Fréttablaðið - 21.09.2006, Page 33

Fréttablaðið - 21.09.2006, Page 33
FIMMTUDAGUR 21. september 2006 3 Úr háborg tískunnar BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS Herrarnir fara ekki varhluta af afturhvarfstískunni í vetur frekar en dömurnar. Tískan ber keim frá sjötta áratugnum eða þá af diskótímanum, seinni- hluta áttunda- og níunda ára- tugarins. Herratískan er annað hvort herraleg eða þá dálítið á milli þess að vera karlmannleg og kvenleg. Litirnir eru dökkir, aðalliturinn er svartur sem út af fyrir sig er ekki mikil nýj- ung. Skórnir eiga að vera tám- jóir eins og verið hefur, alls ekki með breiðri tá. Svo má ekki gleyma ökklastrigaskón- um eins og Converse en nú er meðal annars Puma-fyrirtækið farið að framleiða slíka skó. Af nýjungum má nefna frumlegar kvartbuxur frá Prada, þröngar að neðan. Miuccia Prada segist hafa vilj- að hanna eitthvað nýtt fyrir karlmenn þar sem alltaf sé meira eða minna það sama í boði fyrir þá. Leikfimi er lykilatriði í vetur því nú er herratískan bara fyrir mjóa, líkt og kven- tískan er svo oft, með þröngum buxum og aðsniðnum jökkum. Til dæmis má finna flottan fau- elsjakka hjá Alexander McQu- een á rétt rúmar 1.200 evrur í dökkfjólubláum lit en slétt- flauel er notað af fleiri hönn- uðum í vetur bæði hjá Gucci í buxum og hjá Versace, Dolce & Gabbana og fleirum í jökkum. Meðal yngri herranna hér í borg er renglutískan það sem mest ber á og verður áfram í vetur. Þessi mjóslegni maður sem er næstum kynlaus, hárið annað hvort í hanakambi eða bítlalegt og vex í allar áttir. Herratískan hefur þróast meira en kventískan síðustu ár. Hún hefur tekið sér meira frelsi meðal annars með til- komu metró-mannsins og ég held að sú sem gaf honum dán- arvottorð fyrir nokkru hafi heldur betur hlaupið á sig. Þessi karltýpa hefur sett var- anlegt mark á tískuna. Í umróti hippatímans og næstu ár þar á eftir urðu miklar breytingar á klæðnaði almennt, breytingar sem áttu eftir að bylta tískunni allri. Karlmannsímyndin hélst þó lengi vel karlmannleg. Nú hefur þessi ímynd aðeins verið látin víkja. „Dior-lookið“ svo- kallaða, hannað af Hedi Sli- mane sem byggir að einhverju leyti á frelsi hippatímans og nýrómantík níunda áratugar- ins er miklu nær því að vera kynlaus stíll en herratískan var á sjöunda og áttunda ára- tugnum. Jean-Paul Gaultier er annar hönnuður sem hefur leikið sér að því að blanda saman því karl- og kvenlega. Hedi Slimane er ekki aðeins hönnuður heldur sömuleiðis áhugamaður um rokk, pönk og „new wave“ tónlist sem og ljós- myndum. Áhugi hönnuða á þessu tímabili kemur hugsan- lega til af því að fyrir suma þeirra er þetta afturhvarf til æsku þeirra (Alexander McQu- een, John Galliano). Víst er að karlmannsímyndin hefur breyst til frambúðar í tísku- heiminum. bergthor.bjarnason@wanadoo.fr Renglutíska herranna Með gull á brjóstum BRJÓSTAHALDARAR ÞURFA EKKI AÐ VERA ÞÆGILEGIR TIL AÐ ÞYKJA FLOTTIR. Suðurkóreskt tískufyrirtæki sýndi nýverið fokdýran brjósta- haldara úr gulli og demönt- um. Brjóstahaldarinn heitir „Immorality of a Queen“ og var sýndur í Suður-Kóreu í tilefni af því að nýju tískumerki hefur verið hleypt af stokkunum í Seúl. Haldarinn kostaði aðeins 1.890.000 milljónir dala og er því vart fyrir hvern sem er. Fokdýr brjóstahaldari úr gulli og demöntum FRÉTTABLAÐIÐ/AP Fyrir strákana Strákum finnst gaman að fá eitthvað sætt frá spús- unni... og spúsunni finnst gaman þegar kærastinn eða eiginmaðurinn er vel lyktandi og vel til hafður. Hér eru tvær góðar hugmyndir að gjöf handa þínum heittelskaða. ...OG LÍTUR VEL ÚT. Biotherm homme age fitness næturkrem. Hann setur kremið á sig fyrir háttinn og vaknar alveg ljómandi ferskur að morgni. Inniheldur ólífu-extrakt og E-vítamín sem örvar endurnýjun húðfruma og hægir á öldrunareinkennum. LYKTAR VEL. Boss in motion edition. Þessi ilmur kemur í takmörkuðu upplagi og verður aðeins í hillum verslana í skamman tíma. Flaskan er fallega hönnuð og fer vel í hendi. Ilmurinn er dýnamískur, ferskur og karlmannlegur, sam- settur úr tóbaksplöntu, sítrus og engifer. AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA Hinn gullni meðalvegur er ekki leiðin sem ber að feta þegar kemur að tískunni og þetta á jafnt við um flíkur, fylgihluti og töskur. Töskurnar halda áfram að vera í yfirstærðum þetta haustið, en á sama tíma er líka í lagi að taka með sér eina oggu poggu litla á dansleikinn, svo lengi sem hún er bara oggu poggu. Louis Vuitton kann að hanna töskur, hvort sem þær eru stórar eða smáar. Risataska frá Prada. ...og svo sveiflast taskan Ótrúlega töff taska frá Zac Posen. Takið eftir snákamunstrinu. Pláss er eitthvað sem ekki skortir í þess- ari flottu rennilásatösku frá Chloé. Ofan í þessa fínu smátösku frá Chanel kemst varla meira en varalitur og lykla- kippa. Síminn, dagbókin, vatnsbrúsinn og allt hitt þarf aðeins meira pláss... GLÆSIBÆ S: 553 7060 GLÆSIBÆ ÞESSIR PASSA - mikið úrval eru fáanlegir í nokkrum stæ rðum yfir kálfa L XL M MAGG er ljósmyndastúdíó sérhæft í auglýsinga- og tískuljósmyndun. Við leitum að nýjum andlitum; fólki á öllum aldri. Spennandi verkefni framundan og góð laun í boði fyrir rétta fólkið. CASTING FÖS. 22.09 KL 14-20 HVERFISGÖTU 18A

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.