Fréttablaðið - 21.09.2006, Page 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �
����������
����������
Ég hef fordóma gegn íslenskum bíómyndum. Ég er búinn að sjá
svo margar slæmar myndir að ég
fer með sérstöku hugarfari á
íslenska mynd. Ég er ekki einn um
þetta. Íslenskar bíómyndir hafa
fengið nokkuð sérstakan sess hjá
íslensku þjóðinni. Fólk tekur þeim
með fyrirvara og er undir það búið
að myndin sé sóun á tíma og fjár-
munum. Og það er ansi oft raunin
þótt auðvitað séu nokkrar undan-
tekningar.
AUÐVITAÐ er oft reynsluleysi og
peningaleysi um að kenna en því
miður held ég að ástæðan sé frekar
afstaða ákveðinna aðila sem koma
að gerð myndanna. Þeir líta á kvik-
myndina sem sína sköpun og sitt
einkaverkefni og sjá aðra sem sína
aðstoðarmenn. Ég held að eigin-
girni og hroki hafi skemmt meira
af íslenskum kvikmyndum en
reynsluleysi eða annað.
KVIKMYND er samstarfsverk-
efni margra aðila. Til að geta gert
sitt besta þarf fólk að njóta sann-
mælis, fá viðurkenningu og hvatn-
ingu en umfram allt samskipti.
Það er ekki bara leikstjórinn sem
gerir myndina. Það eru leikarar,
tökumenn, hljóðmenn, búninga-
hönnuðir, leikmyndahönnuðir og
fjöldi annarra sem kemur að vinn-
unni. Það er hlutverk leikstjórans
að halda utan um heildarmyndina.
Hann er verkstjórinn. Til að verk-
ið gangi upp verður hann að hafa
meiri áhuga á því en sjálfum sér.
NÚ er verið að sýna í bíó kvik-
mynd sem ég tel marka spor í
íslenskri kvikmyndagerð. Ég fór á
hana með hálfum huga vegna þess
að mér var boðið á hana. Það er
kvikmyndin Börn. Loksins er
komin íslensk mynd sem skiptir
einhverju máli. Ég bjóst ekki við
miklu en fékk allt. Þetta er í fyrsta
skipti sem ég fæ engan bjánahroll
á íslenskri mynd. Að myndinni lok-
inni langaði mig til að standa upp
og klappa.
LEIKURINN er frábær. Íslenskir
leikarar geta leikið í bíómynd!
Handritið er gott og líður átaka-
laust áfram. Leikstjórnin er góð,
myndatakan og öll umgjörð. En
það sem mér fannst best var að
finna þennan sanna tón. Mér fannst
ég finna fyrir samstarfi aðstand-
endanna og virðingu og kærleika
þeirra fyrir viðfangsefnunum.
Myndin er algjörlega laus við
klisjur, sjálfbirgingshátt og þá til-
gerð sem svo oft einkennir íslensk-
ar myndir. Mig langar til að nota
aðstöðu mína og hvetja Íslendinga
til að fara og sjá þessa mynd. Ég
ætla að fara aftur. Ég óska leikur-
um, leikstjóra og öllum aðstand-
endum innilega til hamingju með
vel unnið verk.
Loksins, loksins!
Nína og Valdimar skráðu sig í Og1 og spara þannig tugþúsundir króna á ári í símakostnað. Þau hjónin njóta
þess meðal annars að hringja í alla heimasíma og eitt heimasímanúmer í útlöndum fyrir 0 kr. Þau hringja líka
í GSM vini sína fyrir 0 kr., fá meiri hraða á Netinu fyrir lægra verð og afslátt af Sýn.
Og1 er fyrir heimili sem hafa allt hjá Og Vodafone: GSM, heimasíma og ADSL.
Þú getur líka byrjað að spara með því að ganga frá málinu strax í dag.
Komdu í næstu verslun Og Vodafone eða til umboðsmanns, hringdu í þjónustuver 1414 eða smelltu þér á
www.ogvodafone.is til að fá nánari upplýsingar.
20.000
heimili spara tugþúsundir króna!
FÍ
TO
N
/
S
ÍA
F
I0
18
60
2