Fréttablaðið - 21.09.2006, Side 18
21. september 2006 FIMMTUDAGUR18
fréttir og fróðleikur
Aðeins átján mánuðir eru
liðnir frá því að Thaksin
Shinawatra hlaut dúndrandi
endurkosningu í Taílandi
með yfirgnæfandi meiri-
hluta eftir að hafa fyrstur
manna þar í landi afrekað
það að sitja í heilt kjörtíma-
bil á stóli forsætisráðherra.
Nú hafa veður heldur betur
skipast í lofti, honum hefur
verið steypt af stóli og á
vart afturkvæmt til Taí-
lands í bráð.
Thaksin hafði brugðið sér til
útlanda, hélt fyrst til Kúbu í
stutta heimsókn en var staddur í
New York á Allsherjarþingi Sam-
einuðu þjóðanna á þriðjudaginn
þegar herinn í Taílandi gerði
stjórnarbyltingu. Leiðtogi bylt-
ingarinnar er Sondhi Boonyarat-
klin herforingi, sem tókst að ná
völdum í landinu án blóðsúthell-
inga síðla þriðjudagsins.
Thaksin virtist í fyrstu stað-
ráðinn í því að snúa aftur til Taí-
lands og taka til sinna ráða. Hann
lét flýta ræðutíma sínum á Alls-
herjarþinginu frá miðvikudegi
til þriðjudags til þess að komast
fyrr heim, en afboðaði síðan ræð-
una og hélt í gær til Bretlands
þar sem dóttir hans er við nám.
Óljóst er hve lengi hann hyggst
dveljast þar, en í gær virtust í
það minnsta stuðningsmenn hans
í Taílandi hafa sæst á þau mála-
lok að valdatíma hans væri
lokið.
„Við verðum að fallast á það
sem hefur gerst,“ hafði AP-
fréttastofan eftir opinberum
talsmanni Thaksins, Surapong
Suebwonglee. „Við komum ekk-
ert aftur í bráðina.“
Lofar lýðræði á ný
Sondhi herforingi boðaði í gær
til blaðamannafundar þar sem
hann hét því að efna til kosninga
í október á næsta ári. Sjálfur
ætlar hann að taka að sér forsætis-
ráðherraembættið í hálfan
mánuð, en að þeim tíma liðnum
reiknar hann með að nýr maður
verði settur í embættið og jafn-
framt verði búið að semja drög
að bráðabirgðastjórnarskrá fyrir
landið. Einnig gaf hann til kynna
að Thaksin yrði líklega dreginn
fyrir dómara léti hann sjá sig í
Taílandi.
Konungur landsins, Bhumibol
Adulyadej, lýsti í gær stuðningi
sínum við byltinguna og útnefndi
formlega Sondhi herforingja
yfirmann nýju stjórnarinnar „til
þess að stilla til friðar í landinu,“
eins og sagði í yfirlýsingu frá
hernum í sjónvarpi.
Byltingin kom engan veginn
eins og þruma úr heiðskíru lofti,
þótt margir landsmenn hafi lýst
undrun sinni, því lengi hafði
verið orðrómur á kreiki um að
herinn myndi steypa Thaksin af
stóli. Löng hefð er reyndar fyrir
því í Taílandi að herinn hrifsi til
sín völdin þegar stjórnvöld
virðast ekki ætla að ráða við
ástandið, þótt fimmtán ár séu
liðin frá því síðasta valdarán var
framið.
Sondhi segir aðgerðir sínar
hafa verið nauðsynlegar til þess
að lægja hatrammar deilur í
landinu og stöðva spillingu meðal
ráðamanna.
Skorti aldrei andstæðinga
Þótt Thaksin hafi verið vinsæll
framan af skorti hann aldrei and-
stæðinga, sem sögðu hann spillt-
an, stjórnsaman og hrokafullan.
Thaksin höfðaði einkum til
fátækrar alþýðunnar í sveitum
landsins, enda bauð hann upp á
ýmsar kjarabætur, en vel stæðir
borgarbúar sögðu hann aftur á
móti ekki hika við að brjóta
mannréttindi og troða á fjölmiðl-
um landsins.
Thaksin er með auðugustu
mönnum í Taílandi. Áður en hann
fór út í stjórnmál hafði hann
lengi rekið stórt fjarskiptafyrir-
tæki með góðum árangri. Hann
komst til valda árið 2001 rétt í
þann mund þegar Taíland var að
rétta úr kútnum eftir efnahags-
kreppuna, sem hafði reynst
mörgum Asíulöndum erfið í
skauti.
Sala fyrirtækis
Hann sagðist stunda alveg nýja
tegund af stjórnmálum, lagði
áherslu á að höfða til alþýðunnar
og stærði sig af því að geta blásið
lífi í efnahaginn með því að
stjórna landinu eins og fyrir-
tæki.
Thaksin virðist hafa þó gengið
fram af fólki í janúar síðastliðn-
um þegar hann og fjölskylda
hans seldu hluti sína í fjarskipta-
fyrirtækinu Shin Corp og högn-
uðust óskaplega á þeim viðskipt-
um. Til þessa atburðar virðist
mega rekja upphafið að falli
hans, því fljótlega mögnuðust
upp kröfur um afsögn forsætis-
ráðherrans.
Hann brást við óánægjunni
með því að efna til kosninga í
apríl, þar sem hann bar að vísu
sigur úr býtum, en stjórnarand-
staðan leiddi þær kosningar hjá
sér með öllu. Kosningarnar voru
síðar dæmdar ógildar og boðað
til nýrra kosninga í október, en af
þeim kosningum verður nú ekki.
Í vor tók hann sér sjö vikna
frí eftir kosningarnar, en stöðug
spenna hefur ríkt í landinu allar
götur síðan, svo mjög að nánast
þótti tímaspursmál hvenær her-
inn myndi steypa honum af
stóli.
Svona erum við
1965
40
,8
k
g
47
,9
k
g
kí
ló 73
,0
k
g
1984 2004
FRÉTTASKÝRING
GUÐSTEINN BJARNASON
gudsteinn@frettabladid.is
2.400 á Vog
Neysla áfengis hefur aukist um meira
en 35 prósent frá því árið 1993 hér á
landi. Aðeins lítill hluti fólks sem þjá-
ist vegna fylgikvilla vímuefnaneyslu
leitar sér hjálpar á meðferðarsjúkra-
húsum eða öðrum heilbrigðisstofn-
unum. Rannsóknir á áfengissjúk-
lingum hafa leitt í ljós að sjúkdómar
sem rekja má til vímuefnaneyslu
eru algengir og alvarlegir. Þórarinn
Tyrfingsson er yfirlæknir á Vogi.
Hversu margir koma á Vog árlega?
„Í ár er reiknað með 2.400 komum.
Aðeins einu sinni hafa fleiri komið
en það var árið 2000. Ástæða fjölg-
unarinnar skýrist að hluta til af því að
úrræði Landspítalans fyrir vímuefna-
neytendur eru færri nú en áður.“
Er sjúklingum á Vogi fylgt eftir?
„Já, eftirfylgni er sinnt á göngudeild
Vogs hér í Reykjavík og á Akureyri og
dæmi eru um að fólk sæki göngu-
deildarþjónustu í allt að ár eftir
meðferð.“
SPURT & SVARAÐ
VOGUR
ÞÓRARINN TYRFINGSSON
Eftir valdarán taílenska hersins hafa augu
margra beinst að Konungsríkinu Taílandi, en
það er opinbert nafn þessa lands sem fram
að árinu 1949 var þekkt undir nafninu Síam.
Muang Thai, eða Taíland, þýðir Land hinna
frjálsu.
Hvernig land er Taíland? Landið er fimm
sinnum stærra en Ísland, um 513.000
ferkílómetrar. Þar búa 65,5 milljónir manna.
Landið er í Suðaustur-Asíu og næstu
nágrannar eru þegnar Laos, Malasíu, Mjan-
mars og Kambódíu. Þjóðaríþrótt Taílendinga
er taíbox, bardagaíþrótt sem náði vinsæld-
um á Vesturlöndum á síðasta áratug og er
þekkt fyrir hörkuleg átök keppenda. Gífurleg
virðing fyrir eldri kynslóðinni er einkennandi
fyrir taílenska menningu og er algengt að sjá
fólk krjúpa að tám öldunga þar í landi. Ekki
má gleyma gestrisni og örlæti
Taílendinga, sem er kunn um
víða veröld. Opinbert tungu-
mál er taílenska og helstu
trúarbrögð eru búddismi og
brahmatrú.
Hvernig er stjórnarfarið í
Taílandi? Um þessar mundir
gilda herlög í Taílandi en alla
jafna er landið stjórnarskrár-
bundið konungsríki. Konungur
er ótvírætt sameiningartákn
Taílendinga og refsivert er
að hnýta í hina konunglegu
fjölskyldu eða gagnrýna hana. Núverandi
konungur hefur setið á valdastóli í sextíu
ár og er virtur og dáður af þegnum sínum.
Lýðræði er þó nokkuð sterkt í landinu;
konungur velur forsætisráðherra
eftir leiðbeiningum þingmanna og
yfirleitt þann leiðtoga sem getur
myndað meirihlutastjórn eftir
kosningar.
Eru valdarán algeng í landinu?
Á síðustu 35 árum hafa verið gerð-
ar minnst tíu tilraunir til valdaráns
og allar heppnuðust þær nema ein.
Vegna sterkrar stöðu konungs er
lítil hætta á upplausn þótt herinn
skipti um valdhafa af og til. Reynt
hefur verið að takmarka völd hers-
ins á síðustu árum, til dæmis árið
1992 þegar Suchinda herforinga var velt úr
sessi eftir að herinn skaut á mótmælendur
í Bangkok. Þá samþykkti þingið að minnka
áhrif hersins í taílenskum stjórnmálum.
FBL GREINING: TAÍLAND
Taíland er land hinna frjálsu
A
T
A
R
N
A
/
S
T
ÍN
A
M
A
J
A
/
F
ÍT
�������� , TC 60201
��������� , TT 61101
�������������, TW 60101
Tækifærisverð
���������������
Tækifærisverð
���������������
Tækifærisverð
���������������
�������������������
og��������������
í sama stíl
Skoðið
öll tilboðin á
www.sminor.is
Verið ávallt
velkomin
í heimsókn
Nóatúni 4
Sími 520 3000
FYRIR UTAN KONUNGSHÖLLINA Vígalegir hermenn stóðu í gær vörð um helstu bygg-
ingarnar í Bangkok. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Ætlar að stjórna í eitt ár
SONDHI BOONYARATKALIN Herforing-
inn brosti breitt í gær þegar hann skýrði
frá vel heppnuðu valdaráni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
THAKSIN SHINAWATRA Forsætisráð-
herrann þáverandi veifaði glaðlega til
ljósmyndara þegar hann kom til Kúbu
í síðustu viku, þar sem hann sótti
leiðtogafund ríkja sem standa utan
hernaðarbandalaga. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
> Meðalneysla á fiski á hvern íbúa
Heimild: Hagstofa Íslands