Fréttablaðið - 24.09.2006, Blaðsíða 70
30 24. september 2006 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Grindavíkurvöllur, áhorf.: 1343
Grindavík FH
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 9–17 (4–8)
Varin skot Helgi 7 – Daði 3
Horn 7–11
Aukaspyrnur fengnar 13–8
Rangstöður 4–2
FH 4–3–3
Daði Lár. 7
Guðmund. Sæv. 6
(75. Pétur Við. -)
Tommy Nielsen 6
Dennis Siim 5
Hjörtur Logi 5
Baldur Bett 6
Ásgeir Gunnar 6
(80. Haukur Ól. -)
Árni Freyr 5
(66. Matthías 4)
Atli Guðnason 6
Allan Dyring 6
Tryggvi Guðm. 7
*Maður leiksins
GRINDA. 4–4–2
Helgi Már 5
Kristján Vald. 4
(53. Orri Freyr 3)
Óðinn Árna. 6
Óli Stefán 6
Ray Anthony 4
Eysteinn Húni 4
(84. Eyþór Atli -)
Jóhann Helga. 4
*Óskar Örn 7
Paul McShane 5
Jóhann Þórhallsson 4
Mounir Ahand. 4
(66. Andri Steinn 4)
0-1 Allan Dyring (73.)
1-1 Óskar Örn Hauksson (85.)
1-1
Jóhannes Valgeirsson (8)
LOKASTAÐAN:
FH 18 10 6 2 31-14 36
KR 18 9 3 6 23-27 30
VALUR 18 7 8 3 27-18 29
KEFLAVÍK 18 6 6 6 30-20 24
BREIÐABLIK 18 6 5 7 27-33 23
ÍA 18 6 4 8 27-30 22
VÍKINGUR 18 5 6 7 21-18 21
FYLKIR 18 5 6 7 22-25 21
-----------------------------------------------------
GRINDAVÍK 18 4 7 7 24-26 19
ÍBV 18 5 3 10 18-39 18
MARKAHÆSTU LEIKMENN:
MAREL BALDVINSSON, BREIÐABLIK 11
BJÖRGÓLFUR TAKEFUSA, KR 10
JÓHANN ÞÓRHALLSSON, GRINDAVÍK 10
TRYGGVI GUÐMUNDSSON, FH 8
VIKTOR B. ARNARSSON, VÍKINGI 8
STEFÁN ÖRN ARNARSON, KEFLAVÍK 6
GUÐM. STEINARSSON, KEFLAVÍK 6
SÆVAR ÞÓR GÍSLASON, FYLKI 6
ÓSKAR HAUKSSON, GRINDAVÍK 6
LANDSBANKADEILDIN
Að vera Íslandsmeistari er... frábært.
Heimir eða Leifur: Heimir er þyngri.
Kaplakriki er... besti völlur landsins.
Hafnarfjarðarmafían er... bestu stuðn-
ingsmenn landsins.
Allan Dyring eða Allan Borgvardt: Allan
Dyring.
Besti leikmaður deildarinnar er... í FH
búningi.
Hvenær á að taka þetta tvöfalt? Við fyrsta
tækifæri.
Besti knattspyrnumaður heims: Maradona.
Uppáhaldsbíómynd: Hef ekki farið í bíó í
tuttugu ár.
Golf er... íþrótt fyrir fótboltaþjálfara.
Uppáhaldsdrykkur: Kalt vatn.
Ef þú mættir velja einn leikmann úr deild-
inni utan FH? No comment.
MEÐ ÓLAFI
JÓHANNESSYNI60
SEKÚNDUR
FÓTBOLTI Grindavík leikur í 1. deild
að ári. Það varð ljóst eftir að liðið
gerði jafntefli, 1-1, gegn Íslands-
meisturum FH en Grindavík varð
að vinna leikinn til að eiga mögu-
leika á að forðast fallið.
Grindvíkingar byrjuðu leikinn
af miklum krafti eins og skiljan-
legt var. Þeir keyrðu upp hraðann
og voru snemma hættulegir.
Fyrsta dauðafærið kom á 7. mín-
útu þegar Jóhann Þórhallsson
skallaði framhjá einn og óáreittur
í markteig FH-inga. Svakalegt
klúður. Grindvíkingar vildu fá víti
tveim mínútum síðar en Jóhannes
dæmdi réttilega ekkert víti en
Ahandour hefði átt að gera betur
einn gegn markverði.
Grindvíkingar sóttu mjög
grimmt nánast allan fyrri hálf-
leikinn og voru ótrúlegir klaufar
að skora ekki. Það var engu líkara
en Jóhann Þórhallsson vildi ekki
fá gullskóinn því hann hefði getað
eignað sér hann í fyrri hálfleikn-
um miðað við færin sem hann
fékk. Dennis Siim og Tommy Niel-
sen réðu lítið sem ekkert við hrað-
ann í Jóhanni og Mounir Ahandour
en eins og áður segir virtist þeim
fyrirmunað að skora.
Á sama tíma fengu FH-ingar
nokkuð góð upphlaup og það róaði
áhorfendur lítið hversu óöruggur
Helgi markvörður var á milli
stanganna. Þrátt fyrir mikil og
góð tilþrif var markalaust í leik-
hléi og Grindavík á leið í 1. deild
að óbreyttu.
Það virtist nokkuð vera dregið
af Grindavíkurliðinu í leikhléi því
FH var mun betra liðið í upphafi
þess síðari og nokkrum sinnum
skall hurð nærri hælum. Stans-
lausar stungusendingar Grindvík-
inga voru hættar að virka og þeir
virtust ekki kunna önnur ráð.
Grindvíkingar voru í raun
steingeldir og það var átakanlegt
að fylgjast með ömurlegum sóknar-
tilburðum liðsins. Á sama tíma
bætti FH í og hafði öll vopn í hendi
sér og Grindvíkingar virtust ekki
vera tilbúnir að berjast alla leið
fyrir sæti sínu. Það var síðan fylli-
lega verðskuldað þegar Allan Dyr-
ing skallaði boltann í markið af
stuttu færi á 73. mínútu. Það mátti
nánast heyra saumnál detta því
Grindvíkingar gerðu sér grein
fyrir að þetta væri bil sem yrði
ekki brúað.
Ray Anthony fékk rautt spjald
þegar fimm mínútur lifðu leiks.
Grindvíkingar unnu í kjölfarið
boltann, brunuðu upp og Óskar
Örn kláraði laglega skyndisókn. 1-
1 og allt á suðupunkti.
Meira markvert gerðist ekki í
liði Grindavíkur það sem eftir lifði
leiks og FH var meira með boltann
ef eitthvað var. Grindavík hrein-
lega hafði ekki slagkraftinn sem
vantaði og eftir að hafa leikið sér
að eldinum var liðið loksins fallið.
Sinisa Kekic horfði á úr stúkunni
og maður gat ekki annað en hugs-
að hvort svona hefði farið hefði
hann klárað tímabilið með liðinu
enda margoft komið til bjargar.
Grindvíkingar þurfa að stokka
spil sín rækilega núna en vonandi
spýta menn þar á bæ í lófana í stað
þess að gefast upp því það er veru-
legur söknuður að þessu félagi úr
efstu deild. henry@frettabladid.is
Grindvíkingar sjálfum sér verstir
Grindvíkingar geta engum nema sjálfum sér um kennt að hafa fallið í 1. deild í gær. Liðið óð í færum en
klaufaskapur framherjanna var með ólíkindum. Þegar á reyndi var liðið síðan kraftlaust.
BÚIÐ SPIL Vonbrgiðin leyndu sér ekki hjá leikmönnum Grindavíkur eftir að flautað hafði verið til leiksloka í gær. Fall í 1. deild er
staðreynd en Grindvíkingum tókst ekki að endurtaka leikinn frá því fyrra, þegar liðið bjargaði sér frá falli í lokaumerðinni
FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
FÓTBOLTI Framherjinn Jóhann
Þórhallsson var með böggum
hildar eftir leikinn en hann
klúðraði mörgum góðum færum í
leiknum. Hann vildi ekki stað-
festa að hann léki með Grindavík
í 1. deildinni en þar lék Jóhann
með Þór á síðasta ári. Með 10
mörkum fyrir Grindavík í sumar
hefur Jóhann þó heldur betur
sannað að hann á erindi í efstu
deild.
„Framtíðin er óákveðin. Það á
eftir að setjast niður og ræða
málin. Hvað færin varðar þá
hefði ég átt að skora en svona er
þetta stundum,“ sagði Jóhann.
- dsd
Jóhann Þórhallsson:
Framtíðin er
óákveðin
DAUÐAFÆRI Jóhann hefði átti að skora
nokkur mörk í gær.
FÓTBOLTI „Við höfum verið að bjóða hættunni heim
síðustu ár og það er ekki þessi leikur hér sem fellir
okkur. Þetta byrjaði mikið fyrr,“ sagði fyrirliði
Grindvíkinga, Óðinn Árnason, svekktur í leikslok.
„Það er sárt að falla en ég tel að við höfum lagt
okkur alla fram í leikinn. Við sköpuðum helling af
færum en það vantar að klára þau. Það vantar lítið
hjá okkur. Svo virðist sem þetta hafi verið í kortun-
um. Við áttum greinilega að falla,“ sagði Óðinn, sem
gerir ráð fyrir því að vera áfram enda sé hann með
samning við liðið.
Grindvíkingurinn Óli Stefán Flóventsson hefur
marga fjöruna sopið með liði sínu og oft bjargað
því. Hann náði ekki að setja mark sitt á þennan
leik.
„Það er ekki endalaust hægt að bjarga sér. Við
börðumst fyrir þessu og ég tel okkur hafa fallið
með sæmd. Það fór mikil orka í fyrri hálfleik og það
sást aðeins í síðari hálfleiknum. Við höfðum ekki
þrek í allan leikinn en börðumst samt til enda og
það var ég ánægður með,“ sagði Óli Stefán og bætti
því við að hann ætti von á að vera áfram í herbúðum
félagsins í 1. deild að ári. „Ég er Grindvíkingur
alveg í gegn og reikna með því að vera áfram og
hjálpa liðinu að komast upp aftur.“ - dsd
Leikmenn Grindavíkur voru niðurlútir eftir tapið gegn FH í gær:
Við áttum greinilega að falla
FÓTBOLTI Marel Jóhann Baldvins-
son vann gullskóinn í Lands-
bankadeild karla í ár en hann
skoraði ellefu mörk í þrettán
leikjum fyrir Breiðablik. Hann
hélt svo til Noregs áður en
tímabilinu lauk en varð marka-
kóngur þrátt
fyrir það.
Björgólfur
Takefusa úr KR
fær silfurskóinn
og Jóhann
Þórhallsson,
Grindavík,
bronsskóinn.
Báðir skoruðu
þeir tíu mörk en Björgólfur gerði
þessi mörk í færri leikjum. Fjögur
af þrettán mörkum Marels komu
úr vítaspyrnum. Leikmennirnir fá
viðurkenningar sínar afhentar á
lokahófi KSÍ sem verður um
miðjan mánuðinn. - egm
Markahæstu leikmenn:
Marel varð
markakóngur
MAREL
BALDVINSSON
ÞVÍLÍK VONBRIGÐI Leikmenn Grindavíkur gerðu allt hvað
þeir gátu til að halda sæti sínu í Landsbankadeildinni en allt
kom fyrir ekki. Liðið fellur nú úr Landsbankadeildinni í fyrsta
sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
> Áhorfendametið slegið
Nýtt áhorfendamet var sett í Landsbankadeild karla þetta
sumarið en alls mættu 98.026 manns á leikina 90 í ár, eða
að meðaltali 1.089 manns á leik. Eldra metið var sett 2001
þegar 96.850 manns mættu á leikina í deildinni. Þess má
geta að alls mættu 5.258 áhorfendur á leikina fimm sem
fram fóru í lokaumferðinni í gær. Stefnt var
að því að fá yfir 100.000 manns samtals á
leikina í sumar en það tókst ekki. Góðar
líkur eru á því að það takist á næsta
ári en liðin tvö sem koma upp, Fram
og HK, eru með stóran stuðnings-
mannahóp í kringum sig. Þá verður
ekkert stórmót landsliða það sumar
og sívaxandi kynningarstarfsemi
Landsbankans og KSÍ ætti að hafa
áhrif.