Fréttablaðið - 21.09.2006, Qupperneq 76
21. september 2006 FIMMTUDAGUR40
Kl. 11.00
Listamennirnir Anna Eyjólfsdóttir,
Jessica Stockholder, Ragnhildur
Stefánsdóttir, Rúrí og Þórdís Alda
Sigurðardóttir sýna verk sín á
samsýningunni Mega vott sem nú
stendur yfir í Hafnarborg. Sýningin
er opin milli 11 og 17 en hún stendur
til 2. október.
> Dustaðu rykið af...
Góða dátanum Svejk eftir tékk-
neska rithöfundinn Jaroslav Hasek,
einni skemmtilegustu stríðsádeilu fyrr
og síðar. Sagan um ævintýralegar
hrakfarir dátans kom út í þýðingu
Karls Ísfelds á árunum 1942-43 og
hefur vart tollað í hillum landsmanna
síðan. Ógleymanlegur flutningur Gísla
Halldórs-
sonar leikara
á sögunni er
nú fáanlegur
á hljómdisk-
um.
Myndlistarkonan Steinunn
Marteinsdóttir er með mörg
járn í eldinum. Þessa dag-
ana standa yfir sýningar á
verkum hennar í Listasafni
Reykjanesbæjar og og um
helgina verður önnur opnuð
í Listasal Mosfellsbæjar.
Yfirlitssýning á verkum Steinunn-
ar var opnuð í Reykjanesbæ í byrj-
un mánaðarins. Titill hennar er
„1961-2006“ og vísar til ártalsins
þegar Steinnunn sneri heim eftir
nám í Vestur-Berlín þar sem hún
lagði stund á myndlist með
keramik sem aðalfag, eina af elstu
listgreinum heimsins sem þá átti
sér skamma sögu á Íslandi. Þegar
heim var komið vann Steinunn á
keramikverkstæðinu Glit en setti
síðar á stofn sitt eigið verkstæði.
Árið 1969 keypti hún bæinn Huldu-
hóla í Mosfellssveit í félagi við
Sverri Haraldsson en þar rekur
hún vinnustofu sína í enn þann
dag í dag og hefur haldið margar
sýningar, bæði ein og í félagi við
aðra listamenn.
Mikið vatn hefur runnið til
sjávar frá því að Steinunn hélt
sína fyrstu einkasýningu á Kjar-
valsstöðum árið 1975 en sýning sú
markaði tímamót í feril hennar og
raunar sögu íslenskrar leirlistar.
Sýningin fékk mikla athygli en
gagnrýnendur voru beggja blands
og efuðust sumir um þá nýjung
listakonunnar að blanda lands-
lagsáhrifum í keramikgripi en
þær gagnrýnisraddir hafa vissu-
lega hljóðnað með árunum.
Steinunn hefur alla tíð verið
ötull listamaður og tekið þátt í
fjölda samsýninga og einnig starf-
að að kynningarmálum en Stein-
unn er einn af stofnfélögum Leir-
listafélagsins og sat lengi í stjórn
þessu. Auk þess hefur Steinunn
starfað að kynningarmálum fyrir
íslenska myndlist auk kennslu
sem hún segist fást við enn þann
dag í dag þó í minni mæli sé.
Á sýningunni í Listasafni
Reykjanesbæjar gefst gestum
góður kostur á að sjá þróun og
fjölbreytileika verka Steinunnar,
á sýningunni eru bæði málverk og
nytja- og skrautgripir frá ýmsum
tímum. Sýningin stendur yfir í
sýningarsal safnsins í Duushúsum
við Duusgötu og er opin alla daga
milli kl. 13-17 en henni lýkur 15.
október.
„Nú vinn ég vinn jöfnum hönd-
um með málverkið og keramikið,“
útskýrir Steinunn en hún útfærir
gjarnan hugmyndir sínar í bæði
formin og segir að eitt verk fæði
af sér annað. Sýningin í Listasaln-
um ber yfirskriftina „Lifandi land
- lifandi vatn“ en þar eru verk sem
hún hefur unnið á síðustu þremur
árum. „Þessi málverk byggja öll á
náttúrulifun,“ segir Steinunn en
hún kveðst nota sér óspart þá
náttúrufegurð sem finna má í
nágrenni Mosfellsbæjar. „Ég sæki
minn kraft og yndi í ósnortna nátt-
úru og það má eiginlega segja að
þessi verk séu óður til náttúrunn-
ar eða jafnvel samsömun við
hana.“ Steinunn segist nálgast
náttúruna eins og lifandi veru.
„Þessa dagana verður manni oft
hugsað til náttúrunnar og verka
mannanna. Það er mikill yfirgang-
ur í mannfólkinu, bæði í þéttbýli
og annars staðar og þess vegna má
greina ótta í þessum myndum.“
Málverkasýningin í Listasal
Mosfellsbæjar verður opnuð kl. 14
á laugardaginn en hún mun standa
til 14. október. Sýningin verður
opin á opnunartíma Bókasafns
Mosfellsbæjar, virka daga frá 12-
19 og á laugardögum milli 12-15.
Nánari upplýsingar um störf og
sýningar Steinunnar má finna á
heimasíðunni, www.hulduholar.
com.
kristrun@frettabladid.is
Myndgerðar náttúrulifanir
KRAFTUR OG YNDI ÚR ÍSLENSKRI NÁTTÚRU Steinunn Marteinsdóttir myndlistarmaður heldur tvær einkasýningar á haustdögum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Félagarnir Gunnar Guð-
björnsson tenórsöngvari
og Jónas Ingimundar-
son píanóleikari halda
ljóðatónleika í Salnum í
Kópavogi í kvöld kl. 20. Á
dagskrá eru ljóðasöngvar
eftir Franz Schubert og
Richard Strauss. Tónleik-
arnir eru hluti af tónleika-
ferð þeirra um landið en
þeir hafa áður gert víð-
reist saman enda starfað
saman í tvo áratugi.
Að sögn Gunnars er
músíkin temmilega ólík,
því Schubert er grunnur-
inn að þýskum ljóðasöng en Strauss er meira í
óperuáttina, en þeir félagar lofa að tónleikarnir í
kvöld verði ekta „Liederabend“.
Jónas er einn af
viðurkenndustu tón-
listarmönnum Íslands
og hefur komið fram
sem einleikari og verið
meðleikari óteljandi
söngvara og hljóðfæra-
leikara. Gunnar hefur
starfað í Þýskalandi
lungann af ferli sínum,
meðal annars verið
fastráðinn í óperuhús-
um í Þýskalandi og
Frakklandi, en býr nú á
Íslandi. Á tónleikaferð
sinni hafa Jónas og
Gunnar leikið í Vest-
mannaeyjum og á Akranesi og í október heldur
landsbyggðarrúnturinn áfram þegar þeir leika á
Kópaskeri og Blönduósi.
GUNNAR GUÐBJÖRNSSON OG JÓNAS INGIMUNDARSON
Gera víðreist um landið og halda ljóðatónleika í Saln-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Alveg ekta „Liederabend“
Söngvaskáldið Hörður Torfa er nú
á tónleikaferð um landið en hann
hefur um áratugaskeið flakkað
landshlutanna á milli og flutt
músík sína fyrir áhugasama hlust-
endur á landsbyggðinni. Í tilkynn-
ingu frá Herði tekur hann fram að
þetta sé í síðasta sinn sem hann
leggi upp í viðlíka hringferð,
margar ástæður liggi að baki
ákvörðun hans en hann líti þó
ánægður til baka á starf sitt, sem
borðið hafi ríkulegan árangur og
veitt mörgum gleði. „Ég er ekki að
leggja upp laupana, heldur aðeins
að draga úr umfangi starfs míns,“
segir í tilkynningu Harðar, sem
mun áfram heimsækja lands-
byggðina og halda þar tónleika
þótt hann hyggist ekki leggja upp
í fleiri stórar hringferðir.
Hörður er staddur á Vestfjörð-
um og heldur tónleika í félags-
heimilinu Baldurshaga á Bíldudal
í kvöld en á morgun leikur hann á
Þingeyri og í Bolungarvík. Siðan
liggur leiðin norður og austur um
land í október og síðan um Snæ-
fellsnes og nágrenni, Suðurland-
sundirlendi og nærsveitir Reykja-
víkur.
Nánari upplýsingar um tón-
leikaferðina má finna á heimasíðu
Harðar, hordurtorfa.com - khh
HÖRÐUR TORFASON Leggur ekki upp
laupana heldur minnkar við sig.
FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL BERGMANN
Í síðustu tónleikahringferð sinni
menning@frettabladid.is
!
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI