Fréttablaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 66
21. september 2006 FIMMTUDAGUR24
VISSIR ÞÚ ...
ECC Skúlagötu 63 – Sími 511 1001
Hreinsar loftið
Eyðir lykt
Drepur bakteríur Bætt líðan með betra lofti
Ný sending komin.
Kröftug ryksöfnun. Ryðfrí stálblöð safna á sig ryki og öðrum óhreinindum í stað hefðbundins fílters.
Öflugt jónastreymi. Gefur frá sér mínus hlaðnar jónir sem hjálpa til við að eyða bakteríum, ryki,
mengun, veirum og frjódufti. Heldur herbergisloftinu hreinu og bætir heilsuna. Bakteríudrepandi
útfjólublár lampi. Útfjólubláa ljósið drepur ýmsa sýkla og bakteríur. Áhrifamikil lyktareyðing. Tækið
eyðir lykt auðveldlega svo sem reykingalykt, matarlykt og fúkalykt. Ljóshvatasía. Ljóshvati er efni
sem sýnir hvötunarviðbrögð þegar ljós skín á það. Þessi sía eyðir lífrænum efnasamböndum eins og
köfnunarefnisoxíði, úrgangsgasi, ýmsum bakteríum, vondri lykt o.s.frv. Þrjú skref. HI, MED og LOW
stillingar og Turbo stilling fyrir mismunandi aðstæður. (Blá ljós sýna stillingu). Gaumljós. Ljós sýna hvort
þrífa þarf fílterinn (stál blöðin) eða hvort tækið þarfnast annars viðhalds. Falleg og hentug hönnun.
Tækið er afar vel hannað bæði með útlit og notagildi í huga. Orkusparandi hönnun. Vegna orkusparandi
hönnunar notar tækið aðeins 28W á klst.
BORGARTÚNI 29 | 105 REYKJAVÍK | ICELAND | WWW.EXIT.IS | TEL. +354 562 2362 | FAX. +354 562 9662
// Háskólanám í Hótelstjórnun er fjárfesting til framtíðar
IHTTI, SHMS og HIM Sviss (Montreuxv, Leysin og Neuchatel)
Alþjóðlegt Hótelstjórnunar og/eða ferðamálanám
Kynning á þremur af bestu Hótelstjórnunarháskólum Evrópu
Verður á Sólon, 2. hæð, fimmtudaginn 21. sept. kl. 17.30
Fulltrúi skólanna verður á skrifstofu Exit.is kl. 16.00 – 17.00 sama dag
...að sumir vísindamenn telja að
planta sem nærist á kjöti lifi niðri í
jörðinni án nokkurs sólarljóss?
...að ákveðin tegund fiðrildislifra ver
svæði sitt með því að gefa frá sér
djúp hljóð?
...að rjúpur hjálpa ungum sínum að
komast af úti í hinum stóra heimi
með því að kenna þeim hvaða
plöntur eru næringarríkar?
...að geispi er sérstakur samskipta-
máti hjá öllum dýrategundum?
Hann gefur ekki til kynna að þú sért
þreytt(ur) heldur að nú sé kominn
tími til að gera eitthvað annað.
...að bavíanar og simpansar grafa
eftir hreinu vatni ef yfirborðsvatnið
er mengað og að simpansar nota
meira að segja til þess heimasmíðuð
tæki?
...að finkur æfa sig að syngja í svefni?
...að krákur hafa lært að nota beittar
spýtur til að ná í skordýr sem eru á
stöðum sem erfitt er að ná til?
... að það er ómögulegt að hnerra og
hafa augun opin á sama tíma?
... að kameldýr hafa þrjú augnlok
til að verja augun sín fyrir fjúkandi
sandi?
... að leikkonan Demi Moore er blind
á vinstra auga?
... að Shakespeare stafaði nafnið sitt
á marga mismunandi vegu?
... að fleiri hænsnfuglar en menn búa
í heiminum?
... að snigill getur sofið í þrjú ár
samfleytt?
... að Swell-hákarlinn sem býr við
strendur Nýja-Sjálands geltir eins og
hundur?
... að fyrirtæki sjónvarpskonunnar
Opruh Winfrey heitir Harpo - og er
Oprah lesið afturábak?
... að sums staðar á Englandi þykir
það boða lukku að baða höfuð
ungbarns upp úr rommi?
... að heimili Elísabetar Englands-
drottningar, Buckingham-höll, er 600
herbergja?
... að fjölmennasti skóli í heimi er
City Montessori-skólinn á Indlandi?
Nemendurnir eru 25 þúsund á aldr-
inum 6 til 20 ára.
... að Alexander Graham Bell, sá sem
fann upp símann, hringdi hvorki í
eiginkonu sína né móður? Þær voru
báðar heyrnarlausar.
... að Þjóðverjar framleiða meira
en fimm þúsund tegundir af bjór í
1.300 brugghúsum?
... að ástæða þess að skyndibitastað-
ir merkja sig oftast í gulum, rauðum
og appelsínugulum litum er sú að
þessir lita örva hungrið?
... að konur brosa oftar en karlar?
... að málverkið Báturinn eftir Mat-
isse hékk á hvolfi í 47 daga árið 1961
í Nútímalistasafninu í New York?
Enginn hinna 116 þúsund gesta sem
sáu verkið á hvolfi virtist átta sig á
vitleysunni.
... að erindin í gríska þjóðsöngnum
eru hvorki fleiri né færri en 158?
... að um 44% ruslpósts fara ólesin í
ruslatunnuna?
... að konur sem lesa rómantískar
bókmenntir stunda mun oftar kynlíf
með maka sínum en konur sem
aldrei lesa slíkar bækur?
... að meðalgestafjöldi í bandarískum
brúðkaupum er 189?
... að fimmtíu Biblíur eru seldar á
mínútu í heiminum?
... að leikarinn góðkunni Andy Garcia
var síamstvíburi?
...að jörðin er eina plánetan sem er
ekki skírð í höfuðið á guði?
... að 27% kvenna sem hafa unnið í
lottó geymdu miðann sinn í brjósta-
haldaranum?
... að ríflega 42% Breta hrjóta?