Fréttablaðið - 24.09.2006, Qupperneq 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �
Opið í dag frá kl. 13–19
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Iceland Express, Grímsbæ, Efstalandi 26, Sími 5 500 600
Fullor›insver› frá:7.995 kr.
Er stemning í hópnum? Langar hópinn flinn til a› breg›a sér út fyrir landsteinana? Hópadeild Iceland
Express b‡›ur fer›ir fyrir hópa og félög, 11 e›a fleiri á frábærum kjörum.
Hópadeildin bókar flugi›, gistinguna og fer›ir til og frá flugvelli og svo höfum vi› uppl‡singar um
ótalmargt anna› sem getur gert fer›ina enn skemmtilegri. Vi› bókum sal fyrir hópinn ef flarf, skipuleggjum
spennandi sko›unarfer›, útvegum mi›a í leikhús, tónleika e›a anna› fla› sem kryddar hópfer›ina og
gerir hana ógleymanlega.
Haf›u samband e›a smelltu flér á www.icelandexpress.is/hopar
og kynntu flér máli›!
ÚT ME‹ HÓPINN!
Hópadeild Iceland Express sér um vinnuna og flú fær› hrósi›.
ICELAND EXPRESS
HÓPAfiJÓNUSTA
www.icelandexpress.is/hopar
Nú er spennandi að búa á Íslandi. Í ljós er komið að fyrir sjötíu
árum settu framsýnir menn og
„hneigðir til leyndar“ á laggirnar
„strangleynilega öryggisþjónustu“,
sem hafði á sinni könnu „eftir-
grennslanakerfi“ hér á landi. Og hún
starfar hugsanlega enn.
STRANGLEYNILEG öryggisþjón-
usta. Hvernig er annað hægt en að
verða spenntur? Í strákslegu sak-
leysi reikaði hugurinn til James
Bond. Klæddur samkvæmt nýjustu
og dýrustu tískustraumum, akandi
um á hraðskreiðum bílum, umvafinn
fögrum tálkvendum með tvíræð
nöfn. Íslenskir njósnarar geta
kannski ekki leyft sér að berast
alveg jafn mikið á og njósnari henn-
ar hátignar. Kaupa fötin sín hjá Guð-
steini og eru með Toyotuna á kaup-
leigu en það er allt í lagi. Að vera
njósnari er nógu mikil upphefð í
sjálfu sér. Enda þarft og fórnfúst
starf, ekki síst á Íslandi.
HVERSU mörgum valdaránum ætli
hafi verið afstýrt þegar „með
afbrigðum þagmælskir“ menn lágu
tímunum saman á hleri á meðan
kommúnistarnir fjösuðu í símann?
Sjálfsagt hljómaði það eins og hvert
annað hversdagslegt hjal en kommún-
istarnir voru slægir, svo ekki var
hægt að útiloka að um dulmál væri
að ræða. Í Pósthússtræti og síðar á
Hverfisgötu sátu menn með kaffi og
kleinu, hlustuðu og skráðu sam-
viskulega niður allt sem gat talist
grunsamlegt. Og á tímum kalda
stríðsins gat allt talist grunsamlegt.
Umræðuefni á borð við hvort mjólk-
in á heimilinu væri búin, hvenær
bíllinn yrði tilbúinn úr viðgerð eða
hvernig Kidda litla gekk á stafsetn-
ingarprófinu gátu sjálfsagt auðveld-
lega öðlast dýpri - og hugsanlega
annarlega - merkingu í eyrum þess
sem hleraði. Að íslenskum sið töl-
uðu kommúnistarnir ábyggilega
mest um veðrið. Strangleynilega
öryggisþjónustan hefur líklega í
fórum sínum langar og gagnmerkar
veðurfarslýsingar frá sósíalísku
sjónarhorni allar götur síðan á fjórða
áratug síðustu aldar. Og varði
kannski ómældum tíma í að reyna
ráða hver þessi „napri að austan“
gat mögulega verið.
ÞÓTT kalda stríðinu sé lokið er ekki
þar með sagt að hlutverki Strang-
leynilegu öryggisþjónustunnar sé
það líka. Jafnvel má færa má fyrir
því sterk rök að aldrei hafi verið
jafn brýn þörf á leyniþjónustu hér á
landi og nú. Hins vegar þarf að
skipta um nafn á stofnunninni;
Strangleynilega öryggisþjónustan
er frekar óþjált og skammstöfunin
SLÖ er púkó. Ég sting upp á: Bar-
áttuaðgerðastofnun Íslands gegn
byltingarsinnuðum Íslendingum.
Mér liði alltént betur vitandi að BÍBÍ
vekti yfir öryggi mínu.
Á hleri
�����������������������
����������