Fréttablaðið - 29.09.2006, Blaðsíða 42
SIRKUS29.09.06
10 tíska
tískumolar
Helgu Ólafsdóttur
Dönskukunnátan
batnar
Ég mæli með
dönskum tísku-
tímaritum, það
besta er Euro-
woman. Það er
ótrúlega vel
heppnað tímarit.
Tískusíðurnar og
-þættirnir eru allt-
af góð blanda af
Louis Vuitton og H&M. Umfjallanir um förðun
eru frábærar og henta einstaklega vel þeim
fáu íslensku konum eins og mér sem ekki
hafa lært förðun. Greinarnar eru vandaðar,
skemmtilegar og oftar en ekki fróðlegar, svo
ég tala nú ekki um hvað dönskukunnáttan
batnar við lesturinn.
Hvar er draumur-
inn?
Ef þú vilt
sleppa við
fölva og
bauga
þá veit
ég
hvað er
til ráða.
Þetta
er mjög
einfalt;
góður
svefn er
eitt stærsta
og ódýrasta
fegrunartrix sem til
er. Ekki hanga fyrir framan tölvuskjáinn fram
eftir nóttu. Farðu í uppáhaldsnáttfötin þín,
finndu þér gott koffínlaust te og skemmti-
lega bók til lestrar og slakaðu á fyrir
svefninn og þú svífur inn í draumalandið.
Chanel er þekkt
fyrir klassísk-
ar töskur
með
keðjuól.
Öll
helstu
tísku-
merkin
hafa nú
komið
keðjum í
mismun-
andi
grófleika
fyrir á töskum
sínum.
Hugsaðu um uppáhalds-kósí peysuna sem
kærastinn þinn á!! Peysuna sem þú stelst í
þegar hann er ekki heima. Þar sem leggings
og peysur í yfirstærðum eru alveg málið
þessa dagana er best að þú farir og kaupir
flotta peysu handa kærastanum. Þú færir
honum gjöfina og gerir samning við hann um
að þú fáir peysu að eigin vali úr skápnum
hans í staðinn. Auðvitað getur hann ekki stað-
ist þetta boð. Þú hefur slegið tvær flugur í
einu höggi, kærastinn er massa sáttur og þú
hefur eignast uppáhalds-kósí peysuna hans.
Klæddu karlinn
Heklaðir púðar og
blúndubjarmi
Allt í keðjum
Það er alveg nauðsynlegt
að hafa fínt hjá sér þegar fer
að hausta. Ég mæli eindreg-
ið með versluninni Egg á
Smáratorgi sem var opnuð
um síðustu helgi. Þar úir og
grúir af smávöru á rosa fínu
verði. Ég rakst til dæmis á
fallega heklaða hringpúða
og litla kertastjaka með
blúndumunstri, alveg krúttó
og kósí.
Í Egg fæst nánast allt til að innrétta heimilið og fegra út frá eigin smekk.
Úrvalið er hreint ótrúlegt og möguleikarnir endalausir.
Margir hafa afar einhæf-
an svartan fatasmekk.
Það er í lagi, en ég mæli
með köflóttum jakka
eða kápu til að hressa
upp á svertuna. Ég hef
séð endalaust mikið af
stórköflóttum flottum
vetraryfirhöfnum í versl-
unum þessa dagana.
Ekki bíða of lengi, þá
verður allt það flottasta
búið. P.S.: Ég læt hérna
fylgja með mynd af köfl-
óttum ullarnærbuxum,
sexí ... hvað finnst þér?
Hressilegir kaflar