Fréttablaðið - 21.09.2006, Síða 68
21. september 2006 FIMMTUDAGUR32
Hvað eiga Alfreð Gísla-
son handboltamaður, Páll
Magnússon útvarpsstjóri,
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir og Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, fyrrverandi
borgarstjórar, og Arnaldur
Indriðason glæpasagnahöf-
undur sameiginlegt? Um
þau öll má lesa í nýútkomn-
um bókum sem nefnast
Íslenskir sagnfræðingar
I-II. Þau eru öll með sagn-
fræðimenntun.
Á undanförnum árum hafa átt sér
stað miklar breytingar í heimi
háskólafólks. Samfélag þessa hóps
hefur stækkað ört og er áberandi í
samfélaginu á margvíslegan hátt.
Allt tengist þetta meiri fagvæð-
ingu samfélagsins og aukinni
áherslu á menntun og vísindi.
Ein er sú fagstétt sem hefur
sett mikinn svip á þessa sögu alla
en það eru sagnfræðingar, sem
hafa farið fyrir framsæknu fræða-
starfi í landinu á undanförnum tíu
til fimmtán árum. Nú hafa sagn-
fræðingar stigið enn eitt skrefið
fram á við og tekið saman veglega
umfjöllun um fagið og fræðimenn-
ina sem því tilheyra, meðal annars
í sérstöku stéttartali.
Fólkið og fræðigreinin
Upphafsmaður þessarar vinnu er
dr. Sigurður Gylfi Magnússon,
fyrrverandi formaður Sagnfræð-
ingafélagsins, en hann er einn af
ritstjórum bindanna tveggja. „Í
fyrra bindinu sem kom út nú á
dögunum er að finna hefðbundnar
ættfræðiupplýsingar um þá sem
hafa hlotið háskólamenntun í sagn-
fræði hér á landi eða erlendis,“
segir Sigurður Gylfi í samtali við
Fréttablaðið. „Meginhugmynd
okkar byggðist á því að búa til
ramma utan um fagið svo við
gætum gert okkur grein fyrir
hverjir tilheyrðu því og hvernig
stéttin hefði orðið til á 20. öld. Það
eru auðvitað ýmsar leiðir færar til
að kanna það en við sem vorum í
forsvari fyrir bækurnar tvær töld-
um að það væri ekki aðeins mikil-
vægt fyrir sagnfræðinga sjálfa að
átta sig á umfangi sinnar eigin
stéttar, heldur myndi verkið gefa
menntamála- og háskólayfirvöld-
um mikilvæga vitneskju um
hvernig þetta tiltekna háskólanám
hefði nýst. Þessi vinna ætti einnig
að gagnast sagnfræðiprófessorum
ákaflega vel því bækurnar báðar
sýna svo ekki verður um villst
hvert leiðir fólks hafa legið og þar
með gefst tækifæri til að bera
saman námsframboð og störf
sagnfræðinga.“
Níu ára útgáfusaga
Sigurður Gylfi segir að forleggjar-
ar bókanna, þeir Ívar Gissurarson
og Steingrímur Steinþórsson hjá
Skruddu, hafi stutt mjög við bakið
á allri hinni miklu vinnu sem hefur
staðið við talið samfleytt frá haust-
inu 1997. Þeirra hlutur hafi verið
stór við vinnslu stéttartalsins
sjálfs en sagnfræðingar hafi unnið
síðara bindið, sem fjallar um fagið
frá mörgum hliðum. Þar eru birtar
valdar greinar sem fjalla um þróun
sagnfræðinnar á öldinni sem leið,
sjálfsævisögubrot þekktra sagn-
fræðinga er þar einnig að finna og
loks eru ungir sagnfræðingar með
stuttar en snarpar greinar um sín
sérsvið. Þessi umfjöllun gefur
glettilega góða sýn á strauma og
stefnur í faginu auk þess sem
sjálfsævisögubrotin opna fyrir
mun persónulegri umfjöllun um
fræðigreinina. Umfjöllunin öll
gefur einnig lesendum tilfinningu
fyrir þróun hugvísinda frá stofnun
Háskóla Íslands 1911 og til þessa
dags.
Annáll Sagnfræðingafélagsins
„Í fyrra bindinu er einnig rakinn
annáll Sagnfræðingafélags
Íslands, en hann tók Bragi Þor-
grímur Ólafsson saman, og þar
kemur vel fram hve starfsemi
félagsins hefur verið stigvax-
andi,“ segir Sigurður Gylfi. Það er
óhætt að fullyrða að Sagnfræð-
ingafélagið hafi slegið í gegn með
hádegisfundum sem hafa verið
hálfsmánaðarlega á vetrardag-
skrá félagsins frá upphafi árs 1998
og hafa dregið að sér stóra hópa
fólks á hvern fund.
„Það er ótrúlega góð tilfinning
að sigla þessu verki í höfn eftir
mikla vinnu á undanförnum árum
og ég er þess fullviss að það muni
styrkja starfsemi Sagnfræðinga-
félagsins mikið í framtíðinni.
Sagnfræðin er fyrst greina í hug-
vísindum til að fá svona umfjöllun
og ég vona að aðrar fræðigreinar
fylgi á eftir því, þannig tryggjum
við öfluga aðkomu alls hugvís-
indafólks að samtímaumræðunni,“
segir Sigurður Gylfi.
svavar@frettabladid.is
Að þekkja sjálfan sig
SIGURÐUR GYLFI MAGNÚSSON Sigurður er upphafsmaður bókanna Íslenskir sagnfræð-
ingar I-II. Bækurnar eru ávöxtur níu ára vinnu sem margir hafa komið að.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Nám og starf yngstu leikskólabarnanna verður tekið til umfjöllunar á ráðstefnu
við kennaradeild Háskólans á Akureyri á laugardaginn.
Sjónum verður sérstaklega beint að stærðfræðikennslu.
Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar verða sænskir leikskóla-
kennarar og ætla þeir að kynna verkefni sem unnið var
á tuttugu og tveimur deildum yngstu barna, þar sem
leikskólakennararnir horfðu á starfið út frá sjónarhorni
stærðfræðinnar. „Við gleymum stundum að líta til yngstu
barnanna en það er sannarlega verið að vinna mikið starf
með þeim á leikskólum,“ segir Sigríður Síta Pétursdóttir,
sérfræðingur við skólaþróunarsvið Háskólans á Akureyri.
Hún nefnir sem dæmi um hvernig stærðfræðikennsla
yngstu leikskólabarnanna fari fram að börnum sé kennt
að horfa á umhverfið út frá hugtökum stærðfræðinnar og þau þjálfuð í að nota
hugtök úr heimi hennar í máli sínu.
■ Stærðfræðikennsla yngstu leikskólabarnanna:
Umhverfið kannað út frá stærðfræði
o
Auðlindafræði verða kynnt á málstofu sem haldin verður að Borgum, rann-
sóknarhúsi við Háskólann á Akureyri, á föstudaginn. Meðal þeirra sem stíga
á stokk er Rut Hermannsdóttir en hún er að vinna að meistaraverkefni um
notkun lífvirkra efna í lúðueldi. Hún segir ónæmisfræði
snemma hafa vakið athygli sína og forvitnilegt sé að sjá
hvernig hægt sé að styrkja ónæmiskerfi lúðuseiða til að
draga úr afföllum í stofninum. Verkefnið er unnið í sam-
vinnu við Fiskey ehf., Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins,
Náttúru-fræðistofnun Íslands og Akureyrarsetur. Rann-
sóknir hófust í fyrra og er áætlað að þeim ljúki á næsta ári.
„Líftækni og þá sérstaklega ónæmiskerfi er mjög spenn-
andi og áhugavert að sjá hvernig náttúruleg efni geta gert
líkama sterkari,“ segir Rut en hún er nýkomin af ráðstefnu
í París um ónæmisfræðinnar og ætlar því einnig að kynna
það nýjasta á þessu sviði.
■ Ónæmiskerfið styrkt:
Líftækni bjargar lúðuseiðum
Landbúnaðarháskóli Íslands tók til starfa 1. jan-
úar 2005. Rektor hans er doktor Ágúst Sigurðs-
son. Skólinn er vísindaleg fræðslu- og rannsókna-
stofnun á háskólastigi, auk þess sem þar er boðið
upp á starfsmenntanám í búfræði og garðyrkju-
tengdum greinum auk endurmenntunar. Þar er
hægt að taka BS próf á fjórum námsbrautum,
það er búvísindum, náttúru- og umhverfisfræði,
skógfræði/landgræðslu og umhverfisskipulagi
en það er fornám að landslagsarkítektúr. Einnig
er þar boðið upp á mastersnám og doktorsnám. Fimm námsleiðir eru á fram-
haldsskólastigi, það eru blómaskreytingar, búfræði, garðyrkjuframleiðsla, skóg-
ur/umhverfi og skrúðgarðyrkja. Aðalaðsetur skólans er á hinum sögufræga stað
Hvanneyri í Borgarfirði, þar sem Búnaðarskólinn var stofnaður árið 1889.Und-
anfarin ár hafa verið byggðir upp nýtískulegir nemendagarðar á Hvanneyri með
einstaklingsherbergjum og fjölskylduíbúðum auk sem leikskóli og barnaskóli eru
reknir á staðnum.
■ Skólinn:
Nýtískulegur skóli á gömlum grunni
„Ég fékk snemma áhuga á náttúrunni.
Það var ekki síst fósturforeldrum
mínum að þakka en þær voru ófáar
gönguferðirnar sem við fórum saman í
þegar ég var barn,“ segir Þorvarður
Árnason, forstöðumaður Háskóla-
setursins á Hornafirði. Þorvarður er
líffræðingur og doktor í náttúruheim-
speki. Hann segir þá námsblöndu
hafa orðið til þegar hann starfaði sem
landvörður samhliða námi. „Í starfinu
dvaldi ég lengi á öræfum. Þar kynntist
ég náttúruverndarsjónarmiðum og
mikilvægi þess að vernda þessi stór-
kostlegu svæði. Síðar kynntist ég svo
sið- og fagurfræðilegu hliðinni á þessu
máli og þannig vafði þetta upp á sig,“
segir Þorvarður.
Helstu rannsóknir hans hafa snúið
að verndun villtrar náttúru en
hann hefur einnig látið siðferði-
legar spurningar á sviði líftækni
sig varða. Í gær hélt hann fyrir-
lestur, ásamt dr. Einari Mäntylä
plöntusameindaerfðafræðingi,
sem bar yfirskriftina: Má
bjóða þér sjálflýsandi
svín.
„Við fjölluðum um
erfðabreytt matvæli.
Sú fæða hefur sína
kosti og galla. Þeir
bjartsýnustu telja
að líftækni muni
leysa fæðuvanda
heimsins. Aftur á
móti eru uppi
töluverðar efa-
semdir um þessi mál, til að
mynda hvort erfðabreytt mat-
væli séu jafn holl og önnur og
hvaða áhrif ræktun þeirra geti
haft á náttúruna. Ég veit að
það eru margir möguleikar í
þessu en engu að síður vil ég
að það sé farið að öllu
með gát,“ segir Þor-
varður, sem notar
einnig tækifærið til
að benda á að lítil
þekking sé til um
þessi mál og því
tilvalið fyrir
efnilega nem-
endur að kanna
þau, einkum sið-
ferðilegu hliðina.
KENNARINN: ÞORVARÐUR ÁRNASON LÍFRÆÐINGUR OG DOKTOR Í NÁTTÚRUHEIMSPEKI
Öræfi og sjálflýsandi svín
Vísindavakan er tileinkuð vís-
indamönnum og haldinn hátíð-
leg í fjölda borga Evrópu á
morgun. Markmiðið er að vekja
áhuga almennings á vísindum
og auka þekkingu almennings á
störfum þeirra og mikilvægi.
Alls verða kynnt 50 rannsóknar-
verkefni og verður áhersla lögð
á að upplýsingum verði komið á
framfæri á aðgengilegan og líf-
legan hátt.
Í aðdraganda Vísindavökunn-
ar sjálfrar hefur verið boðið upp
á Vísindakaffi og má nefna í
kvöld verður fyrirlestur sem ber
heitið Pálmatré við Jökulsárlón?
en þar fjalla vísindamenn um
hnattrænar breytingar og áhrif
þeirra á Ísland í framtíðinni.
Börn eru einnig boðin sérstak-
lega velkomin á Vísindavökuna
enda hafa þau lagt sitt af mörk-
um við hana og má þar nefna
teikni- og ljósmyndasamkeppni
þar sem ungmennum gafst kost-
ur á að sýna hugmyndir sínar um
vísindinn og vísindamenn.
Fjölskyldu- og húsdýragarð-
urinn verður einnig með dag-
skrá í boði í tengslum við Vís-
indavökunna og geta upprennandi
vísindamenn upplifað vísindinn
þar ásamt foreldrum sínum. Í
fyrra tóku um 700 manns þátt í
vökunni og er áhugasömum bent
á að hátíðarhöldin standa frá
klukkan fimm til níu á Listasafn-
inu í Tryggvagötu og frekari
upplýsingar má finna á síðunni
menntagatt.is.
- kdk
Vísindin heiðruð á Vísindavöku:
Vakað fyrir vísindunum
Árið 2001 voru
4.593 karlar og 7.660 konur í
háskólanámi á Íslandi.
Árið 2003 voru
5.705 karlar og 10.047 konur í
háskólanámi á Íslandi.
Árið 2005 voru
6.345 karlar og 10.762 konur í
háskólanámi á Íslandi.
Kjarni málsins
vaxtaauki!
10%
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
k
u
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
a
fn
a
rf
jö
rð
u
r.
Ótrúleg…
…
sæ
la
!!
!
Líka fyrir þig;
lífið, fréttirnar
og fjörið á ensku
nám, fróðleikur og vísindi