Fréttablaðið - 24.09.2006, Side 4

Fréttablaðið - 24.09.2006, Side 4
4 24. september 2006 SUNNUDAGUR ���������� � �� �� �� ������� www.minnsirkus.is/sirkustv��� �� Eldur kviknaði í húsi við Eyrarveg á Þórshöfn í gærmorgun. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en ekki hefur verið búið í því í nokkurn tíma og stafaði fólki því ekki hætta af. Ekki er vitað um orsök eldsins. Eldur í bíl við Players Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í fyrrinótt vegna elds í sendiferðabíl sem lagt var fyrir utan skemmtistaðinn Players í Kópavogi. Að sögn vakthafandi slökkviliðs- manns var bíllinn illa brunninn þegar slökkvilið kom á vettvang og er að öllum líkindum ónýtur. Ekki er vitað um orsakir eldsins að svo stöddu. SLÖKKVILIÐ Eldur á Þórshöfn BRETLAND Björgólfur Thor Björgólfsson er kynþokkafyllsti auðjöfur heims, að því er kemur fram í upptalningu viðskiptablaðsins Financial Times á kostum ríkustu manna heimsins. Í umsögn blaðsins segir að þessi ríkasti milljarðamæringur Íslands og 350. ríkasti maður heims hafi stór blá augu og bros sem slái vopn úr höndum fólks. Þá sé víkingalegt atgervi hans bæði geðfellt og mikilfenglegt. Velgengni Björgólfs er sögð hafa leitt til orðaleikja um víkingauppruna hans og að sjálfsögðu auki hún á kyntöfra hans. Auðjöfrarnir á lista Financial Times eru settir í ýmsa óhefðbundna flokka. Þar á meðal er kanadíski raftækjamógúllinn Robert Mill- er, sem þykir líklegastur auðjöfra til að verða ódauðlegur. Miller er sagður nógu ríkur til að geta lagt fé í ólíklegan og hugsanlega vonlaus- an málstað. Er vísað í orðróm um að Miller hyggist láta frysta sig eftir dauða sinn svo hægt verði að endurlífga hann í framtíðinni. Philip Knight, Bandaríkjamaðurinn á bak við sportvörurisann Nike, fær þann vafasama titil að vera verst klæddi auðjöfurinn. Hann er talinn vel að titlinum kominn þar sem hann klæðist iðulega kúrekahatti, krumpuðum fötum og skordýralegum sólgleraugum. Frjóasti milljarðamæringurinn er hinn 94 ára gamli Saleh Bin Abdul Aziz Al-Rajhi, bankaeigandi og athafnamaður frá Sádi- Arabíu. Enginn milljarðamæringur á lista fjármálatímaritsins Forbes yfir ríkasta fólk í heimi á jafn mörg börn og Al-Rajhi, sem á sex- tíu börn og sjö eiginkonur. Þar sem hann er 84. ríkasti maður í heimi á hann þó ekki í vand- ræðum með að sjá barnahersingunni far- borða. Mestur viðsnúningur hefur orðið á högum J.K. Rowling, að mati Financial Times, en hana þekkja margir sem höfund bókanna um Harry Potter. Fyrstu bókina skrifaði Rowling á not- aða ritvél og lifði á meðan á bótum sem ein- stæð móðir. Ári síðar seldi hún handritið og í kjölfarið varð hún fyrsta manneskjan til að verða milljarðamæringur á því að skrifa bækur. Fárið í kringum bækurnar hefur náð farsakenndum hæðum í ár, að því er kemur fram í umsögn tímaritsins, eftir að smástirni var nefnt eftir Rowling. Einnig var beinagrind risaeðlu nefnd Dracorex hogwartsia, sem er tilvísun í bækurnar. sdg@frettabladid.is BJÖRGÓLFUR ÞÓR BJÖRGÓLFSSON Stór blá augu, ómótstæðilegt bros og víkingalegt atgervi gera Björgólf kyn- þokkafyllstan auðjöfra í flokkun fjármálatímaritsins Financial Times. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sagður ómótstæðilegur og víkingalegur bláskjár Björgólfur Thor Björgólfsson telst vera kynþokkafyllsti auðjöfurinn samkvæmt breska viðskiptablaðinu Financial Times. Þykir hann hafa mikilfenglegt atgervi og ómótstæðilegt bros. GENGIÐ 22.9.2006 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 124,9934 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 70,76 71,1 134,66 135,32 90,66 91,16 12,149 12,221 10,876 10,94 9,779 9,837 0,6074 0,611 105,19 105,81 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR UTANRÍKISMÁL Utanríkismálanefnd Alþingis fjallaði ekki um sam- komulag um skiptingu landgrunns í Síldarsmugunni milli Íslands, Danmerkur, Færeyja og Noregs, sem undirritað var á miðvikudag, að sögn Steingríms J. Sigfússonar, fulltrúa Vinstri grænna í nefnd- inni. „Það stendur í lögum að það eigi að hafa samráð við utanríkis- málanefnd um öll meiriháttar utanríkismál. Og það eru fá mál stærri en það að ganga frá meiri- háttar samningi sem útkljáir rétt- indamál og tengist lögsögu lands- ins um aldur og ævi.“ Steingrímur segist ekki geta útilokað að einhvern tímann hafi verið farið yfir samningsmark- miðin í nefndinni. „En það á bara ekki að skrifa undir stóra réttinda- samninga af þessu tagi áður en farið er yfir málið í utanríkismála- nefnd.“ Steingrímur vísar í að það hafi verið venja hingað til eins og þegar gengið var frá miðlínunni milli Íslands og Grænlands annars vegar og Færeyja hins vegar. Því hafi verið um mistök að ræða í þessu tilviki. Steingrímur hyggst spyrjast fyrir um málið á fundi nefndar- innar í næstu viku. Ekki náðist í Halldór Blöndal, formann utan- ríkismálanefndar. - sdg STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Segir mistök að ræða málið ekki í utanríkis- málanefnd. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Samkomulag um skiptingu landgrunns í Síldarsmugunni undirritað í vikunni: Ekki rætt í utanríkismálanefnd SLYS Umferðarslys varð þegar sportbifreið var ekið á miklum hraða aftan á lítinn jeppa í Ártúnsbrekku um klukkan fimm í gær en loka þurfti svæðinu í rúma klukkustund á eftir. Þrennt var flutt á slysadeild en sam- kvæmt upplýsingum frá vakthaf- andi lækni voru meiðslin ekki veruleg. Segir lögreglan að mildi sé að ekki hafi farið verr en fjöldi vitna greindi frá því að ökumaður sportbílsins hefði ekið á ofsa- hraða vestur Vesturlandsveginn. Sorglegt sé til þess að vita að umferðarátakið sem hefur verið í gangi á vegum Umferðarstofu sé ekki að skila sér. - kdk Mildi að ekki fór verr: Umferðarátak skilar sér ekki Móðirin stolt „Það er aldeilis,“ segir Þóra Hallgrímsdóttir, móðir Björgólfs Thors, um upptalningu kosta þeirra sem prýða Björgólf Thor að mati greinarhöfunda Financial Times. Þóra segir þau foreldrana vera afar stolt af Björgólfi, sem er yngsti sonur þeirra. „Hann hefur ekkert breyst heldur er bara ennþá sami sonur- inn eins og hann hefur alltaf verið.“ Þóra leiðrétti eina staðreyndarvillu sem slæddist inn í umfjöllun tímaritsins. Svo virðist sem greinarhöfundar hafi verið full ákafir í að halda á lofti víkingaímyndinni og gert ráð fyrir að Björgólfur væri bláeygur en hið rétta er að hann er með grágræn augu. SKÁK Taflfélag Vestmannaeyja stóð í gær fyrir afmælismóti í tilefni af því að áttatíu ár eru liðin frá stofnun þess. Keppendur voru bæði Eyjamenn og gestir en alls tóku 48 skákmenn þátt á mótinu. Heimamaðurinn og stórmeist- arinn Helgi Ólafsson bar sigur úr býtum á mótinu en í öðru sæti varð Bergsteinn Einarsson og Hrannar Baldursson í því þriðja. Magnús Matthíasson, formað- ur Taflfélags Vestmannaeyja, segir mikinn uppgang vera í skákíþróttinni en í félaginu eru nú um níutíu virkir félagar á öllum aldri. - tg Taflfélag Vestmannaeyja: Afmælismót úti í Eyjum SIGURVEGARI Helgi Ólafsson stórmeist- ari sigraði á afmælismótinu í Vest- mannaeyjum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.