Fréttablaðið - 29.09.2006, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 29.09.2006, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 29. september 2006 21 Fons eignarhaldsfélag, sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, hefur selt rúman tuttugu prósenta hlut sinn í sænska lággjaldaflugfélag- inu FlyMe til norska hlutafélags- ins Cognation, sem eftir kaupin á 36 prósent í flugfélaginu. Pálmi segir hluthafa hafa greint á um stefnu í félaginu. „Flug- rekstrardeild FlyMe var stærsta vandamál félagsins að okkar mati og við höfum viljað leggja hana niður,“ segir hann en bætir við að Fons hafi haft mikla trú á FlyMe, sem skilaði 632 milljóna króna tapi á fyrsta ársfjórðungi, að mestu vegna aukins kostnaðar í flugrekstri. Nokkrar breytingar þóttu nauð- synlegar til að bæta rekstur félagsins, að mati Pálma. Meðal annars með kaupum á litháenska flugfélaginu FlyLal og breska leiguflugfélaginu Astreus. En sættir náðust ekki. „Það urðu átök á milli þessara tveggja hluthafa. Við vildum kaupa þá út en þeir vildu ekki selja. Niðurstað- an varð sú að þeir gerðu okkur til- boð sem við gátum ekki hafnað,“ segir Pálmi. Kaupverð er trúnað- armál en Pálmi staðfestir að Fons hafi hagnast á viðskiptunum. Pálmi vildi ekkert gefa upp um næst skref hjá Fons. Tækifærin væru mýmörg á sviði ferðaþjón- ustu og smásölu í Skandinavíu og Bretlandi og myndi félagið halda áfram að einbeita sér að þeim. - PÁLMI HARALDSSON Fjárfestingarfélag í eigu Pálma hefur selt alla hluti sína í sænska lággjaldaflugfélaginu FlyMe. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Fons selur hlut sinn í FlyMe Svo getur farið að Landsflug verði á næstunni að segja upp stærstum hluta eða öllu starfsfólki vegna verkefnaskorts. Rúnar Árnason, framkvæmda- stjóri félagsins, segir framtíðina velta á því hvort útboðssamningur við ríkið um áætlunarflug verði endurnýjaður. Hann segir allt líta út fyrir að aðrir fái samninginn og því sé nauðsynlegt að leita leiða utan landsins til að tryggja rekst- ur Landsflugs. Landsflug sagði um síðustu mánaðamót upp sautján manns, öllum starfsmönnum viðhalds- deildar og fimm flugmönnum. „Nú er verið að finna lausn á málum annarra starfsmanna en við sjáum ekkert í hendi hér á landi,“ segir Rúnar. Landsflug er nú með sautj- án starfsmenn, mest flugmenn. Flugfélagið var stofnað fyrir þremur árum og yfirtók rekstur innanlandsdeildar Íslandsflugs ári síðar. Félagið rekur þrjár flugvél- ar hér og hefur sinnt innanlands- flugi til Hafnar í Hornafirði, Gjög- urs og Bíldudals. - jab EIN AF VÉLUM LANDSFLUGS Fram- kvæmdastjóri Landsflugs segir verkefna ef til vill verða leitað í útlöndum. Líkur á frekari uppsögnum Alexander Lebedev, einn af stærstu hluthöfum rússneska flugfélagsins Aeroflot, vísar því á bug að skrifað hafi verið undir samning um kaup á 22 farþega- flugvélum frá Boeing og jafn- mörgum vélum frá Airbus. Þetta er þvert á það sem Valery Okulov, forstjóri flugfélagsins, sagði í síðustu viku er hann skýrði frá því að félagið hygðist kaupa 44 vélar á árunum 2010 til 2016. Lebedev sagði félagið hafa kannað kaup á vélunum en fjar- stæða væri að fullyrða að þeim væri lokið. „Það væri óskhyggja. Við höfum enga hugmynd um það hvað stjórnvöld hyggjast gera,“ sagði hann en fyrirtæki hans á þrjátíu prósenta hlut í Aeroflot á móti rússneska ríkinu. - jab Endurnýja ekki flugflotann Og Vodafone hefur tekið í notkun setningabókina Made in Iceland í Vodafone live. Bókin gefur við- skiptavinum fyrirtækisins kost á að skoða og þýða yfir fimm hundr- uð setningar á þrettán tungumálum í farsímum sínum. Símafyrirtækið segir að hvert tungumál hafi nítján flokka og hver þeirra hafi þrjátíu sjálfstæðar setn- ingar sem auðvelt sé að þýða yfir á annað tungumál. Flokkarnir nítján hafa hver sitt einkenni, en meðal flokka eru til dæmis gisting, við- skipti, tónlist eða samskipti. Með þessari flokkun eiga notendur auð- veldlega að geta fundið sömu setn- ingu á öðru tungumáli hvort sem bókin er notuð eða síminn. Greidd- ar eru 99 krónur fyrir vikuaðgang að bókinni en í hverri áskrift eru innifalin þrjátíu SMS. - jab Setningabók frá Og Vodafone Jens Stoltenberg, forsætisráð- herra Noregs, segir í samtali við norska dagblaðið Dagsavisen koma til greina að norska ríkið kaupi hluti sænska og danska rík- isins í norræna flugfélaginu SAS. Markaðsvirði hlutanna er sagt nema 8,1 milljarði norskra króna eða jafnvirði 87 milljarða íslenskra króna. SAS er skráð í OMX-kauphöll- ina. Sænska ríkið á 21,4 prósenta hlut í félaginu en danska ríkið á 14,3 prósent líkt og norska ríkið. Almennir hluthafar eiga afgang- inn eða helming hlutafjár. - jab Norska ríkið horfir til SAS FARSÍMI MEÐ SETNINGABÓKINA Made in Iceland hefur að geyma fjölda algengra setninga á 13 tungumálum. edda.is Íslensku barnabóka- verðlaunin 2006 Háski og hundakjöt Þegar Aron fer með pabba sínum til Kína órar hann ekki fyrir þeim ævintýrum sem bíða hans. Kínversku borgirnar eru yfirþyrmandi stórar og mannmergðin mikil - svo ekki sé talað um matinn sem er býsna frábrugðinn því sem Aron er vanur ... Háski og hundakjöt er fyrsta bók Héðins Svarfdals Björnssonar en hún er að mati dómnefndar mjög trúverðug samtímasaga sem lýsir upplifun íslensks unglings á framandi aðstæðum á raunsæjan og skemmtilegan hátt. Sagan af undurfögru prinsessunni og hugrakka prinsinum hennar Dag einn fæðist undurfögur og ljúf prinsessa í fjarlægu konungsríki. - Æ, höfum við ekki heyrt þetta áður? - Ónei! Hér er eitthvað alveg nýtt á ferðinni! Stórskemmtilegt samspil texta Margrétar Tryggvadóttur við myndir Halldórs Baldurssonar gera þessa bók einstaka sem kemur lesandum sífellt á óvart.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.