Fréttablaðið - 24.09.2006, Side 13
SUNNUDAGUR 24. september 2006 13
Umræðan
Áhættuhegðun í umferðinni
Aksturshættir ungra ökumanna eru ofar-lega í huga þeirra sem sinna umferðar-
öryggismálum. Hlutfall ungs fólks á aldrin-
um 17-24 ára er 32% þeirra sem slasast eða
látast á ári hverju í umferðinni hér á landi.
Langflest alvarleg umferðarslys má rekja
til mistaka ökumanns eða vísvitandi rangrar
hegðunar undir stýri. Að mati Rannsóknar-
nefndar umferðarslysa er mjög brýnt að
rannsakað verði hvaða leiðir eru líklegastar
til árangurs gegn alvarlegum umferðarslys-
um þar sem ungir ökumenn eiga hlut að
máli. Yfirstjórn umferðaröryggismála hefur
tekið í sama streng.
Rannsóknir hafa gefið vísbendingu um
að áhættuhegðun fylgi lífsstíl þeirra ein-
staklinga sem gerast sekir um alvarleg
umferðarlagabrot. Brot eins og ölvunarakst-
ur, hraðakstur, ofsaakstur, að nota ekki bíl-
belti, leyfa sér kappakstur í umferðinni, aka
of nálægt næsta bíl á undan o.fl. Fá oft sekt-
ir vegna umferðarlagabrota. Getum við eflt
rannsóknir á áhættuhegðun í tengslum við
lífsstíl einstaklinga sem orsök alvarlegra
umferðarslysa og með því forvarnir? Getum
við leiðbeint ungu fólki betur um orsakir og
afleiðingar alvarlegra umferðarslysa ?
Áhættuhegðun
Rannsóknarnefnd umferðarslysa lét kanna
aksturshætti ungra ökumanna sérstaklega
áríð 2003 og var niðurstaða þeirrar könnun-
ar birt í ársskýrslu nefndarinnar 2004. Kom
m.a. fram að aðstæður og lífsstíll ungmenna
spái allsterkt fyrir um áhættuhegðun í
umferðinni, að félagslegt umhverfi ung-
menna hafi veruleg áhrif á akstursvenjur
þeirra. Gott fjölskyldulíf og góð líðan ungs
fólks í skóla dragi úr líkum á áhættuhegðun
þess í umferðinni. Mikil samvera ungmenna
með jafningjahópi sínum og lífsstíll sem
einkennist af skemmtunum auki á hinn bóg-
inn líkurnar á áhættuhegðun. Erlendar
kannanir hafa leitt líkur að því að
það hefði mátt greina áhættuein-
kenni hjá einstaklingum allt að
tveimur árum fyrir umferðar-
slys, sem þeir voru valdir að.
Jafnvel að slík einkenni væru
greinanleg hjá einstaklingum
áður en þeir ná 17 ára aldri, en
ökuleyfi er bundið við þann aldur.
Sérstakur áhættuhópur væru
m.a. einstaklingar sem stunda
ekki íþróttir, drekka oft áfengi,
fara hratt yfir og víða og hafa
mjög mikinn áhuga á bílum. Ekki
er víst að þessar niðurstöður séu
algild sannindi, en það er vert að
skoða þær nánar. Ef það er mögulegt að
skilgreina sérstaka áhættuhópa meðal ungs
fólks sem líklegar orsakir slysa í umferð-
inni út frá lífsstíl þeirra væri með sama
hætti mögulegt að skilgreina markhópa og
hvernig haga megi forvörnum gagnvart
þeim. Mögulega þannig að skapa mætti skil-
yrði þar sem sérstakur áhættuhópur leitaði
sjálfur leiða til að breyta háttsemi sinni til
betri vegar. Jafningjafræðsla gæti þar
komið við sögu meðal annarra úrræða, þar
sem leitað yrði svara við spurningum eins
og þeirri: Hvað framkallar vísvitandi ranga
hegðun hjá ökumanni á vegum úti, sem veit
fullvel að slíkt er hættulegt honum sjálfum
og ekki síður öðrum vegfarendum?
Leiðsögn - upplýsingar
Rannsóknarnefndin telur æski-
legt að efla rannsóknir á orsök-
um áhættuhegðunar og skoða
forvarnir á grundvelli þeirra.
Skólarnir í landinu gætu haft
hlutverki að gegna um slíkar
rannsóknir sem og einkaaðilar,
eins og tryggingafélögin sem
gegna vel hlutverki sínu í for-
varnarmálum.
Í kjölfar nýrra laga um rann-
sóknarnefnd umferðarslysa er
fjallað um einstök banaslys í
skýrslum nefndarinnar sem eru
birtar í forvarnarskyni á vef-
síðu hennar og er það breytt framkvæmd.
Hefur nefndin hvatt til þess að skólar nýti
skýrslur nefndarinnar í rannsóknar- og
verkefnavinnu nemenda ásamt öðrum
skýrslum sem gefnar eru út um umferðar-
öryggismál. Gæti slík vinna nemenda með
upplýsingar, tölfræði, heimildavinnu, rann-
sóknir og fyrirlestra haft forvarnargildi
gegn alvarlegum umferðarslysum.
Í námsefni skólanna, t.d. í eðlisfræði og
líffræði, mætti að auki fjalla um orsakir
umferðarslysa, um þá gífurlegu krafta
sem losna úr læðingi við árekstur bifreiða
á mismunandi hraða, útafakstur bifreiða
við mismunandi umhverfisaðstæður,
íslenska vegi, sem eru misjafnir að gæðum,
slit á vegum, þol mannslíkamans, áverka,
nauðsyn bílbeltanotkunar og atvik önnur
sem greint er frá í skýrslum nefndar-
innar.
Ungt fólk er vant myndefni í sjónvarpi,
kvikmyndahúsum og tölvum. Af þeim
sökum er nauðsynlegt að vanda til fræðslu-
efnis á þessum vettvangi með bestu mögu-
legri nútímatækni. Verkefnið er umfangs-
mikið og einkaaðilar með fjölþætta reynslu,
þekkingu og fjármuni þurfa að koma að
því ekki síður en opinberir aðilar.
Höfundur er hrl. og formaður Rannsóknar-
nefndar umferðarslysa.
Lífsstíll og slys ungra ökumanna
ÁSDÍS J. RAFNAR
Gott fjölskyldulíf og góð líðan ungs fólks í
skóla dragi úr líkum á áhættuhegðun þess
í umferðinni. Mikil samvera ungmenna
með jafningjahópi sínum og lífsstíll sem
einkennist af skemmtunum auki á hinn
bóginn líkurnar á áhættuhegðun.
brjósti, þökk sé m.a. ráðningu
Hilmars Arnar fyrir fimmtán
árum.
Síðan hafa ýmsar aðrar góðar
breytingar verið gerðar í Skál-
holti. Núverandi vígslubiskup
kom í Skálholt fyrir einum átta
árum og Skálholtsskóli hefur
styrkst mjög. Menn hafa haft
áhuga á að gera Skálholti enn
hærra undir höfði og styrkja
staðinn enn frekar. Því ber að
fagna. En þarf að segja Hilmari
Erni upp þótt breyta eigi skipu-
lagi? Við sem þekkjum Hilmar
höldum að hann geti mjög vel
tekið þátt í eflingu staðarins og
því er óskiljanlegt að það þurfi
að byrja á að segja honum upp.
Hilmar Örn er einstakur maður
og við sem þekkjum til starfa
hans og nærveru óskum eftir að
fá að njóta hans áfram. Við
óskum líka eftir að fá að njóta
Skálholts áfram.
Ég vona að kristileg sjónar-
mið og velvild í garð Hilmars,
samstarfsfólks hans, samfélags-
ins og Skálholts verði til þess að
uppsögnin verði dregin til baka.
Samhygð og sátt þarf að ríkja um
Skálholtsstað. Látum boðskap
Guðs um kærleika, sátt og sam-
lyndi vera leiðarljós okkar allra.
Höfundur býr að Torfastöðum í
Biskupstungum.
Skálholtsstaður var einangrað-
ur frá þeim sem bjuggu í sveit-
inni og menn sáu ekki leiðir til
að breyta því.
KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
7
1
3
4
www.kia.is
Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is
Við kynnum nýjan KIA Sorento
– aflmeiri, betur búinn og enn glæsilegri. Sorento hefur slegið
í gegn um allan heim og eignast dygga fylgismenn á Íslandi.
Það er ekki að ástæðulausu að Sorento er orðinn næstmest
seldi jeppi landsins. Líklega langbestu jeppakaupin í dag.
Komdu og sjáðu glæsilegri Sorento á enn betra verði.
Sjón er sögu ríkari.
KIA Sorento með aflmeiri og hljóðlátari
170 hestafla dísilvél með 5 þrepa sjálfskiptingu.
Verð kr. 3.675.000
KIA er sá bílaframleiðandi sem er í mestum vexti í heiminum í dag. Það
er ekkert skrítið þegar hægt er að bjóða þessi gæði á svona verði.
Sorento
Frábær kaup í betri jeppa
KIA umboðið er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. 3 ára ábyrgð.