Fréttablaðið - 21.09.2006, Side 24
21. september 2006 FIMMTUDAGUR24
Forstjóri Alfesca, Xavier Govare, telur að samþjöppun
laxeldisframleiðenda hafi haft mikil áhrif á þá verðþróun
sem hefur orðið á stuttum tíma á hráefnisverði á laxi.
Skömmu eftir að laxeldisrisinn Pan Fish eignaðist Marine
Harvest og síðar Fjord Seafood komst laxaverð í hæstu
hæðir síðan 1993. Pan Fish er talið ráða um þrjátíu pró-
sentum af allri framleiðslu á eldislaxi.
„Þessi mikla samþjöppun átti sér stað á aðeins tólf
mánaða tímabili ... og hefur eðilega valdið auknum verð-
hækkunum á laxi sem er eitt helsta hráefnið sem Alfesca
kaupir,“ sagði Govare á kynningarfundi sem félagið stóð
fyrir í vikunni.
Um 37 prósent af veltu Alfesca koma í gegnum sölu
á laxaafurðum. Laxaverð hefur verið að gefa eftir að
undanförnu eftir að það náði hámarki í júlí en er þó enn
hátt í sögulegu ljósi.
Á aðalfundi Alfesca í fyrradag var jafnframt ný stjórn
félagsins sjálfkjörin. Hana skipa þeir Árni Tómasson, Bill
Ronald, Guðmundur Ásgeirsson, Hartmut M. Kråmer og
Ólafur Ólafsson sem jafnframt er formaður stjórnar. Vara-
maður stjórnar er Aðalsteinn
Ingólfsson. Árni Tómasson
og Bill Roland eru nýir
í stjórninni en úr henni
fóru þau Nadine Des-
wasiere, sem lét af störf-
um sem stjórnarmaður
í mars, og Guðmundur
Hjaltason sem ekki gaf
kost á sér til endurkjörs.
- eþa / hhs
XAVIER GOVARE, FORSTJÓRI
ALFESCA Samþjöppun
laxeldisframleiðenda
átti stóran þátt
í að verð á laxi
hækkaði.
Samþjöppun olli hækkun laxaverðs
STÆKKUN PAN FISH HAFÐI MIKIL ÁHRIF, SEGIR FORSTJÓRI ALFESCA. NÝ STJÓRN SJÁLFKJÖRIN Á FUNDI.
Greiningardeild KB banka hefur
uppfært verðmat á sex félögum
en þetta eru Alfesca, Bakkavör,
Dagsbrún, Marel, Vinnslustöðin
og Össur.
Þær breytingar verða á fyrri
greiningu bankans að nú er mælt
með sölu bréfa í Dagsbrún og að
fjárfestar bæti við hlut sinn í Öss-
uri (accumulate) í stað fyrri ráð-
gjafar um kaup (buy).
Bankinn mælir áfram með
kaupum á bréfum í Alfesca,
Bakkavör og Marel og ráðleggur
fjárfestum að draga úr (reduce)
hlut sínum í Vinnslustöðinni. - eþa
KB banki uppfærir
verðmat sex félaga
Markaðs- Verðmats-
gengi gengi KB
banka *
Alfesca 5,01 5,4
Bakkavör 59 70
Dagsbrún 4,26 4,5
Marel 79 83
Vinnslustöðin 4,45 4,4
Össur 12,5 132
* Til 12 mánaða
Atorka Group hefur tilgreint til
Kauphallarinnar í Lundúnum að
félagið eigi nítján
prósenta hlut í
NWF Group.
Það var fyrst
vorið 2004 sem
Atorka tilkynnti til
Kauphallarinnar
um kaup sín í NWF
og hefur frá þeim
tíma verið að auka
hlut sinn jafnt og þétt í breska
framleiðslu- og dreifingarfélaginu.
Eignarhlutur Atorku er metinn
á 2,2 milljarða króna. - eþa
Atorka kaupir
enn í NWF
MAGNÚS
JÓNSSON
Í dag verður tilkynnt hver hefur
hlotið nafnbótina „Stjórnarfor-
maður Íslands 2006“. Þetta er í
fyrsta sinn sem hann er valinn
með formlegum hætti hér á landi
en tilgangurinn með því er að
skapa umræðu og vekja athygli á
mikilvægi og gæðum stjórnar-
starfa og stuðla að bættu viðskipta-
siðferði. Leit að Stjórnarformanni
Íslands hófst árið 2005 og var hann
að lokum valinn í samráði við full-
trúa háskóla og atvinnnulífsins.
Í tengslum við valið fer fram
ráðstefna á Hótel Nordica í dag
þar sem fjallað verður um mikil-
vægi orðspors og farið yfir kann-
anir sem hafa verið gerðar um það
efni. Margt áhugaverðra fyrirles-
ara verður á ráðstefnunni og í lok
hennar mun Jón Sigurðsson, við-
skipta- og iðnaðarráðherra, flytja
erindi og afhenda Stjórnarfor-
manni Íslands verðlaunin. - hhs
Stjórnarformaður
Íslands valinn
Smærri fjárfestar taka við sér á ný
Það sem af er þessum mánuði hefur velta aukist á
hlutabréfamarkaði í Kauphöll Íslands, hvort heldur
sem horft er til fjölda viðskipta eða magns. Í sam-
antekt Greiningar Glitnis er bent á að meðalfjöldi
viðskipta á dag það sem af er mánuði hafi verið
347 en verið 309 í ágúst. „Meðalvelta á dag lækkar
hins vegar frá ágústmánuði sem var ríflega 9 millj-
arðar króna en er 4,7 milljarðar króna í september.
Þó ber að nefna að einstaka
viðskipti í ágúst skekkja
meðaltalið verulega,“ segir
bankinn. Talsverð aukning
er á viðskiptum fyrir lágar
upphæðir og er það túlkað á
þann veg að fjöldi smærri
fjárfesta sé að aukast á
ný. „Líklegt er að útboðin í
Marel og Exista hafi glætt
áhuga þeirra,“ segir Glitnir.
Risaútgáfa fæðist í Noregi
Orðrómur er um að norska fjölmiðlasamsteypan
Schibsted ASA komi til með að sameinast
útgáfufyrirtækjum Aftenposten, Bergens Tidende,
Stavanger Aftenblad og útgáfufyrirtækjum tveggja
stórra dagblaða. Nýja félagið er sagt munu heita
Media Norge. Norska dagblaðið Dagens Næringsliv
segir Schibsted fara með ráðandi hlut í félaginu
eða á bilinu 50,1 til 61,9 prósent. Verðmati á
útgáfufyrirtækjum blaðanna er lokið og mun
markaðsvirði þessa risaútgáfufélags nema
8,1 milljarði norskra króna eða rúmum
81 milljarði íslenskra króna. Stjórn
Schibsted sagði hins vegar í gær
að enn hefði ekki verið skrifað
undir neitt samkomulag í þessa
veru þrátt fyrir fréttir um hið
gagnstæða. Fyrirtækið
sagðist í síðustu viku
stefna á útgáfu fríblaðsins
.SE í Svíþjóð í næsta
mánuði.
Peningaskápurinn...
��������������������������������������������
���������������������������
F
A
B
R
IK
A
N
2
0
0
6
����������
���������������
������������
����������������
������������������
�� ��������
�������������������������������������������
��������������������������������������������������������
�����������������������������������������������������
����������������������������������������������
�������������������������
������������������������������������
������������������������������������
�������������������������������������������������
������������������� �����������
����������������������������������������������
��������������������
MARKAÐSPUNKTAR
Scania hefur hafnað yfirtökutilboði MAN
upp á 9,6 milljarða evra. Haft er eftir
framkvæmdastjóra Scania að félagið
hafi alla burði til hagkvæms reksturs á
eigin vegum.
Kristin Halvorsen, fjármálaráðherra
Noregs, hefur skrifað fjármálaeftirliti
landsins og farið fram á að öryggi
viðskiptavina netbanka í landinu verði
aukið. Hún vill meðal annars að sett
verði þak á upphæðir sem hægt er að
millifæra hverju sinni.
Hópur norskra fjárfesta hefur tekið
höndum saman um að fjárfesta í
olíuleitarfélaginu Geysi Petroleum hf.
sem hér var stofnað fyrir nokkrum árum.
Félagið er með höfuðstöðvar í Noregi.
JÓN SIGURÐSSON Viðskipta- og iðnaðar-
ráðherra mun afhenda stjórnarformanni
Íslands verðlaun.
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.299 +0,06% Fjöldi viðskipta 640
Velta 6.130 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 66,40 +2,00% ... Alfesca
5,01 -0,60% ... Atlantic Petroleum 575,00 -0,86% ... Atorka 6,40
+0,79% ... Avion 32,50 -0,92% ... Bakkavör 59,00 +1,55% ...
Dagsbrún 4,26 -7,39% ... FL Group 22,40 +3,23% ... Glitnir 20,30
-0,49% ... KB banki 862,00 -0,58% ... Landsbankinn 26,30 -0,38%
... Marel 79,00 -3,07% ... Mosaic Fashions 18,00 +1,12% ... Straum-
ur-Burðarás 17,30 +0,58% ... Össur 125,50 +0,80%
MESTA HÆKKUN
FL Group +3,23%
Actavis +2,00%
Bakkavör +1,55%
MESTA LÆKKUN
Dagsbrún -7,39%
Marel -3,07%
Flaga -1,54%
Hlutabréf í FL Group hafa hækkað
um 42 prósent frá því að félagið
birti hálfs árs uppgjör um miðjan
ágúst. Þetta er meiri hækkun en hjá
nokkru öðru Kauphallarfélagi á
sama tíma.
Á sama tíma hafa fáar fréttir
borist frá félaginu nema þær er
snúa að kaupum tveggja stærstu
hluthafanna, Oddaflugs, félags í
eigu forstjórans Hannesar Smára-
sonar, og Baugs Group. Baugur
keypti fyrir hálfan milljarð króna
en Hannes fyrir 2,7 milljarða
króna. Ætla má að óinnleystur
hagnaður Oddaflugs af þessum
kaupi nemi ekki undir þrjú hundr-
uð milljónum króna.
Gengi FL Group er sérlega
næmt fyrir verðþróun á markaði
og þannig lækkaði það mest allra
félaga þegar Úrvalsvísitalan tók
dýfu fyrr árinu. Gríðarlegur við-
snúningur á innlendum fjármála-
markaði að undanförnu veldur
mikilli hækkun á stærstu eignar-
hlutum FL á innlendum markaði
en verðmæti hlutabréfa félagsins í
Glitni og Straumi-Burðarási hefur
hækkað um tugmilljarða.
Gengisþróun síðustu daga bend-
ir líka til þess að fjárfestar búist
við skráningu Icelandair Group í
Kauphöll Íslands innan skamms,
eftir vel heppnuð hlutafjárútboð
hjá Existu og Marel, en hætt var
við skráningu Icelandair á vordög-
um þegar markaðurinn var að
falla. Í bókum FL er eignarhlutur í
Icelandair metinn á 8,2 milljarða
króna en ekki þykir óvarlegt að
meta markaðsvirði félagsins á 25
milljarða króna. „Erlendir fjöl-
miðlar hafa haft eftir Hannesi að
óinnleystur söluhagnaður af sölu
Icelandair gæti numið í kringum
18 ma.kr. en í íslenskum fjölmiðl-
um er haft eftir honum að sölu-
hagnaðurinn sé umtalsvert meiri,“
segir í Vegvísi Landsbankans.
Þá hefur Almar Örn Hilmars-
son, forstjóri norrænna lággjalda-
flugfélagsins Sterling, sem er
annað rekstrarfélag í eigu FL,
greint frá því stefnt sé að hagnaði
Sterling á árinu eftir mikinn halla-
rekstur á liðnum árum.
Fréttir af kaupum OMX á Kaup-
höllinni virðast hafa haft jákvæð
áhrif á verð í hlutabréfum stærstu
félaganna. Talið er víst að stærstu
íslensku félögin fái aukna athygli
erlendra fjárfesta í kjölfarið. FL
Group er varla undantekning í
þeim efnum. eggert@frettabladid.is
Skörp hækkun í FL Group
Hlutabréf félagsins hækka um 40 prósent á rúmum mánuði. Væntingar um
skráningu Icelandair og viðskipti stærstu hluthafa skýra að hluta þróunina. Þá
hefur virði hlutabréfa FL í Glitni og Straumi hækkað um tugmilljarða króna.
FJÁRFESTAR VÆNTA AÐ ICELANDAIR VERÐI SKRÁÐ Á MARKAÐ Hlutabréf í FL Group
hafa hækkað yfir fjörutíu prósent á einum mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR