Fréttablaðið - 24.09.2006, Síða 12
24. september 2006 SUNNUDAGUR12
Umræðan
Viðbrögð við grein Illuga Gunnars-
sonar
Illugi Gunnarsson ritaði grein í Frétta-blaðið sunnudaginn 17.9. þar sem hann
fjallaði um grunnskólann og hvernig
megi gera hann betri. Það er alltaf gleði-
efni þegar einhver tekur sig til og skrif-
ar um mikilvægi góðrar menntunar, bæði
fyrir börnin og fyrir samfélagið í heild.
Það er sérstaklega mikilvægt að einstaka
sinnum heyrist raddir annarra en þeirra
sem starfa innan skólakerfisins eða í
nánum tengslum við það. Illugi fjallar
m.a. um mikilvægi góðs námsefnis og það er sá
þáttur í grein hans sem mig langar að bregðast við
með nokkrum orðum. Hann segir mér til mikillar
ánægju „námsgögn eru augljóslega lykilþáttur alls
skólastarfs“. Um það erum við vissulega sammála
og því er að mínu mati afar mikilvægt að vandað sé
til námsefnisútgáfu fyrir börn í skyldunámi. Náms-
efni þarf að gefa út hjá bókaforlagi sem vandar til
verka og leggur metnað sinn í að efnið sé í samræmi
við námskrár, málfar sé vandað og stafsetning rétt,
efnið gefi réttar upplýsingar, sé fordómalaust,
fallegt og áhugavekjandi.
Það er langt ferli að breyta handriti að kennslu-
bók í útgefið efni. Það þarf styrka ritstjórn þar sem
séð er til þess að öll ofangreind atriði séu eins og
best verður á kosið. Til þess að tryggja þetta eru
fengnir sérfræðingar á viðkomandi sviði til að lesa
yfir textann og sannreyna að allt sé þar satt og rétt.
Síðan fara sérfræðingar í íslensku yfir málfar og
stafsetningu, þá eru það reyndir kennarar sem
skoða hvort framsetning og kennslufræði séu við
hæfi barna á þessu aldursstigi. Loks þarf myndlistar-
fólk til að myndskreyta eða teikna skýringarmynd-
ir, nú eða ljósmyndara til að útvega nauðsynlegar
myndir í efnið. Svo þarf auðvitað útlitshönnuð og
umbrotsfólk áður en kemur að prentun eða birtingu
á neti.
Heldur finnst mér Illugi gera lítið úr öllu þessu
starfi þegar hann talar um að kennarar geti sjálfir
búið til námsgögn og selt þau til annarra skóla. Það
hljómar eins og þeir geti setið við tölvuna sína og
samið texta, náð sér í myndir, prentað út, heft saman
og selt til hinna skólanna. Hann stingur upp á því að
hugvit kennara sé virkjað í námsefnisgerð. Það er
að sjálfsögðu gert og það í stórum stíl.
Ég vona að Illugi haldi ekki að starfs-
fólk Námsgagnastofnunar sitji á skrif-
stofum sínum og semji námsefni. Svo er
ekki. Nánast allir höfundar námsefnis
hjá Námsgagnastofnun eru kennarar og
þannig hefur það alltaf verið. Á hverju
ári eru ráðnir yfir hundrað verktakar til
að vinna að námsefnisgerð fyrir skyldu-
námið, þar á meðal eru tugir kennara.
Illugi segir í grein sinni að ef skóli er
ekki ánægður með það efni sem Náms-
gagnastofnun hefur á boðstólum eigi
hann ekki annarra kosta völ en að taka
af rekstrarfé til að kaupa annað náms-
efni. Í raun er það svo að hluta af fjár-
veitingu Námsgagnastofnunar er varið til kaupa á
námsefni sem stofnunin gefur ekki út sjálf. Skól-
arnir hafa svokallaðan sérkvóta sem þeir geta ráð-
stafað til kaupa á efni sem þeir velja sjálfir að fá
annars staðar frá. Það getur verið frá öðrum útgef-
endum, kennurum, skólum eða öðrum sem hafa
námsefni í boði. Námsgagnastofnun veitir skólun-
um þá þjónustu að panta efnið, borga fyrir það og
senda síðan endurgjaldslaust til skólanna. Þessi
upphæð mætti vissulega vera hærri, en hún er
ákveðið hlutfall af fjárveitingu stofnunarinnar og
fylgir því hækkunum og lækkunum sem verða á
fjárveitingum til námsefnisgerðar. Staðreyndin er
þó sú að margir skólar fullnýta ekki þennan sér-
kvóta sinn og bendir það til þess að ekki hafi þeir
allir þörf fyrir þetta aukna svigrúm.
Þeir eru til sem eins og Illugi trúa því að hér á
Íslandi gæti orðið samkeppni á námsefnismarkaði
sem telur rúmlega fjögur þúsund nemendur í
árgangi. Úrvalið yrði meira og samkeppnin myndi
tryggja lágt verð á námsbókum. En hér eru miklu
stærri svið, eins og t.d. matvælamarkaðurinn þar
sem verð er mun hærra en í nágrannalöndunum og
ekki er um neina raunverulega samkeppni að ræða.
Af hverju halda menn þá að samkeppni sem tryggði
lágt vöruverð og mikil gæði yrði á ofurlitlum náms-
efnismarkaði?
Ég tek að lokum heilshugar undir það sjónarmið
að ríkið þurfi að auka það fé sem rennur til náms-
efnis fyrir grunnskóla og að hækka þurfi laun kenn-
ara. Hvort tveggja er mikilvægur liður í því að bæta
skólana svo þeir verði meðal þeirra bestu í heimi.
Höfundur er forstjóri Námsgagnastofnunar.
Námsefnisgerð fyrir grunnskóla
INGIBJÖRG
ÁSGEIRSDÓTTIR
Umræðan
Skálholtsdeilan
Ég og fjölskylda mín fluttum í
Biskupstungur vorið
1983. Þá státuðu
Tungnamenn af því
að vera miklir söng-
menn. Þrátt fyrir það
var tónlistarlíf í
sveitinni mjög bág-
borið, kórastarf lítið
sem ekkert og söng-
menntun barna engin. Grunn-
skólinn hafði engan tónlistar-
kennara og nemendur nutu ekki
tónlistarmenntunar.
Hilmar Örn Agnarsson var
ráðinn í starf organista Skál-
holtskirkju, Torfastaðakirkju,
Bræðratungukirkju og Hauka-
dalskirkju fyrir 15 árum. Ráðn-
ing hans olli straumhvörfum.
Tónlistarnám barnanna okkar
hófst og varð öflugt. Safnaðar-
meðlimir nutu þess að hlusta á
börnin í helgiathöfnum í Skál-
holti. Barnakór Biskupstungna
var stofnaður og þjónaði kirkj-
unum, skólanum og samfélaginu
öllu auk þess sem kórinn hélt
tónleika víða. Barnakórinn hefur
alla tíð verið uppeldisstöð barna
í tónlist og kristilegu hugarfari
og Hilmar Örn á mestan heiður-
inn af því starfi.
Stofnun barnakórsins varð til
þess að Skálholt naut fljótlega
heimsókna annarra barnakóra.
Ég minnist m.a. Barnakórs Kárs-
nesskóla auk margra annarra
kóra. Þórunn stjórnandi hans
kom oft með börnin sín í Skál-
holt. Reynsla hennar af kóra- og
sönguppeldi barna
var, og er enn, einstök
og kom að góðum
notum. Okkar börn
nutu þess að kynnast
nýjum félögum, æfa
með þeim söng og
halda sameiginlega
tónleika. Hilmar Örn
stuðlaði að því að
börnin tóku þátt í tón-
leikum vítt og breitt
um landið, og börnin í
Biskupstungum fengu
mikið tónlistarlegt og
kirkjulegt uppeldi hjá honum,
auk þess sem félagsþroski þeirra
efldist mjög. Starf hans með
börnunum er ómetanlegt og
verður aldrei að fullu þakkað.
Það fyrnist fljótt yfir fortíð-
ina en það eru aðeins fimmtán ár
síðan að engin tónlistariðkun var
hér í Biskupstungunum, hvorki í
skóla né í kirkjunum. Fagur tón-
listarflutningur barnanna eykur
svo sannarlega kirkjusókn. Við
höfum reynslu af því.
Þegar ég kom í Biskupstung-
urnar, var Skálholt í mjög litlum
tengslum við samfélagið. Skál-
holtsstaður var einangraður frá
þeim sem bjuggu í sveitinni og
menn sáu ekki leiðir til að breyta
því. Staða Skálholts út á við var
að mínu mati veik, staðurinn
virtist hálf munaðarlaus. Ráðn-
ing organistans og mannsins
Hilmars Arnar olli straumhvörf-
um. Tengsl íbúa við Skálholt
efldust mjög vegna hins mikla
kórastarfs sem fór af stað í Skál-
holti. Samband Skálholts við
okkur íbúana í uppsveitunum
varð einlægara og nánara, og nú
bera allir hag Skálholts fyrir
DRÍFA KRISTJÁNSDÓTTIR
Hilmar Örn áfram
í Skálholti!
KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
7
1
3
4
www.kia.is
Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is
Við kynnum nýjan KIA Sorento
– aflmeiri, betur búinn og enn glæsilegri. Sorento hefur slegið
í gegn um allan heim og eignast dygga fylgismenn á Íslandi.
Það er ekki að ástæðulausu að Sorento er orðinn næstmest
seldi jeppi landsins. Líklega langbestu jeppakaupin í dag.
Komdu og sjáðu glæsilegri Sorento á enn betra verði.
Sjón er sögu ríkari.
KIA Sorento með aflmeiri og hljóðlátari
170 hestafla dísilvél með 5 þrepa sjálfskiptingu.
Verð kr. 3.675.000
KIA er sá bílaframleiðandi sem er í mestum vexti í heiminum í dag. Það
er ekkert skrítið þegar hægt er að bjóða þessi gæði á svona verði.
Sorento
Frábær kaup í betri jeppa
KIA umboðið er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. 3 ára ábyrgð.