Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.09.2006, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 29.09.2006, Qupperneq 8
8 29. september 2006 FÖSTUDAGUR BANDARÍKIN, AP Byssumaður réðist inn í gagnfræðaskóla í bænum Bailey í Kólóradó-fylki í Banda- ríkjunum á miðvikudag með þeim afleiðingum að sextán ára stúlka fórst. Maðurinn, sem sagður er hafa verið á milli þrítugs og fimmtugs, tók sex stúlkur í gíslingu en sleppti síðan fjórum þeirra einni á fætur annarri. Eftir að samningaviðræður við manninn fóru út um þúfur ákváðu lögreglumenn að gera innrás í skólann. Maðurinn skaut þá fyrst á lögregluþjónana, sleppti annarri stúlkunni en skaut hina og sneri síðan hlaupinu að sjálfum sér og framdi sjálfsmorð áður en lög- reglunni tókst að komast að honum. Stúlkan var færð á sjúkrahús, þar sem hún lést af sárum sínum. Óvíst er um tildrög atviksins eða fyrirætlanir mannsins, að sögn Fred Wegener lögreglustjóra. Bailey er nærri Columbine, þar sem ein best þekkta skotárás í gagnfræðaskóla varð árið 1999, þegar tveir piltar bönuðu þrettán samnemendum sínum og frömdu síðan sjálfsmorð. - smk Réðist inn í skóla í Kólóradó-fylki í Bandaríkjunum og tók sex stúlkur í gíslingu: Byssumaður myrti skólastúlku SORG Bandaríkjamenn voru í gífurlegu uppnámi eftir skotárás í bandarískum gagnfræðaskóla á miðvikudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Pepperoni álegg er gómsætt og spennandi til að brydda upp á nýjungum í skólanestinu og krydda tilveruna. SS pepperoni er bragðmikið og kröftugt og hressir skólafólk og aðra sem smyrja sér nesti. Þú þekkir SS álegg á gulu umbúðunum. Leynivopnið á brauðið – pepperoni frá SS F í t o n / S Í A F I 0 1 7 4 7 2 UMHVERFISMÁL Íslensk stjórnvöld ætla að láta fara fram rannsókn á mengun í gamla ruslahaugnum við Hafnaveg. Ruslahaugurinn, sem nær yfir nokkra hektara lands og er allt að sex metrar á dýpt, verður svo byrgður með dýrum, vatnsheldum dúk þannig að regnvatn beri ekki mengunina ofan í jarðveginn. Stefnt er að því að gera þetta innan fjögurra ára. Magnús H. Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Heilbrigðiseftir- lits Suðurnesja, segir að ekki bráðliggi á því að byrgja hauginn en hann verði rannsakaður og býst hann við að hann verði byrgður óhreyfður innan fjög- urra ára. Þar með verði girt fyrir að lekið geti yfir á friðað fugla- svæði við Ósabotna í Höfnum. Sama verði gert með ruslahaug- inn á Stokksnesi við Höfn í Hornafirði. Þar sem vitað sé um PCB-mengun verði flett ofan af jarðveginum og sent í förgun. Varnarliðið lét vinna ítarlega skýrslu upp á hátt í tvö hundruð blaðsíður sem lögð var fram í samningaviðræðunum um brott- för varnarliðsins í sumar. Í skýrslunni kemur fram að banda- ríkjastjórn hafi ætlað að láta fara fram rannsókn á mengun í gamla ruslahaugnum, þar sem óttast er að alls kyns eiturefnum hafi hugsanlega verið hent, og kanna mengun í grunnvatni á átta stöð- um á Suðurnesjum. Bandaríkja- menn hættu við þegar íslensk stjórnvöld bentu þeim á að fylgj- ast þyrfti með svæðinu í allt að fjörutíu ár, samkvæmt lögum. Í skýrslunni kemur fram að mengun sé hugsanlega á sextíu stöðum á varnarsvæðinu en lík- legust sé hún á fjórtán stöðum. Ekki liggi þó fyrir nein fullnægj- andi gögn um það. Mengun sé lík- legust í gamla ruslahaugnum og á henni beri bandarísk stjórnvöld hugsanlega ábyrgð. Þá sé hugs- anlega nítratmengun í grunn- vatni vegna efna sem hafi verið notuð á flugvellinum á árunum 1960-1993. Til viðbótar eru nefnd sex svæði þar sem ekki hafa verið færðar sönnur á mengun í grunnvatni en hún sé hugsanlega fyrir hendi. Mengun er talin hugsanleg á sex svæðum sem ekki hafi verið undir stjórn Bandaríkjamanna og teljist því ekki á þeirra ábyrgð. Bandaríkjamenn benda á að umgengni um varnarsvæðið hafi yfirleitt verið í samræmi við kröfur á hverjum tíma og að þeir hafi uppfyllt skyldur sínar á svæðinu. ghs@frettabladid.is Gamli ruslahaugur- inn verður byrgður Bandaríkjamenn ætluðu að láta gera ítarlega rannsókn á gamla ruslahaugnum en hættu við þar sem fylgjast þarf með svæðinu í 40 ár. Íslendingar láta því rannsaka hann. Gamli ruslahaugurinn verður byrgður með vatnsheldum dúk. FLUGHERINN Töluvert af olíu og flugvélaeldsneyti er í jörðu á varnarsvæðinu enda tíðkaðist að hella slíku niður á árum áður á varnarsvæðinu eins og víðast hvar um landið. GÖMLU RUSLAHAUGARNIR Óttast er að mengunin sé mest á gömlu ruslahaug- unum við Hafnaveg en þar kann alls kyns eiturefnum að hafa verið hent auk olíu. Bandarísk stjórnvöld ætluðu að láta rannsaka hauginn en snarhættu við þegar íslensk stjórnvöld bentu þeim á að samkvæmt lögum þurfi að fylgjast með haugnum í 30-40 ár. DÓMSMÁL Tæplega fertugur karl- maður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir líf- látshótanir í garð fyrrverandi sambýliskonu sinnar. Það var Hér- aðsdómur Reykjavíkur sem kvað upp dóminn. Maðurinn hótaði konunni í mars með því að tala inn á talhólf farsíma hennar. Hann hótaði henni lífláti og limlestingum í tvennum skilaboðum. Konan kærði athæfið til lögreglu, sem afritaði skilaboð mannsins af talhólfi síma hennar. Hún kvaðst einnig óttast um son sinn, en maðurinn er faðir hans. Konan sagði manninn vera í mik- illi vímuefnaneyslu og til alls lík- legan. Maðurinn á að baki sakaferil. Hann hefur hlotið dóma fyrir meiri og minni háttar líkamsárás- ir, svo og húsbrot og eignarspjöll. Þau brot beindust öll með einum eða öðrum hætti að annarri konu sem hann hafði búið með. Í ljósi alvarleika málsins, aldurs manns- ins, sakaferils hans og forsögu um gróft ofbeldi, þótti dómnum ekki fært að skilorðsbinda refsingu hans -jss Karlmaður dæmdur í þriggja mánaða fangelsi: Sendi konu líflátshótanir TALHÓLF Maðurinn las hótanir sínar inn á talhólf farsíma konunnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.