Fréttablaðið - 24.09.2006, Side 18
24. september 2006 SUNNUDAGUR18
Þórhallur segir þetta fjall-gönguæði hafa byrjað hjá sér þegar hann gekk á
Hvannadalshnúk en komst
ekki alla leið vegna æfingaleysis.
„Ég ákvað að fara aftur þremur
vikum síðar og æfði mig fram að
þeim tíma með því að ganga á
Esjuna þrisvar í viku. Eftir það
fór ég leikandi létt á Hvannadals-
hnúkinn. Ég hélt síðan upptekn-
um hætti og gekk á öll fjöll í
nágrenni Reykjavíkur en gekk þá
tvisvar til þrisvar í viku,“ segir
Þórhallur en á einni göngunni
hitti hann göngufélaga sinn, Leif
Hákonarson, sem var farinn að
ganga eftir bókinni 151 tindur
eftir Ara Trausta Guðmundsson
og Pétur Þorleifsson. „Við byrj-
uðum að ganga eftir þessari bók
saman og smám saman safnaðist
í kringum okkur hópur fólks sem
kallar sig nú Tinddátana. Í þeim
hópi eru margir búnir að ganga á
miklu fleiri tinda en ég,“ segir
Þórhallur en viðurkennir þó að
líklega hafi enginn gengið á eins
marga tinda og hann á svo
skömmum tíma, enda fór hann á
54 tinda úr bókinni á 52 vikum.
„Meðan ég var að ganga á tind-
ana í grennd við Reykjavík gat ég
oft farið eftir vinnu en eftir að ég
kláraði þá alla hef ég nýtt helg-
arnar í göngurnar. Þá legg ég
gjarnan af stað á föstudegi, geng
á laugardegi og sunnudegi og
keyri síðan heim aftur. Á virkum
dögum geng ég á Esjuna til að
halda mér við,“ segir Þórhallur
og játar að heilmikill tími fari í
fjallgöngurnar en honum sé þó
mjög vel varið.
Nóg af fjöllum á Íslandi
Þórhallur segir marga tinda
mjög eftirminnilega en nefnir í
því sambandi Hrútsfjallstinda í
Öræfasveit. „Þar fengum við
frábært útsýni, auk þess sem
gönguleiðin og öll umgjörðin í
kringum gönguna á tindinn var
mjög stórbrotin og skemmtileg.
Síðan fórum við á Snækoll í Kerl-
ingarfjöllum og fengum þar
útsýni alveg vestur að Ingólfs-
fjalli og að Kerlingu í Eyjafjarðar-
sveit. Þaðan sáum við líka yfir
Vatnajökul, þannig að útsýnið
frá tindunum getur verið alveg
stórkostlegt.“ Þórhallur segist
alls ekki stefna á að klífa neina
tinda erlendis enda sé nóg af
tindum og fallegum fjöllum á
Íslandi. „Eftir því sem ég geng
meira verður listinn lengri yfir
þau fjöll sem mig langar til að
ganga á. Sums staðar þarf línur
og ísaxir til að komast upp,
þannig að það þarf að undirbúa
sig vel fyrir hvern tind og fara
varlega þar sem varasamt er að
ferðast um. Sjálfur hef ég ekki
gengið á mörg fjöll sem útheimta
slíkan búnað.“
Tindarnir eru mjög misjafn-
lega erfiðir, að sögn Þórhalls,
sem segir þó Hrolllaugsborg í
Drangajökli líklega erfiðasta
líkamlega en nefnir einnig
Hvannadalshnúk og Hrútsfjalls-
tinda sem mjög erfiða tinda.
Líkamleg þörf
Þórhallur segir algjöran viðsnún-
ing hafa orðið á líkamlegu atgervi
frá því hann fór að ganga á fjöll
fyrir tæplega einu og hálfu ári
síðan. „Þó að ég hafi verið alveg
ágætlega á mig kominn þá er það
allt annað núna. Úthaldið er fljótt
að koma en það er líka fljótt að
fara ef maður hættir að hreyfa
sig. Mér er farið að finnast ég vera
að svíkjast um ef ég fer ekki í
fjallgöngu í einhvern tíma en að
auki er þetta orðin líkamleg þörf,
eins og með aðra líkamsrækt.
Þetta er mín aðferð við að stunda
líkamsrækt enda finnst mér leið-
inlegt að vera á hlaupabrettinu í
ræktinni,“ segir Þórhallur, sem
virðist vera búinn að smita fjöl-
skylduna af fjallgöngubakterí-
unni. „Ætli það endi ekki með því
að allir fjölskyldumeðlimirnir
verði farnir að ganga á fjöll. Yngri
sonur minn er byrjaður að ganga
eftir bókinni líka en almennt fer
það eftir því hvert verið er að fara
hversu stór hluti fjölskyldunnar
er tilbúinn að fara með. Það hafa
ekki allir gaman af að ganga svona
stíft og mikið en fjölskyldan er oft
mjög áhugasöm um styttri og auð-
veldari gönguleiðir.“
Erfiðara að fara niður
Sem dæmi um hið góða form sem
Þórhallur er kominn í eftir allar
fjallgöngurnar er hann farinn að
komast á Þverfellshorn Esjunnar
á 53 mínútum en algengt er að
fólk sé um tvær klukkustundir
þangað upp. „Það var mjög góð
tilfinning að fara undir sextíu
mínúturnar,“ segir Þórhallur og
bætir því við að á hverjum fjalls-
tindi bíði verðlaun, sem felast í
útsýninu og þeirri dásamlegu til-
finningu að hafa sigrast á einum
tindinum til viðbótar. „Oft er erfið-
ara að fara niður fjöllin en upp og
er þá best að fara niður á sama
stað og maður fór upp. Þá er best
að fara upp með það í huga að
maður verði að komast niður
aftur.“
Þórhallur segir alltaf ákveðna
ánægju fólgna í því að ljúka við
verkefni og það sama eigi við um
fjallgöngurnar. „Þetta er fyrst og
fremst gert fyrir sjálfan mig og er
áskorun og keppni við mig sjálfan
þannig að það skiptir í raun og
veru engu máli hvenær ég lýk við
að ganga á alla þessa tinda. Núna
er 71 tindur eftir hjá mér þannig
að það er af nógu að taka en ég er
búinn að ganga á 80 tinda síðan í
apríl á síðasta ári,“ segir göngu-
garpurinn Þórhallur Ólafsson,
sem ætlar að halda ótrauður áfram
að ganga á fjallstinda Íslands.
sigridurh@frettabladid.is
Á TOPPI SNÆFELLSJÖKULS Þórhallur nýtur
þess að hvíla sig eftir gönguna á Snæfells-
jökul. MYND/GUÐMUNDUR FREYR JÓNSSON
Verðlaunin bíða
á hverjum fjallstindi
Þórhallur Ólafsson,
framkvæmdastjóri
Neyðarlínunnar, fékk
svo sannarlega fjall-
göngubakteríuna í apríl
á síðasta ári og hefur
farið í á milli 150 og
200 fjallgöngur síðan.
Sigríður Hjálmarsdóttir
hitti Þórhall og ræddi
við hann um þetta
stóra áhugamál.
DR. GUNNI:
Næsta verkefni
skemmtilegast
„Það er nú ekkert eitt fjall
skemmtilegra en önnur. Það er
þó þannig að maður fer oftar á
þau fjöll sem eru nálægt manni.
Til dæmis er Helgafell í Hafnar-
firði mjög hressandi en það
tekur ekki nema rúman hálf-
tíma að fara þar upp ef maður
hleypur.
Síðan eru Þverfellshorn og
Móskarðshnjúkar á Esjunni
mjög skemmtileg. Það er samt
alltaf gaman að labba á einhver
ný fjöll þannig að næsta verk-
efni er alltaf skemmtilegast.“
HARPA ARNARDÓTTIR:
Fjallasýnin
er falleg
„Upp í hugann kemur þrenn-
ingin Kverkfjöll, Snæfell og
Herðubreið, sem mín uppá-
haldsfjöll en þau eru öll stór-
kostleg. Ég fór í Kverkfjöllin
árið 1996 en það var mikil upp-
lifun og stórkostlegt að koma
þangað. Það er sérstakt að sjá
háhitasvæði og hverasvæði á
jöklinum.
Annars er ekkert nauðsyn-
legt að sigra fjöllin til þess að
njóta þeirra því þau geta verið
mjög falleg úr fjarlægð. Mér
finnst til dæmis æðislegt að
ganga á öræfum og njóta þaðan
fallegrar fjallasýnar. Nú er
spurning hvort ég þurfi að fara
að ganga á Snæfell til að kveðja
það þar sem verið er að spilla
mikið í kringum það.“
ÓLAFUR ÖRN HARALDSSON:
Tignarleg og
dulúðug
„Ég hugsa nú að Hekla sé það
fjall sem mér þykir skemmtileg-
ast að ganga á. Hún er einn verð-
ugasti fulltrúi íslenskra fjalla og
ég hefði viljað að hún væri kosin
fjall Íslands, með fullri virðingu
fyrir Herðubreið.
Hekla er falleg og tignarleg
en þó með mikla dulúð yfir sér.
Í henni býr þessi ógn sem loðir
alltaf við íslenska náttúru. Hún
hefur sterka sögu um víti og
álög þannig að hún er sennilega
glæsilegasta og um leið dulúð-
ugasta og mest ógnvekjandi
fjall á Íslandi.“
PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON:
Gangan veitir
innblástur
„Uppáhaldsfjallið er alltaf það
fjall sem ég gekk síðast á.
Akkúrat núna er það Helgafell í
Mosfellsbæ.
Það má reyndar deila um
það hvort það sé fjall eða ekki.
Gangan var létt en veitti mér
mikinn innblástur.“
GENGIÐ Á HLÖÐUFELL Veður var eins og
best verður á kosið þegar Þórhallur gekk
á Hlöðufell og fékk frábært útsýni.
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
. Þ
ú
fæ
rð
5
m
ín
ti
l a
ð
sv
ar
a
sp
ur
ni
ng
u.
SENDU SMS SKEYTIÐ JA LSF
Á NÚMERIÐ 1900 OG SVARAÐU SPURNINGU.
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
AÐALVINNINGUR ER PS2 TÖLVA OG JUST CAUSE LEIKUR
AUKA VINNINGAR ERU:
LEGO STARWARS LEIKIR • PS2 TÖLVUR
DVD MYNDIR • FULLT AF ÖÐRUM TÖLVULEIKJUM OG MARGT FLEIRA!
LENDIR Í BT 21. SEPT
EMPER