Fréttablaðið - 24.09.2006, Síða 78

Fréttablaðið - 24.09.2006, Síða 78
 24. september 2006 SUNNUDAGUR38 HRÓSIÐ … Hvað er að frétta? Allt gott, var að frumsýna Gunnlaðar- sögu á föstudaginn. Augnlitur: Gráblár. Starf: Leikkona. Fjölskylduhagir: Mjög fínir. Hvaðan ertu? Af Kárastígnum í Reykjavík. Ertu hjátrúarfull? Nógu til að gera lífið skemmtilegt. Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Núna frábærir breskir þættir sem heita Peep Show. Uppáhaldsmatur: Í bili chillisúpa Asíu og súkkulaði. Fallegasti staður: Pakistan og svo íbúðin mín. iPod eða geislaspilari: Ég væri alveg til í að eiga iPod. Hvað er skemmtilegast? Að safna góðum minningum. Hvað er leiðinlegast? Að bíða. Helsti veikleiki: Ég er ekki með bílpróf. Helsti kostur: Ég geri góðar Rice Krispies-kökur. Helsta afrek: Að gera íbúðina mína upp. Mestu vonbrigðin: Að foreldrar mínir séu dauðlegir. Hver er draumurinn? Að fólk flykkist á Gunnlaðarsögu. Hver er fyndnastur/fyndnust? Æsa vinkona. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Þegar frelsi og einstaklings- hyggja er notað sem afsökun fyrir grimmd og afskiptaleysi. Hvað er mikilvægast? Kærleikurinn. HIN HLIÐIN MARÍANNA CLARA LÚTHERSDÓTTIR LEIKKONA Fallegast í Pakistan 25.02.77 Þórólfur Árnason, forstjóri Skýrr og fyrrverandi borgarstjóri, sást á dögunum geysast um götur Reykjavíkur á reiðhjóli á leið til vinnu. Þórólfur segir það þó ekki vera regluna. „Það kemur fyrir að ég hjóli til vinnu en veðráttan ræður oft úrslitum,“ segir hann. „Það getur verið erfitt að búa sig að heiman þannig að maður sé rétt klæddur fyrir bæði veðrið og þær hefðir sem gilda um klæðnað á fundarsetum,“ bætir Þórólfur við og segist hafa vanmetið veðrið síðastliðinn miðvikudag. „Ég var held ég svolítið kómískur á leið- inni heim. Hjólandi í frakka í roki og rigningu,“ segir hann kíminn, en Þórólfur og kona hans fjárfestu í dönskum götureiðhjólum í vor. „Á þeim getur maður setið upp- réttur og horft í kringum sig,“ segir Þórólfur, „það er mun skemmtilegra að hjóla á þeim en á fjallahjólum.“ Aðspurður hvort hann hjóli í umhverfisverndarskyni segir Þór- ólfur reiðhjólið vera góða tilbreyt- ingu við einkabílinn og finnst að Íslendingar mættu gera meira af því að hjóla. „Það er umhverfis- vænt, skemmtilegt og léttir á umferðinni,“ segir hann. „Þegar ég var borgarstjóri gekk ég líka oft til vinnu,“ segir Þórólfur. Samkvæmt Þórólfi eru kostir hjólreiða enn fleiri. „Um daginn var maður að leita að mér í vinn- unni. Hann sá að bílastæðið mitt var autt og dró þá ályktun að ég væri ekki við,“ segir Þórólfur. „Þeir sem vilja fela sig í vinnunni ættu því að hjóla,“ bætir hann sposkur við. - sun Hjólið góð tilbreyting ÞÓRÓLFUR Á DANSKA GÖTUREIÐHJÓL- INU Þórólfi finnst mun skemmtilegra að hjóla uppréttur en á fjallahjóli. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FRÉTTIR AF FÓLKI Stórvinirnir Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson senda frá sér plötu saman í næsta mánuði, þá fyrstu sem þeir gera saman þrátt fyrir áralangt samstarf við tónleika- hald. Platan ber heitið Nokkrar notalegar ábreiður og eitt laganna verður hið þekkta Nína, í nýrri útgáfu. Eftir helgina ætla Stebbi og Eyfi að skella sér í ljósmynda- stúdíó þar sem teknar verða myndir fyrir kápu plötunnar. Þeir hafa ákveðið að þema myndanna verði frá áttunda áratugnum en til þess að það gangi upp vantar félagana ýmsa muni frá áttunda áratugnum. Meðal þess sem Stebba og Eyfa vantar eru bútasaumsteppi, myndir og veggspjöld af þekktu fólki, steríógræjur sem ekki þurfa að virka, svartur skífusími og gamalt sjónvarp með kúptum skjá. Þeir sem eiga muni á borð við þessa, eða aðra frá áttunda áratugn- um, eru beðnir að hafa samband í síma 896-1961. Verandi þeir höfðingjar sem Stebbi og Eyfi eru fá allir sem leggja til muni eintak af nýju plötunni gefins, áritað ef munirnir eru sérstaklega flottir. FRÉTTIR AF FÓLKI Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Michel Gondry tjáir sig um fyrrum samstarfskonu sína, Björk Guð- mundsdóttir, í viðtali sem birtist á vef The Seattle Times. Gondry var að kynna nýjustu mynd sína, The Science of Sleep, þegar leikstjórinn var spurður út í þann tíma þegar hann gerði tónlistarmyndbönd fyrir listamenn á borð við söngkonuna íslensku. „Björk átti heilan helling af brjáluðum vinum sem virtust ótrúlega „ekta”,” segir Gondry við blaðið. „Mér fannst á þeim tímapunkti að vinir mínir væru hálf glataðir,” bætir hann við. „En svo fékk ég sjálfstraust og sá að vinir mínir voru miklu betri því þessir einstakl- ingar sem fólk les um í fjölmiðlum eru ekkert eins merkilegir og þeir líta út.” Ein umdeildasta hljómsveit lands- ins er án nokkurs vafa poppdreng- irnir í Dr. Mister & Mister Hand- some en þeir hafa notið töluverðra vinsælda hér á landi. Eitthvað virðist frægðin hafa stigið þeim til höfuðs því samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var nýlega haldin krísufundur hjá Senu og dóttur- fyrirtæki þess, Cod music, sem gefur sveitina út. Heimildir blaðsins herma að þeir félagar hafi birst í einni verslun Skífunnar nýverið og gert háværar athugasemdir við það hvernig diskinum væri stillt upp í búðinni. Ungur starfsmaður lét þá félaga ekki vaða yfir sig og kom til einhverra stympinga þarna á milli, án nokkurra meiðsla þó, en ljóst má vera að málið gæti dreg- ið einhvern dilk á eftir sér. - fgg ... fær Ívar Guðmundsson, sem sér til þess að megrun þurfi ekki að vera bragðlaus pína og býður lax í hvert mál. Skoski leikarinn Rory McCann kom til Íslands í byrjun septemb- er ásamt landa sínum, stallbróður og góðvini Gerard Butler til þess að vera viðstaddur frumsýning- una á Bjólfskviðu. Gerard leikur sjálfan Bjólf en Rory leikur Breka vopnabróður hans. Butler er löngu farinn af landi brott en Rory hefur ákveðið að setjast hér að. „Ég hef verið rótlaus síðustu ár. Hef unnið mikið í útlöndum og á milli starfa hef ég bara þvælst um þannig að ég hef í raun verið heimilislaus,“ segir Rory, sem er að festa sér leiguíbúð í Reykja- vík. „Ég kann svo vel við mig hérna og finnst fólkið alveg frábært þannig að ég frestaði fluginu mínu heim dag eftir dag og endaði bara með því að ákveða að búa hérna,“ segir Rory, sem hefur gist hjá vinum og kunningjum í Reykjavík síðustu vikur. „Ég er búinn að vera á svolitlum þvælingi en er að koma mér upp eigin heimili.“ Rory segist hafa kolfallið fyrir Íslandi þegar hann lék í Bjólfs- kviðu og íslenskt veður í sínum versta ham gerði hann síður en svo afhuga landinu. „Ég hef gaman að veðrinu hérna og þegar mest gekk á og tökum var frestað vegna veðurs og okkur ráðlagt að halda okkur inni þá dreif ég mig út og spilaði jafnvel golf í óveðrinu.“ Rory hefur auk Bjólfskviðu til dæmis leikið í Alexander eftir Oli- ver Stone og sjónvarpsþáttunum State of Play og Hálandahöfðingj- anum sem báðir hafa verið sýndir í sjónvarpi hérna. Hann gerir lítið úr því að það skerði atvinnumögu- leika sína að búa á Íslandi. „Ef eitthvað kemur upp þá skýst ég bara yfir. Þar fyrir utan er það álíka mikið mál að koma sér frá Reykjavík til London og frá skosku hálöndunum. Ferðalögin til og frá Íslandi munu samt auðvitað kosta eitthvað en það verður bara að hafa það. Ég er orðinn þreyttur á Glasgow og hef aldrei verið sér- staklega hrifinn af London. Hér líður mér vel og hér vil ég vera.“ Rory segist vera með ýmis verkefni í sjónmáli en enn sem komið er sé ekkert fast í hendi og þangað til hann fær eitthvað bita- stætt að gera ætlar hann að njóta lífsins í Reykjavík. „Það er frá- bært að vera hérna og það er gott að vera á lausu í Reykjavík en ég er fyrst að fá að kynnast því núna.“ Rory segir það vissulega hafa komið flatt upp á vini sína og ætt- ingja heima að hann skyldi ákveða það fyrirvaralaust að setjast að á Íslandi. „Þau velta auðvitað mikið fyrir sér hvað sé eiginlega í gangi hérna og ég veit að sumir hrista hausinn en flestir vilja koma hingað og hafa haft áhuga á því lengi.“ thorarinn@frettabladid.is RORY MCCANN: FINNST YNDISLEGT AÐ VERA Á LAUSU Í REYKJAVÍK Féll fyrir Íslandi og ætlar ekki aftur til Skotlands RORY MCCANN Segir margt líkt með Íslandi og heimalandinu Skotlandi. „Ég kann ofboðslega vel við mig úti á landi og hálendið heillar. Ísland hefur það umfram Skotland hvað mig varðar að hér er allt nýtt og framandi. Ég er mikið fyrir fjallgöngur og klettaklifur þannig að það er nóg fyrir mig að gera hérna.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Nóatúni 4 Sími 520 3000 ��������� , WM 12E460SN Ný vél með íslensku stjórnborði, 1200 snúninga, tekur 6 kg. Fjöldi þvottakerfa, auðveld í notkun. �������� , WT 44E100SK Með íslensku stjórnborði, tekur 6 kg. Barkalaus. Fjöldi þurrkunarkerfa. Tækifærisverð ���������������� Tækifærisverð ���������������� Skoðið öll tilboðin á www.sminor.is Verið ávallt velkomin í heimsókn ������ ���������� ����������og��� �������� með íslenskummerkingum A T A R N A / S T ÍN A M A J A / F ÍT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.