Fréttablaðið - 29.09.2006, Page 27
Skötuselur í
teryaki
800 g skötuselur eða annar fiskur
1/2 dl teryaki-sósa og 1/2 dl sojasósa
3-4 hvítlauksrif
1 1/2 msk. saxað ferskt engifer
lime
baby gulrætur
brokkolí
steinselja
rauðlaukur
snjóbaunir
rautt chili
Hreinsið og skerið skötusel í litla bita.
Látið liggja í legi með safanum úr lime
ávextinum, teryaki, sojasósu, engifer og
hvítlauk í a.m.k. klukkustund. Snögg-
steikið fiskinn á pönnu og takið til
hliðar. Steikið allt grænmetið í leginum af
fiskinum og byrjið þá á því grænmeti sem
tekur mestan tíma eins og gulræturnar og
brokkólí. Raðið fisknum ofan á og látið
hitna í 3 mínútur á pönnu. Berið fram
með salati og hrísgrjónum.
Marengsterta
lóunnar
5 eggjahvítur
400 g púðursykur
Stífþeytið í fimmtán til tuttugu mínútur
og bætið kúfaðri teskeið af lyftidufti út á
í restina.
Sett í tvö hringlaga form og bakað á 100
gráðum í 3 1/2 klukkustund. Slökkvið á
ofninum og látið kökuna kólna þar inni.
Á milli er settur hálfur lítri af rjóma með
súkkulaðispæni. Rjómi ofan á og ávextir
eða annað skraut að eigin vali.
uppskriftir Klöru }
Sitthvað um spelt
■ Spelt (Triticum spelta) er sérstök korntegund, en af
sömu ættkvísl og hveiti. Það býr yfir ýmsum eiginleikum
sem gerir það verulega frábrugðið hveitikorni.
■ Speltkornið losnar ekki frá hisminu við þreskingu
eins og hveiti, sem gerir það erfiðara í allri meðhöndlun
og þar með dýrara. Kostirnir eru m.a. að hismið veitir
ákveðna vörn gegn óæskilegum umhverfisáhrifum.
■ Í speltinu er næringin dreifð um allt kornið en í
samanburði er mjölkjarninn í hveiti fremur steinefna-
snauður. Því er sigtað speltmjöl mun heppilegri kostur
en hvítt hveiti.
■ Spelt inniheldur mikið prótein og þar af nokkuð af
glúteni. En margir sem eru viðkvæmir fyrir hveiti-glúteni
virðast þola speltið ágætlega.
■ Speltmjöl og sigtað spelt er hægt að nota í staðinn
fyrir heilhveiti og hveitimjöl í flestum uppskriftum.
Skötuselur í teryaki- og lime-sósu að
hætti Klöru í Lóuhreiðrinu.
FÖSTUDAGUR 29. september 2006
Nýtt frá Te & Kaffi
Te & Kaffi býður nú þrjár nýjar kaffitegundir í hagkvæmum 400 gr.
umbúðum, Java Mocca, Colombia Santos og Espresso Roma.
Þrjár gæðablöndur, malað og baunir á sama verði.
Þú finnur kaffi við þitt hæfi frá Te & Kaffi í verslunum um land allt.
R
O
YA
L
stundin - bragðið - stemningin
Ver› fyrir einrétta Ver› fyrir tvírétta
Okkar róma›a humarsúpa 990
Steiktur skötuselur 3.390 4.390
me› hvítvínssósu
Kjúklingabringa 2.950 3.890
,,a la Italiana“
Lambafillet 3.390 4.390
me› sherrybættri sveppasósu
Nautalundir
me› Chateubriandsósu 3.700 4.690
Súkkula›ifrau› 790
Einnig úrval annarra rétta á ,,a la Cartse›li“
~
~
~
~
~
Þriggja rétta matseðill
Veitingahúsið Madonna / Rauðarárstíg 27-29
Borðapantanir í síma 562 1988 • Madonna síðan 1987 • www.madonna.is
Verð fyrir þrírétt