Fréttablaðið - 29.09.2006, Qupperneq 25
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Kaffistofan Lóuhreiður er sérstakt
kaffihús í gamla Kjörgarði
Í gamla Kjörgarði er rekinn kaffistofan
Lóuhreiður. Klara Sigurbjörnsdóttir hefur
rekið kaffistofuna í fimm ár og segir kúnna-
hópinn margbreytilegan þó flestir sem
þangað koma séu þrjátíu ára eða eldri. „Svo
kemur mikið af mæðrum hingað með börn-
in sín enda er Lóuhreiðrið eitt af fáum
kaffihúsum í borginni þar sem hægt er að
keyra vagninn beint inn. Svo eru hérna
svalir sem vagnarnir geta staðið á meðan
börnin sofa. Fyrir utan það er reyklausa
svæðið mjög stórt og afmarkað. Hingað
koma reyndar alls konar hópar. Til dæmis
kemur reglulega hópur af konum sem spila
þá gjarnan við hver aðra. Kaupa sér smörre-
bröd og bjór með,“ segir Klara og bætir við
að margir sitji bara með kaffið sitt og lesi.
„Þetta er svolítið öðruvísi kaffihús. Hér
eru til dæmis engar „fansí“ innréttingar,
allt er heimatilbúið, allar kökur bakaðar á
staðnum og maturinn mjög heimilislegur.
Bökurnar gerum við til dæmis alveg frá
grunni en baka með salati og te eða kaffi á
eftir kostar 900 krónur. Við bjóðum líka
upp á heitan heimilsmat á borð við steikta
ýsu og íslenska kjötsúpu í hádeginu.“ Klara
gefur lesendum Fréttablaðsins uppskrift
af góðum fiskrétti sem birt er innar í blað-
inu. Um uppskriftina segir Klara að hún
hafi eiginlega sprottið úr hennar eigin
huga.
„Ég elda mikið fyrir fólk sem hugsar
um hollustuna. Til dæmis fólk sem er á
danska kúrnum, fólk sem er með hveitió-
þol eða eitthvað í þeim dúr. Við karlinn
minn reynum líka að halda í hollustuna.
Borðum fisk fjórum sinnum í viku og mikið
grænmeti með. Þetta kallar á að maður
þarf að virkja sköpunarkraftinn til að finn-
ast maður ekki alltaf vera að borða það
sama.“ Auk fiskréttarins gefur Klara upp-
skrift að marengstertu sem hefur um ára-
bil verið einn vinsælasti rétturinn á Lóu-
hreiðrinu og þetta er í fyrsta sinn sem
leyndardómi þeirrar ljúffengu tertu er
ljóstrað upp.
Uppskriftir Klöru er að finna á síðu 3.
mhg@frettabladid.is
Allt heimatilbúið
Klara Sigurbjörnsdóttir rekur kaffistofuna Lóuhreiður í Kjörgarði en þar er viðskiptavinahópurinn fjölbreyttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GÓÐAN DAG!
Í dag er föstudagurinn
29. september, 272. dagur
ársins 2006
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 7.31 13.18 19.04
Akureyri 7.16 13.03 18.47
Nóatún býður viðskiptavinum
sínum nú upp á heita rétti til að
taka með heim í hádeginu eða
á kvöldin. Úrvalið er fjölbreytt
og hægt er að velja um ýmsa
heilsu-, kjöt-, fisk-, pasta- og
núðlurétti.
Te og kaffi hefur sett þrjár nýjar
kaffitegundir í 400 gr umbúðum
á markað. Tegundirnar eru Java
Mocca, Columbia Santos og
Espresso Roma en kaffið fæst
bæði malað og ómalað.
15 prósenta afsláttur er nú
af nýjum vörum í versluninni
Mira art húsgögn í Bæjarlind. Í
versluninni má einnig fá valdar
eldri vörur með 40-60 prósenta
afslætti.
30 prósenta afsláttur er á öllum
vörum í Dressmann fram á
sunnudag.
ALLT HITT
[ MATUR TILBOÐ ]
ÍSLENSK OSTAFRAMLEIÐSLA VERÐUR KYNNT Á OSTADÖGUM
2006 Í VETRARGARÐINUM Í SMÁRALIND UM HELGINA.
Það er á laugardag klukkan ellefu sem opnað verður inn í
Vetrargarðinn þar sem íslenskir ostaframleiðendur munu kitla
braððlauka gesta. Nýjungar verða kynntar og má nefna Delfi sem
er nýr smurostur frá MS Blönduósi, gottamysing frá Norðurmjólk
og nýja súkkulaðiostaköku og jalapeño-ost frá Osta- og smjörsöl-
unni. Auk þess verður fjölmargt fleira á boðstólum sem vert er að
skoða og smakka.
Ostaveisla
Ostar eru sannkallað góðgæti. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
KANNTU SPELT-
BRAUÐ AÐ BAKA
Mikjálsbrauð Guðmund-
ar í Brauðhúsinu
MATUR 2
KÍNVERSKT LOSTÆTI
Dim sum-soðkökur,
þykja hreinasta
lostæti
MATUR 5