Fréttablaðið - 29.09.2006, Page 46

Fréttablaðið - 29.09.2006, Page 46
SIRKUS23.08.06 Andlát NFS hafði ýmislegt jákvætt í för með sér. Akureyringar geta til- dæmis loksins aftur náð X-inu 977, á tíðninni 90,9. Ljóst er að þetta á eftir að hafa jákvæð áhrif á bæjarfélagið. En á meðan X-ið var ekki í loftinu fyrir norðan jókst alda ofbeldis og fíkniefna til mikilla muna í þessu ágæta Bæjarfélagi, enda lítið annað að gera þegar fólki er boðið uppá viðbjóð eins og FM og Rás 2. Er það vona allra að með þess- ari viðbót við ljósvakamenningu Akureyringa eigi fréttir af ung- mennum bæjarins eftir að verða á jákvæðari nótum en Þetta helsta „Núna er ég að byrja mína aðra viku í laxinum og þið sem haldið að ég sé eitthvað vangefin að vera á þessum laxi þá er frétt um þetta í Fréttablaðinu á laugardaginn síðasta um að þetta sé mjög góð megrunarað- ferð og er eng- inn annar en Sverrir Þór Sverr- isson aka Sveppi að fara að prófa þetta. þið hin getið ekki verið minni menn þannig að endilega prófið þetta ;) þið sem hafið verið að prófa allar megrunar- aðferðir og hafið ekki prófað þessa verðið að prófa þetta líka, og þið munuð sko ekki sjá eftir þvi. það er hægt að missa allt að eitt kíló á dag á þessu.“ ithrottaalfurinn.minnsirkus.is Ölvaðir elgir valda usla í Svíðþjóð „Umsátursástand skapaðist á elliheimili í Suður-Svíþjóð á dögunum þar sem tveir ölv- aðir elgir, kvíga og kálfur hennar, héldu heim- ilismönnum í gíslingu. Elgirnir komust í gerjuð epli fyrir utan heimilið og líkaði þau svo vel að þeir neituðu að fara þegar lögregla reyndi að reka þá burt. Það var ekki fyrr en lög- regla kallaði til veiðimann og hund hans að elgirnir létu segjast enda varla þess virði að fórna lífinu fyrir nokkur ölvandi epli. Restin af eplunum var svo fjarlægð hið snarasta til þess að hinir ölvuðu óeirðaseggir sneru ekki aftur.“ veran.minnsirkus.is „Maður hefur ekki mikla lyst á að vera í 6 földum tíma á mánu- dagsmorgnum, sér- staklega þegar kenn- arinn hefur hrikalega svæfandi rödd.“ 8villtur.minnsirkus.is um helgina 1 2 3 1 FM957 2 3 Minnsirkus.is blogg vikunnar Vertu þarna ...Horðu á þetta ... FROSTI MÆLIR MEÐ HEIÐAR MÆLIR MEÐ SCISSOR SISTERS I Don‘t Feel Like Dancing „Svei mér þá ef þetta er ekki bara eitt af þessum lögum sem fær mann til að brosa út í annað og jafnvel dilla sér smávegis.“ TRABANT The One ( Remix ) Góður dansfílingur í þessu lagi en Trabant er bara frábær hljómsveit að mínu mati. Allir að tékka á plötunni „Emotion- al“ hún er frábær út í gegn. PINK U + Ur Hands Það er ekki hægt að búast við öðru en að Pink kæmi með hittara en hún hefur auðvitað fært okkur frá- bær lög í gegnum tíðina. Lagið fjallar um að strákar eigi að fara heim og leika við félagann í stað þess að reyna við Pink. ANDLÁT NFS - X-IÐ STÆKKAR verið hefur undanfarið. Til að fagna þessu mun X-ið 977 ásamt Brain Police bjóða til veislu á Sjallan- um. Akureyringarnir í Nevolu- tion munu sjá um upphitun áður en Brain Police mun stíga á svið og leyfa hlustend- um að heyra lög af meistara- stykkinu Beyond the Wasteland. Miðaverð er skítinn 1000 kall og hefst gleðinn uppúr miðnætti. Xið 977 næst nú einnig í Vestmanna- eyjum á tíðninni 90,4 og á ísafirði á tíðninni 90, Flottir Nú geta norðanmenn hlustað á Frosta og Mána á X-inu. SPRENGJUHÖLLIN Cant Dance „Grípandi Indie pop með sniðug- um texta, þetta band er að virka.“ MY CHEMICAL ROMANCE Welcome to the Black Parade „Poppað rokk með keyrslu og tilfinningu. Það getur ekki klikk- að.“ VERA Triangular Forms „Unglinga angist úr Breiðholt- inu bakkað upp með þéttu gít- arrokki, fullkomin blanda.“ 14 Sirkustv DAVE CHAPELLE – ENGUM LÍKUR Á fimmtudögum klukkan 22:00 eru sýndir þættir á sjónvarpsstöðinni Sirkus sem slegið hafa í gegn. Þar er fyrsta flokks grin í boði Dave Chapelle. Þættirnir slógu í gegn í Bandaríkjunum og er fyrsta serían af þáttunum mest seldi DVD diskurinn þar í landi. Önnur serían náði hrikalegum vinsældum og var honum boðið 55 milljónir bandaríkjadollara fyrir tvö ár í viðbót. Við tökur á þriðju seríunni stakk hann hinsvegar af til Afr- íku og ekkert varð að milljónunum. Ástæðan mun vera sú að vinnuumhverfi þáttanna var svo stressandi. Dave Chapelle er líklega eini maðurinn í heiminum sem auglýsir bæði Pepsi og Coke. Idolið hans í gríninu, Richard Pryor, sagði skömmu fyrir andlát sitt að Chapelle hefði tekið við kyndlinum. Fylgist með þessu. Dave Chappelle Findinn gaur á SirkusTV. Hljómsveitin Á móti sól og Magni ætla að sameinast annað kvöld á Broadway. Sveit- in hefur ekki leikið með Magna síðan 17.júní en nú getur landinn séð rokkstjörnu Íslands á Íslandi. Eftir glæsta sigra í Bandaríkjunum ætlar hún Dilana sem lenti í öðru sæti í Rockstar Supernova að koma fram. Sirkus mælir því sterk- lega með því að þú verðir þarna. Nú er myndin um hana Rauðhettu litlu komin út á DVD um land allt. Mikið hefur verið talað um þessa 80 mínútna mynd sem ber heitið, Rauð- hetta eins og þú hefur aldrei séð hana áður. Úrvalið á Íslandi ljáir persónunum rödd sína í íslensku útgáfunni. Má þar helst nefna Örn Árnason sem fer á kostum sem skógarhöggsmaðurinn og Birgitta Haukdal sem kemur á óvart sem Rauðhetta litla. Svo er auðvitað hægt að sleppa því að horfa á hana með krökkunum og stilla bara yfir á enska talið. Sirkus mælir með að allir rifji upp söguna um Rauðhettu litlu. „Við erum reyndar allir úr MH en vorum ekkert í neinni hljómsveit þá,“ segir Bergur Ebbi Bene- diktsson úr hljómsveit- inni Sprengjuhöllinni sem vakið hefur mikla athygli undanfarið. Strák- arnir eru allir útskrifaðir en spila á tónleikum lista- félagsins í Norðurkjallara í kvöld. Þeir syngja jafnt á íslensku sem ensku og þykja feikilega skemmti- legir á tónleikum. „Það er samt ein pæling sem ég hef verið að reyna að koma inn í hljómsveitina. Þetta snýst náttúrulega mest um músíkina en líka um að líta vel út og vera með sinn eigin stíl. Það er oft eitt skilningarvit sem gleymist svolítið á tón- leikum og það er ekki snerting heldur lykt,“ segir Bergur sem hefur reynt að fá Sprengjuhöll- ina til þessa keyra meira á lyktarskyn áhorfenda. „Pælingin er semsagt sú að vera alltaf með ákveðna lykt á tónleikum hjá okkur, sem væri einhverskonar „gun-pow- der“ lykt, og yrði þá okkar vörumerki. Maður verður samt að passa sig að þetta sé engin skítalykt.“ Bergur hefur meira að segja komið með hugmynd að því hvernig mætti framkvæma lykt Sprengjuhallarinnar. „Ég þekki sko strák í efna- fræði og ætla að fá hann til þess að redda einhverjum efnum sem hægt er að blanda saman og þá gýs upp þessi lykt. Þetta mega samt ekki vera einhver ólögleg efni sem hægt er að bösta okkur með ef við spilum til dæmis erlendi. Sprengjuhöllin pælir mest í músíkinni að sögn Bergs en leggur einnig mikinn metnað í textana. „Hárið skiptir samt miklu máli hjá okkur.“ Liðsmenn Sprengjuhallarinn- ar eru afkomendur merkra listamanna. Georg bassa- leikari er til dæmis sonur org- anistans í Skálholti sem eitt sinn var í hinum einu sönnu Þeysurum. „Svo er pabbi hans Snorra, Helgi Pé.“ Það má því búast við sterkri púðurlykt í Norðurkjallara MH í kvöld þar sem Sprengjuhöll- in mætir á æskuslóðirnar, vel greiddir en þó með tónlistina í fyrsta sæti. BERGUR EBBI OG HLJÓMSVEITIN SPRENGJUHÖLLIN SPILA Í NORÐURKJALLARA MH Í KVÖLD Lyktarskynið er vanmetið Hvar: Norðurkjallari MH Hverjir: Hjaltalín, Búdrýgindi, Retro Stefson Frítt: Já Bergur Ebbi Benediktsson Er í hljómsveit- inni Sprengju- höllin sem leikur í Norðurkjallara í kvöld.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.