Fréttablaðið - 21.09.2006, Page 66

Fréttablaðið - 21.09.2006, Page 66
 21. september 2006 FIMMTUDAGUR24 VISSIR ÞÚ ... ECC Skúlagötu 63 – Sími 511 1001 Hreinsar loftið Eyðir lykt Drepur bakteríur Bætt líðan með betra lofti Ný sending komin. Kröftug ryksöfnun. Ryðfrí stálblöð safna á sig ryki og öðrum óhreinindum í stað hefðbundins fílters. Öflugt jónastreymi. Gefur frá sér mínus hlaðnar jónir sem hjálpa til við að eyða bakteríum, ryki, mengun, veirum og frjódufti. Heldur herbergisloftinu hreinu og bætir heilsuna. Bakteríudrepandi útfjólublár lampi. Útfjólubláa ljósið drepur ýmsa sýkla og bakteríur. Áhrifamikil lyktareyðing. Tækið eyðir lykt auðveldlega svo sem reykingalykt, matarlykt og fúkalykt. Ljóshvatasía. Ljóshvati er efni sem sýnir hvötunarviðbrögð þegar ljós skín á það. Þessi sía eyðir lífrænum efnasamböndum eins og köfnunarefnisoxíði, úrgangsgasi, ýmsum bakteríum, vondri lykt o.s.frv. Þrjú skref. HI, MED og LOW stillingar og Turbo stilling fyrir mismunandi aðstæður. (Blá ljós sýna stillingu). Gaumljós. Ljós sýna hvort þrífa þarf fílterinn (stál blöðin) eða hvort tækið þarfnast annars viðhalds. Falleg og hentug hönnun. Tækið er afar vel hannað bæði með útlit og notagildi í huga. Orkusparandi hönnun. Vegna orkusparandi hönnunar notar tækið aðeins 28W á klst. BORGARTÚNI 29 | 105 REYKJAVÍK | ICELAND | WWW.EXIT.IS | TEL. +354 562 2362 | FAX. +354 562 9662 // Háskólanám í Hótelstjórnun er fjárfesting til framtíðar IHTTI, SHMS og HIM Sviss (Montreuxv, Leysin og Neuchatel) Alþjóðlegt Hótelstjórnunar og/eða ferðamálanám Kynning á þremur af bestu Hótelstjórnunarháskólum Evrópu Verður á Sólon, 2. hæð, fimmtudaginn 21. sept. kl. 17.30 Fulltrúi skólanna verður á skrifstofu Exit.is kl. 16.00 – 17.00 sama dag ...að sumir vísindamenn telja að planta sem nærist á kjöti lifi niðri í jörðinni án nokkurs sólarljóss? ...að ákveðin tegund fiðrildislifra ver svæði sitt með því að gefa frá sér djúp hljóð? ...að rjúpur hjálpa ungum sínum að komast af úti í hinum stóra heimi með því að kenna þeim hvaða plöntur eru næringarríkar? ...að geispi er sérstakur samskipta- máti hjá öllum dýrategundum? Hann gefur ekki til kynna að þú sért þreytt(ur) heldur að nú sé kominn tími til að gera eitthvað annað. ...að bavíanar og simpansar grafa eftir hreinu vatni ef yfirborðsvatnið er mengað og að simpansar nota meira að segja til þess heimasmíðuð tæki? ...að finkur æfa sig að syngja í svefni? ...að krákur hafa lært að nota beittar spýtur til að ná í skordýr sem eru á stöðum sem erfitt er að ná til? ... að það er ómögulegt að hnerra og hafa augun opin á sama tíma? ... að kameldýr hafa þrjú augnlok til að verja augun sín fyrir fjúkandi sandi? ... að leikkonan Demi Moore er blind á vinstra auga? ... að Shakespeare stafaði nafnið sitt á marga mismunandi vegu? ... að fleiri hænsnfuglar en menn búa í heiminum? ... að snigill getur sofið í þrjú ár samfleytt? ... að Swell-hákarlinn sem býr við strendur Nýja-Sjálands geltir eins og hundur? ... að fyrirtæki sjónvarpskonunnar Opruh Winfrey heitir Harpo - og er Oprah lesið afturábak? ... að sums staðar á Englandi þykir það boða lukku að baða höfuð ungbarns upp úr rommi? ... að heimili Elísabetar Englands- drottningar, Buckingham-höll, er 600 herbergja? ... að fjölmennasti skóli í heimi er City Montessori-skólinn á Indlandi? Nemendurnir eru 25 þúsund á aldr- inum 6 til 20 ára. ... að Alexander Graham Bell, sá sem fann upp símann, hringdi hvorki í eiginkonu sína né móður? Þær voru báðar heyrnarlausar. ... að Þjóðverjar framleiða meira en fimm þúsund tegundir af bjór í 1.300 brugghúsum? ... að ástæða þess að skyndibitastað- ir merkja sig oftast í gulum, rauðum og appelsínugulum litum er sú að þessir lita örva hungrið? ... að konur brosa oftar en karlar? ... að málverkið Báturinn eftir Mat- isse hékk á hvolfi í 47 daga árið 1961 í Nútímalistasafninu í New York? Enginn hinna 116 þúsund gesta sem sáu verkið á hvolfi virtist átta sig á vitleysunni. ... að erindin í gríska þjóðsöngnum eru hvorki fleiri né færri en 158? ... að um 44% ruslpósts fara ólesin í ruslatunnuna? ... að konur sem lesa rómantískar bókmenntir stunda mun oftar kynlíf með maka sínum en konur sem aldrei lesa slíkar bækur? ... að meðalgestafjöldi í bandarískum brúðkaupum er 189? ... að fimmtíu Biblíur eru seldar á mínútu í heiminum? ... að leikarinn góðkunni Andy Garcia var síamstvíburi? ...að jörðin er eina plánetan sem er ekki skírð í höfuðið á guði? ... að 27% kvenna sem hafa unnið í lottó geymdu miðann sinn í brjósta- haldaranum? ... að ríflega 42% Breta hrjóta?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.