Fréttablaðið - 21.09.2006, Side 82
21. september 2006 FIMMTUDAGUR46
Bryndís Björgvinsdóttir og
Orri Jökulsson lögðu upp í
mikla ævintýraferð í sumar
þegar þau héldu til austur-
strandar Gvatemala og
unnu á vafasömu munaðar-
leysingjahæli.
Þau Bryndís og Orri ætluðu að láta
gott af sér leiða og vinna í sjálf-
boðavinnu á munaðarleysingjahæl-
inu Casa Guatemala. „Við vorum í
Kanada fyrir ári og vissum ekkert
hvað við ætluðum að hafa fyrir
stafni um sumarið,“ útskýrir
Bryndís. „Við fórum á netið og rák-
umst á heimasíðu þar sem leitað
var eftir fólki til að vinna á þessu
munaðarleysingjahæli,“ heldur hún
áfram. Þar með hófst langt og
strangt ferðalag með rútum og
bátum í steikjandi hita. „Við höfð-
um keypt helling af hlutum sem
beðið hafði verið um á heimasíð-
unni, þar á meðal áhöld til matar-
gerðar, og settum í stóra ferðatösku
sem við þvældumst síðan með,“
útskýrir Bryndís.
Þegar á Casa Guatemala var
komið blasti við þeim heldur ótrú-
leg sjón. Við hlið munaðarleys-
ingjahælisins var rekið gistiheimili
og bar en í stað þess að þau Bryndís
og Orri fengju að hjúkra munaðar-
leysingjunum og sinna börnunum
voru þau látin starfa á barnum í
þrjár vikur áður en þau komust í að
starfa með munaðarleysingjunum.
„Ég varð mjög veik, fékk e-coli sýk-
ingu og þaðan af verra,“ segir hún.
„Ég ældi því bara blóði á morgnana
og fór síðan að vinna á barnum og á
gistiheimilinu,“ segir Bryndís, sem
varð vitni að hreint ótrúlegum hlut-
um þarna í Mið-Ameríku. „Þarna
var hjúkrunafræðingur frá San
Fransisco sem hafði mastersgráðu
í hjúkrunarfræði en var bara látin
vaska upp og þjóna til borðs,“ segir
Bryndís. „Allir þeir hlutir sem ég
kom með fyrir munaðarleysingja-
hælið dúkkuðu síðan upp í eldhúsi
gistiheimilisins,“ segir hún. „Börn-
in ræktuðu kál og hænur en fengu
sjálf bara hrísgrjón og maís í öll
mál og sáu lítið af þeim peningum
sem fengust fyrir uppskeruna,“
bætir Bryndís við en auk þess var
haft á orði hvað yrði um börnin
þegar forstöðukonan færi yfir móð-
una miklu. „Þetta kom okkur mjög
spánskt fyrir sjónir því við héldum
að hún væri í mesta lagi fertug,“
segir Bryndís. „Við komumst síðan
að því að hún væri 75 ára en hefði
farið í rosalega margar lýtaaðgerð-
ir,“ útskýrir Bryndís og getur varla
annað en hlegið að þessari grát-
broslegu staðreynd.
Bryndís segir aðstæðurnar á
hælinu hafa verið skelfilegar, þar
hafi ekki verið neitt hreint vatn,
rafmagn í fimm tíma og hjúkrunar-
aðstoð í litlum mæli. „Þótt hælið
hafi verið gott að sumu leyti var
greinilegt að þarna var ekki allt
með felldu, fáir sjálfboðaliðar og
sum börnin sem voru þarna voru
ennþá misnotuð af fólkinu í
grennd,“ segir Bryndís, sem þrátt
fyrir allt var ótrúlega þakklát fyrir
þessa reynslu í Mið-Ameríku.
„Stundum á ég það til að óska þess
að ég gæti horfið þangað aftur þó
svo að vonbrigði og veikindi hafi
hrjáð mann,“ segir hún. „Gvate-
mala er ævintýralegt land, litríkt
og fallegt,“ bætir hún við. „Jafnvel
þótt við værum óheppin þarna úti
þá var þetta tímabil það besta og
það versta í senn,“ segir hún.
„Maður hefur aldrei verið jafn lif-
andi,“ segir Bryndís, sem sér ekki
eftir neinu. „Ef ég væri ekki stór-
skuldug væri ég á leiðinni í frekara
sjálfboðastarf.“
freyrgigja@frettabladid.is
Aldrei verið jafn lifandi
BRYNDÍS BJÖRGVINSDÓTTIR Segir það ótrúlega lífsreynslu að starfa á munaðarleysingjahæli í Gvatemala. MYND/BRYNDÍS OG ORRI
ALLIR Í BAÐI Strákar á munaðarleys-
ingjahælinu baða sig en Bryndís segir
að stór hluti þeirra sem bjuggu á hælinu
hafi verið misnotaður kynferðislega.
VOLGT VATN TIL DRYKKJAR Vatnið sem
munaðarleysingjunum bauðst var bæði
volgt og mengað.
SKORTUR Á AÐSTOÐ Töluverð skortur var
á hjúkrunaraðstoð á hælinu og voru þau
Bryndís og Orri látin vinna á barnum
og gistiheimili áður en þau gátu aðstoð
börnin.
Keith Richards, gítarleikari The
Rolling Stones, er hættur að nota
eiturlyf. Segir hann að þau séu of
veik fyrir sinn smekk.
„Mér finnst gæðin vera orðin
léleg. Þeir reyna eins og þeir geta
að taka vímuna úr öllu nú til dags,“
sagði Richards, sem hefur lengi
notað eiturlyf. Richards er jafn-
framt illa við eiturlyf á borð við e-
töflur sem hafa áhrif á heilastarf-
semina. „Ég er ósáttur við hvernig
þau hafa áhrif á heilann í stað þess
að fara bara í gegnum blóðið. Þess
vegna tek ég þau ekki lengur.“
Hann játar að hafa verið undir
áhrifum þegar hann féll úr tré á
Fídjieyjum fyrr á árinu og skadd-
aðist á heila. „Ég var í tvær vikur
á morfíni. Ég reyndi að fá aðeins
meira frá hjúkrunarkonunni. Hún
var mjög alúðleg,“ sagði hann.
Vill ekki
eiturlyf
KEITH RICHARDS Gítarleikari The Rolling
Stones er hættur að nota eiturlyf.
Mikil eftirvænting ríkir í kringum
nýjustu mynd Dags Kára Péturs-
sonar, Good Heart. Þegar hefur
verið tilkynnt að bandaríski tón-
listarmaðurinn Tom Waits leiki
eitt af aðalhlutverkunum en á móti
honum verður Ryan Gosling.
Dagur Kári og félagarnir hjá kvik-
myndafyrirtækinu Zik Zak sem
framleiða myndina virðast hafa
veðjað á réttan hest því stjarna
þess síðarnefnda verður skærari
með hverjum deginum sem líður í
Hollywood. „Það verður einhver
smá bið á tökum,“ útskýrir Þórir
Snær. Upphaflega var gert ráð
fyrir því að Good Heart færi í
tökur í nóvember en því hefur nú
verið frestað fram í byrjun næsta
árs.
„Gosling er að leika í annarri
mynd og þurfti síðan að fara í
endurtökur á kvikmyndinni Fract-
ure þar sem hann leikur á móti
Anthony Hopkins og David
Strathairn,“ segir Þórir en
var þó pollrólegur yfir
þessu öllu saman. „Við
þurfum bara að samræma
vinnuplönin hjá þeim
Waits og Goslin,“ bætir
hann við.
Good Heart verður tekin
uppá Íslandi og í San Francis-
co en ekki hefur verið ráðið í
nein önnur hlutverk. Að
sögn Þóris er nú
verið að vinna
í þeim hlut-
um og má
reikna með
einhverjir
íslenskir
leikarar fái
lítil hlutverk
í myndinni en ekki hafa farið
fram neinar prufur fyrir
þau. „Við eigum síðan
eftir að ráða í aðal-
kvenhlutverkið og
erum bara að skoða
þau mál,“ bætir
hann við en gat
ekki gefið upp
hvaða leikkonur
kæmu þar til
greina. - fgg
Kvikmynd Dags Kára frestað
DAGUR KÁRI Er leikstjóri Good Heart, sem tekin verður upp á Íslandi og í San Francisco.
ANTHONY HOPKINS
Leikur aðalhlutverkið á
móti Ryan Gosling í
kvikmyndinni Fract-
ure ásamt David
Strathairn.
ÞÓRIR SNÆR Tökur á myndinni
Good Heart frestast um nokkra
mánuði vegna anna hjá öðrum
aðalleikara myndar-
innar, Ryan
Gosling.