Fréttablaðið - 28.08.2006, Page 10
10 28. ágúst 2006 MÁNUDAGUR
SAN FRANCISCO
MINNEAPOLIS – ST. PAUL
ORLANDO
BOSTON
ÍSLAND
GLASGOW
MANCHESTER
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
OSLÓ
BERLIN
FRANKFURT
MÜNCHEN
MÍLANÓAMSTERDAM
ZÜRICH
MADRID
BARCELONA
LONDON
PARÍS
NEW YORK
BALTIMORE –
WASHINGTON
Ragna Skinner, hljóðmaður og tónlistarkennari, segir frá Manchester í nýjum
haust- og vetrarbæklingi Icelandair, Mín borg. Við bjóðum úrval pakkaferða,
helgarferða til 19 áfangastaða austan hafs og vestan, golfferða og sérferða.
Kynnið ykkur málið og takið síðan ákvörðun. Ævintýrin liggja í loftinu.
FLUG OG GISTING Í 3 NÆTUR FRÁ 39.900 KR.
ÍS
LE
N
S
K
A
A
U
G
LÝ
S
IN
G
A
S
TO
FA
N
/S
IA
.IS
I
C
E
3
37
1
5
0
6
/2
0
0
6
+ Bókaðu á www.icelandair.is
„ÉG MÆLI MEÐ GRÆNMETISRÉTTI
HJÁ BÚDDAMUNKUM OG HRESSINGU
EFTIR TÓNLEIKA Á BIG HANDS“.
M
A
N
C
H
ES
TE
R
MÍN
Vildarpunktar
Ferðaávísun gildir
*Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting á Palace Hotel**** á mann í tvíbýli í 3 nætur og morgunverður.
Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 króna greiðslu upp í flugfargjald með áætlunarflugi Icelandair. Þetta flug gefur 3.000–7.600 Vildarpunkta.
NÁM Allt lítur út fyrir að
Chevening námsstyrkir,
sem breska sendiráðið
hefur umsjón með og
veitir árlega fyrir hönd
breska utanríkisráðu-
neytisins, muni ekki
bjóðast Íslendingum frá
og með næsta ári. „Við
erum ekki búin að fá
endanlega staðfestingu
en það bendir allt til þess
að við fáum ekki lengur
styrki, því miður. Rökin eru þau
að Íslendingar séu of efnuð þjóð,“
segir Árdís Sigurðardóttir, blaða-
fulltrúi breska sendiráðsins.
„Alp Mehmet sendiherra og
við í sendiráð-
inu erum að
reyna allt til að
finna nýjar leið-
ir til að halda
styrkjunum, því
það er mjög
mikilvægt að
Íslendingar
haldi áfram að
sækja háskóla-
nám í Bretlandi
og hafi tök á því
að fá einhverja styrki til þess.
Það sjá það allir að það er gott
fyrir Ísland og Bretland að
styrkja tengslin á milli land-
anna,“ segir Árdís.
Chevening styrkir,
sem hétu áður British
Council skólastyrkir og
seinna FCOSAS, hafa
verið veittir Íslending-
um frá stríðslokum, en
íbúar um 160 landa geta
sótt um styrkina. Á vef-
síðu Chevening styrkj-
anna segir að hætt sé að
veita þá í flestum lönd-
um Vestur Evrópu. „Það
er aðallega verið að
hugsa um mikið af Afríkulönd-
um og Asíulöndum þar sem slíkir
styrkir eru lífsspursmál. Núna
fá engin lönd innan Evrópusam-
bandsins styrkina lengur, enda
borga þau lægri skólagjöld í
Bretlandi. En við höfum fengið
styrkina undanfarin ár, eins og
til dæmis Noregur, því við erum
utan ESB og erum þar af leiðandi
að borga full skólagjöld,“ segir
Árdís.
Árdís segir að ákvörðun For-
eign and Commonwealth Office í
Bretlandi hafi ekki komið á
óvart, en stofnunin hefur verið
að draga úr námsstyrkjum til
handa Íslendingum undanfarin
ár. Um fimm til átta Íslendingar
hafa fengið Chevening styrki
árlega og í seinni tíð hefur ekki
verið um fulla styrki að ræða.
- rsg
Breska utanríkisráðuneytið hættir að veita íslenskum námsmönnum styrki:
Íslendingar of ríkir fyrir styrki
ALP MEHMET
ÁRDÍS
SIGURÐARDÓTTIR
NAXI-KONUR BÍÐA VIÐSKIPTAVINA Gamli
bærinn í Lijiang í Yunnan-héraði í Kína er
á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna
og vinsæll ferðamannastaður. Bærinn er
„höfuðborg“ hins ímyndaða lands, Sjangrí
La. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
AUSTURRÍKI, AP Austurríska stúlkan
sem fannst í síðustu viku eftir að
hafa verið í haldi mannræningja í
átta og hálft ár, hefur rétt á að vera
látin í friði. Þetta sögðu talsmenn
austurrísku lögreglunnar í gær,
eftir að foreldrar stúlkunnar kvört-
uðu yfir því í fjölmiðlaviðtölum að
vera meinað að hitta dótturina
endurfundnu.
Foreldarnir, sem skildu skömmu
eftir að stúlkan hvarf, hafa aðeins
fengið að sjá hana í nokkrar mínút-
ur til að bera kennsl á hana, en hún
hefur síðan verið „á öruggum stað“
í umsjá sálfræðinga. Talsmenn lög-
reglu tóku fram í gær að stúlkan
væri ekki í haldi. Hún hefði sjálf
óskað eftir því að hitta engan núna
um helgina, heldur ekki foreldr-
ana.
„Ef Natascha vill fara niður í
miðbæ [Vínarborgar] og fá sér
kaffi, þá er henni það frjálst,“ sagði
Gerhard Lang, talsmaður rann-
sóknarlögreglunnar. „Ef hún vill
getur hún farið hvert sem henni
sýnist,“ sagði hann.
Natascha Kampusch skaut aftur
upp kollinum í síðustu viku og í ljós
kom að hinn 44 ára gamli Wolfgang
Priklopil hafði rænt henni og hald-
ið í gluggalausu kjallaraherbergi í
húsi sínu í allan þennan tíma, frá
því hann rændi henni þegar hún
var á leið í skóla þann 2. mars 1998.
Priklipil fyrirfór sér eftir að hún
slapp úr prísundinni. Hún notaði
tækifærið til að laumast út þegar
hann var upptekinn í símanum.
Reinhard Haller, þekktur sál-
fræðiprófessor, sagði í útvarpsvið-
tali að Kampusch yrði nú að læra
að treysta aðstandendum sínum og
kynnast öryggistilfinningu.
Samkvæmt fjölmiðlafrásögnum
var Kampusch óhuggandi er hún
frétti að fangari hennar hefði látið
lífið. Eftir Haller er haft að Prik-
lopil hafi heilaþvegið stúlkuna.
Hún virtist þjást af „Stokkhólms-
heilkenninu“ á háu stigi, en það er
þegar gísl fer að „halda með“ fang-
ara sínum og kvað vera algeng sál-
fræðileg varnarviðbrögð sem gera
gísl fangavistina bærilegri. - aa
Vill ekki sjá foreldrana
VINKONUR NATÖSCHU Þrjár fyrrverandi vinkonur Natöschu í viðtali fyrir utan húsið í smá-
bænum Strasshof norðaustur af Vínarborg þar sem hún var í gíslingu.FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Austurríska stúlkan sem fannst eftir áralanga prísund hjá sálsjúkum manni hvílist á öruggum stað:
DÓMSMÁLARÁÐHERRA Björn Bjarna-
son, vill hefja umræður um hvort
nauðsynlegt sé að stofna leyni-
þjónustu hér á landi. Þetta sagði
ráðherra í ræðu á
fundi Rótarý-
klúbbs Austurbæj-
ar þar sem hann
flutti ræðu um
varnarmálin. Ræð-
una birtir hann í
heild á heimasíðu
sinni, www.bjorn.
is.
Björn sagðist í
ræðunni ætla að beita sér fyrir
umræðum um leyniþjónustuna og
ítrekar nauðsyn þess að nægileg
pólitísk samstaða náist um málið.
Hann upplýsir enn fremur að
ráðuneyti sitt hafi fengið sér-
fræðiráðgjöf frá Evrópusamband-
inu um stofnun leyniþjónustunn-
ar. -at
Björn Bjarnason:
Vill ræða um
leyniþjónustu
BJÖRN BJARNA-
SON