Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.09.2006, Qupperneq 59

Fréttablaðið - 29.09.2006, Qupperneq 59
FÖSTUDAGUR 29. september 2006 27 BRÉF TIL BLAÐSINS 2 fyrir2000 þetta er aðeins brot af úrvalinu! 2 fyrir 2.000 tilboðið er fáanlegt í öllum betri plötuverslunum um land allt Nýjar plötur í 2 fyrir 2000 Þú velur 2 plötur og borgar samtals aðeins kr. 2000 Red Hot Chilli Peppers Blood Sugar Magic Rod Stewart Story So Far Frank Sinatra My Way, Best Of Madonna Greatest Hits Vol. 2 Robbie Williams Greatest Hits Queen Greatest Hits Coldplay X&Y Green Day International Superhits Depeche Mode Playing The Angel James Blunt Back To Bedlam Eagles Very Best Of Johnny Cash American Recordings Cream Royal Albert Hall 2005 Michael Buble It’s Time REM In Time…Best Of Eric Clapton 24 Nights Damien Rice O Chris Rea Best Of KT Tunstall Eye Of The Telescope Iron Maiden Greatest Hits Umræðan Ingvar Hallgrímsson svarar Hannesi H. Gissurarsyni. Í Fréttablaðinu hinn 18. ágúst ritar Hannes Hólmsteinn Giss- urarson grein um hryðjuverka- varnir á Keflavíkurflugvelli og lýsir þar einum möguleika á hryðjuverki, „sem hefði getað komið fyrir“ að hans dómi, en mér virðist mjög langsótt, ef ekki algjörlega óraunhæft. Hannes hugsar sér, að tíu bandarískar þotur ættu að fara á loft samtímis frá Bretlandi til Ameríku. Þar um borð væru hryðjuverkamenn, sem laumuðu „eldfimum efnum með handfar- angri sínum um borð“ til sprengju- gerðar, og eiga að sprengja þot- urnar tíu samtímis til að hindra gagnráðstafanir. Þoturnar urðu fyrir töfum og fóru ekki í loftið á sama tíma í þessu dæmi Hannesar (þó nú ekki væri) og „og hefðu aðgerðirnar (því) ekki orðið allar samtímis“. Hryðjuverkamönnun- um „hefði tekist að sprengja þrjár þotur upp“. Flugstjórum hinna sjö þotna, sem eftir voru hefði borist vitneskja um ódæðin „og ákveðið að lenda tafarlaust á næsta flug- velli“ þ.e. í Keflavík. Átök hefðu þá orðið í þessum sjö þotum, og hefði hryðjuverkamönnunum tek- ist að ná þremur þeirra á vald sitt og grandað þeim, „en sérþjónustu- menn, farþegar og áhöfn í fjórum öðrum (þotum) gátu varist“ og lentu þær þotur á Keflavíkurflug- velli. Með öðrum orðum: Farþegar og áhöfn – ásamt ótilgreindum „sérþjónustumönnum“ – í þessum fjórum þotum yfirbuguðu hryðju- verkamennina, sem eftir lendingu hafa þá væntanlega verið leiddir úr vélunum í hendur lögreglu handjárnaðir, vendilega bundir og afvopnaðir. Svo spyr Hannes í grein sinni: „Hvaða viðbúnað hefðu íslensk stjórnvöld haft, þegar fjórar farþegaþotur með stórhættulega hryðjuverkamenn innanborðs hefðu lent á Keflavík- urflugvelli? Þetta dæmi, sem Hannes virð- ist búa til sjálfur, sýnir ekki stór- hættulega hryðjuverkamenn sem lenda á Keflavíkurvelli. Í þessu sambandi eru þeir tæpast stór- hættulegir eftir að hafa verið yfir- bugaðir í flugvélunum, en það var forsenda þess að lent var í Kefla- vík. Þær þotur sem voru á valdi hryðjuverkamanna lentu ekki í Keflavík og hefðu aldrei gert, þeim hefði verið grandað á flugi. Í fljótu bragði virðist því nokkuð langsótt, ef ekki óraunhæft, að telja, að íslensk stjórnvöld hefðu þurft að hafa sérstakan viðbúnað til að taka á móti glæponum, sem þegar var búið að yfirbuga og afvopna. Í dæmisögu sinni telur Hannes, að eftir að sjálfsmorðssveitunum hefði tekist að sprengja upp þrjár þotur, og að flugstjórum hinna sjö hafi borist vitneskja um það, hafi verið „ákveðið að lenda tafarlaust á næsta flugvelli“. Þá hefðu orðið „átök um borð í þotunum“ og glæp- onunum tekist að ná þremur þotum á vald sitt eins og greint er frá. Allt er þetta með miklum ólík- indabrag, því að hryðjuverka- mönnunum mátti vera alveg sama hverjir stjórnuðu þotunum. Hefðu glæponarnir getað laumað „eld- fimum efnum með handfarangri sínum um borð“ – eins og Hannes gerir ráð fyrir – eða á einhvern annan hátt, hefði ekki þurft nein slagsmál við áhöfn og farþega um yfirráð yfir þotunum. Hinum „eld- fimu efnum“ eða sprengjum hefðu ódæðismennirnir fjarstýrt úr sætum sínum – bara ýtt á einn hnapp – með bros á vör. Engu máli skipti, hverjir stjórnuðu vélinni, átök við áhöfn og farþega voru alveg óþörf. Þau hefðu aðeins vakið sérstaka athygli farþega á glæpalýðnum, allt hefði þá getað farið út um þúfur. Engu máli hefði heldur skipt, þótt beygt hefði verið af leið til Keflavíkur. Ef þessar tíu bandarísku far- þegaþotur Hannesar hefðu komist á loft með sprengjur og hryðju- verkamenn innanborðs, hefðu engin óþarfa átök orðið í þotunum, glæponarnir hefðu setið hinir róleg- ustu í sætum sínum með glasið sitt og ýtt á sprengjutakkann að tæmdu glasi. Sagan hefði ekki orðið lengri, ekki hefði þurft að hugsa til lend- ingar hvorki í New York né í Kefla- vík. Engir „sérþjónustumenn“ hefðu verið til nokkurrar hjálpar, hvorki í lofti né á jörðu. Eina von farþeganna er fólgin í vandaðri leit að öllu því, sem gæti komið hryju- verkamönnunum að gagni. Höfundur er fyrrverandi kenn- ari. Prófessorinn og hryðjuverkin Evran verði eitt hundrað krónur Lúðvík Gizurarson skrifar um gengis- lækkun Lækka ætti gengið á öllum gjald- eyri strax í dag og setja evruna í eitt hundrað krónur. Síðan yrði gengið sett fast og evran = eitt hundrað krónur. Við vorum áður oft bundnir fastir við dollara en fórum svo síðast yfir í þetta uppboðsgengi sem hækk- ar upp og niður. Dollarinn hefur verið 60 krónur og einu sinni fyrir nokkuð löngu fór hann yfir eitt hundrað krón- ur. Er í dag 70 krónur. Um leið og evran er sett í eitt hundrað krónur yrði lánskjara- vísitalan afnumin og allar vísitöluskuldir bannaðar. Ef fólk vildi taka erlent lán yrði það í evrum eða öðrum erlend- um gjaldeyri þar sem engin vísitala er. Vísitalan yrði bönnuð. Stýrivextir afnumdir en þá verður að afnema um leið og verðtrygging er bönnuð. Til að ráða framboði peninga yrðu lífeyrissjóðirnir fluttir í Seðlabankann en sjóðirnir eru 1200-1400 milljarðar. Stýrivextir Seðlabanka yrðu óþarfir og best að banna þá. Allir gætu fengið evrulán á evruvöxtum án vísitölu. Evruvextir eru mjög lágir, brot af stýrivöxtum. Þetta er allt hægt að gera á viku eða að minnsta kosti mánuði. Útfærslan er mikil vinna. Ekki yrði gengið í ESB enda tekur það mörg ár. EES dugar í bili. Útfærslan er flókin en aðallega vinna og ekki rædd hér. Fyrir nokkrum dögum vildu 47 pró- sent þjóðarinnar fá evruna í skoð- anakönnun. Þarna er bent á einfalda leið enda vann höfundur í tíu ár í viðskiptaráðuneyti á árunum 1965- 75. Það þarf að taka stýrivextina af Seðlabankanum. Svona er það hægt. Höfundur er hrl. LÚÐVÍK GIZURARSON Þetta dæmi, sem Hannes virðist búa til sjálfur, sýnir ekki stór- hættulega hryðjuverkamenn sem lenda á Keflavíkurvelli.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.