Fréttablaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 12
12 21. september 2006 FIMMTUDAGUR
BORINN ÚT Lögregla í Moskvu ber
meðlim flokks þjóðernis-bolsjevíka út
úr þinghúsinu í borginni í gær. Fjórir
flokksmenn, sem vildu fylgjast með
þingfundi, voru handteknir.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKIPULAGSMÁL Lóðahafar á Kringlu-
svæðinu vinna nú að deiliskipulagi
fyrir Kringlureitinn og sú vinna
verður kynnt borgaryfirvöldum
síðar á árinu. Þeir sem skipa verk-
efnishópinn eru lóðahafar á svæð-
inu.
Örn Kjartansson hjá fasteignafé-
laginu Stoðum segir reitinn afmark-
ast af Kringlunni að austanverðu en
Morgunblaðshúsinu, Sjóvá og Húsi
verslunarinnar að vestanverðu.
Örn segir að verið sé að skoða
aukið framboð á verslunarhúsnæði
á Kringlureitnum og haft hafi verið
sambandi við íslenska og erlenda
arkitekta vegna uppbyggingar
svæðisins. En þess má geta að
erlendir arkitektar komu að hönnun
Kringlunnar.
Örn útilokar ekki tengibyggingu
frá núverandi verslunarhúsnæði
yfir í Morgunblaðshúsið verði versl-
unarhúsnæðið stækkað í þá átt.
„Það er mikil aðsókn að verslun-
arplássi í Kringlunni og öll verslun-
arrými hennar hafa verið í útleigu
síðustu fjögur ár og biðlistar eftir
plássum.“
Stærð væntanlegs verslunarhús-
næðis er enn á tillögustigi og fékkst
ekki uppgefið. - hs
Verið er að skoða aukið framboð á verslunarhúsnæði á Kringlureitnum:
Bið eftir verslunarhúsnæði
KRINGLAN ER EFTIRSÓTT
Biðlistar eru eftir verslunarrými
í Kringlunni.
GRUNDARTANGI Lyftari ók á
starfsmann steypuskála Norður-
áls við Grundartanga seint á
mánudagskvöld. Maðurinn meidd-
ist lítillega og var fluttur með
sjúkrabíl til Reykjavíkur til
aðhlynningar.
Að sögn Ragnars Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra
fjármála- og stjórnunarsviðs
Norðuráls, fór betur en á horfðist.
Maðurinn hlaut engin beinbrot en
það brotnaði úr tveimur tönnum
auk þess sem hann skarst
lítillega.
Maðurinn hefur verið útskrif-
aður af spítala og mun hann vera
á batavegi. - þsj
Álverið við Grundartanga:
Lyftari keyrði á
gangandi mann
STJÓRNMÁL Halldór Blöndal gefur
ekki kost á sér til endurkjörs á
Alþingi í vor. Hann tilkynnti um
þá ákvörðun sína á aðalfundi Sjálf-
stæðisfélags Akureyrar í gær-
kvöldi en það var einmitt á Akur-
eyri sem hann hóf þátttöku í
stjórnmálum.
„Ég byrjaði hér og hef verið
virkur þátttakandi í öllum alþingis-
kosningum síðan 1963, fyrst sem
blaðamaður og erindreki og svo
sem frambjóðandi 1971 og þing-
maður síðan 1979,“ sagði Halldór í
samtali við Fréttablaðið í gær.
Hann segir tíma til kominn að
draga sig í hlé og gefa öðrum tæki-
færi. „Ég verð 69 ára á næsta ári
og mig langar að vera meira með
konu minni og börnum á meðan
heilsan er enn góð.“
Halldór var varaþingmaður frá
1971 til 1979 þegar hann hlaut fast
þingsæti. Hann var landbúnaðar-
og samgönguráðherra 1991-1995
og samgönguráðherra 1995-1999.
Þá var hann forseti Alþingis 1999-
2005. Halldór er nú formaður
utanríkismálanefndar þingsins.
„Þetta hefur verið langur en
mjög góður tími. Stjórnmál eru
krefjandi og þó stundum blási á
móti er starf stjórnmálamanns-
ins mjög gott,“ segir Halldór.
Hann kveðst hafa náð ýmsu fram
á ferli sínum og nefnir í því sam-
hengi jarðgöng til Ólafsfjarðar
og Siglufjarðar og Háskólann á
Akureyri.
Fjögur ár eru síðan Halldór
ákvað að þetta kjörtímabil yrði
hans síðasta. Hann ætlar að sitja
til vors; segist enda alls ekki vera
uppgefinn en meiri samvistir við
fjölskylduna togi í hann. Halldór
þakkar konu sinni, Kristrúnu
Eymundsdóttur, fyrir ríkan stuðn-
ing í gegnum árin. „Ef maður á
ekki góða konu þá getur maður
ekki staðið í svona.“ - bþs
Halldór Blöndal hættir þingmennsku í vor eftir 35 ára störf í stjórnmálum:
Ef maður á ekki góða konu þá
getur maður ekki staðið í svona
HALLDÓR BLÖNDAL Hefur setið á þingi síðan 1979.
MÁLÞING
um loftlagsbreytingar
Staðardagskrá 21
HVAÐ GET ÉG GERT?
Málþingið verður haldið í Hafnarborg fimmtudag-
inn 21. september og hefst klukkan 20.00.
Á málþinginu er m.a. útskýrt af hverju loftslags-
breytingar stafa, hvað í daglegu lífi okkar hefur
áhrif á loftslag og veittar gagnlegar upplýsingar um
ýmislegt sem almenningur getur gert til að draga
úr þessum breytingum.
DAGSKRÁ:
20:00 Setning
Gunnar Svavarsson
forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar
20:10 Loftslagsbreytingar – Hverjum klukkan glymur
Ingibjörg Björnsdóttir Landvernd
20:30 Orkunotkun – Tækifæri til breytinga
Sigurður Friðleifsson Orkusetri
20:50 Hjólreiðar - Hreinna loft,
bætt lýðheilsa, betri fjárhagur
Morten Lange formaður
Landssamtaka hjólreiðamanna
21:10 Kaffi
21:30 Loftslagsbreytingar og framtíðin
Hvernig fáum við börnin okkar til að breyta til?
Ingimar Bjarni Sverrisson
ungmennaráði Hafnarfjarðar
21:50 Loftslagsbreytingar - Hvað veldur
mótstöðu við breytingar á hegðun?
Marteinn Steinn Jónsson sálfræðingur
22:10 Full af lofti
Arnheiður Hjörleifsdóttir
Landsskrifstofa Staðardagskrár 21
22:30 Málþingi slitið
Stjórnandi málþingsins er Gunnar Svavarsson
forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.
Allir velkomnir – enginn aðgangseyrir
Kynning á tvíorku bílum frá Heklu og Toyota verður við
Hafnarborg frá kl. 18 sama dag. Allir áhugamenn um bíla
eru hvattir til að kynna sér nýja valmöguleika í bílum.
Nánari upplýsingar eru á
www.hafnarfjordur.is