Fréttablaðið - 29.09.2006, Page 31
FÖSTUDAGUR 29. september 2006 7
Kjötbollur með
rabarbarasultu
EINS OG MAMMA GERÐI
Með síaukinni fjölbreytni í matar-
menningu Íslendinga vill gamli góði
maturinn sem mamma eldaði alltaf
stundum gleymast.
Oft á tíðum er um auðvelda og
ódýra rétti að ræða sem eru fullir af
orku og næringarefnum. Hér á eftir
fylgir uppskrift að kjötbollum upp á
gamla mátann sem dugir fyrir einn í
tvö mál, nú eða tvo í eitt mál ef þú
vilt bjóða mömmu í mat.
Hráefni og áætlað verð*:
250 g kjöthakk (340 kr.)
1/2 laukur smátt saxaður (30 kr)
1 stk. egg (6 stk. á 196 kr.)
Til í skápnum:
3 msk. hveiti
2 msk. brauðrasp
1 msk. kartöflumjöl
1/2 glas af mjólk
1/2 tsk. kød & grill (eða eftir smekk)
1/2 tsk. hvítlauksduft (eða eftir
smekk)
1/2 tsk. salt (eða eftir smekk)
Aðferð:
Hrærið öllu saman. Setjið ólífuolíu
á pönnu og hitið. Mótið bollurnar
með matskeið og steikið á báðum
hliðum. Hellið svo 1/2 glasi af vatni
á pönnuna og látið sjóða í 3-5
mínútur.
Tillaga að meðlæti:
Rabarbarasulta (250 kr.*)
Soðnar kartöflur
Brætt smjör
Soðið kál
*Algengt verð, ekki endilega það lægsta.
einn í mat }
Kjötbollur eru kostafæði og einfalt að
elda þær.
Á netinu er að finna vef-
síðu sem útvegar þér
uppskriftir. Þetta væri
svo sem ekki í frásög-
ur færandi nema fyrir
það að þessi vefsíða
segir þér ekki hvað þú
átt að kaupa í uppskrift-
ina, heldur gerir hún
uppskriftir úr því sem
er þegar til í ískápnum
þínum.
Vefsíða þessi heitir Cooking
by numbers, eða eldað eftir
númerum, og sá sem stendur á
bak við hana er matgæðingur að
nafni Tom Tuke-Hastings.
Á vefsíðunni er einfalt forrit
sem gerir uppskriftir úr því sem
þú átt fyrir í búri og ísskáp og
þegar síðan er opnuð er boðið
upp á valkosti af matvælum sem
þú hakar við. Sem dæmi má
nefna að eigir þú beikon, egg,
epli, lauk og ost í ísskápnum og
um leið og þú hefur hakað við
þessa valkosti, þá setur forritið
saman uppskriftir sem þú getur
nýtt til að gera eitthvað gómsætt
úr. Svo nú er bara að kíkja í
ísskápinn, fara svo á netið og
finna uppskrift að góðum rétti
úr t.d. sveppum, appelsínum,
salati og hunangi.
mhg@frettabladid.is
Eldað úr afgöngum úr ísskápnum
Sagan segir að ekki megi setja heitan
mat beint inn í ísskáp heldur eigi að
leyfa honum að kólna fyrst. Þetta er
einfaldlega rangt.
Það er ekkert athugavert við það
að setja heitan mat í kæli og þvert á
móti gefur það bakteríum aukinn tíma
að vinna á matnum ef hann fær að
standa við stofuhita. Best er að koma
matnum sem fyrst í kæli og skiptir þá
engu máli um hvað er að ræða.
Heitur matur
beint í ísskáp
Það er ekkert að því að setja heitan mat
í ísskáp.
C M Y CM MY CY CMY K
*Miðað við innflutning á sykri árið 2005 og áætlaða heildarsölu á harðfiski á Íslandi á ársgrundvelli.
Þá innbyrðir þú 136 grömm af sykri á dag, en aðeins 1 gramm af hollum
og góðum harðfiski eða bitafiski*
Engin
rotvarnarefni
Náttúrulegt Prótín
Omega 3 fitusýrur
Steinefni
Frostþurrkað
Kaloríusnautt
Gæðafiskur
Fæst í 10-11,
Hagkaup og
Skeljungsbúðunum
Gullfiskur
Fæst í Bónus
ES
SE
M
M
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI