Fréttablaðið - 21.09.2006, Side 83
„Engu af því sem ég sagði og birt-
ist í Fréttablaðinu í gær er beint
gegn íslenskum höfundum eða
íslenskum flytjendum. Þeir þurfa
alla þá vinnu og verkefni sem hægt
er að fá,” segir Magnús Kjartans-
son, framkvæmdastjóri Félags
tónlistar- og textagerðarmanna –
FTT.
Í gær birti blaðið frétt þess
efnis að FTT harmaði þá stefnu
sem íslensk stórfyrirtæki hafa
tekið að nota erlend lög við
íslenskar auglýsingar, fyrir
íslenskan markað. Áður
hafði Fréttablaðið sagt af
því að Todmobile hefði leik-
ið lag Davids Bowie við aug-
lýsingu Morgunblaðsins og
þótti Magnúsi það skjóta
skökku við þar sem
Mogginn
byggir sitt á
íslenskunni.
„Sómapiltur, Þorvald-
ur Bjarni. Ég er ekki að
álasa þeim. Heldur
beini ég orðum mínum
til markaðsaflanna og
þeirri stefnu sem stór
og virðuleg fyrirtæki
hafa tekið í þessum
málum,” segir Magnús.
FIMMTUDAGUR 21. september 2006 47
Leikstjórinn Árni Ólafur Ásgeirs-
son er nýkominn heim frá kvik-
myndahátíðinni í Toronto þar sem
hann sýndi kvikmynd sína Blóð-
bönd sem hefur hlotið enska titilinn
Thicker Than Water. Myndin var
sýnd fjórum sinnum, þrisvar fyrir
almenning og einu sinni fyrir blaða-
menn og fagfólk. „Þetta gekk mjög
vel og fólk virtist ná tengslum við
söguna,“ segir Árni Ólafur en vissi
þó ekki hvernig gengið hefði að
selja myndina. „Danska kvikmynda-
fyrirtækið Trust er með hana á
sínum snærum og taldi að málin
ættu að skýrast á næstu tveimur
vikum,“ segir Árni
Leikstjórinn lýsir Toronto-kvik-
myndahátíðinni sem hálfgerðri geð-
veiki. „Þarna eru sýndar 350 mynd-
ir á 10 dögum og þeir selja 300.000
miða á þessum tíma,“ útskýrir Árni
og bætir við að kvikmyndir gangi
nánast á kaupum og sölum á hverju
götuhorni í borginni. „Fólkið sem
býr í Toronto tekur sér bara tíu
daga frí til að fara í bíó,“ segir Árni
og bætir því við að einungis tuttugu
prósent áhorfenda hafi gengið út á
fagsýningunni. „Sem þykir víst ansi
gott enda eru viðbrögðin þarna
metin eftir því hversu mörg sæti
eru auð þegar sýningu lýkur,“ segir
Árni og hlær.
Blóðbönd eru jafnframt tilefnd
til kvikmyndaverðlauna Norður-
landaráðs ásamt kvikmyndinni
Börnum en þessar myndir keppa
báðar um hylli íslensku sjónvarps-
og kvikmyndaakademíunnar vegna
tilnefningar Íslendinga í Óskars-
pottinn.
Árni fylgir Blóðböndum á nokkr-
ar hátíðir og þegar hefur verið stað-
fest að myndin verði sýnd í Chi-
cago, Róm og Þessaloníku en
ferðalagið hefst í Kaupmannahöfn í
næstu viku. Árni er að leggja drög
að næstu mynd en vildi ómöglega
gefa upp hvenær farið yrði á fullt
við gerð hennar. „Þetta er svo hverf-
ult að maður veit bara aldrei,“ segir
Árni - fgg
Blóðbönd gera
það gott í Kanada
ÁRNI ÓLAFUR ÁSGEIRSSON Ánægður með viðbrögð áhorfenda í Toronto.
BLÓÐBÖND Segir sögu manns sem
uppgötvar að sonur hans er í raun ekki
sonur hans og hefur það alvarlegar
afleiðingar.
Endurkoma Sykurmolanna hefur
vakið mikla athygli hér heima og nú
hafa erlendir fjölmiðlar komist á
snoðir um þessa fyrstu tónleika
sveitarinnar í fjórtán ár. Vefútgáfa
danska blaðsins Politiken greinir
frá tónleikunum á forsíðu sinni og
vísar til opinberrar vefsíðu Bjark-
ar, bjork.com. „Það er með stolti að
við kynnum tónleika í tilefni af 20
ára afmæli smáskífunnar Birthday
í Reykjavík hinn 17. nóvember,“
skrifar Politiken og hleypur á
hundavaði yfir feril sveitarinnar og
þá fjallar vefur norska dagblaðsins
Dagbladet einnig um endur-
komuna.
Á vef tónlistartímaritsins NME
er einnig sagt frá tónleikum sveitar-
innar, sem vekja greinilega mikla
athygli en tímaritið var dyggur aðdá-
andi sveitarinnar á sínum tíma. „Hin
áhrifamikla indie-hljómsveit Sugar-
cubes snýr aftur í Reykjavík til að
fagna afmæli smáskífunnar
Birthday,“ stendur í frétt vefsins,
sem lætur þess jafnframt getið að
Sugarcubes hafi rutt brautina fyrir
íslenska tónlist á erlendum vett-
vangi og þá gerir fréttastofa MTV
tónleikunum einnig skil á vefsíðu
sinni auk annarra smærri vefja. - fgg
Endurkoma Mol-
anna vekur athygli
SYKURMOLARNIR Njóta greinilega mik-
illa vinsælda í Danmörku og á Bretlandi
því fjölmiðlar þar í landi hafa fjallað um
endurkomu þeirra í Reykjavík.
Gagnrýnir markaðsöflin
MAGNÚS KJARTANSSON
FRAMKOMU&
FYRIRSÆTUNÁMSKEIÐ
SJÁLFSSTYRKING FRAMKOMA OG LÍKAMSBURÐUR INNSÝN Í FYRIRSÆTUSTÖRF FÖRÐUN UMHIRÐA HÚÐAR
OG HÁRS UNDIRBÚNINGUR FYRIR MYNDATÖKU MYNDATAKA (12 SV/HV MYNDIR) TÍSKUSÝNINGARGANGA
FÍKNIEFNAFRÆÐSLA MYNDBANDSUPPTÖKUR LEIKRÆN TJÁNING NÆRINGARRÁÐGJÖF
Umsjónarkennarar:
Kolbrún Pálina Ungfrú ísland.is 2001, förðunarfræðingur og fyrirsæta
Edda Björk fyrirsæta, auk gestakennara.
Lilja Nótt Þórarinsdóttir kennir leikræna tjáningu.
Allir þáttakendur fá Eskimo boli, viðurkenningaskjal og 10 sv/hv myndir.
Námskeiðinu líkur með stórri tískusýningu.
Verð 17.900 kr.
Skráning er hafin í síma 533-4646 og á www.eskimo.is.
SJÖ VIKNA NÁMSKEIÐ HEFJAST
26. OG 28. SEPTEMBER.