Fréttablaðið - 28.08.2006, Síða 20

Fréttablaðið - 28.08.2006, Síða 20
 28. ágúst 2006 MÁNUDAGUR Nú er vetur til alþingiskosninga. Í ljósi reynslunnar sýnast vera fleiri spurningarmerki á lofti um pólitíska þróun næstu mánaða en oftast áður á svipuðum stað á tímaási kjörtímabilsins. Það er óvissa um markmið flokka eins og Samfylkingar og Framsóknarflokks. Það er óvissa um verðbólguþróun. Það er óvissa um hvaða mál eru líklegust til þess að hafa mest áhrif á val kjósenda þegar nær dregur. Að þessu virtu er fróðlegt að rýna í niðurstöður skoðanakönn- unar sem Fréttablaðið birtir í gær og í dag. Þær fela í sjálfu sér ekki í sér stór tíðindi. En þar á móti staðfesta þær að um margt er erfiðara nú en fyrr að sjá ákveðna framvindu fyrir. Meirihluti stjórnarflokkanna er á tæpasta vaði og skilar þeim satt best að segja varla starfhæfum meirihluta. En í sjálfu sér er það ekki áhugaverð spurning í því ljósi að enginn veit hvort flokkarnir hafa hug á að starfa saman að loknum kosningum. Helsta áhyggjuefni Sjálfstæðisflokksins sýnist vera að fylgi kvenna hefur dalað aftur. Eftir margra ára lægð sveiflaðist það upp á við fyrir ári en sýnist samkvæmt þessu alltént ekki vera orðið stöðugt á nýjan leik. Framsóknarflokkurinn gat tæpast búist við uppsveiflu áður en reyndi á nýja forystu. Samfylkingin er enn undir kjörfylgi þó að hún bæti sig tals- vert frá síðustu skoðanakönnun. Vöxtur Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs er hins vegar svo mikill að hann þrengir aug- ljóslega stöðu Samfylkingarinnar til þess að gera sér dælt við Sjálfstæðisflokkinn. Könnunin leiðir í ljós að þriðjungur kjósenda á sér þann kost helstan að núverandi stjórn sitji áfram. Það bendir til nokkurrar þreytu í kjósendahópnum með samstarfið. Enginn einn annar kostur kemst þó í hálfkvist við þennan í augum kjósenda. Ríflega helmingur kjósenda vill einhvers konar stjórn með Sjálfstæðisflokknum. Þar á móti vill tæplega helmingur ein- hvers konar stjórn með Samfylkingu. Litlu færri vilja einhverja kosti með Vinstri grænu. Athyglisvert er að einungis tólf af hundraði kjósenda vilja Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna saman í ríkisstjórn. Í því felast nokkuð skýr skilaboð um að kjósendur sjá þessa flokka helst sem kosti hvorn á móti öðrum. Á þessu stigi er örðugt að bollaleggja um fyrstu taflleikina eftir kosningar. Þó má strax sjá þann möguleika að framsóknar- menn kjósi að halda sig til hlés með skírskotun til þess að mál- efnalegt olnbogarými á báða bóga sé of þröngt. Aðrir myndu sennilega líta á slíkan leik sem málefnalega uppgjöf. En með þessu móti gætu framsóknarmenn hugsanlega neytt Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna til samstarfs sem þjóðin virðist lítinn áhuga hafa á. Í þeirri stöðu er aukheldur ljóst að Vinstri grænt myndi halda vinstri væng Samfylkingarinnar í stöðugu uppnámi sem smám saman myndi eitra stjórnarsam- starfið. Slíkt samstarf myndi því aldrei standa lengur en í eitt kjör- tímabil og líklega skemur. Framsóknarflokkurinn fengi ráðrúm til þess að ná vopnum sínum við hliðina á Vinstri grænu en til þess hefur hann einmitt verið að tapa atkvæðum. Eins og sakir standa eru bollaleggingar af þessu tagi harla marklitlar. Þær þjóna fyrst og fremst þeim tilgangi að sýna hversu opin staðan er á taflborði stjórnmálanna. Endataflið geta menn einfaldlega ekki séð fyrir. SJÓNARMIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON Skoðanir kjósenda: Opin pólitísk taflstaða Dýrt spaug á Bíldudal Úlfar B. Thoroddsen, forseti bæjarstjórn- ar Vesturbyggðar, segir á fréttavef BB á Ísafirði að „verið sé að skoða í alvöru þann möguleika að koma vinnslu í frystihúsinu Bílddæling á Bíldudal af stað á ný.“ Í júní á síðasta ári lagði verksmiðjan upp laupana og um 50 manns misstu vinn- una. Síðan þá hafa margsinn- is borist fréttir af tilraunum manna til að koma vinnu af stað á ný og hafa ráðherrar, þingmenn, sveitarstjórnar- menn og fjárfestar setið fundi vegna þess. En það hlýtur að hafa verið í grín því fyrst núna er verið að skoða þetta í alvöru. Eigum við að gæta bróður okkar? Frétt Fréttablaðsins um Hlyn Sigurðar- son sem situr í fangelsi í Brasilíu við ómannsæmandi aðstæður hefur vakið mikla athygli. Margir hafa haft samband við Fréttablaðið og látið þá skoðun sína í ljós að ekki sé rétt að segja sögu þessa manns þar sem hann eigi ekki betra skilið fyrir það að hafa reynt að selja mikið magn af kókaíni. Öðrum svíður að vita af kvölinni sem landi okkar má þola þó svo að hann hafi illt unnið. Blaðamennskan snýst hins vegar ekki um það að fella dóm í þessum efnum heldur að segja frá svo fólk geti dæmt fyrir sig. Í Nýju Jórvík með hvítan staf Helgi Hjörvar fór til New York í síðustu viku og fikraði sig þar áfram með hvíta stafinn sem hann segist vera farinn að nota við aðstæður sem þykja erfiðar. Á vef sínum segir hann að umferðarmenningin sé þannig þar í borg að hann þori ekki annað en að nota stafinn. Þetta var þó ekki erind- ið sem Helgi átti til New York heldur fór hann með íslenskri sendinefnd til áttundu viðræðulotu í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna um sáttmála samtakanna í málefnum fatlaðra. Viðræðurnar báru tilætlaðan árangur og því virðist stafurinn ætla að reynast kapp- anum happagripur. jse@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA Sögurnar, tölurnar, fólki›. ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Portúgal Tyrkland Bókaðu strax á www.plusferdir.is 39.900kr. Heitt TILBOÐ Portúgal - Gisting á Alagoamar Tyrkland - Gisting á Club Ilaida Plúsferðir · Lágmúla 4 · 105 Reykjavík · Sími 535 2100 Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting í 7 nætur og íslensk fararstjórn. ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S PL U 33 82 9 08 /2 00 6 www.plusferdir.is Byltingardagurinn okkar er 1. mars. Þann dag árið 1989 þusti alþýðan út á götur borgarinnar og hellti sig fulla af nýfengnu frelsi: Bjórinn hafði verið leyfður. Bjór- dagurinn er okkar Bastilludagur. Mannkynssagan á það til að endurtaka sig og þá stundum með skoplegum hætti. Við getum sagt að hér hafi það gerst með ögn sak- lausari hætti. Íslenska byltingin hafði sínar afleiðingar en hún var ekki blóðug. Ártölin stemma hins- vegar undarlega vel. Réttum tvö hundruð árum eftir að Parísar- búar réðust að Bastillu-fangelsinu skáluðu Reykvíkingar fyrir betri tíð. 1989 var ekki bara frelsisár Austur-Evrópu. Það tók Frönsku byltinguna þó nokkur ár að ganga endanlega frá gamla kerfinu, gamla konung- dæminu. Loðvík XVI var ekki líf- látinn fyrr en fjórum árum eftir Bastilludag. Rúmum fjórum árum eftir Bjórdaginn gekk Ísland í EES og gömlu höftin féllu eitt af öðru. Nýir siðir leystu þjóð úr læðingi. Byltingarforingjarnir hétu Davíð og Jón Baldvin. Ég ætla þó seint að líkja þeim við grimmhundana Danton og Robes- pierre. En rétt eins og foringjarn- ir frönsku misstu þeir völd sín og allir vita hver náði þeim. Bylting- in át börnin sín en Napóleon át byltinguna. Frakkland varð keis- araveldi hvar einn maður réði öllu. Sumir halda því fram að keis- aratíminn hafi verið gullöld Frakka. Aðrir benda á mannslífin sem hann kostaði. 19. öldin var hinsvegar óumdeilanlega nokkuð frönsk. Frakkar áttu heiminn. Allt frá Washington til Pétursborgar þótti fínt að tala frönsku. Skáld- sögur Tolstois eru jafn fullar af frönskum frösum og skáldsögur nútímans eru af enskum. Frönsk orð smugu inn í flest tungumál heimsins. Sígaretta, lonníettur, karafla... (oftast heiti á einhverju spjátringapjátri). Á þessum tíma voru Frakkar í stöðugri útrás. Napóleon flaug til Rómar, Vínar og Brussel í hverri viku til frekari landvinninga. Árangur hans í útlöndum tryggði hásætið heima. Og smám saman var gengið frá gamla aðlinum, Búrbónunum. Það tók okkur Íslendinga reyndar ögn lengur að ganga frá „fjölskyldun- um fjórtán“ – Kolkrabbinn var ekki afhausaður fyrr en eftir alda- mót – og seint verður sjálfsagt talað um 21. öldina sem „íslensku öldina“. Þó hefur fyrsta íslenska orðið, „skyr“, nú hafið innrás sína í tungumál heimsins og kannski endar öldin á því að hugtök eins og „sólarfrí“ og „júróvisjónpartý“ verði notuð jafnt í Pétursborg og Washington. En að öllum rembingi sleppt- um þá rímar þetta allt þó undar- lega vel við örlög Frönsku bylt- ingarinnar. Foringjar hennar urðu að víkja fyrir útrásarmanni allra tíma. Hérlendis hafa völdin færst frá Alþingi til Kaupþings, úr Stjórnarráði í Viðskiptaráð. Hinir nýju kóngar Íslands eru útrásar- víkingarnir. Þeirra er mátturinn og dýrðin. Þeir eiga landið og blöðin. Þeir standa í stöðugum landvinningum. Franska byltingin hófst með blóðbaði og þróaðist yfir í stríð á erlendum grundum. Íslenska bylt- ingin hófst með bjórbaði en þró- aðist yfir í innrásir og yfirtökur á erlendum grundum. Hver er þá okkar Napóleon? Það er spurning. Baráttan stendur enn. Hann gæti verið sá sem var í sjö síðna viðtali í Mogganum í gær. Og hann gæti verið sá sem seint mun þiggja sjö síðna gjöf frá Mogga. Hann gæti verið Hr. Novator Samsonarson eða Baug- ur Bónusson. Hann gæti líka verið hálfbróðir hins fyrrnefnda, Straumur Burðarás Samsonar- son, eða náfrændi hins síðar- nefnda, Hagar Gaumsson. Þá koma þeir Byko Bankason og Árvakur Símason einnig til greina, sem og þeir feðgar Glitn- ir Íslandsson og Össur Marel Glitnisson. Svo ekki sé minnst á þá félaga KB Bank og FL Group. En okkar Napóleon gæti líka verið kona: Alfesca Flaga Acta- vis, Bakkavör Bankadóttir eða Dagsbrún Baugsdóttir. Hásætið er laust og baráttan stendur sem hæst. Keisari okkar hefur enn ekki verið krýndur við hátíðlega athöfn í Hallgríms- kirkju að viðstöddum páfa og kardínálum kapítalismans. Árang- urinn erlendis telur en ágangur- inn innanlands tefur: Síðustu full- trúar Búrbónanna sitja enn í háum heimastólum og kalla suma keis- arakandídata í yfirheyrslur með reglulegu millibili á meðan aðrir eru í náðinni. Baráttan um krúnuna stendur því sem hæst. Við bíðum spennt og fylgjumst með. Og getum svo- sem alveg slakað á: Napóleon ját- aði sig ekki sigraðan fyrr en árið 1815. Það eru því níu ár í okkar Waterloo. Við eigum eftir tæpan áratug af gullöld okkar. Íslenska byltingin Í DAG SYSTIR FRÖNSKU BYLTINGARINNAR HALLGRÍMUR HELGASON Franska byltingin hófst með blóðbaði og þróaðist yfir í stríð á erlendum grundum. Íslenska byltingin hófst með bjórbaði en þróaðist yfir í innrásir og yfirtökur á erlendum grundum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.