Fréttablaðið - 24.09.2006, Side 75
SUNNUDAGUR 24. september 2006 35
vaxtaauki!
10%
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Sigmundur Ernir Rúnarsson.
2 Til Vestmannaeyja.
3 Al Gore.
FÓTBOLTI Alan Curbishley segist
ekki ætla að snúa aftur sem
knattspyrnustjóri fyrr en í
fyrsta lagi í lok október. Curbis-
hley er 48 ára en hann hefur
verið í fríi síðan fimmtán ára
veru hans hjá Charlton Athletic
lauk í lok síðasta tímabils. Hann
er nú staddur á Nýja-Sjálandi en
hann hefur verið orðaður við
knattspyrnustjórastöðuna hjá
Leeds United og West Bromwich
Albion að undanförnu.
„Ég ákvað að taka mér hálfs
árs frí. Ég ætla að standa við það
þó að ég viti að ég missi af
einhverjum atvinnumöguleikum
á þeim tíma. Í lok október kem
ég aftur og mun þá kanna þá
kosti sem eru í stöðunni,“ sagði
Curbishley. - egm
Alan Curbishley:
Er enn í fríi
CURBISHLEY Er staddur á Nýja-Sjálandi.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Sóknarmaðurinn Didier
Drogba hjá Chelsea sagði í viðtali
við Daily Mirror að franska liðið
Lyon hefði verið í sambandi við
sig í sumar. Með komu Andriy
Shevchenko til ensku meistarana
var framtíð Drogba talin vera í
óvissu og ræddu forráðamenn
Lyon við Drogba án leyfis
Chelsea.
„Bernard Lacombe, ráðgjafi
forseta Lyon, hringdi reglulega í
mig í sumar. Hann spurði mig
hvernig staða mín hjá Chelsea
væri og hvort ég hefði áhuga á að
snúa aftur til Frakklands,“ sagði
Drogba, sem á tvö ár eftir af
samningi sínum við Chelsea.
- egm
Ólöglegar viðræður:
Lyon talaði við
Didier Drogba
DROGBA Hefur spilað vel fyrir Chelsea í
upphafi leiktíðar.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í körfuknattleik lék í gær
síðasta leik sinn á þessu ári í B-
deild Evrópukeppninnar. Leikið
var gegn Írlandi og vann íslenska
liðið 68-56 sigur. Þetta var fyrsti
sigurleikur Íslands í keppninni en
hún er nú hálfnuð. Seinni hluti
hennar verður leikinn næsta
haust en íslenska liðið komst upp
í þriðja sætið í sínum riðli. - egm
Íslenska kvennalandsliðið:
Fyrsti sigurinn
GOLF Lið Evrópu er að vinna
Ryder -keppnina með tíu vinn-
ingum gegn sex hjá bandaríska
liðinu fyrir lokadaginn á K-Klub
sem er í dag. Illa gekk hjá banda-
ríska liðinu í gær og voru það
þeir Tiger Woods og Jim Furyk
sem lönduðu eina sigri þess í fjór-
menningnum eftir hádegi þegar
þeir unnu hina írsku Paidraig
Harrington og Paul McGinley.
Spánverjinn José Maria Olaz-
abal jafnaði í gær met Ian
Woosnam í fjórleik. Þeir tveir
hafa náð flestum stigum í fjór-
leik fyrir Evrópuliðið í 79 ára
sögu keppninnar. Olazábal lék
með Sergio Garcia í gær og unnu
þeir þá Chris DiMarco og Phil
Mickelson. Paul Casey og David
Howell sigruðu í gær þá Stewart
Cink og Zach Johnson en Casey
fór holu í höggi á fjórtándu braut-
inni. Síðast fór maður holu í höggi
í Ryder-keppninni árið 1995. Cink
og Johnson léku illa í gær.
„Þetta er ótrúleg tilfinning, í
fyrsta sinn sem ég fer holu í
höggi á atvinnumannamóti,“
sagði Englendingurinn Paul
Casey eftir að hafa farið holu í
höggi en hann er aðeins fimmti
kylfingurinn sem afrekar það á
Ryder-keppni. Það er allt útlit
fyrir að Evrópa muni vinna þriðja
sigur sinn í röð í Ryder-keppn-
inni. Sergio Garcia hefur leikið
frábærlega á mótinu og unnið
alla fjóra leiki sína til þessa.
„Það skiptir miklu máli að
hafa góða spilara með sér og ég
hef verið heppinn með það. Ég og
Luke Donald náðum til dæmis
frábærlega saman. Það sem
skiptir samt mestu máli er að
tryggja Evrópu sigur og það dríf-
ur mann áfram,“ sagði Garcia í
gær.
- egm
Lið Evrópu er í góðum málum í Ryder-keppninni sem fram fer á Írlandi:
Evrópa hefur góða forystu
HÆSTÁNÆGÐIR Gleðin skein af þeim Jose-Maria Olazabal og Sergio Garcia í gær.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4