Fréttablaðið - 21.09.2006, Síða 38

Fréttablaðið - 21.09.2006, Síða 38
[ ] Vigdísi Gunnarsdóttur er svo sannarlega margt til lista lagt, því auk þess að leika, syngja og skrifa stendur hún í stór- ræðum heima hjá sér. Klukkustundirnar þyrftu að vera fleiri í sólarhringnum hjá Vigdísi. Á daginn vinnur hún að undirbún- ingi sýningar á vegum Latabæjar, sem mun fara um þver og endi- löng Bandaríkin, þar sem leikarar verða ráðnir til að fara með hlut- verk tveggja þekktra sögupersóna úr sjónvarpsþáttunum. Vigdís tengist Latabæ reyndar með margvíslegum hætti, því hún fór á sínum tíma með hlutverk Höllu hrekkjusvíns í uppsetningu á „Glanna glæp í Latabæ“ í Þjóð- leikhúsinu. Þegar Vigdís lýkur vinnu við Latabæ á daginn taka við skriftir á kvöldin og nóttunni. „Skrifin tengjast spennandi handritanám- skeiði sem ég sæki í Danmörku,“ segir Vigdís og eftirvæntingin leynir sér ekki í röddinni, enda segist hún vera mjög áhugasöm um handritsgerð auk þess sem hún er önnum kafin sem pródús- ent í lausavinnu. Með hliðsjón af ofansögðu er varla skrítið að það skipti Vigdísi máli að hafa góða vinnuaðstöðu. Henni hefur hún komið upp heima hjá sér í skemmtilegri íbúð í miðbæ Reykjavíkur, en í hana flutti hún fyrir sjö árum. „Á kvöld- in sit ég við þetta forláta borð og skrifa,“ segir hún um virðulegt borð í stofunni, en þar er á ferð- inni fyrsta borðstofuborð afa hennar og ömmu sem hún segist hafa verið einstaklega lánsöm að eignast. „Borðið gegnir reyndar margvíslegu hlutverki, því auk þess að vera fínasta skrifborð er það notað undir borðhald,“ bætir hún við. Íbúð Vigdísar er falleg og björt, en hún segist hafa varið nokkrum tíma í að gera hana upp. „Ég opn- aði á milli eldhússins og stofunnar til að stækka rýmið,“ útskýrir hún. „Svo skipti ég eldhúsinnrétting- unni út fyrir innréttingu sem Dan- íel Magnússon, myndlistarmaður og húsgagnahönnuður, setti upp. Við hönnuðum hana í sameiningu en hann lagði alveg ótrúlega vinnu í smíðina. Sem dæmi um það eru höldurnar á innréttingunni sagað- ar út og handpússaðar. Daníel hannaði einnig eldhússtólana sem eru eins og sést sannkölluð lista- smíði.“ Vigdís reyndi að gera sem mest sjálf á meðan á breytingun- um stóð og bendir á í því sam- hengi að hún hafi ekki farið með fleipur í sjónvarpsauglýsingun- um „Ekkert mál“, þar sem hún hvetur fólk til að ráðast sjálft í viðhald, viðgerðir og smíðar sökum þess hve auðvelt það sé. „Ég viðurkenni þó fúslega að ég fól iðnaðarmönnum ákveðin verk- efni,“ segir hún hlæjandi og bætir við að þótt eldhúsið sé tilbúið sé framkvæmdum ólokið. „Þegar ég festi kaup á íbúðinni gerði ég það vegna allra möguleik- anna sem hún hafði upp á að bjóða,“ útskýrir Vigdís. „Enn á eftir að bæta svölum við hana, setja upp fallega kamínu og auka lofthæðina með því að opna upp í ris. Segja má að ég sé að láta verða af hugmyndunum sem ég fékk þegar ég kom í fyrsta sinn inn í íbúðina. Ætli ég verði ekki fyrst fullkomlega sátt að þeim afstöðn- um,“ segir leikkonan, handritshöf- undurinn og þúsundþjalasmiður- inn Vigdís. roald@frettabladid.is Vigdísi finnst gaman að safna hlutum sem hafa tilfinningalegt gildi. Þessa skemmtilegu veggklukku átti frænka Vigdísar, sem giftist dönskum dýralækni og lifði sannkölluðu hefðarkonulífi í Danmörk. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sannkallaður þúsundþjalasmiður Hérna sjást skápahöldurnar, sem Daníel sagaði út og handpússaði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Vigdís og Daníel Magnússon húsgagna- hönnuður eiga hugmyndina að þessari fallegu eldhúsinnréttingu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Vigdís situr hér við borðstofuborð sem henni áskotnaðist frá afa sínum og ömmu en það gegnir mörgum hlutverkum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Stofan hjá Vigdísi er björt og stílhrein, en hún vill ekki hafa mikið í kringum sig. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Þennan skemmtilega „hestalampa“ fékk Vigdís hjá móður sinni, en hann var upphaflega í eigu móðurafa hennar. Hún var heillengi að finna skerm sem passaði á hann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Daníel Magnússon hannaði þessa fallegu eldhússtóla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Góður andi Íbúðir sem hafa góðan anda seljast yfirleitt fyrr. Prófaðu að hafa kveikt á kertum og spila þægilega tónlist þegar hugsanlegir kaupendur koma að skoða. Svo má líka prófa að baka köku og láta ilminn berast fram á gang. Skólavörðustíg 21 Sími 551 4050 • Reykjavík Ný sending af sængurfatnaði
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.