Fréttablaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 70
timamot@frettabladid.is
21. september 2006 FIMMTUDAGUR34
Á þessum degi árið 1792 greiddi
franska þjóðþingið atkvæði um að
afnema konungdæm-
ið og fyrsta lýðveldi
Frakklands var stofnað.
Ári fyrr hafði Loðvík XVI
samþykkt, þótt tregur
væri til, nýja stjórnar-
skrá sem dró verulega
úr völdum hans.
Loðvík tók við
krúnunni árið 1774.
En snemma kom í
ljós úrræðaleysi hans til að ráða
fram úr fjárhagsvanda ríkisins,
sem forverar hans arfleiddu hann
að. Kreppan jókst eftir því sem á
leið og leiddi til þess að Franska
byltingin braust út sumarið 1789.
Loðvík konungur og María Antoin-
ette drottning voru handtekin í
ágúst árið 1792 og í
september var kon-
ungdæmið afnumið.
Stuttu síðar komst
upp um að Loðvík
væri að leggja á ráðin
um gagnbyltingu í
samkrulli við erlend
stjórnvöld og hann var
ákærður fyrir landráð.
Í janúar 1793 var
hann fundinn sekur og dæmdur
til dauða af naumum meirihluta
dómara. Síðar í mánuðinum var
hann leiddur að fallöxinni og háls-
höggvinn. Eiginkonu hans biðu
sömu örlög níu mánuðum síðar.
ÞETTA GERÐIST: 21. SEPTEMBER 1792
Konungdæmið afnumið
LOÐVÍK XVI
JARÐARFARIR
13.00 Ásta Vilmundardóttir,
Álfaskeiði 86, verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði.
J.R.R. TOLKIEN (1892-1973) GAF ÚT
HOBBITANN Á ÞESSUM DEGI 1937.
„Leitið ekki ráða hjá álfum,
þeir svara bæði já og nei.“
Í Hobbitanum segir frá ævintýrum
Hobbitans Bilbó. Meðal annars finnur
hann forláta hring sem á eftir að hafa
afdrifaríkar afleiðingar.
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn
hér til hliðar má
senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
AFMÆLI
Atli Heimir
Sveinsson,
tónskáld, er
68 ára.
Jón Gunnars-
son, fram-
kvæmdastjóri
Slysavarn-
arfélagsins
Landsbjargar, er
50 ára. Hann og
eiginkona hans,
Halla Ragnarsdóttir sem varð
fimmtug þann 16. ágúst, munu
taka á móti þeim sem vilja
gleðjast með þeim á þessum
tímamótum í Ými, sal Karlakórs
Reykjavíkur, klukkan 20 laugar-
daginn 23. september.
Áshildur
Haraldsdóttir,
flautuleikari, er
41 árs.
Ívar Gunnlaugsson tekur á næstunni við
sem annar af tveimur skipstjórum ferjunn-
ar Herjólfs, sem siglir á milli Þorlákshafnar
og Vestmannaeyja. Ívar tekur við starfinu
af Lárusi Gunnólfssyni sem lætur af störf-
um vegna aldurs. Sævaldur Elíasson verður
1. skipstjóri en Ívar 2. skipstjóri.
„Mér líst bara vel á þetta. Þetta verður
erfitt veit ég, sérstaklega yfir veturinn,“
segir Ívar og á þar við misjafnt veðurfarið á
þessari siglingarleið.
„Þetta eru þrír klukkutímar þarna á milli
og starfið felst aðallega í því að og koma og
fara og vera við stjórnun,“ segir Ívar. Hefur
hann að undanförnu verið að setja sig inn í
nýja starfið með aðstoð Lárusar Gunnólfs-
sonar. Tekur hann síðan alfarið við sem skip-
stjóri eftir að Herjólfur kemur úr slipp í
næsta mánuði.
Ívar, sem er 55 ára Reykvíkingur, hefur
undanfarin 38 ár starfað sem háseti, stýri-
maður og skipstjóri hjá Eimskip og er því
öllum hnútum kunnugur þegar kemur að
sjómennsku. „Ég er búinn að vera í þessu
alla mína ævi. Ég byrjaði á fiskibát í sept-
ember 1967 og byrjaði síðan hjá Eimskip í
febrúar 1968. Þetta er búinn að vera góður
tími hjá Eimskip,“ segir Ívar, en tekur þó
fram að Eimskip sé rekstraraðili Herjólfs
og því hafi hann ekki alveg sagt skilið við
fyrirtækið.
Hvað varðar áhugamál segir Ívar að
fjölskyldan og starfið sé númer eitt, tvö og
þrjú. Á hann eiginkonu og þrjú börn, ásamt
barnabörnum og ætlar sér að búa áfram í
Reykjavík í faðmi fjölskyldunnar, þrátt
fyrir nýju stöðuna.
freyr@frettabladid.is
ÍVAR GUNNLAUGSSON: NÝR SKIPSTJÓRI HERJÓLFS
Erfitt yfir veturinn
ÍVAR GUNNLAUGSSON Nýr skipstjóri Herjólfs tekur við stjórnartaumunum á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Legsteinar
Kynningarafsláttur af
völdum tegundum
Fjölbreytt úrval
Hagstæð verð
Stuttur afgreiðslufrestur
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Lilja Þórarinsdóttir
áður til heimilis á Unnarstíg 8 í Reykjavík,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund fimmtudag-
inn 14. september síðastliðinn. Jarðarförin fór fram í
kyrrþey. Þakkir til starfsfólks deildar A3 á Grund fyrir
góða umönnun undanfarin ár.
Þórunn Halldórsdóttir Ólafur Z. Ólafsson
Matthías Halldórsson Theodóra Gísladóttir
Haraldur Halldórsson María Kristjánsdóttir
Ari Halldórsson Kristveig Halldórsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur minn og bróðir okkar,
Magnús Ó. Kjartansson
sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut, þriðjudaginn 12. september, verður
jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 22. september,
klukkan 15.00.
Kolbrún Björgólfsdóttir, Elsa Björg Magnúsdóttir,
Guðbrandur Magnússon, Eydís Hansdóttir
Guðbrandur Þórir Kjartansson,
Magdalena Margrét Kjartansdóttir.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Ívar Björnsson
frá Steðja, Bólstaðarhlíð 41,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn
22. september kl. 13.00.
Gunnar Páll Ívarsson Jónína Ragnarsdóttir
Símon H. Ívarsson María J. Ívarsdóttir
Andrea Margrét Gunnarsdóttir
Katrín Sylvía Gunnarsdóttir Gunnþór Jónsson
Katrín Sylvía Símonardóttir
Ívar Símonarson Ástrún Friðbjörnsdóttir
Svandís Ósk Símonardóttir Axel Örn Sigurðsson
Gunnar Páll, Heimir Páll og Hinrik Snær.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Sólrún Þorbjörnsdóttir
Sóltúni 2, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Garðakirkju föstudaginn
22. sept. kl. 15.00.
Gísli Ferdinandsson
Guðríður Valva Gísladóttir
Kolbeinn Gíslason
Ólafur Haukur Gíslason
Magnea Auður Gísladóttir
Þorbjörn Reynir Gíslason
Gísli Gíslason
Matthías Rúnar Gíslason
tengdabörn og barnabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma,
langamma, systir og mágkona,
Rakel Björg Ragnarsdóttir
Depluhólum 8, Reykjavík,
lést á heimili sínu 17. sept. sl. Útförin fer fram frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 28. sept. kl. 15.00.
Ragnar Valur Björgvinsson Fríður Sólveig Hannesdóttir
Rakel Björg Ragnarsdóttir Birgir Þór Svavarsson
Ásdís Birta Birgisdóttir
Jón Ragnarsson Hrafnhildur Valdimarsdóttir
Þór Ragnarsson Vilhelmína Hauksdóttir
Ruth Ragnarsdóttir.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
ættingjum og vinum sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og virðingu við útför
ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Þórðar Ásgeirssonar
Baughól 10, Húsavík.
Guð veri með ykkur öllum.
Friðrika Þorgrímsdóttir
Birgir Þór Þórðarson María Alfreðsdóttir
Sigríður Björg Þórðardóttir
Ásgeir Þórðarson Hafdís Hallsdóttir
Þorgrímur Jóel Þórðarson Alma Lilja Ævarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra
Kristín Sveinsdóttir
frá Hríshóli, Reykhólahreppi, Vitateigi 5,
Akranesi,
andaðist á Sjúkrahúsi Akraness mánudaginn 18. september.
Garðar Halldórsson
Gígja Garðarsdóttir Sigurður Guðjónsson
Gunnar Þór Garðarsson Lilja Ellertsdóttir
Alda Garðarsdóttir Guðmundur Viggósson
Svavar Garðarsson
Sveinn Vilberg Garðarsson Elsa Guðlaug Geirsdóttir
Ingimar Garðarsson Anna Signý Árnadóttir
Halldór Garðarsson Anna Edda Svansdóttir
og ömmubörn.
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI