Fréttablaðið - 21.09.2006, Side 27

Fréttablaðið - 21.09.2006, Side 27
FIMMTUDAGUR 21. september 2006 27 Dagskrá: 9.00 Húsið opnar – morgunhressing fyrir þá sem vilja 9.45 Samkirkjuleg helgistund í kirkjunni 10.00 Setning og kynning á félagslegu sáttaferli Fjögur lykilhugtök í félagslegu sáttaferli: Fyrirgefning Rodney Petersen Sáttargjörð Raymond Helmick 12.00 Hádegisverður í Ljósbroti 13.00 Réttlæti Rodney Petersen Samfélag Raymond Helmick Frásaga af vettvangi sáttargjörðarinnar. Hvernig lítur sáttaferlið út? Fyrirspurnir og umræður 16.00 Móttaka í Hafnarborg Ísland og félagslegt sáttaferli: viðbrögð við erindum dagsins Umræður 18.00 Ráðstefnuslit Sáttaleið til friðar Trúarbrögðin í hinni pólitísku eldlínu líðandi stundar Ræðumenn: Prófessor Rodney Petersen Prófessor Raymond Helmick S.J. frá Boston Theological Institute Ráðstefna í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 22. september www.kjalarpr.is E in n t v e ir o g þ r ír 3 13 .0 2 7 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S N A T 33 63 8 08 /2 00 6 Cheerios er trefjaríkt og sykurlítið og fer vel í litla og stóra maga 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Umræðan Þróunaraðstoð Athyglisvert hefur verið að fylgjast með umræðu um þróunaraðstoð í Fréttablaðinu undanfarið. Í innleggi sínu þann 15. september kemur Hannes Hólmsteinn Gissurarson fram sem málsvari frjálsræðis og gengur svo langt að halda því fram að frjáls viðskipti séu eina gagnlega þróunaraðstoðin. Ég er sammála ýmsu sem Hannes segir í svari sínu við formæl- endur. Það er ljóst að Davíð Sigur- þórsson gengur fulllangt í sinni gagnrýni. Helsta vandamálið er ekki það að hann skuli horfa framhjá mýmörgum dæmum þess að þróunaraðstoð hafi skil- að góðum árangri, heldur að hann skuli leyfa sér að alhæfa á þennan hátt um þróunarríki. Ummæli Davíðs eru auðveld- lega hrakin, t.d. með vísun til fjölmargra Austur-Evrópu þjóða sem njóta góðs af nálægð- inni og samstarfi við Vestur- Evrópu. Hannes gengur líka fulllangt í sínum fullyrðingum, sérstak- lega þegar hann leggur frjáls viðskipti að jöfnu við hnattvæðingu. Um þessar mund- ir ræður frjálsa markaðshugsunin ríkjum í hnattvædda markaðskerfinu. En eins og hnattvæð- ingarfræðingurinn Jan Aart Scholte hefur bent á er ekki óhugsanlegt að annað markaðskerfi komi í stað frjáls- hyggjunnar þótt það marki ekki endilega lok hnattvæðingar. Sífellt er að koma í ljós að ýmsir þættir í frjálsa markaðskerfinu falla mjög illa að hnattvæðingu. Núgildandi einkaleyfiskerfi hefur t.d. ekki komið í veg fyrir að falsanir og eftirlíkingar flæði um allan heim. Það hefur einnig gert aðilum kleift að fá einkaleyfi út á menningararf- leifð fátækra þjóða, eins og sum lyfjafyrirtæki hafa verið sökuð um. Samt ræður frjálsa markaðs- kerfið ríkjum um þessar mund- ir. Þær þjóðir sem vilja hafa aðgang að hnattvædda sam- félaginu þurfa að tileinka sér gildi þess. En frjálshyggjan leysir ekki öll vandamál. Eins og flestir muna gengu Bandaríkjamenn og fleiri úr UNESCO á sínum tíma vegna MacBride-skýrslunnar. Höfund- ar þeirrar skýrslu vildu að aðgangur að samskiptatækni yrði mannréttindamál. Banda- ríkjamenn og þeirra vinir vildu ekki samþykkja þetta og kusu að fara eigin leið sem var að treysta á frjáls markaðsöfl til að dreifa samskipta- tækni jafnt um heiminn. Markaðs- öflin fengu að ráða og 26 árum síðar er Afríkuálfa enn með dýrustu og slökustu nettengingar í heimi. Frjálsu markaðsöflin sjá litla ástæðu til að huga að nettenging- um við álfuna og þurfa Afríkubúar sjálfir að bera allan kostnað vegna netnotkunnar þannig að þeir borga brúsann hvort sem verið er að senda tölvupóst til eða frá Afríku. Þróunarlönd hafa mismun- andi þarfir og aðstoð þarf að miðast við aðstæður. Alhæfing- ar um þróunarlönd og aðferðir til að veita þeim aðstoð eru gjörsamlega gagnslausar. Helsta lausn á vandamálum þróunarlanda felst í menntun, ekki bara í þróunarlöndum heldur líka þeim þróuðu. Þróunaraðstoð sem felur ekki í sér menntaþátt sem miðar að því að auka gagnkvæman skiln- ing milli þróunar- og þróaðra landa og að styrkja alla til þátt- töku í hnattvæddu samfélagi, er ekki í samræmi við kröfur nútímans. Aukin menntun og gagnkvæmur skilningur veitir mönnum frelsi og svigrúm til að þróast. Höfundur er verkefnisstjóri Landsskrifstofu Sókrates. Frelsi til að þróast Helsta lausn á vandamálum þróunarlanda felst í mennt- un, ekki bara í þróunarlönd- um heldur líka þeim þróuðu. TRYGGVI THAYER

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.