Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.09.2006, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 29.09.2006, Qupperneq 16
 29. september 2006 FÖSTUDAGUR16 nær og fjær „ORÐRÉTT“ Nú þegar landsmenn ættu að hafa mænt nægju sína upp í næturhimininn á fjar- læg fyrirbæri alheimsins er kominn tími til að líta sér nær. Það haustar og undan- farið hefur náttúran haldið sína ómótstæðilegu haust- sýningu. Græni litur sumarsins hopar fyrir hlýjum litum kuldabitinna plantna svo úr verður glæsileg mósaík- mynd: Brúnir, gulir og appelsínu- gulir tónar breiðast yfir landið, ekki ósvipaðir ryði, og minna okkur á að það styttist í gráan vet- urinn. Á þessum dögum leggja margir land undir fót til að virða fyrir sér litadýrðina, á eigin vegum eða í hópum. Ferðafélag Íslands stendur til dæmis fyrir haustlitaferð í Þórsmörk um helg- ina. Páll Ásgeir Ásgeirsson rithöf- undur og útivistarmaður er unn- andi haustlita: „Frægasta haustlit- asinfónía landsins er án efa í Þjóðgarðinum á Þingvöllum,“ segir hann. „Ég var þar fyrir viku og þá var sinfónían á fullum styrk og gríðarlega mögnuð að sjá. Það þarf þó ekki að sækja vatnið yfir lækinn. Til að sjá fallega haustliti er sem dæmi upplagt að fara í Ell- iðaárdalinn. Fyrir ofan rafstöðina og í Hólminum má nú finna gríð- arlega fallega haustliti.“ Páll segir að haustlitirnir ættu að halda sér næstu tvær vikurnar eða svo, en það fari eftir veðurfari. „Ef það kemur hressi- legt rok og rign- ing er sinfón- ían fljót að fjúka út í veður og vind.“ Því er um að gera að skoða og njóta á meðan færi gefst. Opið samkvæmt samkomulagi og ókeypis inn, eða ættum við að segja, ókeypis út. gunnarh@frettabladid.is VETURINN NÁLGAST Grænir sumarlitir hopa fyrir ryðáferð haustsins. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Haustsinfónían á fullum styrk Í ELLIÐAÁRDAL Þar gefur nú að líta árlega myndlistarsýningu náttúrunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Bensínlykt af samkeppninni „Við vitum að við erum að borga háa símreikninga og ekki er far- símakostnaðurinn lægstur,“ segir Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður sem söng um Langsíma-Línu á árum áður. „En maður hugsar svo sem ekki mikið um þetta og tekur eins og hverju öðru hundsbiti.“ Póst- og fjarskiptastofnun kynnti í gær samnorræna skýrslu um farsímamarkaði Norðurlandanna þar sem m.a. kemur fram að GSM- þjónusta hefur hækkað í verði hérlendis síðan 2002 en lækkað í hinum Norðurlöndunum á sama tíma. Fákeppni á markaðinum er sögð ríkjandi hér. „Erlendir aðilar gætu eflaust komið hér inn ef þeir nenntu. Þó við séum merkileg erum við fá. Ég var í Noregi nýlega og gekk í kringum nýbyggingu stærsta símafyrirtækisins þar. Ég var korter á leiðinni en stytti mér þó leið. Hér virðist ríkja heilmikil samkeppni símafyrirtækja, á yfirborðinu að minnsta kosti, en maður spyr sig hvort það sé bens- ínlykt af þeirri samkeppni.“ SJÓNARHÓLL FÁKEPPNI Á FARSÍMAMARKAÐI VALGEIR GUÐJÓNSSON TÓNLISTARMAÐUR „Eins og við segjum fyrir vestan er ekki skapaður skítur að frétta. Allt gengur bara sinn vanagang: Vinna, éta, sofa,“ segir Gunnar Jónsson leikari. Gunnar vinnur sem kunnugt er við dyra- vörslu á skemmtistaðnum Cafe Oliver á Laugavegi. „Það er nú enginn æsingur í dyravörslunni og það er hending ef maður þarf að henda einhverj- um út. Það hefur lítið verið um gestakomur stjarna það sem af er ári, en kannski rætist úr því núna þegar kvikmyndahátíðin er byrjuð.“ Í leiklistinni segir Gunnar sitthvað í farvatninu – „samt ekkert solid eins og er, en ég hef verið að hnusa utan í tveimur verkefnum sem ég vil ekki tala um að svo stöddu. Í sumar lék ég í kvikmyndinni Astrópíu. Ég lék besta vin vonda karlsins og þeir eru báðir illmenni mikil. Strákarnir eru bjart- sýnir og stefna á að frum- sýna myndina um áramót- in. Í sumar hef ég bara rétt kíkt út fyrir bæjarmörkin, en það er stutt í að ég skreppi aðeins til Parísar. Ég ætla að fá mér glas af rauðvíni og hafa það huggulegt.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? GUNNAR JÓNSSON LEIKARI Lék besta vin vonda karlsins Særós Mist Hrannarsdóttir, fjór- tán ára gömul íslensk stúlka búsett í Danmörku, er einn með- lima í hópi róttæklinga sem berst fyrir því að listaverkstæðið Huset í Árósum fái að starfa áfram. Í 34 ár hefur það verið menningarlegur samastaður fyrir skapandi fólk og boðið upp á sextán opin verkstæði þar sem fólk getur unnið að hugmyndum sínum án þess að taka gjald fyrir annað en efni. Særós segir meirihluta íbúa Árósa líta á Huset sem ómissandi hluta af menningarlífinu þar. Hugmyndir um að loka aðstöð- unni í sparnaðarskyni telur hún vanhugsaðar. Lokunin komi ekki aðeins niður á þeim sem nota verk- stæðin heldur séu margar af leikhúsmið- stöðvum borgarinnar, lítil listagall- erí og menn- ingarstofnan- ir háðar aðstöðunni sem Huset bjóði upp á. Særós segir ákvörð- unina um lok- unina hafa verið ólýðræðislega. Hvorki íbúum borgarinnar né notendum Huset hafi gefist tækifæri til að koma skoðun sinni á framfæri fyrr en eftir að ákvörðun hafði verið tekin. Helst álasi fólk Uffe Elbæk, meðlim hægri flokksins De Radikale Venstre en hann er einnig rektor listastofnunar sem býður upp á aðstöðu gegn greiðslu. „Huset er einstakt í heimin- um. Að undanförnu hef ég verið að safna undirskriftum gegn ákvörðuninni auk þess sem verið er að skipuleggja frekari mót- mæli. Ég fann mig knúna til að taka þátt í að reyna afstýra þessu slysi eftir að hafa fengið að kynnast því starfi sem þar var unnið.“ segir baráttukonan unga. -kdk Segir ákvörðunina hafa verið ólýðræðislega: Fjórtán ára baráttukona í Danaveldi SÆRÓS MIST segist hafa fundið sig knúna til að berjast gegn lokun Huset eftir að hafa fengið að kynnast því sem þar fór fram. BARIST GEGN LOKUN HUSET Talið er að listaverkstæðið sæki um 100.000 virkir notendur á hverju ári. KANÍNUR Í BÓNUS Í Elliðarárdalnum má oft sjá dúllulegar kanínur skottast við stein. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA PÁLL ÁSGEIR ÁSEIRSSON Upplagt að fara í Elliðaárdalinn. ■ Öryggishjálmurinn sem verkamenn nota á framkvæmdasvæðum var fund- inn upp þegar Hoover-stíflan var reist. Fyrsta útgáfan var hafnaboltahúfa sem dýft var í tjöru og látin þorna. Lukku- dýr verkamanna við Hoover-stíflugerð- ina var hundur sem gerði sig heimakominn á byggingar- svæðinu. Ónefndur verkamaður var nærri því drepinn þegar hann sást sparka í lukkudýrið. Þegar keyrt var yfir hundinn grétu verkamenn sáran og reistu síðar dýrinu minnisvarða. Hann má enn sjá nálægt túristamóttöku stíflunnar. SÖGUSTUND: HUNDUR OG HJÁLMUR Opinbert eignarhald óskynsamlegt „Svo lengi sem Landsvirkjun er í opinberri eigu er ekkert óeðlilegt við það að fólk láti sig framkvæmdina varða. Eðlilegast er að fyrirtækin, sem fá heimild til þess að nýta sér orkulindir, séu í eigu einkaaðila.“ Pálmi Jóhannesson, hönnuður Kárahnjúkastíflu, segir opinbert eignarhald á Landsvirkjun óskynsamlegt. Fréttablaðið, 28. september. Gömlu karlarnir verða ungir á ný „En Old Spice á samt fullt erindi aftur. Ungt fólk þekkir þetta frá öfum sínum og langar til að prófa. Og þegar gömlu karlarnir fá að þefa upp úr flösku lygna þeir aftur augunum og verða ungir á ný.“ Gauti Torfason á Rakarastofunni í Kópavogi hóf í fyrra að flytja inn Old Spice sem var ófáanlegur hérlendis árum saman. Fréttablaðið, 28. september. 1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4 1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.