Tíminn - 23.11.1978, Side 20

Tíminn - 23.11.1978, Side 20
Sýrð eik er sígild eign IfcCiÖCiW \ TRÉSMIÐJAN MEIDUR V\ SÍÐUMÚLA 30 ■ SIMI: 86822 Gagnkvæmt tryggingafé/ag Fimmtudagur 23. nóvember 1978 261. tölublað 62. árgangur sími 29800, (5 línur) Verzlið í sérverzlun með litasjónvörp og hljómtæki Féll út- byrðis og drukknaði ATA — 1 fyrradag varö bana- slys, er maöur féll útbyröis af bátnum Gullþóri KE-85, en báturinn var þá viö veiöar noröur af Reykjanesi. Dragnót mun hafa slitnaö öörum megin og féll maöurinn útbyröis meö henni. Hann var látinn er til hans náöist. Dæmi um merkingar á Islensku fiskiskipi. Svörtu stafirnir á brúarvængnum eru skrásetningarnúmer skipsins Sérstakt skrásetn- ingarnúmer — á fiskiskip ESE — Nýlega túku gildi nýjar reglur um merkingu skipa hérlendis og eru helstu nýj- ungarnar þær aö fiskiskip skulu eftirleiöis vera merkt meö sérstöku skipaskrár- númeri, auk hinna venjulegu merkinga. Skipaskrárnúmeriö skal vera á báöum hliöum skipsins, brúarvæng og brúarþaki eöa öörum þeim staö sem sést vel úr lofti aö mati Siglingamála- stofnunar rikisins. Hæö stafanna skal vera 45 cm á fiskiskipum sem eru 30 brúttölestir eöa stærri og 25 cm á fiskiskipum sem eru minni en 30 brúttólestir, og skulustafirnir vera skýrt læsi- legir hvitir stafir á svörtum grunni, eöa svartir á hvitum grunni. Stafagerö er háö sam- þykki Siglingamálastofnunar rikisins. Gos á Miklu- brautinni ATA— Rétt upp úr klukkan 4 i gærdag rann þessi ölgeröar- blll til i hálkunni á mótum Miklubrautar og Lönguhllöar. Afleiöingarnar uröu þær, aö farmurinn losnaöi á palli bilsins og margir kassar, fullir af gosi, duttu á götuna. Brotnaöi mörg flaskan og rann gosiö I litratali eftir Miklubrautinni. 1 fyrstu var taliö, aö flöskur heföu dottiö á nærstaddan bil, en viö athugun kom I ljós aö hann var óskemmdur. — Timamynd: Róbert. 14 árekstrar í gær ATA — Umferöin gekk stór- slysalaust fyrir sig i Reykjavik I gær. Arekstrar uröu alls 14 og flestir minni háttar. Enginn meiddist I þessum árekstrum. Færö var mjög slæm á götum borgarinnr I gær og næstum útilokaö aö aka hratt. Þeir voru einnig margir, sem skildu bilinn eftir heima eöa komu honum ekki i gang. Allt þetta hjálpaöi til, aö árekstrar uröu ekki fleiri en raun bar vitni. Mikill eldur i gömlu húsi konu bjargað af svölum hússins ATA —Eins og Timinn skýröi frá I gær, kom upp eldur I húsinu aö Noröurstfg 3b i Reykjavik I fyrri- nótt. Þaö var klukkan 23:25 á þriöjú- dagskvöldiö að Slökkviliðinu barst tilkynning um, að mikill reykur kæmi frá húsi við Vestur- götuna. Er Slökkviliðið kom reyndist reykurinn koma úr húsinu Norðurstig 3b og var tals- verður eldur laus á annari hæð hússins. Fullorðin kona hafði leitað út á svalir hússins, þvi mikill reykur var I Ibúö hennar og hún komst ekki niður stigann vegna reyk- kófsins. Nærstaddur lögreglu- maður komst þó upp stigannogtil konunnar og hjálpaöi henni aö komast i ranabil slökkviliösins. Konan var flutt á slysadeild en Framhald á bls. 17. Lögreglumaöur telur kjark i konuna meöan karfa ranabilsins nálgast. — Timamynd: Tryggvi. Kaupfélögin í kröggum HEI — „Eins og kunnugt er horfir til algerra vandræöa hjá kaupfélögum innan Sambandsins vegna þeirra gifurlegu rekstrar- erfiöleika, sem smásöluverslun þeirra á nú viö aö gllma”, segir i nýjustu Sambandsfréttum. Veröa þessi mál tekin til sérstakrar um- fjöllunar á kaupfélagsstjórafundi sem haldinn vcröur n.k. föstudag og laugardag. Sambandsfréttir höfðu haft samband við fjóra kaupfélags- stjóra viös vegar um landið og spurt um ástandið hjá þeim. Ólafur Sverrisson hjá Kf. Borgnesinga sagði þróunina ákaflega óheppilega. Að visu heföi söluaukning fyrstu 9 mánuði ársins numið 51%, en á móti hefði vinnulaunakostnaður hækkað um 67% og færi þó fjarri aö versl- unarmenn væru ofsælir meö kjör sin. A s.l. ári sagöi Ólafur aö kaupfélagið hefði skilaö 11 millj. kr. tekjuafgangi, en I ár væri spurningin ekki um hagnað held- ur það hvaö tapiö yrði mikið. Helgi Rafn Traustason hjá Kf. Skagfiröinga taldi brúttótekjur I smásöluversluninni ekki gera meira en aö borga vinnulaunin, enekkertværi til greiöslu annarra kostnaðarliöa. Hann benti einnig á, að til viöbótar þessu hefðu kaupfélögin orðið fyrir skakka- föllum undanfariö vegna fóöur- vöruverslunarinnar. Innfluttar fóðurvörur væru keyptar á gjald- fresti erlendis frá, sem orsakaöi verulegt gengistap vegna gengis- fellingar og gengissigs. Fyrir- sjáanlegur væri verulegur rekstrarhalli á versluninni hjá Kaupfélagi Skagfirðinga. Þorsteinn Sveinsson hjá Kf. Héraösbúa sagði aö i þeim versl- unum félagsins sem eingöngu seldu dagvörur dygðu tekjurnar rétt fyrir launakostnaöi. I aðal- versluninni, þar sem verslað væri með fleiri vöruflokka væri ástandið heldur betra, en það væri ekki nema einstaka verslun sem gæti borið uppi svo fjölbreytt vöruúrval. Ólafur Ólafsson hjá Kf. Rangæ- inga sagði smásöluverslunina hafa verið rekna með halla s.l. ár og fyrirsjáanlega yrði hann mun meiri á þessu ári. t fyrra heföi hallinn veriö jaínaöur aö mestu með öörum rekstri, en i ár sæist ekki fram á annað en að langt yrði frá að þaö tækist. ólafur gat þess að menn teldu aö hagræöing i versluninni gæti ekki orðiö öllu meiri svo aö ekki tækist að spara eftir þeim leiðum. Ef ekki fengj- ust fram einhverjar umbætur yrði ekki hjá þvi komist að minnka þjónustu fyrir viðskipta- menn með lokun einhverra versl- unargreina. Stóran þátt þessa, taldi Ólafur vera lækkun álagn- ingar tvisvar á árinu og nú horfðu menn með kviða á fram komnar hugmyndir um frekari hækkun vaxta, sem ekki væri grundvöllur fyrir atvinnureksturinn að bera að óbreyttu ástandi. Blaðburðor íólk óskast Blaðburðarfólk óskast i eftirtaldar götur: Ægissíða Háteigsvegur Borgarholts- braut 9—14 Skjólbraut SíMI 86-300

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.