Fréttablaðið - 21.09.2006, Qupperneq 94
21. september 2006 FIMMTUDAGUR58
HRÓSIÐ …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÁRÉTT
2 velta 6 í röð 8 hluti verkfæris 9
bókstafur 11 tveir eins 12 prumpa 14
eftirsjá 16 verslun 17 kæla 18 for 20
ónefndur 21 faðmlag.
LÓÐRÉTT
1 viðlag 3 nafnorð 4 niðurstaða 5
kraftur 7 umorðun 10 samhliða 13
þrí 15 einn milljarðasti 16 hryggur 19
óreiða.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 snúa, 6 tu, 8 orf, 9 emm, 11
ll, 12 freta, 14 iðrun, 16 bt, 17 ísa, 18
aur, 20 nn, 21 knús.
LÓÐRÉTT: 1 stef, 3 no, 4 úrlausn, 5 afl,
7 umritun, 10 með, 13 trí, 15 nanó, 16
bak, 19 rú.
1 Thaksin Shinawatra.
2 Alcan.
3 Halldór Halldórsson
eða Dóra DNA.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
Logi Bergmann sjónvarpsmaður
vakti mikla athygli þegar hann
kom á dögunum, flottari en nokkru
sinni, brunandi til vinnu á vægast
sagt frumlegum fararskjóta. Þetta
er einhvers konar millistig reið-
hjóls og mótorhjóls – reiðhjól með
mótor – MoPed.
„Þetta er Miele, sem flestir
þekkja sem framleiðanda eldhús-
tækja núna. Miele framleiddi mót-
orhjól í gamla daga. Þetta hjól var
búið til 1954,” segir Logi, sem hafn-
ar því ekki að vera nokkur dellu-
maður þegar flottir fararskjótar
eru annars vegar. Hann hefur til
dæmis átt þrjá Porsche-bíla. „Nú
er ég hættur í þeirri deild. Nú er
það bara hjólið,” segir Logi.
Hann fann skemmtilega gamla
auglýsingu fyrir Miele mótorreið-
hjólið á veraldarvefnum en þar er
einkum reynt að höfða til sveita-
lækna í litlum þorpum. Þessi farar-
skjóti sé alveg gráupplagður fyrir
slíka. Og Loga.
„Ég kemst alveg í svona 40 kíló-
metra hraða. Hef náð 50 á góðum
degi. En 40 kílómetra hraði er
þægilegur ferðahraði á svona hjóli.
Best að fara ekki of geyst.”
Loga áskotnaðist þessi merki
gripur nánast fyrir tilviljun fyrir
um þremur árum. Þá var hjólið í
algerum lamasessi, ryðgað og
óökuhæft, en völundurinn Valur
Hólm, tengdafaðir Loga, tók það
upp á sína arma. Og gerði það upp,
pússaði og sprautaði. Valur þekkir
til því sjálfur átti hann mótor-
reiðhjól í gamla daga – en þá voru
slíkir gripir ekki eins fáséðir og er
í dag.
Logi segir Miele-hjólið sitt ein-
göngu notað þegar vel viðrar og þá
spari. Og þrætir ekki fyrir að hann
veki nokkra athygli þar sem hann
fer. „Jú, og margir vilja kaupa hjól-
ið en það er ekki til sölu.”
jakob@frettabladid.is
KEMST UPP Í 50 Logi Bergmann Eiðsson segir að 40 kílómetra hraði sé þægilegur ferðahraði á Míele mótorreiðhjóli sínu en hann
komist þó upp í 50 á góðum degi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MOPED Mótorreiðhjól Loga var framleitt
árið 1954 og var markaðssett sem
hentugur fararskjóti fyrir sveitalækna í
litlum þorpum.
Já, það er rétt, ég hætti hér í næsta
mánuði,“ segir Kristján Bjarki
Jónasson, þróunarstjóri Eddu,
sem er á förum frá forlaginu.
Hann er hins vegar ófáanlegur til
að gefa nokkuð upp um ástæður
brotthvarfs síns. „Það eru alltaf
ástæður fyrir öllu en ekkert sem
ég vil ræða opinberlega við fjöl-
miðla.“ Kristján, sem er bók-
menntafræðingur að mennt, kveð-
ur forlagið eftir margra ára starf,
þau síðustu sem þróunarstjóri fyr-
irtækisins.
Áður en hann hættir ætlar
Kristján að klára þær bækur sem
hann hefur undir höndum, ganga
frá þeim til prentunar og horfa á
eftir þeim í jólabókaflóðið. „Ég
geri ráð fyrir að vera að vera
búinn að því seint í næsta mánuði
og eftir það hætti ég.“
Hann kveðst ætla að byrja á því
að taka sér frí og sinna sínum
málum. Spurður hvort hann ætli
sjálfur að snúa sér að skriftum
segist Kristján ekki hafa hugsað
svo langt. „Ég ætla að byrja á því
að sinna ýmsum málum. Svo
kemur framhaldið bara í ljós.“ - bs
Skilinn við Eddu
KRISTJÁN BJARKI Gefur ekki upp hvers
vegna hann hættir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
k
u
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
a
fn
a
rf
jö
rð
u
r.
Fyrir
hornið…
Raunveruleikaþátturinn KF Nörd hóf
göngu sína á Sýn fyrir ekki margt löngu
og hefur hlotið ágætis viðtökur sjón-
varpsáhorfenda. Í þætti kvöldsins reyna
strákarnir fyrir sér á nýjum vettvangi
en eins og öllum „frægum“ liðum sæmir
verður KF Nörd að hafa sitt
einkennislag.
Þorvaldur Bjarni Þor-
valdsson var fenginn til að
semja þetta lag fyrir nirð-
ina og þegar Fréttablaðið
náði tali af tónlistarmannnin-
um var hann á fullu við
upptökur á nýjustu plötu
Todmobile. „Þetta gekk
alveg bölvanlega,“ segir Þorvaldur.
„Alveg hrikalega erfitt að semja svona
létt dúr-lög sem allir eiga að geta sungið
með,“ heldur lagasmiðurinn áfram.
„Vignir Snær Vigfússon var mér innan
handar og lamdi hausnum við vegg
reglulega en svo fórum við að glamra
eitthvað og þá kom þetta,“ útskýrir Þor-
valdur og segist ekki hafa legið yfir
vinsælum „íþróttalögum“ á borð
við Við erum KR eftir Bubba
Morthens eða Vi er røde,
vi er hvide en það var einkennislag
danska landsliðsins sem sló í gegn árið
1986.
Andrea Gylfadóttir, samstarfskona
Þorvaldar í Todmobile, samdi textann
við lagið og sagðist hún nú hafa smá
innsýn inn í heim knattspyrnunnar.
„Ég bjó nú á Akranesi í tíu ár,“ segir
hún. „Og það er allt opið
þegar kemur að texta-
gerð,“ útskýrir söngkon-
an en til gamans má geta
að Andrea var valin
markmaður Rock
Cup keppninn-
ar árið 1995
enda fékk hún
ekki mark á
sig þá um
árið. - fgg
Gekk bölvanlega að semja lag fyrir KF Nörd
ÞORVALDUR BJARNI
ÞORVALDSSON
Samdi lag knatt-
spyrnuliðsins
KF Nörd sem
frumsýnt
verður
í þætti
kvöldsins.
ANDREA GYLFA-
DÓTTIR
Á heiðurinn af
textanum en hún
var valin mark-
maður Rock
Cup árið 1995.
HALLA VILHJÁLMSDÓTTIR
Syngur lagið með knatt-
spyrnuliðinu KF Nörd.
... fá Elísa Wium og samtökin
Vímalaus æska fyrir framlag
sitt í þágu vímefnavarna í
tuttugu ár en samtökin héldu
upp á afmælið í gær.
Fjölmiðlar gera sér enn mat úr
ævintýrum Magna Ásgeirssonar
vestur í Bandaríkjunum, þótt þeim
sé lokið í bili að minnsta kosti. Í
Viðskiptablaðinu má lesa grein um
hverjir græddu mest á Rock Star:
Supernova, þar sem fram kemur að
líklega hafi Magni ekki fengið annað
fyrir sinn snúð en vasapeninga,
reynslu og mögulega frægð. Hall-
grímur Thorsteinsson, fréttamaður
á NFS, þykist þó vita að þetta sé
ekki rétt og fullyrti á Fréttavaktinni í
gærmorgun að Magni hefði fengið
meira en 700 þúsund
krónur fyrir hvern þátt.
Þessu hafði Hallgrímur
allavega heyrt fleygt og
þótti þessi virði að hafa
eftir, þó án ábyrgðar
eins og hann tók skýrt
fram.
Erpur Eyvindarson, rappari með
meiru, fagnaði 29 ára afmæli sínu
um síðustu helgi. Erpur bauð helstu
vinum og kunningjum til veislu
á skemmtistaðnum Pravda og
afmælisveislan var með rússnesku
þema, eins og hæfir nafni skemmti-
staðarins. Á boðskorti fyrir veisluna
hafði Erpur klippt mynd af sjálfum
sér inn á fræga mynd af Lenín og
þar fengu boðsgestir einnig þau
vinsamlegu tilmæli að
mæta með gjöf, „eða
farðu í gúlag“ eins
og það var orðað.
Á boðstólum í
afmælinu var
svo sterkt áfengi
sem eingöngu
mátti neyta úr
staupglösum.
Sjónvarpsstjarnan Jóhanna Vil-
hjálmsdóttir hefur nú um hríð verið
orðuð við prófkjör sjálfstæðismanna
í Reykjavík vegna komandi alþingis-
kosninga. Flokksmenn eru nú með
böggum hildar vegna skorts á
konum sem gefa kost á sér og hafa
menn horft vonaraugum til hinnar
skeleggu Jóhönnu, sem lengi hefur
verið í flokknum og er
aukinheldur dóttir
Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar borgarstjóra.
Jóhanna mun hins
vegar ekki vera á leið
í pólitíkina að svo
stöddu og unir hag
sínum vel í Kastljós-
inu, þar sem hún
hefur líklega meiri
áhrif en óbreyttur
þingmaður.
LOGI BERGMANN EIÐSSON: VEKUR ATHYGLI Á MÓTORREIÐHJÓLI FRÁ 1954
Frumlegur og flottur
fararskjóti Loga Bergmanns
����
�����������
���������
������� �����
�������������� �����
����������������� ����
���������� �������
������������� ���
���������� ���
���������
��
�
�����������
� ����
������� �����
�������������� �����
����������������� ����
���������� �������
������������� ���
��������� ���
���������
��
�
�������� ��
�� �
������� �����
� � ���� �����
�� ���� ��� � �
���������� �������
� � ���� ��
� �� ��
� ��
��