Fréttablaðið - 21.09.2006, Síða 26

Fréttablaðið - 21.09.2006, Síða 26
26 21. september 2006 FIMMTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Fyrir 250 árum var svo komið fyrir Frökkum, að aðalsmönn- um og klerkum, sem voru að sönnu sárafáir, hafði tekizt að skjóta sér að mestu undan skattgreiðslum til konungs. Allur þorri almennings – þriðja stéttin – bar hins vegar þunga skattbyrði. Að því hlaut að koma, að þriðja stéttin missti þolinmæðina og risi upp gegn ranglætinu. Það gerðist 1789, og hausarnir fuku í allar áttir. Það var fljótlegt að velja hausa í gálgana, því að sjálftekin forréttindi aðalsins og klerkastétt- arinnar langtímum saman birtust meðal annars í því, að forréttinda- stéttirnar voru yfirleitt orðnar höfðinu hærri en þriðja stéttin. Hvað um það, eftir byltinguna var fyrirkomulagi skattheimtunnar breytt í Frakklandi og öðrum Evrópulöndum á þann veg, að allir greiddu sama skatt sem hlutfall af tekjum. Þannig fæddist hugmynd- in um flatan skatt, einn skatt handa öllum. Þetta var jafnaðar- hugmynd: henni var ætlað að draga úr ójöfnuði og ranglæti frá fyrri tíð. Það tókst. Síðar gengu menn skrefi lengra og tóku upp stighækkandi skatta og sérstaka hátekjuskatta til að jafna kjör skattgreiðenda enn frekar, og aukin ríkisútgjöld til velferðar- mála lögðust á sömu sveif. Síðustu ár hefur pendúllinn sums staðar sveiflazt til baka. Hér heima var skattalögum breytt á þann veg, að tekjuskattur er nú 10% af fjármagnstekjum og 37% af launatekjum, þar af 24% til ríkisins og 13% í útsvar til sveitarfélaga (fyrra hlutfallið mun innan tíðar lækka í 22%, nema lögunum verði breytt). Þessi munur á skattlagningu fjármagns- tekna og launatekna er meiri hér en í öðrum OECD-löndum. Í Bandaríkjunum eru fjármagns- tekjur skattlagðar svo að segja alveg eins og launatekjur; munurinn á skatthlutföllunum er eitt prósentustig. Svipuðu máli gegnir um Danmörku, Írland og Sviss: þar leikur fjármagnstekju- skattshlutfallið á bilinu 40% til 43%. Í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð er fjármagnstekjuskatts- hlutfallið 28% til 30%, helmingi lægra en launatekjuskattshlutfall- ið. Ekkert land innan OECD nema Ísland hefur kýlt fjármagnstekju- skattshlutfallið niður í 10%. Enginn vafi leikur á því, að þessi breyting á skattalögunum hefur ýtt undir þann ójöfnuð, sem setur mark sitt á samfélagið í síauknum mæli. Á hinn bóginn virðist það einnig líklegt, að lækkun fjár- magnstekjuskatts hafi leitt til betri skattskila, örvað sparnað og laðað meira fjármagn til landsins erlendis frá en ella, og það var höfuðtilgangurinn. Hvað er til ráða? Stjórnarand- stöðuflokkarnir hafa allir kveðið upp herör gegn auknum ójöfnuði og búast til að mynda nýja ríkisstjórn – frjálslynda jafnaðar- stjórn, velferðarstjórn – að loknum alþingiskosningum 2007. Það er skiljanleg afstaða frá þeirra bæjardyrum séð, svo mjög sem ójöfnuður hefur færzt í aukana á Íslandi síðan 1994 samkvæmt nýjum upplýsingum ríkisskattstjóra. Það er því ljóst, að stjórnarandstöðuflokkarnir hyggjast breyta skattalögunum, nái þeir meiri hluta á Alþingi að loknum kosningum. Hyggilegast væri þá að samræma tekjuskatt- inn á þann veg, að öllum væri með nýjum skattalögum gert að greiða sama hlutfall tekna sinna umfram tiltekið lágmark í skatt, óháð því hvort tekjurnar eru launatekjur eða fjármagnstekjur. Í þessu fælist veruleg skattalækkun fyrir mikinn hluta launþega og skatta- hækkun fyrir miklu fámennari hóp fjármagnseigenda. Þetta væri engin sérstök nýlunda. Flatir tekjuskattar tóku að ryðja sér til rúms í Evrópu á ný um miðjan síðasta áratug. Eistar riðu á vaðið með 24% flatan tekjuskatt 1994. Lettar og Litháar fylgdu fordæmi granna sinna, og síðan hafa nokkur önnur lönd í austanverðri og sunnanverðri Evrópu bætzt í hópinn. Kristilegir demókratar í Þýzkalandi lögðu til flatan tekjuskatt (25%) fyrir kosningarnar 2005, en þeir komu tillögunni samt ekki inn í stjórnar- sáttmála stóru samsteypunnar eftir kosningar vegna andstöðu jafnaðarmanna. Flatur tekjuskatt- ur þarf þó ekki að þýða það, að auðmaðurinn greiði sama hlutfall tekna sinna í skatt til ríkisins og örorkubótaþeginn. Ef skatturinn er lagður á tekjur umfram tiltekið frítekjumark, eykst skattbyrðin með tekjum manna, svo sem flestum finnst réttlátt. Flatur skattur hefur ýmsa kosti: hann einfaldar skattkerfið og dregur úr freistingunni til undanskota og skattsvika. Við núverandi aðstæður hér heima myndi flatur tekjuskattur leiða til jafnari skiptingar skattbyrðarinnar en nú tíðkast. Höfuðandbáran í öðrum löndum er sú, að flatur skattur leiði til aukins ójafnaðar, en hún á ekki lengur við hér. Nú er lag. Í DAG | ÞORVALDUR GYLFASON Þriðja stéttin rís upp Skattamál Hyggilegast væri þá að sam- ræma tekjuskattinn á þann veg, að öllum væri með nýjum skattalögum gert að greiða sama hlutfall tekna sinna um- fram tiltekið lágmark í skatt... Krosstengsl Þremenningarnir Björn Ingi Hrafns- son, Pétur Gunnarsson og Steingrím- ur Sævarr Ólafsson, sem sátu saman í herráði Halldórs Ásgrímssonar, eru allir ötulir bloggarar. Björn Ingi hefur lengi haldið úti síðu (bjorningi.is) þar sem hann skrifar um hugðarefni sín en nýlega hófu Pétur (petrum.blog- spot.is) og Steingrímur (saevarr.blog. is) að fjalla um það sem þeim finnst markverðast hverju sinni. Pétur skrifar mest um stjórnmál en Steingrímur um fjölmiðla og hefur NFS átt hug hans allan síðustu daga. Allir hafa þeir bent á ágæti skrifa hvers ann- ars og geta lesendur síðanna farið í hring- ekju á milli þeirra og skoðað það sem einum finnst merkilegt í skrifum annars. Ekki að spyrja að því Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, situr nú ráðstefnu í New York í boði Clintons, fyrrum Banda- ríkjaforseta. Þar er rætt um helstu vandamál sem steðja að mannkyn- inu; fátækt, heimsfaraldra, átök og loftslagsbreytingar. Í tilkynningu frá forsetaembættinu kemur fram að í vesturför sinni muni Ólafur Ragn- ar ekki aðeins sitja ráðstefnuna, heldur líka „eiga fundi í New York og Washington með ýmsu áhrifafólki á alþjóðavettvangi“. Hvaða fólk það er og um hvað Ólafur ætlar að tala við það kemur hins vegar ekki fram. 15, ekki 12 Björg Eva Erlendsdóttir, fréttamaður á Ríkisútvarpinu og formaður Félags fréttamanna, svarar Róberti Marshall, forstöðumanni NFS, í Fréttablað- inu í gær. Í frægri grein sinni sagði Róbert að mörgum starfsmönnum NFS hafi þótt freistandi að ganga til liðs við RÚV og þurfa að vinna tólf daga í mánuði á fullum launum. Björg Eva gerir athugasemdir við ýmislegt í grein Róberts og hrekur meðal annars staðhæfingu hans um vinnudaga fjölda fréttamanna hjá Sjónvarp- inu. Segir hún þá vinna fimmtán daga í mánuði – ekki tólf – og vaktirnar séu allt að ellefu og hálf klukkustund. bjorn@frettabladid.is V ændi fyrirfinnst í öllum stórborgum vestrænna ríkja. Skiptir engu máli hvaða löggjöf er í gildi á hverjum stað - alls staðar má finna þessa starfsemi þótt mis- sýnileg sé. Þeir sem fjalla um vændi og vilja koma í veg fyrir það hljóta að horfa til þessara staðreynda. Markmið löggjafans á að vera að draga úr skaðsemi vænd- is. Mikilvægast er að aðstoða þá einstaklinga sem selja aðgang að líkama sínum vegna neyðar, fíknar, ofbeldis eða hótunar um ofbeldi. Slíkt á aldrei að líðast. En að uppræta vændi er von- laust. Alveg eins og það er vonlaust að uppræta vímuefnaneyslu í nútímasamfélagi. Skiptir engu máli hvaða ártöl eru sett á slíka baráttu. Því fyrr sem við horfumst í augu þessar staðreyndir, því betur mun okkur takast að lágmarka skaðann sem af þessu hlýst. Og hjálpa þeim sem eru hjálpar þurfi. Nú hefur Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lagt fram frumvarp þar sem gert er ráð fyrir að refsing fyrir að stunda vændi sér til framfærslu verði felld niður. Það er ekki lengur markmið að refsa fórnarlömbunum. Um það eru allir sammála. Hins vegar vill sumt velviljað fólk fara hin svokölluðu „sænsku leið“ og gera refsivert að kaupa vændisþjónustu. Hvorki Norð- menn né Danir hafa valið þá leið. Auðvitað felast ákveðin siðferðisleg skilaboð í því að gera kaup á vændi refsiverð. Eftirspurn myndi líklega minnka í kjöl- farið. En hún hyrfi ekki. Og þeir sem myndu áfram nýta sér aðstöðu vændisfólks væru ekki löghlýðnustu borgarar landsins. Það væru einstaklingar sem gefa lítið fyrir lög og reglur. Starf- semin myndi verða enn ósýnilegri en ekki upprætt. Erfiðara yrði að hafa eftirlit með fólki, veita bágstöddum hjálp og sækja ofbeldismenn til saka. Vændi er í langflestum tilvikum félagslegt vandamál. Sam- kvæmt tölum frá Stígamótum hafa 65 til 85 prósent kvenna sem stunda vændi orðið fyrir einhvers konar kynferðislegu ofbeldi. Þessar konur eru oft illa settar andlega, líkamlega og félags- lega. Sé vændi ekki bundið við undirheimana eru meiri líkur á að hægt sé að veita þeim félagslega, læknisfræðilega og fjár- hagslega aðstoð. Það er mikilvægast. Í einhverjum tilfellum fer sala kynlífs fram með fullu sam- þykki og vilja beggja aðila. Ríkisstjórnin, eða 63 alþingismenn, hefur ekkert með það að gera að segja fullorðnu fólki hvernig það eigi að haga sér. Fólki á að vera frjálst að selja ótilneytt lík- ama sinn til kynlífs á sama hátt og það selur vinnu sína. Þessi umræða vekur upp hörð viðbrögð hjá mörgum. Það er eðlilegt þegar fjallað er um velferð einstaklinga sem margir búa við skelfilegar aðstæður. Þess vegna er mikilvægt að við horfum á staðreyndir málsins. Dómsmálaráðherra leggur fram frumvarp um breytingar á almennum hegningarlögum. Refsilaust að stunda vændi BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON SKRIFAR Umræðan Fötluð grunnskólabörn Það er ólíðandi að deilur milli ríkis og sveitarfélaga bitni með fullum þunga á 370 fötluðum grunnskólabörn- um og foreldrum þeirra eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu. Ekki er deilt um hvort þörfin sé fyrir hendi, heldur um hvort það sé hlutverk ríkis eða sveitarfélaga að veita þessa þjónustu og síðan hvað hún kostar. Um er að ræða lengda viðveru í grunnskólum hjá fötluðum börnum 10-16 ára. Ágreiningurinn snýst um hvort lengd viðvera falli undir lög um málefni fatlaðra eða almenna þjónustu sveitar- félaga við grunnskólabörn. Svo virðist að komin sé upp algjör pattstaða. Það gengur hreinlega ekki, því á meðan líða 370 fatlaðir einstaklingar, foreldrar þeirra og aðstandendur, sem þurfa jafnvel að minnka við sig vinnu vegna þessara kerfisdeilna. Við þessar aðstæður er það skylda félagsmálaráðherra að höggva á þennan hnút. Skora ég á félagsmálaráðherra að leysa málið tafarlaust. Ef lagaákvæði eru óljós á strax að breyta þeim. Ríki og sveitarfélög greinir líka á um útgjöldin vegna þessarar þjónustu sem ríki metur á rúmlega 100 milljónir en sveitarfélög nær 200 milljón- um. Ríkið vill setja hámark á greiðslurnar og greiða einungis samanlagt 50-55 milljónir og inni í því er 45 milljón kr. kostnaður sem nú þegar er greiddur vegna lengdrar viðveru fatlaðra barna á sjálfseignarstofnunum sem hagsmuna- samtök fatlaðra reka eins og Lyngás. Ríkið virðist því einungis tilbúið að leggja til 10 milljónir af heildarkostnaði á bilinu 100-200 milljónir sem lengd viðvera 10-16 ára fatlaðra barna kostar. Félagsmálaráðherra verður að fá óvilhalla aðila til að meta með hlutlausum hætti raunverulegan kostnað við þessa þjónustu. Þeim kostnaði á að skipta refjalaust og án allra undan- bragða milli ríkis og sveitarfélaga þar til Alþingi hefur með lögum kveðið skýrt á um hvort ríki eða sveitarfélaga eða þau sameiginlega eiga að reka og kosta þessa þjónustu. Málið verður tekið fyrir nú í upphafi þings hafi félagsmálaráðherra ekki orðið við þessari áskorun. Höfundur er alþingismaður Samfylkingarinnar. Áskorun til félagsmálaráðherra JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.