikninga sem má prenta á auga-
bragði. Tölvan getur annast
birgðavörslu ogskýrslugerö. Hún
getur tekið nemendur i skólum I
einkatima og á heimilinu sér hún
um búreikninga og skýrslur, er
dagbók, leikur við börnin og teflir
við húsbóndann.
Dvergtölvurnar komu fyrst á
markaöinn árið 1975. Þeim má
skipta I fjórar einingar: stjórn-
stöö, stjórnborð, tengiliöi og
minni. Stjórnstöðin stýrir vinnslu
tölvunnar i gegnum tengiliöina
eftir skipunum frá stjórnboröinu.
Stefán Sæmundsson hjá Hauk-
um h.f. sagði, að verð tölvunnar
væri það lágt, að þeir ættu von á
aðselja þær mörgum minni fyrir-
tækjum enda gætu þær sparað
einn mann á skrifstofu. Verö
slikrar tölvu væri lægra en kaup
manns i eitt ár. Einnig sagöi
hann, að ekki væri óliklegt, að
margireinstaklingarhefðu áhuga
á tölvunni.
1 janúar verða Haukar h.f. með
námskeið I þessu einfaldasta
tölvukerfi heimsins.